Morgunblaðið - 04.11.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9-12. Opin
handavinnuhópur kl. 12-16. Boccia með Guðmundi kl. 10. Göngu-
bretti, æfingarhjól m/leiðb. kl. 10:30. Félagsvist með vinningum kl.
12.45. Myndlist með Elsu kl. 16-19. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur
kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni. Allir vel-
komnir. S. 535-2700.
Boðinn Boccia kl. 10:30. Gönguhópur kl. 10:30. Félagsvist kl. 13:00.
Myndlist kl. 13:00. Vatnsleikfimi kl. 14:30.
Dalbraut 18-20 Brids kl.13
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Kaffi, spjall og
blöðin við hringborðið kl. 8:50. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Ganga ef
veður leyfir kl. 10. Byrjendanámskeið í línudansi kl. 10. Hádegismatur
kl. 11:30. Myndlistarnámskeið kl. 12:30-15:30. Foreldrastund kl. 13.
Handavinnuhornið kl. 13. Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30.
Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8:30. Hjúkrunarfræðingur
kl. 10:00. Núvitund kl. 10:30. Silkimálun kl. 12:30. Göngutúr um hverf-
ið kl. 13:00. Handaband kl. 13:00. Bridge kl. 13:00. Bókabíllinn á svæð-
inu kl. 13:10-13:30. Skák kl. 14:00. Handavinnuhópur hittist kl. 15:30.
Verið öll hjartanlega velkomin. Nánari upplýsingar í síma 411-9450.
Garðabæ Frí vatnsleikf. kl. 7:10/7:50/15:15. Frí kvennaleikf Sjál. kl.
9:30. Frí kvennaleikf Ásg. kl.11:00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl.
10:00. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00.
Zumba salur Ísafold. kl. 16:15.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofan kl. 08:30-16:00. Útskurður
m/leiðb. kl. 09:00-16:00. Qigong 10:00-11:00 Leikfimi Helgu Ben 11:00-
11:30. Kóræfing kl. 13:00-15:00. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9.00 handavinna, kl. 9.00 boccia æfing, kl. 9.30 postu-
línsmálun, kl. 10.50 jóga, kl. 13.15 canasta, kl. 16.30 kóræfing hjá
Söngvinum, kl. 19.00 skapandi skrif.
Gullsmára Postulínshópur kl. 9.00 Jóga kl. 9.30 og 17. Handavinna
og Bridge kl. 13. Félagsvist kl. 20.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna 9-12:30 . Jóga kl. 10:00-11.00. Hádegismatur kl.
11.30. Sögustund kl 12:30-14:00. Prjónaklúbbur 14:00-16:00.
Hraunsel Ganga alla daga í Kaplakrika kl 8.00-12.00. Myndmennt kl.
9.00. Ganga í Haukahúsi kl.10. Gaflarakórinn kl 11. Félagsvist kl. 13.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 9 í Borgum, ganga kl 10 frá
Borgum, Grafarvogskirkju og í Egilshöll. Dans kl 11 í Borgum skart-
gripagerð kl. 13 í Borgum og félagsvist í Borgum kl. 13. Tréústkurður
á Korpúlfssstöðum kl. 13 í dag í umsjón Gylfa og kóræfing Korpu-
systkina kl. 16 í dag í Borgum fleiri velkomnir í kórinn.
Seltjarnarnes Gler á neðri hæð Féklagsh. kl. 9. og 13. Leir Skóla-
braut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffií króknum kl.
