Morgunblaðið - 04.11.2019, Page 17
prýðilegan kerfiskarl. Ekki varð af
því, en hæfileikinn til að hafa til-
tækar í röð og reglu þær stað-
reyndir sem eru nauðsynleg við-
spyrna ef stefnt er að háleitum
markmiðum eða leitað að nýjum
skilningi reyndist Gunnari nota-
drjúgur og átti vafalaust sinn þátt
í miklum afköstum hans við rit-
störf.
Gunnar var alla tíð vinnuþjark-
ur, en hann kvartaði aldrei þótt
hann væri tafinn með félagsmála-
stússi eða samtölum um sameig-
inleg áhugamál, hvort sem þau
voru af sviði þjóðmála, fræða eða
lista. Á ótalmörgu hafði hann
áhuga, sannarlega enginn fagid-
jót. Marga ferð átti ég yfir gang-
inn á fjórðu hæð í Árnagarði til að
tefja fyrir Gunnari og rökræða við
hann um áhugamál okkar. Her-
bergið hans skar sig reyndar dálít-
ið úr vinnustöðvum okkar hinna
karlanna, þar voru bæði blóm í
krukkum og barnslegar myndir á
veggjum. Þar birtist hlið á honum
sem ekki blasti við þeim sem ekki
þekktu hann af öðru en opinberum
umræðum, þar sem hann var æv-
inlega rökfastur og rökfimur og sú
gamansemi sem hann brá fyrir sig
heldur þurr. Í einkalífi og samtöl-
um við kunningja sína var hann
hið mesta ljúfmenni.
Ekki þarf að fjölyrða um afköst
Gunnars í fræðistörfum og ágæti
ritsmíða hans, en þær einkenndust
af næmri tilfinningu fyrir því að
allt hangir saman í samfélagi og
menningu, allt er hvað öðru háð.
Þannig gafst honum tækifæri til
að láta áhuga sinn á bókmenntum
og næman skilning auðga rit um
aðra þætti sögunnar. Vil ég þar
sérstaklega nefna grundvallarrit
hans um Goðamenningu og bókina
um Ástarsögu Íslendinga að
fornu.
Ekki er hægt að kveðja Gunnar
án þess að minnast á Silju. Harla
ólík virtust þau í tilhugalífi á náms-
árunum, hlédrægur sveitamaður
og kát og fjörug Reykjavíkurmær.
En að einmitt þau skyldu veljast
saman var gæfa beggja.
Einhvern tíma fyrir löngu töl-
uðum við Gunnar saman um Hall-
grím Pétursson og vorum sam-
mála um snilld fyrstu vísunnar í
andlátssálmi skáldsins um
blómstrið eina, sem „ ... á snöggu
augabragði/ afskorið verður fljótt,/
lit og blöð niður lagði/ líf mannlegt
endar skjótt.“ Þar er hnitmiðuð og
svöl mynd af því sem bíður okkar
allra, öldungis laus við tilfinninga-
semi.
Ég trúi því að minn góði vinur
hafi verið sáttur við að enda lífið
svo skjótt sem raun bar vitni, þótt
hans nánustu og okkur ótal mörg-
um öðrum hafi þótt það vera alltof
fljótt.
Við Unnur sendum Silju og allri
fjölskyldunni einlægar samúðar-
kveðjur.
Vésteinn Ólason.
Látinn er í Reykjavík Gunnar
Karlsson, fyrrverandi prófessor í
sagnfræði. Kynni okkar hófust
haustið 1962 þegar við settumst
báðir í deild íslenskra fræða við
Háskóla Íslands, og við urðum
samstiga í gegnum deildina í átta
ár, til prófloka 1970. Gunnar var
stúdent frá Laugarvatni, og í
deildinni með okkur voru fleiri
snjallir menn úr þeim skóla, má
þar nefna Kristin Kristmundsson
(látinn), Véstein Ólason og Svavar
Sigmundsson. Í deildinni um þetta
leyti var allsterkur hópur annarra
manna og kvenna, með mér að
norðan komu t.d. Einar G. Péturs-
son, Hjörtur Pálsson og Brynjúlf-
ur Sæmundsson, frá Reykjavík
voru þarna t.d. Böðvar Guð-
mundsson, Þorleifur Hauksson,
Helga Kress, Guðrún Kvaran,
Ólafur Oddsson (látinn), Kristín
Arnalds og Jónas Finnbogason
(látinn). Árum saman sat þetta
fólk saman í tímum hjá prófess-
orum eins og Þórhalli Vilmundar-
syni, Steingrími J. Þorsteinssyni
og Hreini Benediktssyni.
