Morgunblaðið - 04.11.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
595 1000
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a
129.995
15 APRÍL Í 8 NÆTUR
.
.
MADEIRA NEYSLUBREYTINGAR OG ÁHRIF
Á MATVÆLAFRAMLEIÐSLU
NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Á BONDI.IS
Matvælalandið Ísland og Landbúnaðarklasinn standa
fyrir opinni ráðstefnu áHótel Sögu umneyslubreytingar
og áhrif þeirra ámatvælaframleiðslu þriðjudaginn
5. nóvember kl. 13.00-16.00.
M
AT
VÆLALANDIÐ
ÍSLAND
FJÁRSJÓÐUR
FRAMTÍÐAR LANDBÚNAÐAR
K L A S I N N
LANDBÚNAÐAR
K L A S I N N
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Stjórnarformaður Rafbílasambands
Íslands (RÍ) telur tímabært að
virðisaukaskattsívilnanir á tengil-
tvinnbifreiðar verði felldar niður.
Hann segir þó rafhlöðustærð eiga að
skipta höfuðmáli þegar komi að slík-
um aðgerðum. Framkvæmdastjóri
Félags íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB) telur aftur á móti að of
snemmt sé að fella niður áðurnefnd-
ar ívilnanir.
Drög að frumvarpi til laga sem
fela meðal annars í sér að þessar
ívilnanir verði felldar niður eftir 31.
desember 2020 voru lögð fram í sam-
ráðsgátt stjórnvalda í síðustu viku.
„Ég tel þetta vera rökrétt enda al-
gjörlega undir notanda tengiltvinn-
bifreiðar komið hvort hann noti raf-
magn eða bensín. Þú getur ekki
tryggt það að hann sé keyrður mest
á rafmagni,“ segir Jóhann G. Ólafs-
son, stjórnarformaður Rafbílasam-
bands Íslands, við Morgunblaðið.
Hann telur þó að á frumvarpinu
séu gallar hvað þetta varðar.
„Við teljum að við gefa eigi íviln-
anir fyrir rafhlöðustærð og þá skipt-
ir engu máli hvort bíllinn er tengil-
tvinnbifreið eða ekki.“
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FÍB, telur að eðlilegt sé að
halda ívilnununum áfram á meðan
unnið sé að orkuskiptum bílaflotans.
„Það er svolítið einkennilegt að á
sama tíma og menn tala meðal ann-
ars um að fara í orkuskipti í sam-
göngum til þess að draga úr
brennslu á jarðefnaeldsneyti er allt-
af verið að tala í sama orðinu um
hvað þetta sé samfélaginu dýrt og
pólitíkin virðist ekki alveg geta bæði
haldið og sleppt,“ segir Runólfur,
sem telur eðlilegt að stjórnvöld brúi
bilið á meðan tengiltvinnbifreiðar
séu dýrari en bifreiðar sem nýti jarð-
efnaeldsneyti.
Aðspurður segir Runólfur að
tengiltvinnbifreiðar séu kjörið fyrsta
skref í átt að vistvænni bílaflota eins
og staðan er núna, sérstaklega fyrir
þá sem aka lengri vegalengdir.
Innflutningur á tengiltvinnbifreið-
um hefur verið talsverður á undan-
förnum árum og telur Runólfur að ef
frumvarpið fari í gegn muni sá inn-
flutningur minnka mikið.
Í frumvarpinu er einnig lagt til að
gildistími virðisaukaskattsívilnana
fyrir rafmagns- og vetnisbifreiðar
verði framlengdur til og með 31.
desember 2023.
Fjárþak án tilgangs
Jóhann hefur aðrar athugasemdir
við frumvarpið, en að sögn hans
vantar ákvæði um að rafbílar sem
séu fluttir á milli markaðssvæða fái
ekki ívilnanir.
„Í fyrsta lagi vegna þess að þeir
eru flestir með rangar tengingar fyr-
ir hraðhleðslu og í öðru lagi eru
ábyrgðarmál og innkallanamál mis-
munandi á milli svæða. Þetta er
neytendaverndarmál.“
Jóhann telur einnig að núverandi
fjárþak virðisaukaskattsendur-
greiðslna þjóni ekki tilgangi sínum
fullkomlega.
„Á meðan það er enn þak á íviln-
unum sem tengjast engu nema verði
bílsins óháð aukabúnaði veldur þetta
rangri verðmyndun á markaðnum,“
segir hann og bætir við að betra væri
ef bílar með sömu rafhlöðustærðina
fengju sömu ívilnun.
Pólitík geti ekki haldið og sleppt
Formaður RÍ segir fremur eiga að líta til rafhlöðustærðar en gerðar bíls Framkvæmdastjóri FÍB
telur eðlilegt að tengiltvinnbílar fái virðisaukaskattsívilnanir þar til orkuskipti séu komin vel á veg
Morgunblaðið/Hari
Rafbílar Vistvænni ökutæki hafa sótt í sig veðrið hér á landi að undanförnu.
Hafþór Hreiðarsson
Húsavík
Ágætlega gekk hjá mönnum sem gengu til
rjúpna í Þingeyjarsýslum um helgina, en veiði-
tímabilið hófst á laugardaginn. Meðalveiði hjá
þeim sem fréttaritari hafði tal af var að jafnaði
5-10 fuglar. Ágætt veður var nyrðra um
helgina og aðstæður allar hinar bestu.
„Ég veiði bara hæfilegan fjölda fugla fyrir
mig og fjölskylduna í jólamatinn og það gekk
ágætlega þessa daga. Á eftir að fara einhverja
daga til viðbótar svo allir fái sínar rjúpur á
jóladiskinn,“ sagði Jónas Sævarsson veiðimað-
ur sem fór á Reykjaheiði um helgina.
Sem kunnugt er fjölgaði umhverfisráðherra
rjúpnaveiðidögum í haust, skv. tillögum
Náttúrufræðistofnunar Íslands, Fuglaverndar,
Skotvíss og Umhverfisstofnunar, úr 15 í fyrra í
22. Veiðitímabilið er allur nóvember og er
heimilt að veiða frá og með föstudegi til þriðju-
dags, en bannað miðvikudaga og fimmtudaga.
Þá var rjúpnaskytta flutt slösuð á sjúkrahús
í Reykjavík eftir voðaskot sl. föstudag. Hlaut
maðurinn skotsár á fæti, en samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu var hann ekki lífshættulega
slasaður.
Rjúpnaveiðin
fer vel af
stað nyrðra
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar
Veiðimaður Jónas Sævarsson skytta með afla helgarinnar sem hann fékk á rjúpnaslóðum á Reykjaheiði sem er á hálendinu suður af Húsavík.
Atvinna
Landhelgisgæsla
Íslands (LHG)
fylgist nú grannt
með rannsókn á
slysi sem átti sér
stað í Suður-
Kóreu síðastlið-
inn fimmtudag,
en þar brotlenti
þyrla sömu teg-
undar og Gæslan notar. Óttast er að
allir sem um borð voru, alls sjö
manns, hafi farist í slysinu. Þyrlan
er af gerðinni Airbus H-225 Super
Puma og hafa þyrluslys verið tíð
með þessari tegund.
Upplýsingafulltrúi LHG segir að
óskað verði eftir upplýsingum frá
Airbus vegna slyssins. „Að svo
komnu máli hefur ekkert komið
fram sem kallar á viðbrögð af hálfu
Landhelgisgæslunnar,“ segir Ásgeir
Erlendsson, upplýsingafulltrúi
LHG.
LHG fylgist
grannt með
gangi mála
Airbus TF-EIR er
af sömu gerð.