Morgunblaðið - 04.11.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
HÁDEGISTILBOÐ
Fiskur dagsins
Ferskur af markaðnum - spy
rjið þjóninn
kr. 1.990,-
Vínarsnitzel
Franskar, sveppasósa, hrása
lat, sítróna
kr. 1.790,-
Pasta dagsins
Pasta að hætti kokksins - sp
yrjið þjóninn
kr. 1.690,-
Ceasar Salat
Kjúklingur, romain salat, bei
kon, brauðteningar,
parmesan, dressing
kr. 1.590,-
Súpa dagsins
Súpa að hætti kokksins - sp
yrjið þjóninn
kr. 990,-
Vorrúllur
Súrsæt sósa og hrísgrjón
kr. 1.290,-
Brunch
Beikon, egg, ristað brauð og
amerískar pönnukökur
kr. 1.790,-
Mánudaga-föstudaga kl. 11.00-14.30
Borðapantanir í síma 562 3232
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, útilokar að fram fari at-
kvæðagreiðsla um hvort Skotar
skuli öðlast sjálfstæði frá breska
konungdæminu meðan hann er við
stjórnvölinn.
Johnson segir að spurningin um
sjálfstæði hafi verið til lykta leidd í
þjóðaratkvæði árið 2014 í löglega
bindandi atkvæðagreiðslu. Þá hafi
það sjónarmið orðið ofan á að kosn-
ing af þessu tagi færi í mesta lagi
fram á heillar kynslóðar fresti.
Nicola Sturgeon, formaður
skosku heimastjórnarinnar og leið-
togi Skoska þjóðernisflokksins
(SNP), segir afstöðu Johnsons
ótæka. Ætlar hún að krefjast þess
að virkjuð verði sérstök lagaákvæði
er gera myndu kosningar í Skot-
landi kleifar. Kveðst hún álíta að
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, veiti henni viðkom-
andi heimild flytjist hann í Down-
ing-stræti 10 eftir þingkosningarnar
12. desember.
Í samtali á Sky-stöðinni í gær
sagði Johnson alveg ljóst að hann
vildi ekki að Skotar fengju annað
tækifæri til að kjósa um aðild sína
að breska konungdæminu.
Heimastjórnin hefur hafið und-
irbúning að nýju þjóðaratkvæði sem
hún stefnir að eftir um ár. Til þess
að kjörið verði lagalega bindandi
þarf samþykki bresku stjórnarinnar
í London að koma til, en því verður
ekki fyrir að fara í stjórnartíð John-
sons.
Breska yfirkjörstjórnin hefur og
sagst þurfa að meta spurninguna
sem lögð yrði fyrir kjósendur, jafn-
vel þótt hún yrði eins og 2014. „Það
vita allir Skotar að kosið verður aft-
ur um sjálfstæði. Og vinni SNP
þingkosningarnar verða það skýr
skilaboð um að við viljum fá að ráða
okkur sjálf í stað þess að vera undir
Boris Johnson seld,“ sagði Stur-
geon. Í orði kveðnu er Verkamanna-
flokkurinn andvígur sjálfstæði Skot-
lands og hið sama er að segja um
Frjálslynda lýðræðisflokkinn.
agas@mbl.is
Útilokar kosningar um Skotland
Sturgeon segir afstöðu forsætisráðherra Bretlands ótæka
Aukinn fjöldi hjólreiðamanna sem
bíður bana í umferðinni í New York
hefur knúið á um verulegar endur-
bætur og uppstokkun í samgöngu-
kerfi borgarinnar.
Hefur samgönguráði borg-
arinnar verið falið að draga upp
nýtt umferðarskipulag fyrir árslok
2021 og þar í verði kveðið á um
gerð 400 kílómetra af afmörkuðum
reiðhjólastígum í borginni fyrir
árslok 2026. Að sögn New York
Times er þar um 1,7 milljarða doll-
ara fjárfestingu að ræða, jafnvirði
210 milljarða króna.
Var tillaga um þessar betrum-
bætur samþykkt með 37 atkvæðum
gegn níu og hjásetu tveggja
borgarráðsmanna. Fyrsta ár
áætlunarinnar verða 50 km af
hjólreiðastígum lagðir og 80 km á
ári þau næstu. agas@mbl.is
MANHATTAN
AFP
Bandaríkin Hjólreiðamenn sjást hér í
þungri umferð ökutækja á Manhattan.
New York henti
betur reiðhjólum
Fyrsta haustlægðin hrelldi Frakka um helgina er risa-
stórar glymjandi hrannir gengu á land. Lömdu þær
klettóttar strandir og hávaðarok reif upp tré og sleit raf-
línur með þeim afleiðingum að rafmagn fór af heimilum
140.000 manna. Við Atlantshafsströndina mældist vind-
hraðinn allt að 163 km/klst. og 121 km/klst. í Bordeaux.