Þessi hópur þótti standa þétt
saman og Gunnar var í forystu
vegna yfirburða gáfna og andlegs
atgervis. Hann var með pottþétt
minni og sérlega ritfær. Um hann
gekk e.k. goðsögn, á þá leið að
hann hefði bjargað heilum bekk á
Laugarvatni í gegnum próf, lík-
lega í stærðfræði, reyndar átti að
hafa verið um vægt svindl að ræða
en ráð Gunnars dugðu svo vel að
ekkert komst upp. Hann þótti vit-
ur sem Njáll.
Hópurinn í íslenskum fræðum
sem um ræðir, var talsvert póli-
tískt þenkjandi, og flestir á vinstri
vængnum, m.a. Gunnar. Við hin
vildum setja hann til forystu og þá
í Stúdentaráð, en þegar til kom
hafnaði hann því, vildi fremur
sinna náminu af fullum þunga,
sem hann gerði vissulega. Náms-
dvalir hans erlendis báru þessu
vitni. Báðir sóttum við um skeið
nám í bókasafnsfræðum hjá Birni
Sigfússyni háskólabókaverði, og
var við lok þess farið í minnis-
stæða ferð austur í Biskupstung-
ur, sem var heimasveit Gunnars
og Páls Skúlasonar lögfræðings
sem með var í för. Einkunnir
Gunnars voru ætíð þær hæstu sem
þekktust, ekki þýddi að reyna að
keppa við hann, hann var nánast
jafnvígur á málfræði, bókmennta-
sögu og sögu Íslands, en valdi síð-
astnefnda efnið sem aðalgrein
sína.
Við Gunnar bjuggum báðir á
stúdentagörðunum æðilengi og
vorum um tíma í mötuneyti saman
úti í bæ. Hann var ætíð hinn besti
félagi og gott til hans að leita.
Hann var að mörgu leyti alvöru-
gefinn en leit aldrei stórt á sig.
Doktorsritgerð hans fjallaði um
þingeyskt efni og var undirritaður
svo heppinn að geta liðsinnt hon-
um lítillega við staðfræðina þar.
Ritgerðin hlaut einróma lof á sín-
um tíma, 1978, og tveimur árum
síðar varð Gunnar prófessor í
sagnfræði við HÍ. Ritaskrá hans
er mjög löng, líklega fannst hon-
um fátt skemmtilegra en stunda
ritstörfin.
Síðast kom ég ásamt konu
minni óvænt í heimsókn til Gunn-
ars og Silju á gamlaárskvöld 1993,
og voru móttökur hinar bestu.
Fyrir það og alla hina góðu vináttu
þakka ég nú. Silju og afkomendum
þeirra Gunnars eru sendar inni-
legar samúðarkveðjur. Blessuð sé
minning Gunnars Karlssonar.
Björn Teitsson.
Vínrauð skyrta, vinfesti og
mjúkt faðmlag. Það var hann.
Gunnar Karlsson. Ósköp venju-
legt nafn sosum. En enginn venju-
legur maður. Hávaxinn, gnæfði yf-
ir. Fluggáfaður, gnæfði yfir þar
líka. Lét samt ekkert mikið yfir
sér, hló engum hrossahlátrum.
Frekar að það kumraði svona í
honum þegar honum þótti eitthvað
fyndið. Og svo blikið í augunum
sem leiftraði svo mjög þegar hon-
um þótti eitthvað verulega fyndið,
að maður fann beinlínis fyrir því
frekar en sá.
Alltaf þetta hlýja bros. Fullt af
væntumþykju og skilningi. Ætíð
boðinn og búinn að gefa af sér,
hvort heldur var í starfi eða per-
sónulegum samskiptum. Lét þar
ekki sitja við orðin tóm heldur
færði sögu lands og þjóðar í bún-
ing sem hentaði öllum skólastig-
um, smitaði áhuga sínum til allra
kynslóða með glöggskyggni sinni
og hæfni. Sagnfræðingur af lífi og
sál. Fyrir margt löngu áttum við
skemmtispjall um hvort hann væri
„sagnfræðilega vaxinn“ – frasi
sem við höfðum bæði séð í nýlegri
blaðagrein og þótti fyndinn. Eftir
nokkrar vangaveltur urðum við
sammála um að hann væri að
minnsta kosti sagnfræðilega vax-
inn innanhöfuðs og vorum harla
ánægð með þá niðurstöðu.
