Morgunblaðið - 04.11.2019, Qupperneq 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
ULTRA
KATTASANDUR
– fyrir dýrin þín
■■■ Sporast lítið
■■■ Lyktarlaus
■■■ Frábær lyktareyðing
■■■ Náttúrulegt hráefni
■■■ 99.9% rykfrír
■■■ Klumpast vel
50 ára Magnús ólst
upp í Reykjavík en býr
á Patreksfirði. Hann er
vélstjóri á Patreki.
Maki: Brynja Haralds-
dóttir, f. 1968, kokkur á
Sjúkrahúsinu á Pat-
reksfirði.
Börn: Sveinn Benóný, f. 1988, Áskell, f.
1991, Jóhanna Margrét, f. 1994, og Árný,
f. 1996.
Móðir: Jóhanna Margrét Sveinsdóttir, f.
1951, húsmóðir í Hafnarfirði. Stjúpfaðir:
Böðvar Hermannsson, f. 1946, d. 1999,
vélsmiður.
Magnús Jón
Áskelsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þolinmæði er dyggð sem þú þarft
að æfa aðeins betur. Gamalt leyndarmál
sem hefur ekki þolað dagsins ljós kemur
upp úr kafinu.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu vonbrigði fortíðarinnar ekki
setja þig út af laginu. Þú gengur með hug-
mynd að fyrirtæki í maganum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Smekkur þinn fellur eins og flís
við rass fólksins í kringum þig. Þinn mesti
aðdáandi slær þig út af laginu í kvöld.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er engin ástæða til þess að
láta einhverja smá misklíð eyðileggja allt.
Láttu sem ekkert sé og haltu áfram með
líf þitt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft ekkert að fyrirverða þig fyrir
tilfinningar þínar ef þær eru sannar.
Gættu þess að ganga ekki á bak orða
þinna.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vertu opinn fyrir hugmyndum sem
geta haft jákvæð áhrif á starfsframa þinn.
Nýjabrumið er farið af ástarsambandinu.
Hvert framhaldið verður veltur svolítið á
þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú átt ekki að snúa upp á þig þótt
þér falli ekki öll þau ráð sem vinir þínir
gefa þér. Þú ert og verður alltaf potturinn
og pannan í vinahópnum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú átt skilið að öðlast það
sem þú þráir. Hældu fólki oftar og sér-
staklega fjölskyldumeðlimum. Þú kemst
að leyndarmáli.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það eru ýmsar nýjungar að
banka upp á hjá þér og þér finnst erfitt að
sinna þeim öllum í einu. Reyndu að forð-
ast að hlaða á þig verkefnum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Veltu vandlega fyrir þér tilboði
sem þú færð. Vertu samt opin/n fyrir því
að breyta til ef það tækifæri býðst.
Slepptu tökum á því sem þjónar ekki til-
gangi lengur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur gert allt sem þú getur
og nú er komið að því að taka ákvörðun.
Margar hendur vinna létt verk.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú verður sköpunarþráin að fá út-
rás. Fjölskylduviðburður gengur að ósk-
um. Þú ert í toppformi.
ársins 2004. „Þá mat ég það þannig
að tímabært væri að skipta um
vettvang en hafði reyndar ekkert
fast í hendi þegar ég lét af störfum
hjá félaginu. Í lífinu tekur þó alltaf
eitthvað gott við, ég lenti óvænt og
án þess að þekkja nokkuð til í að
starfa hjá Reykjavíkurborg. Eftir
tæpt ár þar hóf ég störf hjá SP-
Edinborg er dásamleg borg og þar
leið okkur ákaflega vel.“
Guðmundur hóf störf hjá Sjóvá-
tryggingafélagi Íslands, síðar
Sjóvá-Almennum, í ársbyrjun 1982.
Hann starfaði þar á sumrin sam-
hliða háskólanámi og eftir að námi
lauk vann hann í ýmsum stjórn-
unarhlutverkum hjá félaginu til
G
uðmundur Jóhann
Jónsson fæddist 4.
nóvember 1959 á Sól-
vangi í Hafnarfirði þar
sem nú er starfrækt
hjúkrunarheimili. „Það var ekki
pláss á fæðingarheimilum Reykja-
víkur á þessum tíma svo það er
spurning hvort ég er „gaflari“.“
Fyrstu þrjú árin bjó fjölskyldan
í kjallaraíbúð á Reynimel 53 en þar
bjuggu afi og amma Guðmundar í
föðurættina lengst af ævinni. „Á
þessum árum hófu foreldrar mínir
að byggja heimili í austurbæ Kópa-
vogs. Þangað fluttum við síðla árs
1963 og má segja að ég hafi alið
manninn í Kópavogi alla ævi ef frá
eru talin námsárin erlendis. Við
hjónin byggðum okkur hús í
vesturbæ Kópavogs og fluttum
þangað í ársbyrjun 2009. Eins og
maðurinn sagði: „það er gott að
búa í Kópavogi“, og ekki er verra
ef það er á Kársnesinu. Þó svo að
pabbi sé lærður búfræðingur frá
Hvanneyri fór ég aldrei í sveit því
móðir mín gat ómögulega séð af
einkasyninum yfir sumartímann.
