Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 109
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 109
yfirumsjón með hjúkrun í sjúkraskýlinu sem
sett var upp í Miðbæjarskóla. Fyrir utan að
vinna í sjúkraskýlinu sinnti Christophine
einnig heimsóknum. Þar tók hún eftir því að
margir sjúklingar þjáðust einnig af berklum.
Hún sá hversu þröngt fátæka fólkið bjó og
vissi vel að berklar voru híbýlasjúkdómur.
Hún áttaði sig þá á því að brýnt væri að
ráðast gegn þessu heilbrigðisvandamáli en
Kamma Tvede, hjúkrunarkona Líknar, hafði
lengi sagt að hjúkrun berklasjúklinga væri
umfangsmesta verkefni hennar og allt of mikið
fyrir eina hjúkrunarkonu. Christophine fékk
því framgengt að Líkn gat í mars 1919 opnað
berklahjálparstöð í Kirkjustræti 12. Ung
hjúkrunarkona var send út til Danmerkur til
þess að læra meira um berklahjúkrun. Fyrsti
læknirinn á stöðinni var Katrín Thoroddsen
en hún var þá ekki útskrifuð úr læknadeild.
Stöðin var fyrst um sinn einungis opin nokkra
klukkutíma á viku.
Starf Christophine fyrir Líkn var nú orðið
umfangsmikið en hún lét það ekki nægja sér.
Á þessum tíma fólst hjúkrunarnám í vinnu á
spítala undir handleiðslu yfirhjúkrunarkonu.
Lengd námsins var óræð og hver sem var
gat í raun kallað sig hjúkrunarkonu. Smám
saman fóru konur að fara út til Danmerkur
í þriggja ára nám. Þær voru þó lengi vel fáar
og Christophine, Harriet og fleiri konur fóru
að huga að því að koma á fót formlegu námi
á Íslandi. Í nóvember 1919 hittust sex þeirra
á Fjalakettinum og stofnuðu Félag íslenskra
hjúkrunarkvenna. Frumkvöðlar voru dönsku
hjúkrunarkonurnar Harriet og Christophine
en á fundinum var líka Kristín Thoroddsen
sem hafði komið heim úr hjúkrunarnámi í
Danmörku árið áður. Harriet Kjær var kosin
formaður og Kristín gjaldkeri. Sigríður
Magnúsdóttir, hjúkrunarkona á Vífilsstöðum,
var kosin varaformaður.
Aðalstarf félagsins fyrstu árin var að sjá
um hjúkrunarnám á Íslandi. Það þurfti að
skipuleggja bóknámið, útvega námspláss á
sjúkrahúsum á Íslandi og koma nemunum
þangað. Haustið 1923 hafði félagið
starfað í tæp fjögur ár. Þá var það orðið að
stéttarfélagi og sambandið við systurfélögin
á Norðurlöndum orðið formfast. Það var líka
nauðsynlegt til þess að það gæti sent nema
út til þessara landa, aðallega Danmerkur,
í lokaáfanga námsins. Þessi barátta var þó
ekki hnökralaus. Þó að Ísland hefði fengið
heimastjórn árið 1918 var landið enn í
konungssambandi við Danmörku og dönsku
hjúkrunarkonurnar ætluðu fyrst ekki að
viðurkenna íslenska félagið heldur vildu að það
yrði deild innan Dansk Sygeplejeraad. Sú krafa
var lögð fyrir fund í Fíh í febrúar 1921 og felld
með öllum greiddum atkvæðum. Á sama fundi
var kosin ný stjórn og Christophine kosin
formaður. Stuttu seinna fór Christophine út til
Kaupmannahafnar til að ræða málin. Í leiðinni
tókst henni einnig að semja við yfirmann
dönsku ríkisspítalanna um námspláss handa
íslensku nemunum. Þetta námsfyrirkomulag
hélst þangað til hjúkrunarskólinn gat tekið til
starfa á Landspítalanum 1931.
Charlotte Munck, forstöðukona á Bispebjerg-
sjúkrahúsinu, sem var formaður SSN,
samvinnufélags norrænna hjúkrunarkvenna,
var í góðu sambandi við Christophine
Bjarnhéðinsson, löndu sína. Hún gat í
september 1923 sagt henni frá því að íslenska
hjúkrunarfélagið hefði verið tekið inn í SSN
á fundi þess í ágúst. Þetta sumar og fram að
hausti var Christophine veik og Magdalena
Guðjónsdóttir, varaformaður félagsins, fór í
hennar stað á fundinn í Kristjaníu eins og Ósló
hét þá.
Á aðalfundi félagsins í október 1923 var
Christophine Bjarnhéðinsson enn þá veik en
Magdalena Guðjónsdóttir stýrði fundinum.
Sigríður Eiríksdóttir, sem hafði komið
heim úr hjúkrunarnámi árið áður, var kosin
ritari félagsins. Í október 1924 fór Sigríður
til Kaupmannahafnar til þess að fylgjast
með starfinu á berklastöð á vegum danska
berklafélagsins. Christophine hafði sem
formaður Líknar útvegað þessa heimsókn.
Hún fór reyndar líka með út en ástæða
ferðar hennar var að taka þátt í 25 ára afmæli
Dansk Sygeplejeraad. Christophine sagði
svo af sér sem formaður Félags íslenskra
hjúkrunarkvenna á aðalfundi í lok desember
1924. Sigríður Eiríksdóttir tók þá við starfi
formanns.
Christophine hélt þó áfram að taka þátt í
starfi hjúkrunarfélagsins. Í október 1927 var
hún til dæmis kosin í nefnd sem átti að móta
afstöðu félagsins til starfsmannaskipulags og
hjúkrunarnáms á Landspítalanum sem þá var í
byggingu. Hún hefur væntanlega einnig mætt
á fund SSN sem haldinn var í Reykjavík í júní
þetta ár. Fundurinn fjallaði mikið um byggingu
spítalans og um forstöðukonustarfið. Sama ár
bætti hjúkrunarfélagið Líkn ungbarnaeftirliti
við starfsemi sína. Christophine var formaður
Líknar þangað til 1930 þegar Sigríður
Eiríksdóttir tók við keflinu.
Sumarið 1934 hætti Sæmundur, eigin-
maður Christophine, störfum á holdsveikra-
spítalanum og þau hjónin fluttust til Kaup-
mannahafnar þar sem dóttir þeirra var
geðlæknir. Christophine var þó ekki gleymd.
Í nóvember sendi Sigríður Eiríksdóttir henni
heillaóskaskeyti í tilefni að 15 ára afmæli Fíh
og þær vinkonur skiptust á bréfum næstu árin.
Árið 1940 lagði breski herinn undir
sig holdsveikraspítalann og voru hinir
fáu sjúklingar sem þar voru þá fluttir á
Kópavogshælið. Hertakan fór þó ekki vel með
húsið því spítalinn brann til kaldra kola 7. apríl
1943.
Frú Bjarnhéðinsson, eins og Sigríður
Eiríksdóttir kallaði hana í minningargrein,
hefur væntanlega frétt af þessu en
Sæmundur var þá löngu dáinn og lífsverk
þeirra hjóna að enda komið. Christophine
Bjarnhéðinsson lést 11. nóvember 1943.
Hjúkrunarfélagið Líkn var um tíma í Kirkjustræti 12. Húsið stendur nú í Árbæjarsafni.