Skoðanafastur var hann, ein-
arður og fylginn sér. Rökræddi
samt ekki með hávaða en maður
átti aldrei neitt í hann, væri maður
á öndverðri skoðun.
Silju sinni gaf hann ást sína alla,
en átti þó yfrið nóg eftir handa
stelpunum sínum þremur, mönn-
um þeirra og börnum. Nú er skarð
fyrir skildi í fjölskyldunni, skarð
sem ekki verður fyllt. Megi minn-
ingin um gjöfulan, gáfaðan og
gæskuríkan mann vera aðstand-
endum Gunnars Karlssonar veg-
vísir í sorginni.
Ingunn Ásdísardóttir.
„Ég er að gefa þjóðinni sögu,“
sagði Gunnar Karlsson í viðtali ár-
ið 1989 þegar hann var í óðaönn að
semja námsbækur í sögu. Að
verkalokum hafði hann skrifað
námsbækur fyrir öll skólastig
landsins, þ.á m. Sjálfstæði Íslend-
inga og Uppruna nútímans sem
margir þekkja. Sumum fannst það
fyrir neðan virðingu prófessora að
skrifa námsbækur fyrir börn og
unglinga en Gunnar taldi það sjálf-
sagða skyldu sína að rækta áhuga
á sögu hjá almenningi og hafa
áhrif á söguskoðanir manna.
Það var þó ekki aðeins vegna
námsbókanna sem Gunnar Karls-
son varð einn áhrifamesti sagn-
fræðingur samtíðarinnar. Hann
var líka áhrifavaldur í sagnfræð-
inni í Háskólanum. Þegar ungi
maðurinn tók við lektorsstarfi í
sagnfræði við Háskóla Íslands
1976 vildi hann umturna kennslu-
háttum og hófst þegar handa við
að treysta innviði greinarinnar.
Gunnari var ofarlega í huga að efla
aðferðanámið, heimildafræði,
skjalfræði og kennslu í söguheim-
speki, og fylgdi því eftir með út-
gáfu á handbókum fyrir sagn-
fræðinema. En honum var líka
annt um að efla færni sagnfræði-
menntaðs fólks til að miðla þekk-
ingu sinni til almennings. Hann
iðkaði það sem hann kenndi og
skrifaði sjálfur nokkur yfirlitsrit
til að gera þekkingu rannsókna-
rita aðgengilega almenningi.
Það hefur verið sagt að í hinum
„hörðu“ vísindum eins og eðlis-
fræði nái menn toppnum í skap-
andi vinnu á þrítugs- og fertugs-
aldri en í „mjúkum“ vísindum á
borð við sagnfræði ekki fyrr en
menn eru komnir yfir miðjan ald-
ur. Staðhæfingin á vel við ævistarf
Gunnars Karlssonar. Það var eins
og hann færðist allur í aukana með
hækkandi aldri. Um það leyti sem
Gunnar nálgaðist eftirlaunaaldur-
inn vakti það bæði undrun og að-
dáun okkar samstarfsmanna hans
að á aðeins þremur árum komu út
fjórar bækur eftir hann, Inngang-
ur að miðöldum, Lífsbjörg Íslend-
inga auk tveggja binda í ritröðinni
Saga Íslands. Þar skiptu sköpum
agi og skipuleg vinnubrögð sem
Gunnar var þekktur fyrir auk fá-
dæma starfsorku sem dugði hon-
um allt fram undir það síðasta.
Gunnar Karlsson var farsæll
maður bæði í einkalífi og ævistarfi
sínu enda lagði hann jafnmikla
rækt við fjölskylduna og fræðin.
Þau Silja voru einstaklega vina-
rækin og minnumst við margra
samverustunda með þeim í boðum
og á ferðalögum. Síðast hittum við
Gunnar allhressan í dásamlegu
áttræðisafmæli hans fyrir rúmum
mánuði á Hrísateignum – í veislu
eins og þeim hjónum er einum lag-
ið að halda.
Við kveðjum nú góðan vin og
samstarfsmann um áratugaskeið,
leiðbeinandann, samkennarann,
samstarfsmann í ótal verkefnum
og síðast en ekki síst minnisstæð-
an vin. Gunnar skilur eftir sig ást-
ríka og samheldna fjölskyldu og
sendum við henni hugheilar sam-
úðarkveðjur.
