Morgunblaðið - 04.11.2019, Qupperneq 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
✝ Þórður Pét-ursson fæddist
í Keflavík 19. febr-
úar 1956. Hann lést
á Landspítalanum í
Fossvogi 22. októ-
ber 2019.
Foreldrar hans
voru Ragna Stef-
anía Finn-
bogadóttir, f. 12.1.
1930, d. 10.9. 2003,
og Pétur Þórð-
arson, f. 29.5. 1932, d. 23.11.
2016. Systkini Þórðar eru Inga
Rut Hamson, f. 4.2. 1953, og Júl-
íus, f. 14.9. 1962. Systkini sam-
mæðra eru Sigrún Moreno, f.
24.12. 1949, og Jón Þór Bald-
ursson, f. 2.1. 1966, d. 18.2. 2000.
Bróðir samfeðra er Pétur Thor-
darson, f. 11.4. 1969.
Sambýliskona Þórðar var
Þórður var félagsmaður í
Blindrafélaginu í yfir fjóra ára-
tugi og bjó, í nokkur ár, í húsi
Blindrafélagsins við Hamrahlíð.
Þá starfaði hann á Blindra-
vinnustofunni í tæp 30 ár, eða
þar til hann veiktist alvarlega í
byrjun september á þessu ári.
Hann gekk til liðs við Fjólu, fé-
lag fólks með samþætta sjón- og
heyrnarskerðingu, árið 1994 og
sat þar um tíma í varastjórn.
Þórður var mjög virkur í fé-
lagsstarfi, bæði innan Blindra-
félagsins og Fjólu, auk þess sem
hann var í Taflfélagi Reykjavík-
ur og tefldi mikið. Hann hafði
yndi af því að ferðast og naut
þess mjög að skoða nýja staði,
upplifa og njóta á sinn hátt.
Síðasta eina og hálfa árið bjó
Þórður á sambýlinu í Þorláks-
geisla 70.
Útför Þórðar verður gerð frá
Háteigskirkju í dag, 4. nóv-
ember 2019, og hefst athöfnin
klukkan 13.
Matthildur Halla
Þórarinsdóttir, f.
11.10. 1955, d. 5.9.
2017, en þau slitu
samvistum árið
2009.
Fyrstu uppvaxt-
arár sín bjó Þórður
með foreldrum sín-
um í Seattle í
Bandaríkjunum en
við skilnað þeirra
1962 kom hann til
Íslands með móður sinni. Ólst
hann að mestu leyti upp hjá föð-
urforeldrum sínum, þeim Ingu
Kristjánsdóttur og Þórði Pét-
urssyni.
Sem lítið barn lenti Þórður í
alvarlegu bílslysi og það hefur
eflaust átt sinn þátt í því að hann
bjó, nær alla sína ævi, við skerta
sjón og heyrn.
Elskulegur frændi minn hann
Þórður er fallinn frá. Þegar við
Þórður vorum krakkar hittumst
við oft hjá ömmu okkar og afa,
Ingu og Þórði á Aðalgötunni í
Keflavík. Þegar við hittumst lék-
um við okkur saman, fórum í fót-
bolta eða tefldum. Þórður var
nokkuð góður skákmaður. Það
sem efst er í huga á þessari
stundu er hve Þórður hafði létta
lund og skemmtilegan húmor.
Hann þurfti að glíma við margs
konar verkefni á lífsleiðinni sem
mótuðu hann sem einstakling en
alltaf hélt hann þessum góða
húmor. Eftir að Þórður varð full-
orðinn kom hann oft í heimsókn til
okkar hjóna, borðaði með okkur
og spjallaði við fjölskylduna. Síð-
ustu árin fórum við saman á tón-
leika a.m.k. einu sinni á ári. Þórð-
ur hafði mjög gaman af tónlist og
naut þess að hlusta á vandaðan
tónlistarflutning, bæði klassíska
tónlist og popptónlist. Þórður
hafði gaman af dýrum og gat setið
löngum stundum og spjallað við
hundinn okkar og klappað honum.