10.30. Jóga í Salnum á Skólabraut kl. 11. Handavinna og föndur í saln-
um á Skolabraut kl. 13. Leiðbeinandi á staðnum. Vatnsleikfimi í sund-
lauginni kl. 18.30. Skráningarblöð liggja frammi á Skólabraut og
Eiðismýri v/ leikhúsferðar 14. nóv, en þá verður farið á Atómstöðina.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30- 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Stangarhylur 4 ZUMBA Gold byrjendur kl. 9.20 -ZUMBA Gold fram-
hald kl. 10.30 -STERK OG LIÐUG leikfimi fyrir dömur og herra kl. 11.30
umsjón Tanya. Enska námskeið kl. 12.30 og 14.30 leiðbeinandi
Margrét Sölvadóttir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Atvinnublað
Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í
Mogganum, á mbl.is og finna.is
✝ Sigmar Ólafs-son fæddist 18.
september 1962.
Hann lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans 22.
október 2019.
Foreldrar Sig-
mars voru Ólafur
R. Sigfússon, f. 20.
maí 1938, og
Hólmfríður R.
Hjartardóttir, f. 6.
október 1941. Þau eignuðust
fjögur börn og var Sigmar
þriðji elstur af systk-
inahópnum.
Kona Sigmars var Sigurrós
Hulda Jóhannsdóttir viðskipta-
fræðingur, f. 5. september
1966. Sigmar eignaðist einn
son, Ástgeir Rúnar verkfræð-
ing, f. 8. janúar 1989, og eina
dóttur, Díönu
Kristínu há-
skólanema, f. 3.
mars 1995.
Sigmar ólst upp
í Holtahreppi í
Rangárvallasýslu
og lauk þaðan
barna- og gagn-
fræðaprófi. Hann
lauk prófi sem
húsasmíðameistari
frá Fjölbrautaskól-
anum á Suðurlandi. Einnig
lauk hann prófi sem kennari
frá Kennaraháskóla Íslands.
Sigmar starfaði sem húsasmið-
ur, kennari, skólastjóri, fulltrúi
hjá skipulags- og byggingar-
deild í Árborg ásamt fleiru.
Áhugamál hans voru hesta-
mennska, íþróttir, sveitin og
fjölskyldan.
Fallinn er frá drengur góður í
blóma lífsins eftir erfið veikindi.
Sigmar, eða Simmi eins og hann
var alltaf kallaður, kom til starfa
í Grunnskólann í Þorlákshöfn og
starfaði undir minni stjórn í
mörg ár. Hann náði afskaplega
vel til nemenda sinna og sérstak-
lega var hann tengdur elstu nem-
endum skólans, en hann var um
tíma umsjónarkennari í 10. bekk.
Hann kom líka að uppsetningu
leikverka elstu nemenda og sá
um að smíða leiktjöld ásamt
nemendum. Var útkomin mjög
góð.
Meðal starfsmanna skólans
var Simmi afskaplega vel metinn
og átti hann mörg gullkornin á
kaffistofunni. Simmi kom til
starfa sem smíðakennari. Hann
fann fljótlega hvað kennslan átti
vel við hann og ákvað fljótlega að
fara í Kennaraháskólann í fjar-
nám og ná sér í full réttindi til
kennslu.
Oftar en ekki var Simmi kos-
inn í skemmtinefnd starfsmanna-
félagsins og skipulagði þá óvissu-
ferðir fyrir starfsmenn sem oft
voru farnar í Rangárvalla-
sýsluna, en þar átti hann rætur
sínar. Hann leiddi okkur á æsku-
slóðir sínar og var stoltur yfir því
sem hann sýndi okkur og sagði
frá. Fljótt eftir að Simmi hóf
störf hjá okkur fórum við starfs-
menn Grunnskólans í heimsókn í
Grunnskólann í Hveragerði, en
við höfðum í nokkur ár haft það
að venju að nýir starfsmenn
þyrftu að troða upp með eitt-
hvert efni. Simmi var eitthvað
órólegur yfir þessu þar til ég
sagði við hann í gríni, „Simmi, þú
veist að ég mun alltaf standa við
bakið á þér í öllu því sem þú tek-
ur þér fyrir hendur“. Hann
minnti mig óspart á þetta allan
kennsluferil sinn í Þorlákshöfn.
