Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 103

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 103
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 103 seinna, þegar við vorum orðnar fullorðnar: „Það var allt svo spennandi heima hjá þér.“ Þær hafa fundið að það var alltaf svo mikið að gerast, andrúmsloftið var þannig. Þeim fannst svo gaman að koma í borðstofuna heima hjá mér af því að þar var ritvél og mamma að vinna við hana. Þær sáu aldrei ritvél heima hjá sér.“ En þú manst þá væntanlega ekkert eftir þér án þess að formaður Félags íslenskra hjúkrunarkvenna væri á heimilinu? „Nei, nei, og svo var hún líka formaður Hjúkrunarfélagsins Líknar sem stóð fyrir berklavörnum og heimahjúkrun í Reykjavík. Ég ólst upp með þessu fernu: Líkn, Félagi íslenskra hjúkrunarkvenna, ömmu og afa, og vestfirskum ungmeyjum. Ég lærði snemma að taka niður beiðnir um heimilishjúkrun – ég var bara smástelpa. Skrifaði þær í gula bók. Þetta var fyrir Hjúkrunarfélagið Líkn og þær beiðnir fóru í gegnum mömmu af því að hún var í formennsku þar. Ég hef ekki verið meira en svona sjö, átta ára þegar ég byrjaði að taka þessar beiðnir varðandi heimahjúkrun niður. Ég veit alveg hvað þetta allt heitir … klisma, stólpípa og ulcus ventriculi … læknarnir töluðu við mig á latínu og ég tók alltaf niður, ulcus ventriculi, magasár. Ég komst ekki hjá því að heyra margt af því sem mamma talaði um löngum stundum í símann. Bróðir minn kallaði hana „mamma símalanga“ af því hún talaði svo mikið í símann. Hún var alveg mögnuð. Ég dáðist að henni þegar hún var í þessum löngu símtölum, til dæmis að bjarga lífeyrissjóði hjúkrunarkvenna, ég held að hún hafi verið meginstoðin þar á þeim tíma. Það féll í hennar hlut. Svo er annað sem mér þótti líka mjög merkilegt en það er að hún hafði svo mikinn skilning á aðstöðu kvenna. Ég man eftir því að ég heyrði hana einhvern tíma segja í símann: „Þér ætlið þó ekki að segja mér, prófessor, að þér ætlið að stoppa stúlkuna af því að hún er gravid?“ Ég hef þá verið mjög ung því ég man að mig langaði svo að vita hvað þetta „gravid“ þýddi. En nú finnst mér svo flott að hún skyldi hafi sagt þetta af því þetta er mjög snemma á stríðsárunum og mikið verið að fjalla um siðsemi kvenna í sambandi við hernámið. Mér finnst þessi afstaða vera mikil og góð framtíðarsýn fyrir konur þegar ég hugsa um þetta núna. Því þá átti að stoppa stúlku í Hjúkrunarskólanum af því að hún var gravid. Hún mátti ekki taka próf! Meira að segja þegar ég var í menntó, í MR, og það er nú orðið dálítið langt síðan, þá hættu stelpur í skólanum ef þær urðu barnshafandi. Hættu í skóla og komu kannski aldrei aftur. Það að verða „gravid“ stoppaði framgang kvenna. En þetta hefur nú skánað. Stúlkan hefur áreiðanlega fengið að taka próf af því mamma sótti það svo fast.“ Félagið alltaf hluti af lífi Vigdísar Í starfi sínu sem formaður Félags íslenskra hjúkrunarkvenna var frú Sigríður í tíðum samskiptum við stallsystur sínar á Norðurlöndunum. Hún var formaður Samvinnu hjúkrunarkvenna á Norðurlöndum um tíma, sótti þar fundi og stóð í bréfaskriftum við starfssystur sínar á Norðurlöndunum en það varð til þess að góð vinátta myndaðist á vettvangi hjúkrunarfræða milli landanna. Í bókinni Saga hjúkrunar á Íslandi á 20. öld er fjallað um þessa vináttu og þess meðal annars getið að ritari Félags norskra hjúkrunarkvenna hafi nefnt það í bréfi til Sigríðar að hún teldi að Vigdís væri orðin nógu stór til að koma með móður sinni á fundi og ráðstefnur. Ég spyr Vigdísi hvort hún hafi einhvern tíma farið með mömmu sinni út? „Nei, ég gerði það aldrei. En hún var ófrísk að mér á fundi í Finnlandi held ég, frekar en Noregi, og hún var svo lasin að þær vissu strax að hún hlaut að vera barnshafandi. Hún var ein af þeim fáu sem var frú, þær voru allar frökenar, en þá var hún búin að vera gift í fjögur ár og var kölluð frú Thorvaldson. Þær gátu ekki skilið að hún héldi eigin nafni eftir að hún var gift, hún bara hlyti að hafa ættarnafn og af því að hún átti mann sem var Þorvaldsson þá var hún kölluð Thorvaldson. En ég var alltaf svo mikið í uppáhaldi hjá þessum konum, þessum fullorðnu ógiftu konum, að eftir stríðið sendu þær mér afskaplega fallegan grip sem ég á enn þá. Það er áletrað með friðardúfu …“ Vigdís stendur upp og kemur stuttu seinna með hálsmenið, forláta silfurmen með friðardúfu og áritun: Vigdís - från nordiska Gudmödrarna 1945. „Vináttan hélst alla tíð og í útför frú Sigríðar komu tvær konur frá Norræna samvinnufélaginu sem fluttu minningarorð úr kórnum í Dómkirkjunni. En það tíðkast víða á Norðurlöndum að fleiri en prestur flytji eftirmæli. Mér þótti vænt um það.“ Það má með sanni segja að félagið hefur verið stór hluti af æsku Vigdísar … „Svo átti ég dúkku sem hét Kristófína Mikkelína. Ég hafði fengið hana að gjöf og skírði hana í höfuðið á stofnanda Félags íslenskra hjúkrunarkvenna og fyrsta formanni þess, Christophine Mikkeline Bjarnhéðinsson. Ég er eiginlega alin upp með Félagi íslenskra hjúkrunarkvenna, eins og það hét, nú Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, ég er í raun litla systir, eða stóra systir. Og út á þetta er ég gerð að heiðursfélaga. Félagið hefur alltaf verið hluti af mínu lífi og ég hef einatt gert mér far um að rækta það. Það er eins og félagið hafi vitað að það ætti eitthvað í mér.“ Frú Sigríður Eiríksdóttir var formaður Félags íslenskra hjúkrunarkvenna í 36 ár, 1924-1960. Á myndinni er hún með dóttur sinni, Vigdísi, á leið á Hótel Sögu í tilefni af 50 ára afmæli Hfí árið 1969.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.