Morgunblaðið - 04.11.2019, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
4. nóvember 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.64 124.24 123.94
Sterlingspund 160.1 160.88 160.49
Kanadadalur 93.88 94.42 94.15
Dönsk króna 18.431 18.539 18.485
Norsk króna 13.506 13.586 13.546
Sænsk króna 12.832 12.908 12.87
Svissn. franki 125.19 125.89 125.54
Japanskt jen 1.1438 1.1504 1.1471
SDR 170.45 171.47 170.96
Evra 137.71 138.49 138.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.3241
Hrávöruverð
Gull 1506.4 ($/únsa)
Ál 1746.0 ($/tonn) LME
Hráolía 60.57 ($/fatið) Brent
● Bandaríska fjármálaráðuneytið
hefur sett af stað rannsókn á kín-
verska myndskeiða-forritinu TikTok.
Að sögn FT er rannsóknin gerð með
vísan til þjóðaröryggis og kemur til
vegna þrýstings frá Bandaríkjaþingi.
Nánar tiltekið vill ráðuneytið skoða
tveggja ára gömul kaup kínverska
tæknifyrirtækisins ByteDance, móður-
félags TikTok, á samfélagsmiðlinum
Musical.ly, sem síðar varð grunnurinn
að TikTok. ByteDance leitaði ekki álits
bandarískra stjórnvalda á kaupunum á
sínum tíma, enda bæði félögin kín-
versk. Bandaríska fjármálaráðuneytið
gæti þó látið sig málið varða á þeim
grundvelli að Musical.ly heldur úti
starfsemi í Los Angeles og reynir
einkum að höfða til táninga í Banda-
ríkjunum og Evrópu.
Fyrr á árinu náði TikTok þeim
áfanga að hafa verið sótt í meira en
einn milljarð skipta, þar af 100 millj-
ón sinnum af bandarískum snjallsíma-
notendum. Óttast bandarískir þing-
menn að TikTok og önnur forrit af
svipuðum toga geti sent rafræn gögn
bandarískra borgara til Kína, þar sem
þau myndu vera aðgengileg þarlend-
um stjórnvöldum. ai@mbl.is
Hefja rannsókn á TikTok
Vá Bandarískir stjórnmálamenn eru óró-
legir vegna vinsælda kínverskra forrita.
AFP
STUTT
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það vekur iðulega furðu þegar fjöl-
miðlar segja frá árlegri samantekt
Orkustofnunar um uppruna raforku
á Íslandi. Nú síðast greindi stofnun-
in frá því að árið 2018 hefðu 55% raf-
orku í landinu orðið til við bruna
jarðefnaeldsneytis og 34% í kjarn-
orkuverum, en að aðeins 11% raf-
magnsins kæmu frá endurnýjanleg-
um orkugjöfum.
Raunin er, vitaskuld, að nær öll
raforka á Íslandi verður til hjá vatns-
og jarðvarma-
virkjunum og
koma tölur Orku-
stofnunar til af
því að íslenskir
rafmagnsfram-
leiðendur hafa
selt græn skír-
teini á evrópska
raforkumarkað-
inum.
Sala og kaup
þessara grænu
skírteina eru flestum Íslendingum
framandi en Samorka efnir til
fræðslufundar á Hótel Natura í dag
þar sem farið verður í saumana á
þessu kerfi. Meðal frummælenda er
Alexandra Münzer, framkvæmda-
stjóri ráðgjafar- og markaðsrann-
sóknafyrirtækisins Greenfact í Ósló.
Neytendur ráði ferðinni
Hún segir grænu skírteinin (e.
guarantee of origin) hafa komið til
um síðustu aldamót sem leið til að
gefa fólki og fyrirtækjum eitthvert
val um hvers konar raforku þau not-
uðu. „Grænu skírteinin eru ekki
beinlínis hugsuð sem stuðningskerfi
fyrir framleiðslu raforku með endur-
nýjanlegum orkugjöfum, en kaup og
sala þessara skírteina hefur þó haft
þau óbeinu áhrif að geta haft hvetj-
andi áhrif og vegið þungt í viðskipta-
áætlunum orkuframleiðanda sem
t.d. hefði í hyggju að reisa vindorku-
ver.“
Samkvæmt reglum ESB gefa raf-
orkuframleiðendur út nokkurs konar
skírteini sem vottar uppruna hverr-
ar kílóvattstundar. Skírteinið gildir í
eitt ár og geta raforkusalar skipst á
skírteinum sín á milli. Íslenskir
framleiðendur eru hluti af þessum
markaði, þó að dreifikerfi landsins sé
ekki tengt Evrópu, og er þar komin
skýringin á því franskt kjarnorku-
rafmagn eða pólskt kolarafmagn er
hluti af orkubókhaldi Íslands.
Framleiðandi sem býr til rafmagn
með bruna á kolum en vill koma til
móts við neytendur sem vilja nota
græna orku getur gert það með því
að skiptast á upprunaskírteinum við
annan framleiðanda og greiða fyrir.
Münzer bendir á að þetta breyti
engu um það eðli raforku að leita
stystu leiðar frá framleiðanda til not-
anda, og en hafi þó áhrif á markaðs-
umhverfi raforkuframleiðenda.
