Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 106

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 106
106 | Tímarit hjúkrunarfræðinga Hugmyndafræði hjúkrunar er nauðsynleg við stefnumótun og öll önnur viðfangsefni heilbrigðisyfirvalda og því mikilvægt að hjúkrunarfræðingar komi þar að. Slík verkefni krefjast yfirsýnar og víðtækrar þekkingar á heilbrigðisþjónustunni og samfélaginu í heild og þeim viðfangsefnum sem þarf að glíma við á hverjum tíma. Gagnkvæmur skilningur, þekking og virðing fyrir stöðu og starfssviði annarra eru þar einnig lykilatriði. Ég hef verið svo lánsöm að fá að starfa við slík viðfangsefni bæði á Íslandi og hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Fyrsti hjúkrunarfræðingurinn hjá landlækni Fyrsti landlæknirinn kom til starfa á Íslandi árið 1760 og hafði hliðstætt hlutverk og embætti landlæknis hefur enn í dag. Það var hins vegar ekki fyrr en árið 1985 sem fyrsti hjúkrunarfræðingurinn var ráðinn þar til starfa. Það ár kom landlæknir að máli við mig um að koma til starfa hjá embætti landlæknis því hann taldi að þekking mín myndi gagnast embættinu vel. Þá störfuðu við embættið tveir læknar, bókasafnfræðingur og þrír skrifstofumenn. Það varð úr að ég fékk leyfi frá starfi mínu sem einn af framkvæmdastjórum hjúkrunar á Landspítalanum til eins árs, en var síðan skipuð yfirhjúkrunarfræðingur við landlæknisembættið. Það þótti tíðindum sæta að hjúkrunarfræðingur væri ráðinn til starfa við embætti landlæknis. Læknar voru örugglega undrandi yfir því en létu mig aldrei heyra það né finna. Öðru máli gegndi með ýmsa hjúkrunarfræðinga sem töldu mig vera að gera lítið úr hjúkrunarstarfinu með því að ráða mig til landlæknis. Ég fékk heldur ekki lengur að tilheyra Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga því mín störf voru ekki talin hjúkrunarstörf. Ýmsu þessu var erfitt að kyngja en þessi mynd breyttist fljótt. Frá fyrsta degi var ljóst að þekking mín sem hjúkrunarfræðingur og lýðheilsufræðingur gagnaðist mjög vel. Þegar ég lét af störfum þar tuttugu árum síðar var öllum löngu ljóst að þekking hjúkrunarfræðinga var mjög mikilvæg í þeim verkefnum sem embættinu eru falin. Þá voru sjö hjúkrunarfræðingar þar í starfi. Störf og ráðgjöf hjá þremur ráðuneytum Ég starfaði sem skrifstofustjóri í vel á annan áratug í þremur ráðu- neytum, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, félags- og tryggingamálaráðuneyti og velferðarráðuneyti. Þá vann ég samanlagt í um tvö ár hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, fyrst sem sérfræðingur en svo sem yfirmaður hjúkrunarmála í Evrópu. Síðan þá hefur stofnunin oft á ári leitað til mín sem ráðgjafa í ýmsum verkefnum. Þessi störf hafa verið ólík en öll hafa þau stefnt að sama marki, þ.e. að styrkja heilbrigðisþjónustuna og vellíðan einstaklinga með hugmyndafræði hjúkrunar að leiðarljósi. Störfin hjá embætti landlæknis miðuðu mest að innra skipulagi, gæðum og öryggi þjónustunnar og réttindum sjúklinga, en störfin hjá ráðuneytunum meira að heildarskipulagi og uppbyggingu þjónustunnar. Störfin hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni fólust mest í að leiðbeina stjórnvöldum í aðildarríkjunum sem tilheyra svæðisskrifstofu Evrópu, 53 talsins, við uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar í heild, að koma Embættismaður með hugmyndafræði hjúkrunar að leiðarljósi Vilborg Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.