Guðmundur Jónsson og
Sæunn Kjartansdóttir.
Kynni okkar Gunnars Karls-
sonar hófust fyrir rúmum fimmtíu
árum í íslenskudeildinni við Há-
skóla Íslands. Gunnar skar sig úr
námsmannahópnum, í sjón og
raun, hávaxinn og grannur, með
svart alskegg og frjálslega til fara
miðað við þeirra tíma sið. En um
þetta leyti, fyrir allar stúdenta-
byltingar, var algengt að stúdent-
ar mættu prúðbúnir í kennslu-
stundir, í jakkafötum og með
bindi. Þeir sem helst skáru sig úr
voru íslenskunemarnir, sem auk
þess voru upp til hópa róttækari
en almennt gerðist. Þar var Gunn-
ar á heimavelli, en auk þess var
hann afburða nemandi og einstak-
lega skemmtilegur félagi, hógvær
og hlýr og launkíminn á sinn sér-
staka sunnlenska hátt.
Deildarfélagið Mímir hélt uppi
öflugu félagsstarfi með útgáfu
tímarits, endurvöktum rannsókn-
aræfingum og árvissum ferðalög-
um um söguslóðir. Það mun hafa
verið í Mímisferð í Dalina undir
leiðsögn Árna Björnssonar 1966,
að ástin kviknaði milli Gunnars og
Silju Aðalsteinsdóttur. Ári seinna,
eftir námsdvöl Gunnars í Ósló, var
brúðkaupsveislan haldin. Dýr-
mætt samband við þau hefur hald-
ist óslitið upp frá því og fjarvistir í
útlöndum verið bættar upp með
tíðum gagnkvæmum bréfaskipt-
um. Sérstaklega er mér minnis-
stæð heimsókn til þeirra meðan
þau dvöldu með dæturnar tvær í
Jónshúsi í Kaupmannahöfn á
frumbýlingsárunum 1971-72.
Tveimur árum síðar fluttist fjöl-
skyldan til Lundúna þar sem
Gunnar fékk kennslustarf við Uni-
versity College. Þrátt fyrir
ómegðina notuðu þau tímann vel
til að njóta menningar og auðga
andann.
Í kennslunni við Háskólann,
sem síðan tók við, fór Gunnar að
sumu leyti ótroðnar slóðir. Meðal
nýjunga sem hann bryddaði upp á
var þegar hann tók sig til og fór að
skrifa kennslubækur í Íslands-
sögu fyrir grunn- og framhalds-
skóla. Að baki bjó sú bjargfasta
skoðun hans að háskólakennarar
bæru samfélagslega ábyrgð á því
að gera fræði sín aðgengileg al-
menningi. Ekki fer mikið fyrir því
að Háskólinn örvi eða umbuni fyr-
ir slíka viðleitni. Ég man að Gunn-
ar sagði einu sinni frá kollega úr
annarri fræðigrein sem hlýddi á
rökstuðning hans fyrir útgáfunni,
samsinnti þörfinni, en spurði
Gunnar síðan hvenær hann héldi
að hann gæti farið að skrifa eitt-
hvað af viti! En ekki þurfti að
spyrja að því. Skrá yfir útgefnar
fræðibækur og greinar eftir Gunn-
ar er ótrúlega umfangsmikil og
fjölbreytt.
Ég get ekki látið hjá líða að
minnast á mína uppáhaldsbók,
Ástir Íslendinga, sem Gunnar gaf
út 2013 og tileinkaði Silju. Það þarf
ekki að spyrja hvaðan helsti inn-
blástur þeirrar bókar sé kominn,
en sama máli gegnir um mörg
önnur rit bæði hans og hennar,
jafnt fræðiverk sem þýðingar, sem
þau hafa lesið saman og rætt og
gagnrýnt. Og lesefni yngstu kyn-
slóðarinnar hefur líka verið tekið
til rækilegrar umræðu! Heimilis-
andinn, lifandi áhugi á öllum sköp-
uðum hlutum, sífrjó hugsun, lífs-
gleði, forvitni, hefur ekki aðeins
smitast yfir á dætur þeirra og
barnabörn heldur líka alla þeirra
fjölmörgu vini. Þeirra missir er
mikill.
Þorleifur Hauksson.
