Morgunblaðið - 04.11.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík hefur tekið til
afgreiðslu umsókn Seðlabanka Íslands um
hækkun hússins á lóð nr. 1 við Kalkofnsveg að
hluta til um tvær hæðir, samkvæmt tillögu
Arkþings ehf.
Fram kemur í greinargerð Arkþings að
sameining Seðlabanka Íslands og Fjármálaeft-
irlitsins hafi verið samþykkt á Alþingi. Fyr-
irhugað sé að sameina starfsemina undir eitt
þak í núverandi hús Seðlabankans. Starfsfólki
í húsinu muni fjölga um u.þ.b. 40% og sé ljóst
að stækka þarf húsið til að rúma starfsemina.
Því sé leitað viðbragða skipulagsyfirvalda með
fyrirspurn þessari við þeirri hugmynd að
hækka hluta hússins um tvær hæðir. Að mati
tillöguhöfunda beri húsið vel þessa breytingu
sem og nánasta umhverfi. Upprunalegir hönn-
uðir hússins, þeir Guðmundur Kr. Guðmunds-
son og Ólafur Sigurðsson (stofnendur Ark-
þings), hafi upplýst að til hafi staðið húsið yrði
tveimur hæðum hærra, en það svo lækkað síð-
ar í hönnunarferlinu.
Húsið áfram kennileiti í miðbænum
„Meðfylgjandi samsettar ljósmyndir sýna
að okkar mati að húsið og umhverfið beri
þessa breytingu vel og einnig sýnir meðfylgj-
andi skuggavarp að skuggaáhrif eru óveruleg.
Mikil uppbygging á sér nú stað á hafnarbakk-
anum og teljum við að Seðlabankahúsið muni
samsvara sér vel eftir breytingu sem þátttak-
andi í hinni nýju götumynd og um leið ákveðið
kennileiti í bænum,“ segir í greinargerðinni.
Hús Seðlabanka Íslands við Arnarhól er eitt
af helstu kennileitum í hjarta Reykjavíkur.
Forseti Íslands, Vigdís Finnbogadóttir, lagði
hornstein að húsi Seðlabankans 6. maí 1986, að
því er fram kemur í grein á heimasíðu bank-
ans. Seðlabankinn flutti starfsemi sína í húsið
árið 1987, en fram til þess tíma var bankinn í
sambýli með Landsbankanum í þremur húsum
við Austurstræti og Hafnarstræti. Segja megi
að byggingin við Arnarhól sé að mestum hluta
sérhönnuð með þarfir Seðlabankans og skyldr-
ar starfsemi í huga. Gólfflötur hússins er ríf-
lega 13 þúsund fermetrar. Byggingin skiptist í
aðalhús, fimm hæðir við Arnarhól, en sex við
Skúlagötu og Kalkofnsveg, og lágbyggingu
sem er tvær til þrjár hæðir. Kjallari er undir
allri byggingunni, niðurgrafinn að fullu. Vegna
útlits hússins var fljótlega byrjað að kalla það
Svörtuloft manna á meðal.
„Arkitektar hússins eru þeir Guðmundur
Kr. Guðmundsson og Ólafur Sigurðsson. Með
veggjum sem snúa að Kalkofnsvegi kalla þeir
fram ímynd virkis, en fyrst og fremst er litið til
þess að byggt sé til langs tíma; um er að ræða
trausta og viðhaldslitla nútímabyggingu. Hún
er að hluta klædd með áli og er ein fyrsta
bygging af því tagi hér á landi. Á útveggjum
lágbyggingar og súlum hábyggingar er
gabbrósteinn úr Hoffelli í Hornafirði.“
Bygging Seðlabankahússins átti sér langan
aðdraganda. Sambúðin með Landsbankanum
varði hátt á þriðja áratug. Árið 1978 keypti
bankinn lítið hús á stórri lóð við Einholt 4 í
Reykjavík til að sameina geymslurými sem var
á þremur stöðum í borginni. Þar var byggt
þriggja hæða hús sem er um 2.000 fermetrar
að stærð. Í þessu húsi er nú mestur hluti af
skjala- og bókasafni bankans ásamt gögnum
úr Myntsafni Seðlabanka og Þjóðminjasafns,
geymslurými og bifreiðageymsla.
Eignaðist lóð Sænska frystihússins
Árið 1981 komst skriður á byggingarmál
bankans með samningi við Reykjavíkurborg
um makaskipti á lóð sem bankinn átti við Sölv-
hólsgötu og lóð Sænska frystihússins við norð-
anverðan Arnarhól. Sænska frystihúsið var
fyrsta frystihúsið á Íslandi sem var sér-
staklega byggt sem slíkt, og þegar húsið var
reist var það stærsta hús á landinu. Húsið tók í
fyrsta sinn á móti fiski til frystingar þann 18.
febrúar 1930. Þegar best lét unnu þar 150
manns. Nafnið fékk það af því að húsið stóð áð-
ur í Gautaborg í Svíþjóð. Það var rifið og við-
urinn fluttur til Íslands.
Í byrjun árs 1982 samþykkti byggingar-
nefnd borgarinnar teikningar nýs bankahúss,
og framkvæmdir hófust. Risgjöld voru haldin í
júlí 1984, og var þá tekið til við að einangra
húsið að utan og klæða.
Á byggingartíma efndu Reykjavíkurborg og
Seðlabankinn til hugmyndasamkeppni um
hlutverk og mótun Arnarhóls, borginni til
prýði og fyrsta landnámsmanninum til heið-
urs, segir í greininni.
Reiknistofa bankanna hefur haft aðstöðu í
húsinu og enn fremur höfðu Þjóðhagsstofnun
og Iðnþróunarsjóður þar aðstöðu um tíma.
Fyrir og eftir Kalkofnsvegur 1 fyrir og eftir breytinguna. Í dag er bygging Seðlabankans jafn há Center Hotel Arnarhvoli. Eftir stækkun mun hún standa vel undir viðurnefninu „Svörtuloft“.
Tölvumyndir/Arkþing
„Svörtuloft“ hækka um tvær hæðir
Seðlabankinn vill byggja ofan á Kalkofnsveg 1 Starfsfólki í húsinu mun fjölga um u.þ.b. 40%
með sameiningunni við Fjármálaeftirlitið Fyrirhugað er að sameina starfsemina undir eitt þak
Sænska frystihúsið Hér er unnið að niðurrifi Sænska frystihússins með stórvirkum vélum árið
1981. Hús Seðlabankans reis síðar á lóðinni. Bankinn eignaðist hana í makaskiptum við borgina.
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta