Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 91
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 91
það verksvið að semja, ásamt fulltrúum Fhh, drög að lögum hins nýja
félags er leit dagsins ljós í Borgarleikhúsinu 15. janúar 1994.
Eftirminnileg atriði í tilefni af 100 ára afmælinu
Straumhvörf urðu þegar félagið keypti hæðina að Suðurlandsbraut 22
árið 1987. Á fulltrúafundi það ár var samþykkt tillaga frá Reykjavíkur-
deildinni að tekið yrði 0,4% aukagjald af félagsmönnum er skiptist jafnt í
verkfallssjóð og til að ljúka við fundarsalinn í hinum nýju heimkynnum.
Áður höfðu gíróseðlar verið sendir út til félagsmanna þar sem óskað var
eftir frjálsum framlögum er yrði varið í húsakaupin.
Í tilefni af 70 ára afmæli Hjúkrunarfélagsins 1989 var ákveðið að
formaður gengi á fund borgarstjóra Reykjavíkurborgar og segði honum
hvernig hjúkrunarfræðingar hefðu sinnt allri heilsugæslu í borginni
löngu áður en opinber heilsugæsla tók til starfa. Borgarstjóri brosti þegar
fyrirlestri mínum lauk og spurði: „Hvað viltu, Sigþrúður?“ Ég svaraði
að bragði: „Sumarbústað við Úlfljótsvatn.“ Sumarbústaðinn fengum
við. Hinn 28. september 1990 bauð félagið hjúkrunarfræðingum og
gestum austur í rútu því nú skyldi vígja húsið og gefa því nafn. Sigríður
Björnsdóttir, er starfaði á skrifstofunni í fjölda ára, átti hugmyndina að
nafninu Bláskógar sem öllum fannst vel viðeigandi. Margar góðar gjafir
bárust og María Finnsdóttir fræðslustjóri gróðursetti þrjár birkihríslur.
Mikil framþróun hefur átt sér stað undafarinn áratug, stafræn bylting
litið dagsins ljós er gerir allt auðveldara, má þar nefna erlend samskipti.
Það er himinn og haf á milli þess tíma er við vorum að semja ásamt
Norðurlandafélögunum „Siðareglur fyrir hjúkrunarfræðinga er
stunda rannsóknir“ og blaðabunkinn var sendur landa á milli. Í dag
er öll skráning heilbrigðisþjónustu markvissari og auðveldari, réttur
einstaklingsins sterkari og mistök sýnilegri.
Þarfir þjóðfélagsins breytast. Við erum búin að fara í gegnum mikinn
samdrátt í heilbrigðismálum, öldruðum fjölgar hratt en fæðingum
fækkar. Markmiðið „Heilbrigði allra árið 2000“ náðist ekki þar sem m.a.
var reynt að setja fram ákveðna þætti um hjúkrunarstarfið, menntun,
rannsóknir og stjórnun. Þar taldi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
hjúkrunarfræðinga og ljósmæður lykilstéttir.
Að mínu mati er hjúkrun starf hugar (þekkingin), hjarta
(umhyggjan) og handar (reynslan); jafnvægi milli þessarar þríeindar
er nauðsynlegt eigi hjúkrun að þróast sem sjálfstætt fag og það
þjóðfélagsafl sem hún á að vera.
„SAMEININGARMÁL FÉLAGANNA VORU MÉR FRÁ FYRSTU
STUNDU HUGLEIKIN OG MIKIL ORKA OG TÍMI FÓR Í ÞAU
ALLA MÍNA FORMANNSTÍГ
Hjúkrunarfélag Íslands var til húsa í Þingholtsstræti 30 á árunum 1963-1987.
2000
Landspítalinn og Sjúkrahús Reykjavíkur sameinast í Landspítala Námsbraut í hjúkrunarfræði verður að hjúkrunarfræðideild HÍ