Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 104

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 104
104 | Tímarit hjúkrunarfræðinga Við vorum 14 ungar konur sem útskrifuðumst frá náms- braut í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands vorið 1977. Það var í fyrsta sinn sem háskólinn útskrifaði nemendur með BS-gráðu í hjúkrunarfræði. Þetta voru því stór tímamót í lífi okkar ungu kvennanna en líka fyrir hjúkrun í landinu. Við sigldum ekki alltaf lygnan sjó meðan á náminu stóð og þurftum oft að svara spurningunni: Hvers vegna þarf að kenna hjúkrun í háskóla? Svo kom næsta spurning: Hvers vegna fórst þú í háskóla til að læra hjúkrun? Mánuðina fyrir útskrift eða vorið 1977 áttum við í samtölum við stjórn Hjúkrunarfélags Íslands og áætluðum að ganga í það félag eftir útskrift. Þegar fór að styttast í þann stóra dag spurðum við hvort félagið myndi leggja áherslu á það í kjaraviðræðum að hjúkrunarfræðingar með BS-próf fengju sambærileg laun og aðrir háskólamenn með sömu gráðu. Við litum svo á að með þessu yrði lagður grunnur að kjarabaráttu allra félagsmanna til framtíðar. Á þessa kröfu okkar var ekki fallist og því var umræðum um aðild að Hjúkrunarfélaginu slitið. Við gengum hins vegar í félag sem nefndist Útgarður innan BHM og vorum þar félagsmenn í um eitt ár. Á þeim tíma ákváðum við að stofna eigið fag- og stéttarfélag sem var nefnt Félag háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga (Fhh). Stofndagurinn var 2. desember 1978 og voru stofnfélagar útskriftarárgangar frá HÍ 1977 og 1978 með einhverjum undantekningum. Það varð að samkomulagi að ég tæki að mér formennsku félagsins til að byrja með. Sú formennska stóð til haustsins 1980. Í ljósi tíðarandans Þegar litið er um öxl til þessa tíma og á ákvarðanir hópsins sem stofnaði Fhh er ekki hægt að líta fram hjá þeim tíðaranda sem þá ríkti. Konur voru í minnihluta í menntaskólum og háskólum en það var sóknarhugur meðal kvenna í jafnréttismálum. Hugmyndir manna um hjúkrun sem fræði- og vísindagrein voru mörgum mjög framandi. Viðhorf fólks til kvenna, kvennastarfa og menntunar voru allt önnur en þau eru nú. Fyrir því fundum við sem lærðum hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands á þessum árum svo sannarlega. Í þessu umhverfi voru baráttumál okkar fyrstu félagsmanna í Fhh einkum af tvennum toga, þ.e. kjaramál og fagleg mál. Hvað kjaramálin varðaði þá var krafan ávallt, í anda jafnréttis, að hjúkrunarnám til BS- prófs væri metið til sambærilegra launa og annarra háskólamenntaðra manna með sömu gráðu. Hvað faglegu málin varðaði tóku margar okkar þátt í kennslu í námsbraut í hjúkrunarfræði mjög fljótt eftir útskrift þó bæði starfs- og lífsreynsla væri takmörkuð. Það þurftu hreinlega allir að hjálpast að til að þróa hjúkrunarnám á þessu skólastigi og þann slag tókum við í samræmi við stefnu nýstofnaðs félags. Þótt við værum ungar og óreyndar gerðum við okkur grein fyrir því að við þyrftum að halda okkur faglega vel við, sóttum ráðstefnur erlendis og héldum sjálfar ráðstefnur. Fyrsta ráðstefnan á vegum Fhh var haldin árið 1979 og fjallaði um heilbrigði ungu fjölskyldunnar. Ráðstefnan tókst vel, fékk góðan hljómgrunn og var vel sótt. Á þessum tíma fóru margar okkar að hugsa sér til frekara náms. Guðrún Marteinsdóttir heitin varð fyrst úr okkar hópi til að taka meistaragráðu við Boston University í Bandaríkjunum. Hún varð síðar dósent í heilsugæsluhjúkrun við námsbraut í hjúkrunarfræði. Þó þessir tímar hafi á vissan hátt verið róstusamir og á stundum átakamiklir er líka margs góðs að minnast. Góð viðkynning við fjölmarga hjúkrunarfræðinga er ofarlega í huga. Fyrst er að nefna Maríu Pétursdóttur og Ingibjörgu R. Magnúsdóttur sem voru hvatamenn að háskólanámi í hjúkrun hérlendis. Þó þær hafi ekki verið félagsmenn í Fhh voru þær áfram bakhjarlar okkar og fylgdust vel með. Marga Thome, sem var fyrsti fastráðni kennarinn í námsbraut í Það steytti á kjaraáherslum FRÁ FYRRVERANDI FORMANNI Dr. Jóhanna Bernharðsdóttur fyrsti formaður Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga 1978-1980 „Í ÞESSU UMHVERFI VORU BARÁTTUMÁL OKKAR FYRSTU FÉLAGSMANNA Í FHH EINKUM AF TVENNUM TOGA, Þ.E. KJARAMÁL OG FAGLEG MÁL“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.