Alltaf spurði hann um hundinn og
þegar verið var að sækja Þórð þá
spurði hann alltaf hvort hundur-
inn kæmi ekki með. Þórður naut
þessa að horfa á kúrekamyndir og
eftir að hann varð blindur hlustaði
hann á þær og hafði mjög gaman
af. Leikarinn John Wayne var í
sérstöku uppáhaldi hjá honum.
Þórður þráði alltaf að læra meira,
hann hafði mikinn áhuga á að lesa
og fræðast og hafði innsýn í ótrú-
legustu hluti. Hann hafði gaman
af að taka þátt í umræðum um ólík
málefni, ferðalög, bækur o.fl.
Hann naut þess að ferðast, fræð-
ast og kynnast nýju fólki. Við fjöl-
skyldan erum þakklát fyrir allar
þær góðu stundir sem við áttum
með Þórði.
Blessuð sé minning hans.
Oddgeir, Guðbjörg
og fjölskylda.
Vinur minn kær hefur nú feng-
ið hvíld eftir erfið og langvinn
veikindi.
Við hittumst fyrir rúmum 30
árum þegar ég bjó í húsi Blindra-
félagsins og hann starfaði á
Blindravinnustofunni. Okkur
varð strax vel til vina og sá vin-
skapur styrktist með árunum.
Hann þurfti að lúta því hlutskipti
að missa sjónina alveg, tapa tals-
verðri heyrn og missa ýmsa lík-
amlega og andlega færni, sérstak-
lega undanfarið rúmt ár.
Árið 2015 var svo komið að
hann þurfti mun meiri aðstoð en
áður í sínu daglega lífi og þá hóf-
ust samskipti við kerfið sem hann
réð ekki við óstuddur. Þá sýndi
hann mér það traust að biðja mig
að gerast sinn persónulegi tals-
maður. Hlutverk persónulegs
talsmanns er vandasamt og fer
eftir því hversu mikið viðkomandi
vill blanda honum í einkalíf sitt.
Þórður sýndi mér, sem talsmanni
og vini, fádæma traust. Síðastliðin
fimm ár hefur vart liðið sá dagur
að hann hafi ekki hringt til að leita
ráða og fá aðstoð við ýmsar
ákvarðanir, stórar og smáar, eða
bara til að spjalla um það sem
hæst bar hverju sinni. Hann
fylgdist vel með tíðindum dagsins,
hlustaði á fréttir og, meðan færn-
in entist, fór hann á netið, hlustaði
á erlendar útvarpsstöðvar og
fylgdist með enska boltanum. Við
vorum sammála um að hann
fylgdist með boltanum fyrir okkur
bæði því ég er vonlaus í þeim efn-
um, hef ekkert vit á fótbolta.
Dæmigert símtal gat hafist þann-
ig:
„Þitt lið vann í dag!“ eða „Ég
hef nú ekki góðar fréttir …“
Hann orðaði tapið alltaf af mikilli
varfærni.
Ótalmargar dýrmætar minn-
ingar streyma um hugann. Að-
fangadagskvöldin með honum,
bíltúrarnir, kaffihúsaferðirnar,
tónleikarnir og ekki síst hvers-
dagslegu innlitin:
„Ég er nú bara að koma í kaffi,
eru til kleinur?“
Hann var mikill matmaður,
gaman að gefa honum að borða
því allt var svo gott. Því voru það
honum grimm örlög að greinast
með sykursýki þegar á leið og
geta ekki notið þess að fá sér ís
eða bara Prins póló.