Eftir að Simmi hætti kennslu
hjá okkur flutti hann í Grímsnes-
ið, þar sem hann hafði byggt sér
hús og aðstöðu fyrir hrossin sín,
en hann var mikill hrossabóndi
eins og öll hans fjölskylda. Gerð-
um við oft grín að honum þegar
hann var með símann við eyrað
sposkur á svip í einhverjum ferða
okkar starfsmanna skólans. Við
sögðum okkar á milli að nú væri
hann að selja hross fyrir þykkan
seðlabunka. Stuttu eftir að hann
flutti í Grímsnesið gerðist hann
skólastjóri við Kerhólsskóla. Mér
er það afskaplega ofarlega í
minni þegar við starfsmenn
Grunnskólans í Þorlákshöfn
heimsóttum hann í skólann og
hann sýndi okkur stoltur húsa-
kynnin, en skólinn var þá ný-
byggður. Við höfðum oft sam-
band símleiðis á meðan hann var
skólastjóri og ræddum þá gjarn-
an okkar sameiginlegu áhugamál
um kennslu og skólastjórnun. Því
miður minnkuðu samskipti okkar
nú hin síðustu ár.
Elsku Rósa og fjölskylda, við
Ester vottum ykkur samúð okk-
ar, megi guð veita ykkur styrk í
söknuði ykkar.
Halldór Sigurðsson,
fv. skólastjóri.
Sigmar Ólafsson
✝ Steinunn Gísla-dóttir fæddist í
Hátúni í Glerár-
þorpi 25. október
1927. Hún lést á
hjúkrunarheimil-
inu Sunnuhlið 23.
október 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Gísli Frið-
finnsson, f. 6. júní
1888, d. 7. október
1969, og Rannveig
Pálsdóttir, f. 6. júní 1891, d. 6.
október 1956. Systkini Stein-
unnar voru Friðfinnur Gíslason,
f. 26. maí 1923, d. 10. ágúst
1998, Þórdís Gísladóttir, f. 19.
september 1923, d. 30. ágúst
2006, og Páll Gíslason, f. 15.4.
1931, d. 21. apríl 1993.
Steinunn giftist 4. júlí 1956
Leifi Guðmundssyni bryta, f. 4.
júlí 1929, d. 28. nóvember 1993.
Foreldrar Leifs voru Guð-
mundur Gíslason, f. 17. desem-
ber 1880, d. 1938, og Sigrún
Jónasdóttir, f. 24. júní 1888, d.
30. maí. 1967.
Steinunn starfaði sem hús-
móðir, afgreiðslukona í mjólk-
urbúð og iðnverkakona.
Börn Steinunnar og Leifs eru
1) Hulda, f. 1. mars 1949, maki
Bjarni Pálsson, f. 12. júní 1947,
börn þeirra eru a) Leifur, b)
Björk, maki Tómas Ponzi, c)
Bjarni, maki Ásbjörg Ósk
Snorradóttir, d) Hugrún, maki
Gunnar Már Ólafsson, e) Fann-
ar, maki Katrín Sif Rúnars-
dóttir. 2) Helga, f. 3. febrúar
1951, d. 20.9. 2004,
hennar sonur er
Ingibergur, maki
Ingibjörg Magn-
úsdóttir. 3) Hafdís,
f. 10. april 1959,
maki Sigurbjörn
Sigurðsson, f. 6.
september 1953,
sonur hennar er a)
Magnús Steinar,
stjúpbörn Hafdísar
b) Sigurður, c) Ívar
Örn, d) Eydís Arna.
Langömmubörnin eru tutt-
ugu, Guðrún Ósk, Kamilla Mist,
Anton Gunnar, Dagur Smári,
Jenný Dís, Elvar Ingi, Hekla
Dís, Katla Steinunn, Jara Sóley,
Júlía Ósk, Ásdís, Lilja Ósk,
Selma Ósk, Tanya Ósk, Lísa
Lee, Anna Lee, Sóldís Perla,
Maríanna Rós, Indiana Hulda og
Egill Mikael.