Gunnari Karlssyni á ég svo
margt gott upp að inna að ég gæti
skrifað um það heila bók, en mig
langar að minnast hans fyrir þau
djúpstæðu áhrif sem hann hafði á
mig sem kennari og fyrirmynd.
Fyrsta námskeiðið sem ég tók í
háskóla var Íslandssaga sem
Gunnar kenndi. Þetta var haustið
1986 og þó að Gunnar hefði þá ver-
ið búinn að kenna í meira en ára-
tug var krafturinn og ferskleikinn
eins og hann hefði aldrei áður
þurft að horfa framan í syfjaða
nemendur. Gunnar hafði sett sam-
an nýtt kennsluefni í miðaldasögu
og virkjað með sér framhaldsnem-
endur sem kenndu með honum.
Stemningin var eins og það væri
allt mögulegt, og ekki bara mögu-
legt heldur væri verkefnið bæði
stórskemmtilegt og mjög mikil-
vægt. Fyrir mér, sem hafði haft
óljósar hugmyndir um að sagan
væri spennandi, opnaðist skýr sýn
á víðáttur möguleikanna. Það var
frábært veganesti sem ég bý enn
þá að. Gunnar var hæglátur maður
en hann hafði eldmóð sem var
smitandi og svo skýra afstöðu
hafði hann til viðfangsefnisins að
þegar maður var einu sinni búinn
að kynnast henni var ekki hjá því
komist að hún mótaði manns eig-
in. Hann var líka maður með plan.
Ekki bara um að ná utan um Ís-
landssöguna, ekki bara að skilja
hana fyrir sjálfan sig og hina
fræðimennina sem deildu áhuga-
málum hans, heldur að miðla
þessari sögu sem skiljanlegri
heild til allra – til grunnskóla-
barna, til safngesta, til útlendinga
– af því að hann var sannfærður
um að sagan væri góð fyrir fólk, að
hún gerði samfélagið betra og
heiminn betri. Og það sem Gunn-
ar glímdi við var að gera þetta vel.
Hann vildi miðla sögunni þannig
að fólk, hver sem er, gæti skilið og
lært og notið, án þess að það þyrfti
að slá af kröfum um vísindaleg
gæði. Þetta er ekki einfalt mál en
þetta er hægt og það krefst bæði
vandvirkni og stórhugar. Það er
eitthvað alveg magnað við þetta
viðhorf Gunnars til söguritunar.
Það er í senn markað af auðmýkt
fyrir því hve flókið og margslung-
ið viðfangsefnið er, hversu mikill-
ar þekkingar það krefst og hversu
mikinn skilning fræðimaðurinn
þarf að hafa á öllum hliðum mann-
legrar náttúru og mannlegs sam-
félags. Á sama tíma er það grund-
vallað á hressilegri tröllatrú á að
það sé á okkar færi að skoða út í
öll þessi horn og gera grein fyrir
heildarmyndinni þannig að hún
verði ekki bara skiljanleg heldur
líka gagnleg og skemmtileg. Stór-
brotið ævistarf Gunnars ber þessu
viðhorfi fagurt vitni. Og þetta
skiptir máli. Ég er sannfærður um
að veigamikil ástæða fyrir því að
okkur Íslendingum líður heilt yfir
vel í eigin skinni er að við eigum
þétt samband við, og höfum greið-
an aðgang að, okkar eigin sögu.
Gunnar vann sleitulaust að þessu,
að skrifa sjálfur og virkja okkur
hin til að leggjast á árarnar. Sögu-
ritun Gunnars er bæði aðgengileg
og traustvekjandi en til viðbótar
er hún geðþekk. Hann hafði geð-
þekka sýn á mannlífið og gat þess
vegna skrifað sögu sem fólk getur
tengt við og speglað sig í. Það var
mikið lán að fá að kynnast Gunn-
ari og læra af honum. Fyrir það er
ég ævinlega þakklátur.
Orri Vésteinsson.
Gunnar Karlsson prófessor
emeritus hefur lokið þessu jarðlífi
sínu. Gunnar var einn allra besti
og án efa langafkastamesti sagn-
fræðingur landsins. Það var unun
að vera í tímum hjá honum í Há-
skólanum forðum. Það skrópaði
enginn í tímum hjá Gunnari frek-
ar en að skrópa í leikhúsinu. Slík
var upplifunin. Að öllum öðrum
ólöstuðum þá voru tímarnir í
sagnfræðinni langskemmtilegast-
ir og fróðlegastir hjá þeim Þór
Whitehead, Gísla Gunnarssyni og
auðvitað hjá Gunnari, sem við
kveðjum nú.