Á myndinni brotnar brimaldan á einum af mörgum tign-
arlegum vitum undan borginni Porspoder. agas@mbl.is
AFP
Glymjandi hrannir og stólparok
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Borgaryfirvöld í Dresden í gamla
austurhlutanum í Þýskalandi lýstu
um helgina yfir svonefndri „nasisma-
neyð“ og gáfu þá skýringu að þau
ættu í alvarlegum vandamálum
vegna hægriöfgamanna. Vöruðu þau
við vaxandi stuðningi við hægriöfga-
öfl og ofbeldi.
Dresden er höfuðstaður Saxlands
og hefur löngum verið álitin vígi
öfgamanna til hægri. Hún er og fæð-
ingarstaður andíslömsku samtak-
anna Pegida. Borgin er í hópi borga
sem sækjast eftir tignarheitinu
Menningarborg Evrópu 2025.
Í samþykkt tillögu um svonefnt
„Nazinotstand“ vegna vaxandi nas-
isma segir að meira þurfi að gera en
þar til nú til að kveða nasismann
niður. Andstæðingar stjórnarinnar
segja hana hins vegar ganga of langt.
„„Nazinotstand“ þýðir – eins og á
við um loftslagsneyð – að okkur er
mikill og alvarlegur vandi á höndum.
Borgin á við nasistavanda að glíma.
Hinni opnu lýðræðislegu samfélags-
gerð er ógnað,“ segir borgarfulltrú-
inn Max Aschenbach, sem lagði fram
tillöguna um neyðarástand, í samtali
við fréttastofuna DPA og BBC.
Aschenbach, sem er liðsmaður
vinstriflokksins Die Partei, segir
nauðsynlegt að taka af skarið og
grípa til aðgerða. Hann gagnrýndi
stjórnmálamenn fyrir að taka ekki af
skarið og stilla sér afdráttarlaust
upp gegn hægri öfgaöflunum. „Kraf-
an var tilraun til að breyta þessu. Ég
vildi líka fá fram með hvers konar
fólki ég sit í borgarstjórn Dresden,“
bætti hann við.
Tillaga Aschenbachs var sam-
þykkt með 39 atkvæðum gegn 29.
Meðal þeirra sem henni voru andvíg-
ir voru fulltrúar Kristilega demó-
krataflokksins (CDU). „Frá okkar
sjónarhóli var hér fyrst og fremst um
ögrun að ræða,“ segir Jan Don-
hauser, leiðtogi CDU í borgarstjórn-
inni.
„Neyðarástand táknar hrun eða al-
varlega ógn við röð og reglu. Og það
er ekki gefið að svo sé. Að einblína á
hægri öfgamennsku hjálpar okkur
ekki að öðlast það sem við þurfum.
Við erum varðmenn lýðfrjálslegrar
reglu án ofbeldis, alveg sama frá
hvorri öfgahliðinni hún kemur,“
sagði Donhauser. Auk CDU lagðist
Alternative für Deutschland (AfD)
einnig gegn samþykktinni en vinstri-
flokkar og frjálslyndir greiddu henni
atkvæði.
Öfgasjónarmið á uppleið
Í samþykktinni segir að gangast
verði við því að hægriöfgasjónarmið
og -aðgerðir fari vaxandi. Eru
borgaryfirvöld hvött til að setja í for-
gang aðstoð við fórnarlömb ofbeldis-
aðgerða hægriöfgamanna, til að
vernda minnihlutahópa, hefja mann-
réttindi til vegs og virðingar og
styrkja lýðræðið. Eru sagðar
áhyggjur af því að vaxandi ólýðræð-
isleg hegðun, andstæð fjölhyggju, er
gengur út á mismunun og
hægriöfgasjónarmið, þar á meðal of-
beldisaðgerðir, sé á uppleið í Dres-
den. Hvatt er til þess að lýðræðis-
menning verði efld í borginni. Í
samþykktinni er einnig lögð mikil
áhersla á mikilvægi þess að spyrna
fótum við andgyðinglegri háttsemi,
kynþáttahatri og hatri á múslimum.
Aschenbach segir að samþykkt til-
lögu hans staðfesti skuldbindingu
borgarstjórnarinnar gagnvart
frjálsu og lýðræðislegu samfélagi
sem verndi minnihluta og sé af-
dráttarlaust andvígt nasisma.
Nasískri neyð lýst í Dresden
Borgarstjórnin í Dresden í Þýskalandi segir að gangast verði við því að hún
glími í vaxandi mæli við hægriöfgasjónarmið og ofbeldisaðgerðir í borginni
AFP
Dresden Stuðningsmenn andíslömsku samtakanna Pegida við mótmæli.