Steinunn og Leifur keyptu
fyrstu íbúðina sína á Grettisgötu
þar sem þau bjuggu fram til árs-
ins 1956 en þá fluttu þau í Kópa-
vog fyrst á Skálaheiði 5 en síðan
byggðu þau íbúðarhús í Hvann-
hólma 20, sem var tilbúið 1976.
Garðrækt var þeirra sameig-
inlega áhugamál og bar garð-
urinn þeim fagurt vitni. Fjórum
árum eftir andlát Leifs flutti
Steinunn í Gullsmára 7 og bjó
þar til ársins 2017 en þá flutti
hún á hjúkrunarheimilið Sunnu-
hlíð.
Útför Steinunnar fer fram frá
Kópavogskirkju í dag, 4. nóv-
ember 2019, klukkan 13.
Hún amma var amman sem
hvatti mig til að læra og alltaf
hélt ég áfram vegna ömmu. En
hún sjálf komst ekki í skóla
vegna fátæktar. Hún var amman
sem bakaði bestu kryddköku í
heimi og eldaði bestu lúðu-
súpuna með sveskjum. Hún kall-
aði mig alltaf Björkina sína. Hún
var stór tenging við fortíðina og
sögurnar af fólkinu okkar á
Akureyri. Hún var amman sem
alltaf var hægt að leita til.
Elsku amma er nú frjáls og
komin í blómabrekkuna að hitta
allt sitt fólk. Ég spurði hana eitt
sinn fyrir löngu þegar ég
hræddist dauðann hvort það
væri ekki vont að deyja og svarið
var: „Nei, það er dásamlegt að
deyja.“
Elsku amma, takk fyrir alla
góðu kaffitímana og þína góðu
nærveru.
Kveðja, Björkin þín.
Björk Bjarnadóttir.
Steinunn
Gísladóttir ✝ Pétur Björns-son fæddist 27.
nóvember 1932 að
Kvíabryggju, Set-
bergssókn á Snæ-
fellsnesi. Hann lést
21. október 2019.
Foreldrar hans
voru Björn Krist-
jánsson frá Ósi á
Skógarströnd Snæ-
fellsnesi, f. 18. júlí
1899, d. 17. apríl
1957, og Kristný Guðmundsdóttir
frá Neshreppi, Snæfellsnesi, f. 17.
september 1903, d. 15. október
1940.
Pétur kemur úr stórum
systkinahópi. Hann var áttundi í
röðinni af tíu alsystkinum og
þremur hálfsystkinum, samfeðra.
Móðir hans, Kristný, lést frá
stórum barnahópi á aldrinum
fimm til fimmtán ára.
Systkini Péturs eru: Stella Jó-
fríður, f. 13.8. 1925, d. 21.2. 1995,
Guðmundur, f. 21.8. 1926, d. 12.9.
1988, Kristján, f. 29.7. 1927, d.
31.7. 2017, Örnólfur, f. 7.9. 1928,
d. 1.2. 2018, Ríkharður, f. 9.8.
1929, d. 27.9. 2001, stúlka f. 12.10.
1930, d. 12.10. 1930, Baldur, f.
20.9. 1931, d. 10.12. 2010, Eygló,
f. 4.4. 1934, og Leifur, f. 14.6.
1935.
Hálfsystkini Péturs eru: Haf-
steinn Þórarinn, f. 19.5. 1949,
Kristný, f. 30.1. 1951, og Guðrún
Alda, f. 12.1. 1956. Móðir þeirra
var Guðríður Jó-
hanna Hafliðadóttir,
f. 16.3. 1920, d.
25.6.1978.
Eftirlifandi eig-
inkona Péturs er
Margrét Bjarnadótt-
ir, f. 12. apríl 1940.