Ég sagði nýverið við Gunnar
þegar ég hringdi í hann fyrir rétt
um mánuði síðan að þegar við vor-
um hjá honum í tímum á níunda
áratug síðustu aldar hefði verið
hægt að kveikja á segulbandi í
upphafi tímans og nota frásögn
hans beint í kennslubók. Slíkur
var aginn og mælskan og minnið á
efnið sem hann var að miðla til
okkar. Ég sagði honum jafnframt
að það hefði líka glatt mig hversu
ógnarlíkur hann var á að líta Guð-
brandi biskupi Þorlákssyni, eins
og teikningar eru til af honum.
Hárið, skeggið og ásjónan öll. Eft-
ir á að hyggja þá fannst mér hon-
um hvorug þessara einkunna vera
hrós.
Gunnar samdi ásamt öðrum
langflestar kennslubækur í sagn-
fræði á öllum skólastigum lands-
ins. Slík voru afköst hans í þessu
lífi. Og munu þær lifa hann lengi
og vel. Gunnar hafði þetta hárná-
kvæma og rétta mat í stuttu máli
með ofurskýrri röddu á flestu eða
öllu og öllum í sögu vorri. Alltaf
allt sett saman í örstutt mál, en
samt svo allir skildu. Það er ekki
lítil náðargáfa.
Gunnar var einn fárra kennara
sem alltaf komu í kaffistofuna með
okkur sagnfræðinemunum í frí-
mínútum. Það var enn eitt ein-
kenni hans. Alltaf alþýðlegur að
vanda. Alltaf. Sama þægilega við-
mótið var er ég hringdi í hann fyrir
um mánuði. Önnur dóttir mín sem
er í menntaskóla bað mig um að
hjálpa sér við nokkuð snúið heima-
verkefni í sögu. Gátum við ekki
með nokkru móti fundið svar við
einni spurningunni. Tók ég þá til
bragðs að hringja í höfund bókar-
innar, Gunnar sjálfan. Dóttur
minni fannst það ekki ná nokkurri
átt að hringja í prófessorinn sjálf-
an sem samdi bókina klukkan að
verða tíu um kvöld til að spyrja
hann sjálfan. Þótt upptekinn væri
við að undirbúa áttræðisafmæli
sitt þá daginn eftir svaraði Gunnar
þessari málaleitan minni strax og
af ljúfmennsku eins og alltaf.
Áður en ég kvaddi hann spurði
ég hann eins og svo marga aðra
hvort hann héldi að það væri líf
eftir dauðann. „Nei, það held ég
ekki, Magnús minn.“ Ég sagði
honum að yfirgnæfandi líkur
bentu hins vegar til þess, og bætti
við að ég myndi minna hann á
þetta samtal þegar við hittumst
báðir í Sumarlandinu góða síðar
meir. „Já, þú heldur það“ var hóg-
vært svar hans að vanda. Og svo
hlógum við góðlátlega að þessu,
a.m.k. ég.
Ef að líkum lætur þá sefur
Gunnar enn í handanheimunum
þegar þetta er ritað. En hann mun
vakna smám saman næstu dagana
og átta sig á því að kannski var
þetta rétt eftir allt, sé eitthvert vit
í þessum rannsóknum okkar hjá
Sálarrannsóknarfélagi Reykjavík-
ur.
Góða ferð, Gunnar minn. Og
takk fyrir mig og stelpuna mína,
og fyrir allt og allt.
Magnús H.
Skarphéðinsson.
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Sálm. 86.5
biblian.is
Þú, Drottinn,
ert góður og fús
til að fyrirgefa,
gæskuríkur öllum
sem ákalla þig.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN DAGBJÖRT ÞÓRÐARDÓTTIR
Njarðarvöllum 2,
áður til heimilis að Grundarvegi 13,
Njarðvík,
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu,
Nesvöllum, sunnudaginn 27. október.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu, Nesvöllum fyrir
góða umönnun og hlýju.
Hörður Óskarsson Hildur Kristjánsdóttir
Margrét Óskarsdóttir Rúnar R. Woods
Guðmundur Óskarsson Hrafnhildur Svavarsdóttir
Þórður Óskarsson Natalia Herrera
Auður Óskarsdóttir Sverrir Sverrisson
barnabörn og barnabarnabörn