Morgunblaðið - 04.11.2019, Side 1
M Á N U D A G U R 4. N Ó V E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 259. tölublað 107. árgangur
GERÐI SJÚKRA-
HÚS ÚR LEGÓ-
KUBBUM
VILJA FÁ TILKYNNINGAR
UM AUKAVERKANIR LYFJA
BARKA-
SÖNGUR OG
RAFTÓNLIST
MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR 14 NORSKT TÓNDÚÓ 28ARNAR FREYR 2
„Þessar miklu tafir á framkvæmd-
um á Hverfisgötunni getur Reykja-
víkurborg ekki afsakað,“ segir Þór-
dís Lóa Þórhallsdóttir, formaður
borgarráðs. Óánægju gætir meðal
veitingamanna og annarra fyrir-
tækjarekenda við neðanverða
Hverfisgötu, það er milli Ingólfs-
strætis og Smiðjustígs. Skipti á
jarðveg, lögnum og fleiru slíku á
þessum slóðum hófust í maí í vor og
átti að ljúka í kringum 20. ágúst.
Það stóðst ekki en nú er stefnt á 15.
nóvember.
Ásmundur Helgason, sem rekur
kaffihúsið Gráa köttinn, segir hinar
miklu tafir óþolandi og skýringar
borgarinnar á þeim standist enga
skoðun. Hann hefur því ákveðið að
krefjast bóta af borginni vegna bú-
sifja. Veltan í rekstri kaffihússins í
október síðastliðnum sé 40% minni
en hún var í sama mánuði í fyrra.
Þórdís Lóa segir drátt á fram-
kvæmdum á Hverfisgötu kalla á
endurskoðun vinnubragða í verkefn-
um sem þessum. Tímarammar þurfi
að vera raunhæfir svo áætlanir
standist. Einnig þurfi að bæta upp-
lýsingagjöf. „Í þessu máli á Hverfis-
götunni núna blæðir heiðarlegu fólki
í atvinnurekstri fyrir mistök og
tafir,“ segir Þórdís Lóa.
„Mér finnst umhugsunarvert að
svo virðist sem enginn einn aðili hjá
borginni fylgist með svona fram-
kvæmd og tryggi að allt gangi greitt
fyrir sig,“ segir Eyþór Laxdal
Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík.
Tafirnar óafsakanlegar
Seinkanir á Hverfisgötu kalla á breytt vinnubrögð Skýr-
ingar standast ekki, segir veitingamaðurinn á Gráa kettinum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hverfisgata Verkið hófst í maí og átti að ljúka í ágúst en nokkuð er eftir enn.
MSeinagangurinn er óþolandi »10
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda (FÍB), segir of snemmt að af-
nema virðisaukaskattsívilnanir á
tengiltvinnbíla eins og fyrirhugað
er í drögum fjármála- og efnahags-
ráðherra að frumvarpi til laga.
Tengiltvinnbílarnir séu kjörið
fyrsta skref í átt að vistvænni bíla-
flota, en ívilnunin mun samkvæmt
þessu falla niður 1. janúar 2021.
„Það tekur sinn tíma að ná sam-
bærilegu drægi á rafbíla og tengil-
tvinnbíla og á meðan verða hinir
kjörnu fulltrúar auðvitað að vera
svolítið á tánum vegna þess að þetta
er líka hluti af einhverjum mark-
miðum stjórnvalda um að draga úr
losun á koltvísýringi,“ segir Run-
ólfur við Morgunblaðið. »4
Morgunblaðið/Hari
Bíll Tengiltvinnbílar verða sífellt vinsælli.
Of snemmt að falla
frá skattaívilnunum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Mikil fylla hrundi úr Ketubjörgum á norðan-
verðum Skaga nú um helgina svo þúsundir
tonna af jarðvegi fóru í sjóinn. „Ég ætlaði varla
að trúa mínum eigin augum þegar ég sá þetta,“
sagði Ingólfur Sveinsson frá Lágmúla á Skaga
við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Ketubjörg eru um 40 kílómetra fyrir norðan
Sauðárkrók. Síðustu misseri hefur verið að
losna um fyllu í bjarginu þar sem heitir Innri-
Bjargavík. Það var 2015 eftir að klakastífla
myndaðist á þessum slóðum sem lækjarvatn fór
að smjúga niður í gljúpt móbergið svo um það
losnaði. Klettur, um 65 metra hár, gróf sig frá
berginu og varð frístandandi. Þar á milli var geil
sem breikkaði og var orðin nokkuð á þriðja
metra breið uns yfir lauk. Undir berginu er nú
allt að 20 metra hár bingur af grjóti og mold.
„Ég fer frá Sauðárkróki reglulega út á Skaga
til að fylgjast með framvindunni við Ketubjörg,“
segir Ingólfur. Ekki er vitað nákvæmlega hve-
nær fyllan mikla hrundi. Kletturinn var á sínum
stað síðdegis á föstudag en eftir það eru engir til
frásagnar. Vísbendingu gefur þó að um hádegi á
laugardag kom fram órói á jarðskjálftamælum á
Hrauni á Skaga sem eru um níu kílómetra frá
Ketubjörgum. „Þetta er allt mjög ótrúlegt að
sjá,“ sagði Elvar Már Jóhannsson, áhuga-
ljósmyndari á Sauðárkróki, sem var á staðnum í
gærdag.
Lögregla hefur fylgst grannt með framvindu
á Skaga með tilliti til slysahættu. Ingólfur
Sveinsson telur hana enn fyrir hendi því áfram
séu sprungur í Ketubjörgum.
Ljósmynd/Elvar Már Jóhannsson
Ketubjörg Á myndinni til vinstri sést kletturinn sem rofnaði frá berginu Innri-Bjargavík. Á hinni, sem tekin var í gær, sést að hann er horfinn en jarðvegsbingur, allt að 20 metra hár, er í fjörunni.
Þúsund tonna bjarg hrundi í sjó fram á Skaga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Áform eru
um að byggja
tvær hæðir of-
an á Seðla-
banka Íslands
við Kalkofns-
veg. Borgar-
yfirvöld skoða
nú málið.
Stækkun þykir þörf vegna samein-
ingar Fjármálaeftirlitsins við
Seðlabankann. Með því fjölgar
starfsfólki bankans um 40%, sem
kallar á meira pláss. »11
Seðlabanki hækki
um tvær hæðir
Efnahagshrunið árið 2008 virðist
ekki hafa haft nein marktæk áhrif á
aukna sjálfsvígstíðni hér á landi ef
marka má niðurstöður rannsóknar á
áhrifum efnahagskreppa á sjálfsvíg
á Íslandi. Högni Óskarsson læknir,
sem stýrði rannsókninni, segir
niðurstöður hennar hafa komið á
óvart en þær benda til þess að ekki
sé samband milli sjálfsvígstíðni og
sveiflna í efnahagslífi Íslands. Hann
segir þó að slíkar sveiflur geti haft
mismunandi áhrif milli landa og að
gæði félagslegrar aðstoðar hafi þar
mikið að segja. »10
Sjálfsvígstíðni ekki
hærri í hruninu