Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 101

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 101
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 101 „Vel hefir konungurinn alið oss. Feitt er mér enn um hjartarætur,“ sagði hann þá og hné dauður niður (Heimskringla II, 539-540). „Úr hvorra liði sem eru“ Í Víga-Glúms sögu má lesa um Halldóru Gunnsteinsdóttur, konu Glúms, sem sögð var „væn kona ok vel skapi farin“. Í orustu á Hrísateigi, þar sem reidd voru „stór hǫgg ok mörg“ með mannfalli, kveður Halldóra með sér konur á vettvang og segir: „skulum vér binda sár þeira manna, er lífvænir eru, ór hvárra liði sem eru.“ Ekki eru konurnar fyrr komnar að en Þórarinn á Espihóli er höggvinn af Má Glúmssyni „ok var öxlin hǫggvin frá, svá at lungu fellu út í sárit.“ Batt Halldóra um sár Þórarins og sat yfir honum þar til bardaganum lauk. Þetta varð eiginmanni hennar til lítillar gleði því að bardaganum loknum mælti Glúmur til konu sinnar: „För vár mundi hafa orðit góð í dag, ef þú hefðir heima verit ok hefði Þórarinn eigi lífs brott komizt.“ Lét Halldóra sér fátt finnast um snuprur hans (Ísl. fornr. IX, 35, 78). Göfuglyndi Halldóru Gunnsteinsdóttur, hlutleysi hennar gagnvart þeim sem sárir eru og umönnunarvilji vekur aðdáun. Ríkari ástæðu hafði Þuríður spaka í Hörgsholti sem frá er sagt í Landnámu. Þegar Guðlaugur auðgi og Þorfinnur Selþórisson féllu báðir eftir hólmgöngu „grœddi [Þuríður] þá báða ok sætti þá“ enda tengdamóðir annars en mágkona hins (Ísl. fornr. I, 100). Ónefndar eru enn margar konur sem Íslendingasögurnar greina frá að grætt hafi menn og annast þá særða. Njála greinir frá Hildigunni þeirri sem græddi sár Þorgeirs og Starkaðar eftir bardagann við Knafahóla. Í Droplaugarsona sögu segir af Álfgerði á Ekkjufelli sem bindur sár Gríms og í Harðar sögu og Hólmverja er getið um Helgu Haraldsdóttir í Geirshólmi sem græddi Geir eftir viðureign hans við Ref. Skörungurinn Ólöf Hrolleifsdóttir í Þórðar sögu hreðu og Gríma, kona Gamla, í Fóstbræðra sögu sem var „svarkr mikill“ en engu að síður „gǫr at sér um mart, læknir góðr ok nǫkkut fornfróð“ (Ísl. fornr. VI, 242). Læknisdómar í fórum kvenna Þekking á verkun grasa til að lina þrautir eða létta sóttir voru lykilatriði varðandi það hvernig til tókst við græðslu sára og meina. Í goðafræðinni lesum við að Menglöð „sú hin sólbjarta“ hefst við á Lyfjabergi með meyjum sínum, eins og segir í Fjölsvinnsmálum (Eddukvæði, 419). Lyfjagerð og -gjafir hafa þess vegna tengst konum frá upphafi vega enda liður í heimilishaldi og meðhöndlun matvæla og drykkja sem voru í verkahring kvenna. Á hverju íslensku heimili var að finna ýmis efni sem nota mátti í lyf og smyrsli: Mjólk, mysu, smjör og ýmis grös og jurtir. Má geta nærri að það hafi komið í hlut kvennanna að útbúa grashnyklana sem hér tíðkuðust lengi og innihéldu sérstaklega umbúinn skammt lyfjagrasa í tiltekið magn seyðis eða soðs. Um einn slíkan er getið í Kormáks sögu þar sem maður státar sig af því að hafa aldrei þurft að binda sér „belg at hálsi, urtafullan“ (Ísl. fornr. VIII, 249). Auk þekkingar á grösum og meðferð þeirra þurfti hver sá sem græða vildi mannamein að kunna skil á lækningarmætti náttúrusteina sem voru viðurkennd meðul í heiðni og lengi fram eftir öldum. Náttúrusteinar hafa oft fundist í heiðnum kumlum hérlendis, ekki síst kvenkumlum. Er þess vegna talið að steinninn í fórum konunnar eigi sér mun dýpri rætur