Afmælin hans eru mér sérstak-
lega minnisstæð. Hann var mikill
höfðingi heim að sækja ef eitt-
hvert tilefni gafst og lagði áherslu
á að ættingjar og vinir nytu af-
mælisdagsins með sér. Ein dýr-
mæt perla í minningasjóðnum er
59 ára afmælið sem hann hélt á
heimili mínu. Þá bauð hann ætt-
ingjum og vinum og allt varð að
vera flottast. Hann treysti mér
fyrir matargerð og mestöllum
undirbúningi, en mætti þó tíman-
lega til að fylgjast með að allt væri
í standi. Þegar undirbúningnum
var lokið og aðeins beðið eftir
gestunum sátum við í stofunni og
mér varð að orði:
„Þetta er eins og að bíða eftir
jólunum nema munurinn er sá að
þú færð pakka en ég engan.“
Þá sagði hann þessa ógleyman-
legu setningu sem sýndi í hnot-
skurn hans stóra og gjöfula
hjarta:
„Þú mátt opna þá alla. Kannski
ekki eiga allt sem úr þeim kemur,
en þá færðu alla vega spennuna
með mér.“
Síðasta ferðin okkar saman var
á Selfoss, í heimsókn til sameig-
inlegrar vinkonu, í ágúst sl.
Ég er þess fullviss að elsku vin-
urinn minn hefur fengið góðar
móttökur þegar hann kvaddi
þessa jarðvist og nú má hann
borða ís og súkkulaði ef það þá er í
boði sem ég vona, honum þótti
það svo gott.
Ágústa Gunnarsdóttir.
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.
Við erum gestir og hótel okkar er jörðin.
Einir fara og aðrir koma í dag,
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.
(Tómas Guðmundsson)
Ég kynntist Dodda mínum
þegar ég kom inn í sumarvinnu í
Þorláksgeislanum í sumar þar
sem ég var undir handleiðslu
pabba (Friðþórs) og Magga vegna
aldurs, 17 ára stelpa sem fékk og
hef upplifað mikla reynslu í starfi
með honum og öðrum á heimilinu
í Þorláksgeisla 70.
Við Doddi urðum strax góðir
vinir og spjallið okkar var mikið
og skemmtilegt, sögur fékk ég að
heyra af því þegar hann stundaði
nám sitt í Danmörku, eins þegar
hann bjó í Bandaríkjunum sem
ungur maður.
Við gerðum margt saman, fór-
um ófáar bílferðir þar sem gert
var vel við sig, og var það yfirleitt
pylsa og ís.
Ég minnst eins skiptanna okk-
ar, þá er ég að bakka úr stæði og
annað dekkið fer upp á kant. Þá
heyrist hátt í mínum manni:
„Jæja, hvað ætli pabbi þinn segi
við þessu?“ og notaði hann óspart
að pabbi kæmi og ræddi við mig ef
ég gerði eitthvað sem var ekki al-
veg í takt við vin minn Dodda. En
sagði svo auðvitað „er ég að grín-
ast“, enda hlegið mikið og grín var
ávallt.
Tekinn var dans og sungið af
innlifun hjá okkur og mun ég
geyma þá minningu vel.
Elsku Doddi minn, takk fyrir
að kenna mér svo margt og er ég
ríkari og sterkari eftir okkar
kynni. Ég var heppin að fá að
kynnast þér, það eru ekki allir svo
heppnir.
Hvíldu í friði, við sjáumst svo
aftur og munum þá eiga enn meiri
tíma saman til að dansa og syngja.
Góða ferð, góða ferð í drauma-
landið.
Þín vinkona
Fríða Rún.
