Morgunblaðið - 04.11.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Haukur Þór Hauksson, fram-kvæmdastjóri Investis, sem
hefur meðal annars starfað sem
ráðgjafi við sölu og sameiningu
fyrirtækja, ritar athyglisverða
grein á vb.is. Þar fjallar hann um
fyrirhugaða breyt-
ingu á samkeppn-
islögum, sem hann
telur í rétta átt en
bendir á að viðmið-
unarmörk um veltu
samrunaaðila verði
enn mjög lág „sem
gerir það að verk-
um að fjöldi sam-
runa kemur á borð Samkeppniseft-
irlitsins, þar sem sameiginleg velta
eftir samruna nær ekki einu sinni
1% markaðshlutdeild“.
Þetta eru vitaskuld óeðlilega lágmörk og þyrftu að hækka um-
talsvert í meðferð þingsins. Hauk-
ur Þór nefnir dæmi um samruna
sem hann hefur komið að hjá
litlum og meðalstórum fyrir-
tækjum þar sem Samkeppnis-
eftirlitið hefur tekið sér mánuði til
að fara yfir málin með tilheyrandi
kostnaði, töfum og áhættu fyrir
viðkomandi fyrirtæki. Þetta eigi
sér stað þó að samruninn geti ekki
orðið til þess að sameinað fyrirtæki
nái undirtökum á viðkomandi
markaði.
Haukur Þór nefnir að í engu þvísamrunamáli sem hann hafi
komið að hafi verið hætta á fá-
keppni eða yfirburðastöðu. Samt
sem áður fara þessi mál fyrir Sam-
keppniseftirlitið.
Erfitt eða ómögulegt er að finnadæmi þess að Samkeppnis-
eftirlitið hafi stuðlað að aukinni
samkeppni eða heilbrigðari að-
stæðum á markaði. Dæmin um hið
gagnstæða eru mörg. Brýnt er að
við endurskoðun laganna takist að
draga úr ókostum þessarar eftir-
litsstarfsemi og draga fram kost-
ina, ef mögulegt er.
Haukur Þór
Hauksson
Óhóflegt eftirlit
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Meðalhiti í Reykjavík í nýliðnum
októbermánuði var 5,4 stig, eða 1,0
stigum yfir meðallagi áranna 1961 til
1990, en 0,2 stigum yfir meðallagi
síðustu tíu ára. Á Akureyri var
meðalhitinn 3,1 stig, 0,1 gráðu yfir
þrjátíu ára meðaltalinu sem fyrr er
nefnt, en -0,9 stig séu árin 2009 til
2018 höfð sem viðmið. Í Stykkishólmi
var meðalhitinn 5,0 stig, sem stendur
á pari við síðasta áratug. Þetta kem-
ur fram í yfirliti á vef Veðurstofu Ís-
lands.
Í október voru allmargir hlýir dag-
ar en kaldir inni á milli. Að tiltölu var
hlýjast vestanlands en fremur svalt
og úrkomusamt á Norður- og Aust-
urlandi, þar sem fyrsti snjór vetr-
arins féll. Meðalhiti mánaðarins var
hæstur í Surtsey 6,8 stig en lægstur
-2,5 stig á Gagnheiði, sem er suður af
Fjarðarheiði milli Héraðs og Seyð-
isfjarðar. Hæsti hiti mánaðarins
mældist 8. október í Grindavík og fór
þá í 15,3 gráður. Harðast fraus á
Grímsstöðum á Fjöllum á 23. degi
mánaðarins, þegar gaddur þar fóru í
-17,1 stig.
Úrkoma í Reykjavík mældist 77,4
mm, sem er um 90% af meðalúrkomu
1961 til 1990. Hvítir dagar á Akur-
eyri voru 7, þrír fleiri en í meðalári. Í
Reykjavík var autt allan mánuðinn
og fjöldi sólskinsstunda í meðallagi.
Hlýindi í október yfir meðaltalinu
Heitt var í höfuðborginni Sólskins-
stundir Sjö alhvítir dagar á Akureyri
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Vetrargleði Börnin á Húsavík fögn-
uðu þegar fyrsti snjór féll nyrðra.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Flugritar farþegaþotu Icelandair
sem lýsti yfir neyðarástandi vegna
lágrar eldsneytisstöðu og lenti í kjöl-
farið á lokaðri flugbraut á Kefla-
víkurflugvelli verða sendir til Bret-
lands í rannsókn. Þetta segir Ragnar
Guðmundsson, rannsakandi hjá
Rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Atvik þetta er rannsakað sem „alvar-
legt“.
Farþegaþotan var á leið til lands-
ins frá Seattle í Bandaríkjunum 28.
október sl. Umrædd flugbraut var
lokuð eftir annað alvarlegt flugatvik
þar sem lítil vél fór út af braut. Allir
komust heilir frá báðum atvikum.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa
fer með báðar rannsóknir. Er nú
m.a. unnið að því að safna gögnum og
ræða við vitni, flugmenn og aðra
hlutaðeigandi. Þá voru flugritar
Icelandair-þotunnar, sem innihalda
samskipti flugmanna og aðrar mikil-
vægar flugupplýsingar, fjarlægðir
snemma í rannsóknarferlinu.
„Ég er búinn að kalla eftir ýmsum
gögnum og er nú unnið að því að
safna þeim saman,“ segir Ragnar í
samtali við Morgunblaðið. „Það er
ekki búið að lesa flugritana. Þeir
verða sendir til Bretlands á næst-
unni og þá kemur í ljós hvað er á
þeim,“ bætir hann við.
Umrædd farþegaþota hafði
Reykjavíkurflugvöll sem varavöll.
Aðstæður þar voru ekki ákjósanleg-
ar og ákvað flugstjórinn því að lenda
á lokaðri braut í Keflavík. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Isavia var
hálka á brautinni í Reykjavík þennan
morgun, úrkoma og lofthiti rétt yfir
frostmarki en brautarhiti rétt undir
frostmarki.
Flugritarnir verða
sendir til Bretlands
Innihalda sam-
skipti flugmanna og
tækniupplýsingar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Farþegavél Flugritarnir voru fjar-
lægðir vegna rannsóknarinnar.