Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 84
84 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Hvers vegna sækir fólk í hjúkrun?
„Mannleg samskipti og það að skipta
máli,“ segir Ásta. „Svo er það fjölbreytnin,
vinnuumhverfið og þessi lífsfylling. Þetta er
svo gaman. Ég hef ekki unnið við hjúkrun í 30
ár en ég man enn þá eftir þessu og við eigum
allar einhverjar svona „success stories“, atvik
þegar maður fann að maður skipti máli. Það
koma upp í hugann einhver tilfelli þar sem
maður gaf af sér og fékk eitthvað til baka og
það er þetta sem er heillandi við starfið.“
Ingibjörg segir glettin: „Þessi spurning minnir
mig á þegar ég var að byrja í námi og við
skólasysturnar vorum spurðar að því af einum
kennara okkar: Er einhver ykkar hér sem fékk
köllun til að fara í hjúkrun? Ein skólasystir
mín sagði mjög alvarleg: „Ég fékk köllun.“ Þá
sagði annar nemandi sem ekki var jafnheilagur:
„Og hver kallaði á þig?“ Hún heldur áfram:
„Það sem kallar á fólk að fara í hjúkrun er að
fagið er svo skemmtilegt, fjölbreytt og gefandi.
Þú kemst svo nálægt kjarna manneskjunnar
og mennsku hennar. Starfið reynir mikið á
viljastyrkinn og löngun til að bæta. Margir
sem þurfa á okkar þjónustu að halda eru sem
opin und í hremmingum sínum og það er
ekkert eins gefandi og að geta komið til hjálpar
og kannski til bjargar. Finna að þú getur látið
einstaklingnum líða betur og jafnvel vel. Ég get
ekki hugsað mér meira gefandi starf. Ef ég væri
ung í dag kæmi ekkert annað nám til greina.
Ég veldi til dæmis ekki stjórnmálafræði – þrátt
fyrir að sá vettvangur hafi tekið drjúgan tíma
ævi minnar. En hjúkrunarstarfið var frábær
leiðsögn í pólitíkinni og reyndar lífinu sjálfu.“
„Ég held að það sé áhugi á mannlegum
samskiptum, samhygð og vilji til að láta gott
af sér leiða,“ segir Þuríður. Námið býður upp
á mjög fjölbreyttan starfsvettvang, önnur eins
fjölbreytni er vandfundin innan eins fags.
Hjúkrunarfræðingar eru einnig eftirsóttir í
störf utan heilbrigðisþjónustunnar og þangað
hafa margir leitað vegna betri launakjara
eða starfsumhverfis. Það er ekki hægt að
ganga lengur að því vísu að ungt fólk vinni
eingöngu af hugsjón og haldi tryggð við
einn vinnustað. Vinnu- og launaumhverfi
verður að vera eftirsóknarvert til að laða að
og halda í sérhæfða starfskrafta. Ef núverandi
ástand varir mikið lengur mun það fæla fólk
frá hjúkrunarnámi og hjúkrunarskortur
verður þá varanlegur með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum.“
Greinarhöfundur kveður þessar
sómakonur með þakklæti fyrir
ánægjulega stund og fyrir baráttuna
í gegnum árin. Þó að þær greini á í
pólitík virðast þær vera sammála um
hjúkrun.
Hrím hönnunarhús
• Laugavegi 25 og
1. og 2. hæð Krin
glunni • Sími 553
3003www.hrim.iswww.hrim.i
s
... og erum stolt af því
s. 554 4260 Vesturvör 11 200 Kópavogur
Blöð, bækur,
tímarit eða bara
hvað sem er,
við prentum...