„Þannig hafa t.d. sumir þýskir raf-
orkusalar markað sér þá stefnu að
verða græn orkufyrirtæki, jafnvel
þótt allstór hluti af raforkunni sem
þeir selja verði til við bruna jarðefna-
eldsneyta. Er þetta svar við óskum
neytenda, enda setja grænu skírtein-
in kaupendur orkunnar í ökumanns-
sætið.“
Fegrar kolefnisbókhaldið
Allur gangur er á því hve mikinn
áhuga kaupendur hafa á grænni
orku og þannig nefnir Alexandra
svissneska, hollenska og þýska
markaðinn sem dæmi um svæði þar
sem almenningi er mjög í mun að
nota umhverfisvænt rafmagn. „Og
fyrir eitt heimili er viðbótarkostnað-
urinn alls ekki mikill, en getur verið
töluverður þegar kemur að stórnot-
endum á borð við iðnfyrirtæki – hjá
þeim gæti ákvörðunin um að gera
reksturinn grænni kostað milljónir
evra.“
Þar koma síðan til sögunnar hvat-
ar fyrir atvinnulífið að lágmarka sót-
spor starfseminnar, en hin ýmsu
vottunarkerfi leyfa fyrirtækjum að
nota upprunavottaða orku til að laga
hjá sér tiltekna hluta kolefnisbók-
haldsins. „Kostnaðurinn veldur því
að sum fyrirtæki velja að stefna frek-
ar að því að vera kolefnishlutlaus í
orkukaupum, í stað þess að vera
græn, og biðja orkuseljendur því um
rafmagn með upprunavottorði frá
kjarnorkuveri frekar en frá vind- eða
vatnsorkuveri.“
Verð grænna skírteina hefur
hækkað töluvert á undanförnum ár-
um en þó fikrast niður á við undan-
farna tólf mánuði, og þegar línuritið
er skoðað mætti halda að bóla hefði
sprungið. Alexandra segir ýmsa
þætti móta markaðinn og þannig hafi
heitt sumar í Norður-Evrópu 2018
stóraukið eftirspurnina eftir grænu
rafmagni, með tilheyrandi verð-
hækkun. „Síðan þá hefur markaður-
inn róast og kaupendur skírteina
virðast núna bíða átekta því reynslan
hefur kennt þeim að töluvert flökt
getur verið á verði.“
Grænu skírteinin á uppleið
AFP
Kerfi Myndin sýnir vind- og kolaorkuver í Þýskalandi. Bæði í Noregi og á Íslandi, þar sem nær öll orkuframleiðsla
er græn, hafa viðskipti með upprunavottorð raforku sætt gagnrýni. Vottorðin eiga að gefa raforkukaupendum val.
Verð á upprunaskírteinum fyrir græna orku hefur hækkað hratt undanfarin ár
Ísland aðili að markaðinum þrátt fyrir að dreifikerfið sé ekki tengt við Evrópu
Alexandra
Münzer
Kaupandinn ræður
» Verðið á grænum skírteinum
rauk upp sumarið 2018 þegar
óvenju hlýtt var í Norður-
Evrópu.
» Breytilegt er eftir löndum
hve mikið almenningur og
fyrirtæki leggja upp úr því að
velja græna raforku.
» Kerfið virkar sem óbeinn
hvati fyrir seljendur að útvega
viðskiptavinum grænna raf-
magn.
Ríkisolíufélagið Saudi Aramco til-
kynnti á sunnudag að undirbún-
ingur frumútboðs væri hafinn á ný.
Eins og Morgunblaðið fjallaði um
var ákveðið í október að bíða með
skráningu félagsins hjá kauphöll-
inni í Ríad á meðan rekstrartölur
þriðja ársfjórðungs væru teknar
saman. Var það gert svo sýna
mætti fjárfestum að árás sem gerð
var á olíuvinnslustöð Aramco í
september hefði ekki haft alvarleg
áhrif á starfsemina. Að sögn Reut-
ers er það núna niðurstaða félags-
ins að tjónið sem varð í árásinni
muni ekki valda rekstri eða fjár-
hag Aramco teljandi skaða.
Gangi allt að óskum ætti hluta-
fjárútboð Aramco að verða það
stærsta í sögunni og gæti skilað
ríkissjóði landsins allt að 60 millj-
örðum dala í sölutekjur, eftir því
hve stór hlutur fer á markað og
hve gott verð fæst. Núverandi met
var slegið árið 2014 þegar hlutir
fyrir 25 milljarða dala ruku út í
frumútboði Alibaba í Bandaríkj-
unum.
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu hafa
haldið því fram að Aramco sé 2.000
milljarða dala virði en fjárfestar
virðast almennt telja það of hátt
mat, og að 1.500 milljarðar séu
nær lagi. Jafnvel ef það verður
lendingin myndi það gera olíu-
félagið að langverðmætasta skráða
hlutafélagi heims, með Microsoft
og Apple í öðru og þriðja sæti –
hvort um sig u.þ.b. 1.000 milljarða
dala virði. ai@mbl.is
AFP
Tilhlökkun Forstjóri Saudi Aramco,
Amin Nasser, og stjórnarformaður-
inn Yasir al-Rumayyan brattir á
blaðamannafundi á laugardag.
Saudi Aramco aftur af stað
Styttist í frumbútboð hjá olíurisanum Ekkert fyrirtæki í
heiminum er rekið með meiri hagnaði Myndi setja met