en svo að hann hafi einungis verið til skrauts (Kristján Eldjárn 1956; Jón Steffensen 1975, 184-185). Sálhjúkrun kvenna Eddukvæðið Oddrúnargrátur greinir frá sálhjúkrun eða sállækningu. Þegar Oddrún hefur aðstoðað Borgnýju í barnsnauð upphefur hún raunasögu sína og verður það tregróf báðum konunum til hugarhægðar. Höfum við þar eitt elsta dæmi fornra kvæða um geðlausn sem veitist með samtali. Í Íslendingasögum sjáum við konur oft í hlutverki græðara en karla í stöðu sjúklings þó að hvorki sé talað um lækningu né hjúkrun af því tilefni. Karlinn – oftar en ekki náinn fjölskyldumeðlimur – þiggur af konunni sálfræðiaðstoð eða sállækningu sem ólíkt sáralækningum á vígvellinum fer fram innan veggja heimilisins með málrænni meðferð. Gott dæmi er samtalsmeðferðin sem Þorgerður, elsta dóttir Egils Skallagrímssonar, veitti föður sínum þegar hann eftir sonarmissi var lagstur í rekkju sína til að deyja og vildi hvorki vott né þurrt. Með vel útfærðu samtali fær Þorgerður föður sinn til þess að tyggja söl og drekka. Þar með er hungurferlið rofið svo að lífslöngun kviknar á ný. Annað glöggt dæmi eru hjónin Bjargey og Hávarður sem frá er sagt í Hávarðar sögu Ísfirðings. Með samtalstækni kemur Bjargey Hávarði á fætur þegar hann hefur legið rúmfastur í sorg eftir víg sonar síns mánuðum saman. Hún kemur honum til þess að sækja rétt sinn og ná fram hefndum. Við það nær hann andlegum bata og verður eftir það „svá kátr ok glaðr við hvert mannsbarn sem ungr væri“ (Ísl. fornr. VI, 336). Konur ruddu brautina Konur hafa frá fornu fari gegnt lykilhlutverki í lækningum, fæðingarhjálp, hjúkrun og sálrænni aðhlynningu á Íslandi og Norðurlöndum, ekki aðeins innan veggja heimilisins þar sem þær tóku á móti börnum, gerðu lyf og grashnykla, mögnuðu náttúrusteina, önnuðust sjúka og veittu geðlausn í hugarangri og harmi heldur einnig þar sem sárir menn lágu óvígir eftir orustur. Við getum þess vegna skyggnst mun aftar en til Florence Nightingale (1820-1910) til þess að finna rætur hjúkrunar og lækningaskipulags í menningu okkar daga. Til forsögulegra kvenna má rekja elstu lærdóma um ljósmóður- og lækningastörf. Til kvenna eins og Þorgerðar Egilsdóttur Skallagrímssonar og Bjargeyjar í Hávarðar sögu Ísfirðings má rekja sálræna aðhlynningu og samtalsmeðferð. Til kvenna á borð við Halldóru Gunnsteins- dóttur úr Víga-Glúms sögu má rekja það göfuga sjónarmið sem Rauði krossinn, Læknar án landamæra og raunar allt menntað heilbrigðisstarfsfólk virðir enn í dag, tíu öldum síðar: Að líkna og hjúkra særðum og sjúkum „úr hvorra liði sem eru“. Heimildir Eddukvæði. Gísli Sigurðsson sá um útgáfuna. Mál og menning. Reykjavík 1998. Heimskringla I-III. Mál og menning. Reykjavík 1991. Íslenzk fornrit I-XVI. Hið íslenzka fornritafélag. Reykjavík 1933-2002. Jón Steffensen (1975). Menning og meinsemdir. Ritgerðasafn um mótunarsögu íslenzkrar þjóðar og baráttu hennar við hungur og sóttir. Sögufélagið. Reykjavík. Kaiser, Charlotte (1998). Krankheit und Krankheitsbewältigung in den Isländersagas. Medizinhistorischer Aspekt und erzälhtechnische Funktion. Seltman & Hein Verlag. Köln. Kristján Eldjárn (1956). Kuml og haugfé úr heiðnum sið á Íslandi. Norðri. Akureyri. Vilmundur Jónsson (1949). Lækningar – Curationes – séra Þorkels Arngrímssonar sóknarprests í Görðum á Álftanesi. Helgafell. Reykjavík. 2019 100 ára afmæli Félags hjúkrunarfræðinga
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.