Hann Þórður P. er farinn í sína
hinstu ferð aðeins 63 ára og eftir
sitjum við og horfum til baka og
minnumst liðins tíma. Hann var
mjög ungur þegar hann fer til
Bandaríkjanna með foreldrum
sínum og býr þar til sjö ára ald-
urs. Þá kemur hann heim og elst
upp hjá afa sínum og ömmu í
Keflavík fram yfir fermingu. Við
munum svo vel eftir honum frá
þessum tíma því við bjuggum þá í
sama húsi. Hann var þéttur
stubbur með rosaþykk gleraugu
sem hann var duglegur að týna,
setjast á eða brjóta, því það var
oft fjörugt í húsinu þar sem voru
um tíma átta börn frá 0-9 ára sam-
ankomin. Það sem hann gat hleg-
ið, smitandi, dillandi hlátri, ólík-
um öllum öðrum hlátri. Fljótlega
kom í ljós að sjón og heyrn hans
var það slæm að hann þurfti að
fara í Heyrnleysingjaskólann í
Reykjavík. Í þá daga var ekki
annað í boði. Hann var á heima-
vist þar á virkum dögum en kom
heim um helgar. Eftir fermingu
hans vildi pabbi hans setja hann í
skóla í Seattle sem hann taldi að
væri mikið betri en hér heima og
hann var þar úti, mest á heima-
vist, í nokkur ár. Við erum ekki
viss um að það hafi alltaf verið
auðveld dvöl. Síðasta árið í Seattle
ætlaði hann að læra að verða
kokkur og bjó þá einn í herbergi
úti í borg. Það er þarna sem and-
legir erfiðleikar og ranghug-
myndir hefjast og það endar með
að hann kemur aftur heim og okk-
ur fannst hann svolítið týndur um
tíma.
Þetta er mögulega afleiðing af
slysi sem hann varð fyrir um
tveggja ára aldur sem leiddi til
heilaskaða, sjón- og heyrnar-
skerðingar. Hann bjó á ýmsum
sambýlum og leið misvel. Í ein 10
ár bjó hann með unnustu sinni,
henni Matthildi, og þeim leið vel
saman. Þórður átti það til að
hringja að morgni og segja: „Ég
kem með rútunni kl. 2. Viltu
sækja mig á stoppistöðina“ eða
hann kom og gekk í hús og seldi
happdrættismiða fyrir Blindra-
félagið, stundum með Matthildi
með sér. Það er ekki hægt að
minnast Þórðar án þess að tala
um símann hans. Þetta stórkost-
lega tæki sem hann gat helst ekki
lagt frá sér. Hann hafði gaman af
tækjum! Einnig var hann alltaf að
skipuleggja eitthvað, ferðir til
Bandaríkjanna, Danmerkur eða
bara eitthvað. Hann átti erfitt
með að skilja að fólk færi ekki
eitthvað í burtu í sumarfríinu,
hvað þá að það tæki ekki frí! Hann
hætti aldrei að hugsa um að
mennta sig betur og þyrsti sífellt í
meiri menntun. Hann fór í lýðhá-
skóla í Danmörku og varð heill-
aður af því landi upp frá því og
heimsótti það reglulega. Síðustu
árin bjó hann á sambýli í Þorláks-
geisla og þar leið honum vel, sem
við best merktum á því að símtöl-
um fækkaði við flutning hans
þangað en þau gátu oft orðið ansi
mörg. Greinilegt var að hann var
sáttur. Gott er til þess að vita að
þessi sterki persónuleiki sem
þyrsti í útrás og menntun skuli nú
frjáls og óháður fljúga á vit æv-
intýranna. „Fly away“ Þórður!
Við getum ei breytt því,
sem frelsarinn hefur að segja,
um hver fær að lifa,
og hver á svo næstur að deyja.
Þau örlög, sem við höfum hlotið,
það verður að skilja.
Svo auðmjúk og hljóð
við lútum að frelsarans vilja.
(Bryndís Halldóra Jónsdóttir)
Sigurjón og Guðfinna.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
(Bubbi Morthens)
Elsku vinur minn Þórður Pét-
ursson hefur kvatt þetta líf. Já,
það er nú þannig að maður er ekki
alltaf sáttur við tilganginn og
hversu margir fara fljótt af jörð-
inni, upp í huga minn kemur sú
hugsun hvað tilvera okkar er und-
arlegt ferðalag, eins og segir í
textanum góða, já, Þórður var 63
ára. Ég kynntist Þórði eða Dodda
eins og hann var yfirleitt kallaður
þegar hann flutti í Íbúðakjarnann
Þorláksgeisla 70.