Æskuár mín voru góð og var
Digranesskóli barnaskólinn minn.
Á þessum árum var einn aðalkenn-
ari fyrir hverjum bekk og var ég
einstaklega heppinn með minn
kennara, en Auður Brynja hélt vel
um bekkinn öll þau ár sem ég var
við nám í skólann. Um Auði á ég
eingöngu góðar minningar.“ Eftir
barnaskólann fór Guðmundur í
Víghólaskóla og þaðan í Versló þar
sem hann lauk stúdentsprófi árið
1981. „Ég innritaði mig í við-
skiptafræði í HÍ en endaði á að
taka árshlé frá námi. Á þessum
tíma fluttu foreldrar mínir til
Seattle og æxluðust mál þannig að
við hjónin fluttumst þangað ásamt
fjögurra ára dóttur okkar.“
Guðmundur lærði viðskiptafræði
við Seattle University og lauk prófi
þaðan árið 1985. „Árið 1999 flutt-
um við hjónin síðan til Edinborgar
með son okkar en þar bjuggum við
í eitt ár á meðan ég lagði stund á
MBA-nám í Edinborgarháskóla.
Við hjónin metum það svo að þetta
hafi verið eitt besta ár í lífi okkar,
Fjármögnun þar sem ég var fram
undir lok árs 2006. Þá bauðst mér
að taka við forstjórastöðu hjá
Verði. Félagið stóð höllum fæti á
þessum tíma en með frábæru sam-
starfsfólki hefur tekist að byggja
upp fyrirtæki sem er nú meðal
stærstu og öflugustu fyrirtækja
landsins. Þar hef ég nú starfað í 13
ár og eru þessi ár án efa skemmti-
legustu ár minnar starfsævi.
Auk starfa minna í tryggingum
hef ég setið í stjórnum marga
góðra fyrirtækja og fengið þannig
innsýn í aðra geira atvinnulífsins.“
Meðal stjórna sem Guðmundur
hefur setið í eru G.Run á Grund-
arfirði, Securitas, Origo, Applicon
og Hreint. Á undanförnum árum
hefur hann síðan verið stjórnar-
maður í Viðskiptaráði Íslands.
Guðmundur hefur alla tíð verið
virkur í félagsstörfum, tekið þátt í
foreldraráði í skóla barnanna
sinna, verið þátttakandi í starfsemi
íþróttafélaga, var í stjórn
Edinborgarfélagsins eftir að námi
lauk, sat um hríð í skólanefnd MK,
tók þátt í starfi Sjálfstæðisflokks-
ins í Kópavogi um skeið og síðustu
árin hefur hann verið að vinna með
góðu fólki í sóknarnefnd Kópa-
vogskirkju. „Þó að fremur nei-
kvæðir vindar blási um þjóðkirkj-
una um þessar mundir er mikil-
vægt starf unnið af fagfólki
kirkjunnar. Almennt hef ég gaman
af því að vinna með skemmtilegu
fólki að uppbyggilegum verk-
efnum.“
Áhugamál Guðmundar utan
vinnu snúa mikið að íþróttum en
framan af ævinni æfði hann hand-
bolta og fótbolta með Breiðabliki,
en mestur tíminn hefur farið í bad-
minton- og golfiðkun. „Það er
reyndar svo að íþróttahæfileikar
mínir hafa alla tíð verið takmark-
aðir en það hefur litlu breytt um
áhugann. Ég hef haft áhuga og
þörf fyrir hreyfingu og þátttöku í
því félagslega samneyti sem
íþróttaástundun fylgir.“
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Þór-
hildur Hrönn Ingólfsdóttir, f. 19.8.
Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar trygginga hf. – 60 ára
Á Tenerife 2017 Guðmundur, Þórhildur, börn, barnabörn og tengdabörn.
Glaðbeittur og félagslyndur
EM í Frakklandi 2016 Hjónin ásamt Jóni syni sínum og Jónasi tengdasyni.
30 ára Lilja ólst upp í
Reykjavík og á Lóma-
tjörn í Grýtubakka-
hreppi. Hún býr í
Reykjavík og er hag-
fræðingur hjá Seðla-
banka Íslands.
Maki: Hannes Ellert
Reynisson, f. 1988, verkfræðingur hjá
EFLU.
Dóttir: Hekla Sól, f. 2018.
Foreldrar: Arvid Kro, f. 1952, fv. bóndi á
Lómatjörn, og Valgerður Sverrisdóttir, f.
1950, fv. ráðherra. Þau eru búsett á
Lómatjörn og í Reykjavík.
Lilja Sólveig
Kro
Til hamingju með daginn
Reykjavík Hekla
Sól Hannesdóttir
fæddist 21. sept-
ember 2018. Hún
var 55 cm löng og
og vó 3.910 g. For-
eldrar hennar eru
Hannes Ellert
Reynisson og Lilja
Sólveig Kro.
Nýr borgari