Morgunblaðið - 04.11.2019, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af
V
E
R
T
Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og
steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum.
- því að sumt virkar betur saman
Stundum
þarf tvo til
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Allt í þessu verkefni hefur gengið á
afturfótunum og dagsetningar hafa
aldrei staðist,“ segir Ásmundur
Helgason, veitingamaður á veitinga-
staðnum Gráa kettinum á Hverfis-
götu 16a í Reykjavík, í samtali við
Morgunblaðið. Kurr er meðal þeirra
sem eiga og reka
fyrirtæki við neð-
anverða götuna,
það er milli Ing-
ólfsstrætis og
Smiðjustígs,
vegna mikilla tafa
á framkvæmdum.
Ásmundur
hyggst nú gera
kröfu á Reykja-
víkurborg og
krefjast bóta
vegna þeirra búsifja sem seina-
gangurinn hafi valdið sér. Hann hef-
ur falið lögfræðingi að undirbúa kröf-
una.
Framkvæmdir á Hverfisgötunni
felast í að grafa og fylla í götu, útbúa
gangstéttar og hjólastíg, endurnýja
lagnir í jörðu, setja niður snjó-
bræðslurör, malbika, leggja kanta og
hellur og útbúa gróðursvæði.
Efasemdir um að
dagsetningar standist
„Þetta er mjög þarft verk en seina-
gangurinn óþolandi,“ segir Ásmund-
ur. „Hafist var handa um 20. maí og
okkur sagt að öllu yrði lokið fyrir
Menningarnótt, sem var síðustu
helgina í ágúst. Ekkert af því hefur
staðist, en núna fáum við þau svör að
verkinu eigi að ljúka um 15. nóvem-
ber. Vonandi stenst sú dagsetning en
eðlilega hef ég efasemdir,“ segir Ás-
mundur.
Vegna framkvæmda hefur
Hverfisgatan verið sundurgrafin og
víða tálmanir svo að fólk hefur illa
komist inn á verslanir og veitinga-
staði við götuna. „Veltan í Gráa kett-
inum það sem af er þessu ári er fjórð-
ungi minni en í fyrra og munurinn í
október er 40%,“ segir Ásmundur og
bætir við að borgarfulltrúar meiri-
hlutans hafi daufheyrst við umkvört-
unum sínum og ekki svarað skila-
boðum. Í síðustu viku hafi Ólöf
Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis-
og skipulagssviðs, svo mætt við ann-
an mann og farið yfir stöðuna.
Skýringar sem gefnar eru á töf-
unum eru sagðar vera að illa hafi
gengið að brjóta niður grjótklöpp í
götunni, verktakinn hafi á stundum
átt erfitt með að halda í mannskap og
þá hafi aðföng til verksins, svo sem
lagnaefni, ekki borist á réttum tíma.
Þetta segir Ásmundur að geti allt í
sjálfu sér verið rétt, en þetta geti þó
ekki útskýrt þriggja mánaða töf.
Seinagangur þessi hafi raskað miklu
í rekstri Gráa kattarins svo ekki sé
annað í stöðunni en að krefjast bóta
af borginni.
Tímaramminn sé raunhæfur
„Þessar miklu tafir á framkvæmd-
um á Hverfisgötunni getur Reykja-
víkurborg ekki afsakað. Á það dreg
ég enga dul,“ segir Þórdís Lóa Þór-
hallsdóttir, formaður borgarráðs.
Mál þetta segir hún kalla á endur-
skoðun vinnubragða, svo sem að
tímaramminn sem framkvæmdum sé
gefinn verði raunhæfur svo áætlanir
geti staðist. Einnig þurfi að bæta
upplýsingagjöf og samskipti.
„Í þessu máli á Hverfigötunni
núna blæðir heiðarlegu fólki í at-
vinnurekstri fyrir mistök og tafir.
Sjálf þekki ég úr atvinnurekstri er-
lendis hversu slæmar afleiðingar
dráttur á svona verkefnum getur
haft og skil því óánægju fólks afar
vel,“ segir hún enn fremur.
Endurtekin mistök
„Þessi seinagangur við fram-
kvæmdir á Hverfisgötunni er klúður
af hálfu borgarinnar,“ segir Eyþór
Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins, sem er í minnihluta borg-
arstjórnar. Hann segir nokkra sem
staðið hafa að rekstri við Hverfis-
götuna, svo sem verslana og veit-
ingastaða, hafa hætt starfsemi að
undanförnu, enda hafi hinar miklu
tafir á framkvæmdum í raun kippt
fótunum undan starfsemi þeirra.
„Mér finnst umhugsunarvert að
svo virðist sem enginn einn aðili hjá
borginni fylgist með svona fram-
kvæmd og tryggi að allt gangi greitt
fyrir sig. Samtal við fólkið er nauð-
synlegt en svo virðist sem þeir sem
nú ráða borginni hafi ekki þá teng-
ingu við almenning sem þarf,“ segir
Eyþór, sem minnir á að fleiri fram-
kvæmdir á vegum Reykjavíkur að
undanförnu hafi tafist óhóflega. Þar
megi nefna verkefni við Bústaðaveg,
Vonarstræti, Sæbraut og Hofsvalla-
götu. Sígilt sé af hálfu fulltrúa núver-
andi meirihluta að svara því til í mál-
um eins og þessum að lærdómur
verði dreginn af mistökunum. Slíkt
telur Eyþór þó léttvæga skýringu
þegar sagan endurtaki sig aftur og
aftur.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Völundarhús Það getur verið erfitt fyrir gangandi að rata um Hverfisgötu.
Seinagangur-
inn er óþolandi
Vill bætur vegna búsifja Heiðar-
legu fólki blæðir, segir Þórdís Lóa
Ásmundur
Helgason
Eyþór
Arnalds
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Víða um land hafa fuglaáhugamenn rekið augun í lit-
skrúðugan fugl, svokallaða silkitoppu eða Bombycilla
garrulus á fræðimáli. Fugl þessi er grábleikur að lit
með topp á höfði, en líkt og hjá mörgum tegundum er
karlfuglinn litskrúðugari en kvenfuglinn. Þessi ung-
fugl sem hér sést á mynd var á Siglufirði á laugardag.
Búsvæði silkitoppa eru barrskógar og eru þær
miklar berjaætur þótt aðallega nærist þær á skordýr-
um yfir varptímann. Silkitoppur verpa í norðanverðri
Skandinavíu og fylgja þaðan barrskógabeltinu austur
um Rússland og í Norður-Ameríku. Þegar fæðufram-
boðið minnkar leggjast þær í flakk og sjást þá í vestan-
verðri Evrópu, meðal annars hér á landi.
Silkitoppa sást
á Siglufirði
Ljósmynd/Mikael Sigurðsson