Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 89
stofnanir og erlenda fræðimenn í hjúkrun til
þess að efla menntun hjúkrunarfræðinga og
uppbyggingu hjúkrunar á Landspítala. Hún
studdi við stofnun náms í hjúkrunarfræði við
Háskóla Íslands og hvatti hjúkrunarfræðinga
til að leita sér háskólamenntunar hérlendis og
erlendis.
Hún hafði frumkvæði að fjölmörgum
þróunarverkefnum innan hjúkrunar og má
þar nefna nýja nálgun og átak í skráningu
hjúkrunar, umbætur og breytingar
á skipulagsformi hjúkrunar, eflingu
starfsmanna- og sjúklingafræðslu með
stofnun fræðsludeildar og stöðu fræðslustjóra
sem og nýjar áherslur í sýkingavörnum
með innleiðingu á stöðu sýkingavarna-
hjúkrunarfræðings. Vigdís átti ríkan þátt
í stofnun líknardeildar og líknarteymis.
Hún studdi heils hugar ný lög um réttindi
sjúklinga sem tóku gildi árið 1997 og eftir
starfslok Vigdísar á Landspítala tók hún að
sér að kynna hin nýju lög fyrir starfsfólki og
sjúklingafélögum.
Fagurkeri og sterk fyrirmynd
Vigdís var fagurkeri og nutu sjúklingar og
starfsmenn góðs af því. Hún var vel meðvituð
um áhrif umhverfis á andlega og líkamlega
líðan og í daglegum heimsóknum sínum á
deildir spítalans kom það oftar en ekki fyrir
að hún lét orð falla um að hér þyrfti að mála,
hengja upp fallegt málverk eða fá fallegri
gardínur eða stóla. Og ekkert var ómögulegt
því Vigdís hafði ráð undir rifi hverju. Andleg
og trúarleg þjónusta var Vigdísi hugleikin
alla tíð og studdi hún markvisst ráðningu
presta til þjónustu við Landspítalann og átti
stóran þátt í að kapellur spítalans urðu að
veruleika á kvennadeild og á barnaspítalanum.
Dæmi um stórt og stefnumótandi verkefni,
sem Vigdís studdi allt frá því hugmyndin
fæddist, var að setja á fót stöðu sérfræðinga í
hjúkrun á Landspítalanum og sambýli þeirra
á Eiríksgötu 19. Margar þessara breytinga
sem urðu til og voru prófaðar og endurbættar
á Landspítalanum voru síðar teknar upp á
öðrum sjúkrahúsum á landinu. Þannig má
segja að áhrif Vigdísar sem farsæls leiðtoga
og stjórnanda hafi náð langt út fyrir veggi
Landspítalans.
Þegar hjúkrunarfræðingar eru spurðir hvers
þeir minnist sérstaklega varðandi Vigdísi
Magnúsdóttur nefna þeir oftast atriði sem
lýsa persónulegri hæfni hennar í samskiptum,
stefnufestu hennar sem stjórnanda, mildi
hennar, hógværð og því hversu mikilvæg
og dýrmæt fyrirmynd hún var. Þeir sem
þekktu Vigdísi persónulega skynjuðu sterka
trú hennar og trúarsannfæringu. Hún bað
fyrir samstarfsfólki sínu í leik og starfi og
þá sérstaklega í tilvikum þegar upp komu
ágreiningsmál eða flóknar ákvarðanir.
Eldmóður Vigdísar og hugsjón var smitandi.
Hún var atorkusöm og ráðagóð, glaðvær
og hláturmild, réttsýn og sanngjörn. Vigdís
kunni jafnvægislistina um að taka verkefnum
af alvöru en tók sjálfa sig ekki hátíðlega.
Vigdís var sterk fyrirmynd, föst fyrir og um
leið kærleiksrík. Með viðhorfum sínum og
einstakari forystu og stjórnun skildi hún eftir
dýrmæta arfleið til starfsmanna, sjúklinga og
samferðafólks.
Greinin byggist á samtölum við samstarfs-
fólk Vigdísar og persónulegum minnis-
blöðum hennar.
Menntun og störf
Vigdís Magnúsdóttir starfaði sem forstjóri
Landspítalans og áður sem hjúkrunarforstjóri
spítalans í 22 ár. Hún lauk námi frá
Hjúkrunarskóla Íslands árið 1956, var við
nám og störf á Presbyterian St. Lukes í
Chicago í Bandaríkjunum og lauk árið 1972
framhaldsnámi í spítalastjórnun við Norges
Höyere Sykepleieskole í Ósló. Vigdís starfaði
sem hjúkrunarfræðingur á skurðstofu St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði 1961-1970, á
skurðstofu St. Jósefsspítala í Kaupmannahöfn
1967, var aðstoðarforstöðukona Landspítalans
1970-1973, hjúkrunarforstjóri Landspítalans
1973-1995 þegar hún tók við starfi forstjóra
Landspítalans sem hún gegndi til ársins
1999. Árið 1999 var henni falið fyrir
hönd sjúkrahúsanna í Reykjavík að kynna
sjúklingum, aðstandendum og starfsfólki ný
lög um réttindi sjúklinga. Síðustu starfsárin
vann hún við hjúkrun á Sjúkrahóteli Rauða
kross Íslands.
Um lífshlaup Vigdísar, menntun,
starfsferil og trúnaðarstörf
Trúnaðarstörf
Vigdís gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum
á sviði heilbrigðis- og velferðarmála. Hún
sat í stjórn Krabbameinsfélags Íslands frá
1973 til 1999, síðan í heiðursráði félagsins
og var sæmd gullmerki þess. Hún var í stjórn
minningargjafasjóðs Landspítala frá 1988
til 2008, var formaður fagráðs Rjóðursins,
hvíldar- og endurhæfingarheimilis fyrir
langveik og langveik fötluð börn, 2003 -2009,
í skólanefnd Hjúkrunarskóla Íslands, kenndi
stjórnun þar og í Nýja hjúkrunarskólanum.
Vigdís fæddist í Hafnarfirði
19. febrúar 1931 og lést á heimili
sínu þar 25. apríl 2009.
Vigdís var heiðursfélagi Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga og var sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu. Vigdís var um
árabil í forystu í æskulýðsstarfi KFUM og
K í Hafnarfirði, var ein af brautryðjendum
Kristilegs félags heilbrigðiskvenna, formaður
félagsins 1964–1970, í stjórn Kristilegs félags
heilbrigðisstétta (KFH) og formaður KFH
1990–2003 og varaformaður 2003–2009.
Ásta Möller tekur sæti í stjórn Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 89