Ég minnist góðra daga í Dan-
mörku, þegar við félagarnir og
vinkona okkar Pálína Bergey átt-
um góða viku í júní 2018 á staðn-
um sem honum þótti mikið vænt
um og ekki var leiðinlegt að heyra
hann tala dönskuna eins og hann
hefði verið í Danmörku alla tíð.
Þórður stundaði nám í Lýðháskól-
anum í Danmörku árið 1995 sem
ætlaður var fyrir einstaklinga
með fötlun.
Þetta voru góðir dagar í Kaup-
mannahöfn og lokaorðin á kvöldin
þar ytra voru alltaf: Þórður, eitt-
hvað plan á morgun? „Já, bara ró-
legheit,“ var svarið hjá gamla. En
þegar klukkan var að ganga sjö á
morgnana þá heyrðist í gamla:
Jæja, eru ekki allir að vakna, við
þurfum að skoða þetta safn og svo
hitt safnið. Og svo mátti ekki
gleyma siglingunni skemmtilegu,
já, við vorum á mikilli ferð sem
var alveg í takt við Þórð, sjaldan
stopp, allt átti að skoða og upplifa
og hafði hann mikið gaman af. Ég
held hreinlega að ég hafi aldrei
farið á eins mörg söfn og kastala
og í þessari ferð. Ekki má gleyma
ferðinni í Tívolíið í Kaupmanna-
höfn og fallturninn sem þú vildir
gjarnan fara í og við öskruðum af
hræðslu öllsömul. Eftir þá ferð
fór nú að hægjast um að vilja fara
í tæki.
Gleymum ekki stoppunum í
snæðing þar ytra enda Þórður
mikil matmaður og sagði hann
mér í einu spjallinu að hann lang-
aði sem ungur maður að læra að
verða kokkur. Já, og auðvitað var
notið vel eins og sönnum manni
sæmir, pantað var Chablis-hvítvín
sem honum þótti mikið gott með
matnum og sagði okkur söguna
um vínið í hvert skipti sem hann
pantaði sér.
Alltaf höfðum við jafn gaman af
og hlógum dátt. Já, ferðin verður
mér ógleymanleg, mikið hlegið og
mikið spjallað og var svo gott að
fá að heyra sögur og einnig trún-
aðarspjall sem ég geymi, minn
kæri.
Ég er svo stoltur líka að hafa
getað farið með þér á heimaslóðir
mínar til Vestmannaeyja í ágúst
sl. þar sem við áttum frábæran
dag með Sigga vini þínum, Fríðu
Rún og Hrund, systur hans Sigga.
Já, það var einhvern veginn þann-
ig að þú upplifðir svo margt sem
mér fannst stundum svo sér-
kennilegt vegna blindunnar, en
það að koma við og snerta, finna
ilm og lykt var mikilvægt og ein-
hvern veginn fannstu þína leið í
upplifun á hverjum stað og sagðir
okkur öllum söguna frá eyjum og
Kaupmannahöfn eins og þú hefðir
séð allt.
Ég trúi því að þú sért sestur í
blómabrekkuna þína og vona inni-
lega að þú unir þér vel á nýjum
stað eftir þetta jarðneska líf. Ég
sé þig Doddi minn sitjandi í
blómabrekkunni umkringdan öllu
því góða sem bjó í þér.
Vina- og samúðarkveðjur,
Friðþór Vestmann
og fjölskylda.
Stundum er talað um hetjurnar
sem gleymast, hversdagshetju-
rnar. Þórður Pétursson sem hér
er kvaddur er ein þeirra. Aðeins
nokkurra ára gamall lenti hann í
alvarlegu slysi og þungur skýja-
bakki lífsins fylgdi honum ævi-
langt. En hann barðist hetjulegri
baráttu við andlega og líkamlega
fötlun alla tíð. Þegar kalt myrkur
grúfði yfir lífi hans barðist hann
ótrauður með hjálp frændfólks
síns, vina og starfsmanna velferð-
ar- og heilbrigðiskerfisins.
