Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Blaðsíða 102
102 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Sögu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verða ekki
gerð skil án þess að minnast á frú Sigríði Eiríksdóttur.
Sigríður var fædd í Miðdal í Mosfellssveit en ólst upp í
Reykjavík. Hugurinn stóð til Menntaskólans í Reykjavík
eftir barnaskóla en fyrst sá draumur rættist ekki stundaði
hún nám í Verslunarskólanum. Sigríður sigldi síðar til
Kaupmannahafnar til að nema hjúkrun.
Íslenskir hjúkrunarnemar notuðu oft næturvaktir á spítölunum til að
bródera púðaver og fleira sem þær seldu til að eiga vasapeninga. Sigríður
var ötul við hannyrðirnar því auk þess að eignast svolítinn vasapening
safnaði hún sér fyrir reiðhjóli sem hún notaði til að geta heimsótt Vigdísi
systur sína sem lá berklaveik á spítala þar ytra.
Sigríður varð formaður Félags íslenskra hjúkrunarkvenna árið 1924,
fyrst íslenskra kvenna. Hún gegndi formennsku í 36 ár eða allt til ársins
1960. Ólíkt flestum öðrum konum sem gegndu hjúkrunarstörfum
á þessum tíma hætti Sigríður ekki að vinna við hjúkrun eftir að hún
giftist Finnboga Rúti Þorvaldssyni verkfræðingi, síðar prófessor við
Háskóla Íslands, sem hún hafði kynnst á meðan þau voru bæði við nám í
Kaupmannahöfn.
Dóttir Sigríðar er okkur heldur ekki ókunnug en það er frú Vigdís
Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands. Hún var fús til viðtals um
það hvernig var að vera dóttir þessarar merku konu.
„Mér fannst hún stundum ætlast til mikils af okkur. Hún gerði miklar
kröfur til okkar í uppeldinu en ekki augljósar. Hún var ástrík móðir og
afskaplega góð mamma, alltaf að passa okkur og hún gætti þess að við
fengjum það sem var best. Við gengum bæði í Landakotsskóla eins og
hún hafði gert í bernsku, því hún taldi þann skóla vera bestan, og það
reyndist okkur góð undirstaða. Já, og hún lagði ríka áherslu á að við
fengjum allt það besta – enda var hún orðin svo fullorðin þegar við
fæddumst; hún var orðin 36 ára þegar ég fæddist og 38 þegar Bói bróðir
kom. Við vorum svo óendanlega velkomin systkinin. Þau hjón voru búin
að bíða eftir okkur.“
Sigríður og Finnbogi Rútur gengu í hjónaband árið 1926 en þurftu, eins
og Vigdís segir, að bíða í fjögur ár eftir henni – frumburðinum. Bróðir
Vigdísar, Þorvaldur, eða Bói eins og hún kallar hann, fæddist rúmu ári
seinna, í lok árs 1931.
„Hún var ákaflega ræktarsöm mamma, hún fór alltaf á fætur með okkur
á morgnana, var búin að elda hafragraut þegar við komum niður og svo
smurði hún fyrir okkur í skólann. Við erum alin upp á mjög heilbrigðum
mat systkinin, en ég missti bróður minn þegar hann var tvítugur. Það var
mikill harmur fyrir okkur öll.“
Og Vigdís heldur áfram:
„Frú Sigríður var margra manna maki, ég sé það vel núna. Til dæmis
þegar ég fór til útlanda þá skrifaði hún mér bréf sem hún vélritaði minnst
einu sinni í viku, stundum oftar, og sagði mér allt sem var að gerast
heima á Íslandi. Hún var mjög afkastamikil í félagsstörfum en hafði samt
alltaf tíma til að bródera. Hún var sívinnandi. Hún skrifaði greinar um
hin ýmsu málefni á nóttunni og flutti meðal annars erindi í útvarpinu
um heilbrigðismál. Og alltaf hafði hún tíma til að vera skemmtileg og
vera til. Ég sé það núna að hún var alveg stólpagreind kona hún mamma,
hún hefur verið ljóngáfuð. Og því náttúrlega fylgdi að vera ekki alvinsæl
– hún þorði að segja skoðanir sínar, á því leikur ekki nokkur vafi.“
Mamma símalanga
Frú Sigríður var með skrifstofu hjúkrunarfélagsins á heimili sínu
alla sína formannstíð. Hjá þeim hjónum bjuggu líka tengdaforeldrar
hennar um tíma svo það liggur beinast við að spyrja hvort hafi ekki
oft verið mikið um að vera í húsinu á Ásvallagötunni þar sem Vigdís
ólst upp?
„Heldur betur. Amma og afi höfðu staðið fyrir stórbúi á prestsetrinu í
Sauðlauksdal. Fólk að vestan kom mikið að heimsækja þau þegar það átti
erindi til borgarinnar. Mamma var endalaust að baka og bera bakka upp
til þeirra. Hún var sko í mörgum djobbum hún mamma. Hún kenndi í
Kvennaskólanum í Reykjavík í mörg ár og gekk þangað í öllum veðrum,
öðruvísi var ekki hægt að komast. Þar var hún kölluð „Sigga heilbrigða“.
Svo kenndi hún líka í Húsmæðraskólanum í Reykjavík í mörg ár og ég
held að það hafi nú fyrst og fremst verið til að drýgja tekjurnar því hún
var með stórt heimili. Hún hafði reyndar alltaf stúlkur að vestan til að
hjálpa til, þær fóru svo reyndar flestar í hjúkrun.
Mamma var alltaf með hjúkrunarfélagið heima og ég blygðaðist mín
mikið fyrir það að það var alltaf ritvél á borðstofuborðinu hjá okkur og
pappírar úti um allt. Heima hjá vinkonum mínum var allt svo óskaplega
vel tekið til og stundum dagblöð á gólfunum þegar nýbúið var að
bóna. Heima hjá mér þetta pappírsflóð. Svo sögðu vinkonur mínar
Frú Sigríðar Eiríksdóttur
minnst
Viðtal: Heiðrún Ólafsdóttir
2020
Viðtal við Vigdísi Finnbogadóttur