Börn þeirra eru
Berglind, f. 24. októ-
ber 1962, Jódís, f. 12.
mars 1964, og Jökull
Mar, f. 5. janúar 1972.
Börn Berglindar eru: Pétur
Jónasson, f. 12. október 1981,
Áróra Huld Bjarnadóttir, f. 21.
júlí 1992, og Sædís Bjarnadóttir,
f. 30. apríl 1994. Sambýliskona
Péturs er Halla Þórðardóttir, f.
11. júní 1988, og börn þeirra eru
Ronja, f. 18. maí 2012, og Máni, f.
2. mars 2018. Eiginkona Jökuls
er Margrét Hrefna Pétursdóttir,
f. 27. júlí 1974, og börn þeirra eru
Snorri Pétur, f. 29. mars 2003, og
Tómas Atli, f. 6. desember 2005.
Pétur ólst upp hjá móðurfor-
eldrum sínum á Rifi á Snæfells-
nesi. Þar kynntist hann ýmsum
störfum til sjávar og sveita. Hann
tók vélstjórapróf og lauk meist-
araprófi í bifvélavirkjun 1963.
Ásamt félaga sínum, Kristni,
byggði hann og rak til margra
ára bifvélaverkstæðið Skemm-
una í Auðbrekku í Kópavogi
Pétur verður jarðsunginn frá
Lindakirkju í dag, 4. nóvember
2019, klukkan 15.
Tengdapabbi. Dýrmætt orð,
sérstaklega þegar maður dettur í
lukkupottinn varðandi þennan
einstakling, eins og ég gerði.
Minn var hlédrægur, fámáll,
nægjusamur, með risastórt
hjarta og með dásamlega nær-
veru. Hann elskaði að eyða tíma
með barnabörnunum, hvort sem
það voru göngutúrar á leikvöll-
inn, dund með þeim heima við eða
í sveitinni, að lesa/syngja fyrir
nætursvefninn eða spila fyrir þau
á hljómborðið. Pétur kunni vel
við sig í hesthúsinu, leið vel í sum-
arbústaðnum og við að sinna
hrossunum. Hann var alltaf boð-
inn og búinn að hjálpa til við alls
konar verkefni hjá sínum nán-
ustu og almennt sá maður hann
sjaldan sitja aðgerðarlausan.
Kjötsúpan hans var kærkomin á
köldum vetrardögum og hafra-
grauturinn hans vel þeginn á
laugardagsmorgni í sumarbú-
staðnum, með ríkisútvarpið í
bakgrunninum.
Hlédrægur og fámáll já, og ég
hugsa að það hafi tekið eitt og
hálft ár fyrir hann að ávarpa mig
að fyrra bragði. Ég efaðist þó
aldrei um að honum líkaði við
mig. Fæst orð sögðu mest í hans
augum. Ég byrjaði snemma að
knúsa hann þegar ég hitti hann,
sem hann átti ekki von á og ég
held að honum hafi fundist það
fyrst skrítið. Hann kunni þó vel
við knúsið, þar sem hann kvartaði
fljótt yfir því ef ég ætlaði að
kveðja án þess.
Mér þykir rosalega dýrmætt
að hafa fengið að fara með hon-
um, ásamt fjölskyldunni, í tvær
ferðir á Rif og Hellissand. Það
var augljóslega sterk tenging við
uppeldisstaðinn og það var gam-
an að upplifa tengdapabba í því
umhverfi og heyra sögur frá
barnæskunni hans og lífinu á
Rifi.
Ég er þakklát fyrir það 21 ár
sem ég fékk að búa til minningar
með honum. Nú syrgi ég þennan
dásamlega mann sem yfirgaf
okkur á mánudaginn var en trúi
því að honum líði núna vel, sé bú-
inn að finna minningarnar sínar
aftur og sé á stað sem er gott
sambland af Kópavogi, Rifi og
Flúðum.
Margrét Hrefna.
Pétur Björnsson
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar