Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 94
94 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Ég var í öðrum hópnum sem útskrifaðist með BS-gráðu í
hjúkrunarfræði vorið 1978. Við höfðum verið 28 sem hófum
nám haustið 1974 en aðeins átta okkar útskrifuðumst
þetta vor. Afföllin voru því mikil enda tókum við margar
námsgreinar með læknanemum. Þetta var fyrir daga
numerus clausus þannig að kennarar kepptust við að fækka
í læknanemahópnum með krefjandi prófum sem hafði
þessi áhrif á nemendahópinn okkar.
Þegar ég heyrði fyrst af hjúkrunarfræðináminu heillaðist ég af lýsingunni
og ákvað að breyta skráningu minni frá ensku, íslensku og grísku
yfir í hjúkrunarfræði og hef aldrei séð eftir því. Ég hringdi reyndar í
Hjúkrunarskóla Íslands og ræddi við þáverandi skólastjóra, Þorbjörgu
Jónsdóttur, sem ítrekaði við mig að fyrst ég væri með stúdentspróf væri
engin spurning, ég ætti að fara í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands.
Við áttum síðar eftir að verða góðar vinkonur þegar hún sat í tímum
með okkur á fjórða ári, í námsleyfi sínu, og vorum við oft samferða
og ræddum mikið um hjúkrun. Hún var bæði greind og góð kona og
mikil forréttindi að hafa fengið að kynnast henni. Hvoruga okkar hefði
grunað þá að ég ætti eftir að verða fyrsti prófessor í hjúkrunarfræði
á Íslandi, deildarformaður framhaldsnámsdeildar og sviðsforseti
heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri til margra ára.
Hópurinn sem var á undan okkur í námi í hjúkrunarfræðinni hafði
að námi loknu ætlað að ganga í Hjúkrunarfélag Íslands en upp kom
ágreiningur um kjaramál sem reyndist ekki hægt að leysa. Hinir
nýútskrifuðu hjúkrunarfræðingar vildu eðlilega laun í samræmi við
aðra háskólamenntaða en félagið var ekki tilbúið í þann launamun.
Háskólamenntuðu hjúkrunarfræðingarnir leituðu þá til Bandalags
háskólamanna og í desember 1978 var stofnað nýtt félag, Félag
háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga (Fhh). Jóhanna Bernharðsdóttir
varð fyrsti formaður hins nýja félags en ég tók við af Birnu Flygering
1982. Ég hafði verið í laganefnd félagsins og þegar ég var orðin formaður
lögðum við áherslu á að vinna áfram að lögunum og að ýmsu því sem
okkur fannst til framfara heyra.
Við gerðum margt þessi fyrstu ár. Til dæmis stóðum við fyrir ráð-
stefnu um heilsuvernd fjölskyldunnar í september 1979 en ég var í
ráðstefnunefndinni. Þar mættu um hundrað manns og var ráðstefnan
vel heppnuð. Ég gaf út fyrsta fréttabréf félagsins í febrúar 1983 og voru
félagsmenn ánægðir með það framtak þar sem okkur fór ört fjölgandi
og með fréttablaðinu bárust fréttir beint til félagsmanna í stað þess að
berast ómarkvisst manna á milli eins og áður. Ég beitti mér einnig fyrir
stofnun tímarits og Tímarit Fhh kom fyrst út 1984. Í því voru erindi
frá ráðstefnu um hjúkrunarfræðslu sem við héldum í nóvember 1983.
Greinar í tímaritinu voru oft upphaflega ráðstefnuerindi og var tímaritið
gefið út árin 1984-1992, samtals níu árgangar, en einungis kom út eitt
tölublað á ári.
Samstarfsnefnd hjúkrunarfélaganna tveggja var skipuð 1984 en
síðan áttu eftir að líða 10 ár þar til félögin formlega sameinuðust, þá
voru félagsmenn Fhh orðnir yfir 600. Þegar ég var formaður Fhh var
Sigþrúður Ingimundardóttir formaður Hjúkrunarfélags Íslands. Við
tókumst nokkuð á í fyrstu en þegar upp var staðið urðum við miklir
mátar. Sigþrúður er óvenjusterk og baráttuglöð kona og við fundum að
við börðumst fyrir sömu hugsjón, að vilja hjúkrun og hjúkrunarfræði
sem allra mest og best. Við vorum síðar saman í ritnefnd Tímarits
hjúkrunarfræðinga í sameinuðu félagi og vorum mjög samstiga.
Ég átti síðar eftir að leiðbeina henni í meistaraverkefni hennar við
Heilbrigðisháskólann í Gautaborg.
Ég vona að þróunin í hjúkrunarfræði verði eins öflug og hún hefur
verið á síðastliðnum 100 árum. Hjúkrunarfræðingar eru virt stétt því
vel er staðið að námi þeirra og sífellt fleiri hafa öðlast meistara- og
doktorsgráðu sem eflir fagið okkar enn meir.
Nú hefur Háskólinn á Akureyri öðlast réttindin til að bjóða upp á
doktorsnám í hjúkrunarfræði og ég lít því glöð um öxl og bjartsýn
fram á veginn.
Lít glöð um öxl
og horfi bjartsýn
fram á veginn
FRÁ FYRRVERANDI FORMANNI
Dr. Sigríður Halldórsdóttir
formaður Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga
1982-1983
2005