Morgunblaðið - 04.11.2019, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Jafnréttismál
á vinnustöðum
Ráðstefna um jafnréttismál í Valaskjálf á Egilsstöðum á föstudaginn
12:45 Léttur hádegisverður
13:30 Setning ráðstefnu, fundarstjóri
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, yfirmaður
samskipta og samfélagsmála hjá
Alcoa Fjarðaáli
13:35 Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri
Landsbankans: Hvar eru þær?
13:55 Hörður Arnarson forstjóri
Landsvirkjunar: Jafnréttismál
eru að hraða þróun vinnustaðarins
14:15 Guðný Björg Hauksdóttir
framkvæmdastjóri mannauðs
hjá Alcoa Fjarðaáli: Höfumkjark til
að ögra vinnustaðamenningunni
14:35 Þorsteinn Víglundsson
þingmaðurViðreisnar og
fyrrverandi jafnréttis- og félags-
málaráðherra: Hverju skilar
jafnlaunavottun okkur?
14:55 Þórey Vilhjálmsdóttir ráðgjafi hjá
Capacent: Lærdómur af vinnunni
með Jafnréttisvísi
15:15 Kaffihlé
15:35 Pallborðmeð frummælendum
dagsins, spurningar úr sal og
vonandi fjörugar umræður
16:00 Ráðstefnulok
og Jafnréttisvísi Capacent. Við hvetjum alla,
sem hafa áhuga á að auka veg jafnréttismála
í atvinnulífinu, til aðmæta.
Skráningarform er að finna á Facebook-síðu
Fjarðaáls undir viðburðinum „Jafnréttismál
á vinnustöðum“og á alcoa.is.
Hvers vegna eru jafnréttismálmikilvæg
á vinnustöðum? Þrjú stórfyrirtæki sem
öll hafa sett jafnréttismál á oddinn um árabil
munu ræða jafnréttismál á ráðstefnu
á Egilsstöðumþann 8. nóvember nk.
Einnig verða innlegg um jafnlaunavottun
Dagskrá
DagmarÝr
Stefánsdóttir
Lilja Björk
Einarsdóttir
Hörður
Arnarson
Guðný Björg
Hauksdóttir
Þorsteinn
Víglundsson
Þórey
Vilhjálmsdóttir
Gert er ráð fyrir 350 millj. króna af-
gangi af rekstri Mosfellsbæjar á
næsta ári, skv. fjárhagsáætlun
næstu fjögurra ára, en hún er nú til
umfjöllunar í bæjarstjórn. Áætlunin
gerir ráð fyrir að tekjur verði 13.380
m.kr., gjöld án fjármagnsliða 12.402
m.kr., fjármagnsliðir 628 m.kr. og að
rekstrarafgangur verði 350 m.kr.
Fyrirhugað er að framkvæma fyrir
2.970 m.kr., mikið í skóla-, gatna- og
veitumannvirkjum.
Áætlunin gerir ráð fyrir hóflegri
hækkun gjaldskráa til samræmis við
stefnumörkun lífskjarasamninganna
en að leikskólagjöld lækki um 5%. Þá
verða álagningarprósentur fast-
eignagjalda hækkaðar.
Snjöll þjónusta
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóð-
anna eru leiðarljós í stefnumótun
Mosfellsbæjar. Er nú unnið að mót-
un stefnu í málefnum eldra fólks og
lýðheilsu- og forvarnastefnu og end-
urskoðun á menningar- og skóla-
stefnu. Sé litið til einstakra þátta í
starfsemi Mosfellsbæjar með vísan
til fjárhagsáætlunar verður áfram
unnið að því að gera þjónustu bæj-
arins skilvirkari með notkun snjall-
tækja. Leikskólaplássum fyrir 12-18
mánaða börn verður fjölgað um 25 á
árinu 2020. Þá verður verulegum
fjármunum varið til upplýsinga- og
tæknimála og bættrar aðstöðu í
grunnskólum bæjarins.
Unnið er að endurskoðun aðal-
skipulags bæjarins og innleiðingu
umhverfisstefnu. Vinna við bygg-
ingu Helgafellsskóla heldur áfram
og fjölnota íþróttahús verður tekið í
gagnið innan skamms.„Á næsta ári
mun íbúum fjölga og tekjur aukast,
og álögur á íbúa og fyrirtæki munu
ekki hækka að raungildi heldur
lækka í nokkrum tilfellum. Þjónusta
við íbúa og viðskiptavini eflist stig af
stigi,“ segir í fréttatilkynningu haft
eftir Haraldi Sverrissyni bæjar-
stjóra.
Íbúafjögun verði 5,9%
Íbúar Mosfellsbæjar eru í dag
11.463 talsins og í forsendum fjár-
hagsáætlunar er miðað við að þeim
fjölgi um 5,9% á næsta ári. Mosfells-
bær er sjöunda fjölmennasta sveit-
arfélag landsins og fjölgun íbúa í ár
verður líkast til í kringum 5,2%.
sbs@mbl.is
Reksturinn í plús og íbúum fjölgar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Mosfellsbær Horft til nýbyggðar í
Helgafellslandi af Úlfarsfellinu.
Heimsmarkmiðin gilda í Mosfellsbæ
Sameining prestakalla víða um land-
ið er til umfjöllunar á Kirkjuþingi
sem sett var á laugardaginn og
stendur fram í vikuna. Fyrir liggur
tillaga frá Agnesi M. Sigurðardóttur
biskupi Íslands um að Breiðholts- og
Fella- og Hólaprestaköll í Reykjavík
verði að einu Breiðholtsprestakalli
sem sóknarprestur og tveir prestar
muni þjóna. Einnig að Ás-, Lang-
holts- og Laugarnesprestaköll í
Reykjavík verði sameinuð svo úr
verði Laugardalsprestakall. Þar yrði
einn sóknarprestur og þrír prestar.
Á báðum þessum stöðum munu
vígslualdur, menntun og sjónarmið
um jafnrétti kynjanna ráða því hver
verði sóknarprestur, það er prest-
urinn sem hefur forystu í starfinu.
Einnig stendur til að sameina
Digranes- og Hjallaprestaköll í
Kópavogi, þar sem núverandi sókn-
arprestur í Digranesi verður sókn-
arprestur. Vestra er svo ráðgert að
Bolungarvíkur-, Holts-, Ísafjarðar-
og Þingeyrarprestaköll verði Ísa-
fjarðarprestakall.
Af öðru í þessum dúr þá er þar til
umfjöllunar að þjónustu í Flatey á
Breiðafirði verði sinnt af prestinum í
Stykkishólmi en ekki Reykhólum
eins og nú er. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flatey Kristnihaldi í Breiðafjarðar-
eyjum sé sinnt úr Stykkishólmi.
Sameining
prestakalla
til umræðu
Tómas Már Sig-
urðsson hefur
verið ráðinn for-
stjóri HS Orku.
Mun hann taka
við starfinu um
áramót. Segir frá
þessu í tilkynn-
ingu HS Orku.
Tómas Már
kemur til liðs við
HS Orku eftir
störf sín hjá Alcoa, þar sem hann
gegndi síðast stöðu aðstoðarfor-
stjóra á heimsvísu. Áður starfaði
hann sem framkvæmdastjóri tækni-
sviðs hjá Norðuráli.
Tómas Már er menntaður um-
hverfisverkfræðingur frá Háskóla
Íslands og með meistarapróf í skipu-
lagsverkfræði frá Cornell-
háskólanum í New York í Bandaríkj-
unum.
Tómas Már
til HS Orku
Tómas Már
Sigurðsson