Þórður var jafnan lífsglaður
maður og smitaði oft út frá sér
með frumlegum og skemmtileg-
um athugasemdum. Gott og já-
kvætt hugarfar hans hjálpaði
honum í lífsbaráttunni í leit að
innra jafnvægi og hugarró. Hann
sagði stundum þegar vindur blés
hart á móti: „Líf mitt er á hvolfi.
Geturðu hjálpað mér?“
Þórður var fróður um margt og
fylgdist yfirleitt vel með fréttum.
Sérstaklega var honum tíðrætt
um samskipti mannanna, hvað við
ættum langt í land með að geta
rætt saman á vingjarnlegum nót-
um og náð árangri. Við áttum því
láni að fagna að kynnast Þórði
fyrir 40 árum og vináttan hélst
óslitið í blíðu og stríðu. Honum
var annt um vini sína og spurði því
jafnan um líðan þeirra. Eitt sinn
þegar hann dvaldist um skeið í
lýðháskóla blindra og sjónskertra
í Danmörku skrifaði hann okkur
kort og sagði m.a.:
„Mér líður bærilega. Hvernig
líður ykkur? Í gær fór ég í sigl-
ingu á seglskútu og var ferðin
skemmtileg og spennandi. Ég
vildi samt ekki hafa verið víkingur
í gamla daga og þvælast á milli
landa í báti.“
Þórður var afar næmur á blæ-
brigði málsins og spurði oft ein-
lægt og opinskátt: „Nú heyri ég
að eitthvað er að. Hefur eitthvað
komið fyrir í fjölskyldunni?“
Hann var sérstakur einstaklingur
sem lenti oft í öngstræti í lífinu og
af honum lærðum við margt. Við
kveðjum Þórð með söknuði og
hlýju í hjarta og þökkum ógleym-
anlegar minningar um mætan
dreng. Skýjabakkinn er horfinn.
Spegilsléttur hafflötur og haust-
sólin sígur í sæ. Nýr dagur í
vændum.
Aðstandendum Þórðar og öll-
um vinum hans sendum við hlýjar
samúðarkveðjur.
Þórir S. Guðbergsson
og Rúna Gísladóttir.
Í dag kveðjum við þig, Doddi,
og þökkum fyrir þessi síðustu
misseri sem við áttum með þér.
Þú fluttir í Þorláksgeisla 70 vorið
2018. Og þrátt fyrir tímabil veik-
inda fengum við að kynnast
skemmtilegum manni með mjög
ákveðnar skoðanir, þrár og lang-
anir. Miklum húmor ásamt mikilli
lífsreynslu sem þú sagðir
skemmtilega frá.
Doddi, við eigum alltaf eftir að
muna eftir því hversu tækjaóður
og nýjungagjarn þú varst. Þér
Þórður Pétursson
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN VÍBEKA BJARNADÓTTIR
frá Neskaupstað,
áður til heimilis á Barðastöðum 79,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 31. október.
Útförin fer fram frá Fíladelfíukirkju
mánudaginn 11. nóvember klukkan 13.
Viðar Norðfjörð
Guðbjartsson
Kulrapas Kaewin
Þorleifur Guðbjartsson
Bjarni Geir Guðbjartsson Kristín Ósk Gestsdóttir
Elín Guðbjartsdóttir Marten Ingi Løvdahl
Guðbjartur Guðbjartsson Kazi Kona
Signý Guðbjartsdóttir Sigurður Reynisson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku mamma, tengdamamma, amma og
langamma,
SIGRÚN STURLUDÓTTIR
frá Súgandafirði,
lést á Hrafnistu hinn 1. nóvember.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 8. nóvember kl. 11.00.
Inga Lára Þórhallsdóttir Elvar Bæringsson
Sóley Halla Þórhallsdóttir Kristján Pálsson
Auður Þórhallsdóttir Siggeir Siggeirsson
Steinunn Þórhallsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn