Morgunblaðið - 04.11.2019, Side 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„„HELGI,” SAGÐI HÚN, „ÉG VIL GIFTAST
ÞÉR VEGNA PENINGANNA ÞINNA!” OG VIÐ
HÖFUM VERIÐ HAMINGJUSÖM SÍÐAN.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú getur ekki
hætt að hugsa um hann.
VÁ! ÞETTA ER GULBOTNA,
BRÚNFLEKKÓTTUR DÝFINGUR!
EÐA ÞESSI ER
ÞAÐ AÐ MINNSTA
KOSTI
HELDURÐU AÐ VIÐ SÉUM
ORÐNIR OF GAMLIR FYRIR
ÞETTA VÍKINGABRÖLT?
ÉG ÆTLA AÐ FÁ
SVESKJUSAFA!
FYRIRGEFÐU! HVAÐ SAGÐIRÐU?
EKKERT!
ÞEIR ERU NÁNAST
ÚTDAUÐIR
„FRÁBÆRT, ÞÚ ERT ENN HÉR. ÉG HÉLT AÐ
VIÐ HEFÐUM MISST SAMBANDIÐ.”
1960, sjúkraliði. Foreldrar hennar
voru hjónin Ingólfur Eyrfeld Guð-
jónsson, f. 28.6. 1920, d. 22.10.
2012, vélstjóri, og Ingibjörg Hall-
dórsdóttir, f. 8.12. 1926, d. 30.10.
2011, húsmóðir og atvinnurekandi,
búsett að Eyri við Ingólfsfjörð,
síðar í Kópavogi.
Börn Guðmundar og Þórhildar
eru: 1) Katrín Ósk, f. 2.4. 1978, við-
skiptafræðingur, starfar sem flug-
freyja, bús. í Kópavogi. Maki: Jón-
as Tryggvason rafvirkjameistari
og börn þeirra eru Guðný Ósk,
Heiðdís Hrönn, Tryggvi Jóhann og
Ingibjörg Anna; 2) Jón, f. 12.12.
1987, ljósmyndari, bús. í Kópavogi.
Maki: Ragna Björk Ólafsdóttir,
sérfræðingur á fjármálasviði Alvo-
tech, og börn þeirra eru tvíbur-
arnir Guðmundur Jóel og Sólberg
Elí.
Systkini Guðmundar eru Guð-
björg Rannveig Jónsdóttir, f. 7.5.
1955, ritari, bús. í Kópavogi, og
Hulda Bryndís Jónsdóttir, f. 13.12.
1966, húsmóðir í Bandaríkjunum.
Foreldrar Guðmundar eru hjón-
in Jón Guðmundsson, f. 14.5. 1935,
múrarameistari, og Hulda Bryndís
Sigurðardóttir, f. 22.11. 1936, hús-
móðir. Þau hafa lengst af verið bú-
sett í Kópavogi, en á árunum 1991-
2004 bjuggu þau í Seattle.
Guðmundur
Jóhann Jónsson
Hulda Bryndís Sigurðardóttir
húsmóðir í Reykjavík
Sigurður Finnbjörnsson
múrarameistari í Reykjavík
Elísabet Guðný Jóelsdóttir
húsmóðir á Hesteyri og Ísafi rði,
f. í Miklaholti á Mýrum
Finnbjörn Hermannsson
kaupmaður á Hesteyri og Ísafi rði, f. á Læk í Sléttuhr.
Árni Finnbjörnsson framkvæmdastj.
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
Hólmfríður Svava Snorradóttir
húsmóðir í Vogsósum og Rvík, úr Flóanum
Vilhjálmur K. Ásmundsson
bóndi í Vogsósum í Selvogi
og verkamaður í Rvík, f. á
Apavatni í Grímsnesi
Vilhelmína H. Vilhjálmsdóttir
húsmóðir og verkakona í Rvík
Guðríður Vilhjálmsdóttir
húsmóðir í Rvík
Hólmfríður
Kristjánsdóttir húsmóðir
í Rvík
Viðar Þorkelsson
forstjóri Valitor og fv.
landsliðsmaður í fótbolta
María Sigurðardóttir
leikstjóri
Ríkarður Ríkarðsson
framkvæmdastj.
Landsvirkjunar Power
og ólympíufari í sundi
Salmanía Jóhanna
Jóhannesdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Styrmir Gunnarsson
fv. ritstjóri
Morgunblaðsins
Sigríður G. Auðunsdóttir
húsmóðir á Ísafi rði, frá Svarthamri
Jóhannes Jónsson
sjómaður á Ísafi rði, frá Skálavík
Guðbjörg Rannveig Jóhannesdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Guðmundur Jóhann Jónsson
stýrimaður í Reykjavík
Jakobína S. Guðmundsdóttir
húsmóðir í Reykjavík, f. á
Grjótnesi á Melrakkasléttu
Jón Björnsson
kaupmaður í Reykjavík, sonur Björns Kristjánssonar kaupmanns og alþm.
Úr frændgarði Guðmundar Jóhanns Jónssonar
Jón Guðmundsson
múrarameistari í Reykjavík
Eftir að Helgi R. Einarsson hafðilesið Vísnahorn á fimmtudag
varð til limran „Samson og Óli“:
Á stúlkuna Dorrit menn stóla
er stormar með hvolpinn um hóla,
því meðal vor flóna
klókt væri’ að klóna
kannski líka hann Óla.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir á
Boðnarmiði og kallar „Samson“:
Samson mun gelta og góla
og galvaskur skoppa um hóla,
hvolpurinn sá
með hvítt á tá
hann líkist alls ekki Óla.
Helgi Ingólfsson heldur áfram:
Jú, Samson Sámsson er fjári
svipaður, hvolpurinn klári.
Rassinn er líkur
og rómur ei svíkur.
Svo bera þeir hærur í hári.
Magnús Halldórsson skrifar:
„Kosningalög gera ráð fyrir að for-
setaframbjóðandi sé minnst 35 ára
gamall, þessu þarf að breyta vegna
framfara við erfðatækni“:
Þjóðin öll mun tipla’á tám,
tryggð er framtíð glæst,
við afturgenginn sjáum Sám
og síðan Ólaf næst.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
svaraði um hæl og segir að þetta sé
ekki um Ólaf Ragnar Grímsson en
passi vel við klónunar framtakið.
Hundurinn fyrst, maðurinn svo, eft-
ir því hver fer heim fyrstur. Hún
tók fram að vísan er gamall hús-
gangur:
Góður er sérhver genginn
gæti hann legið kyrr.
Ólafur, aftur fenginn,
ÓLAFUR, verri en fyrr.
Indriði á Skjaldfönn leit öðru vísi
á málið:
Aðdáun ég enga finn
né ást til rakkatetra,
en ef hún klónar Ólaf sinn
er það miklu betra.
Magnús Halldórsson segir að við
höldum lengi í forskot okkar á aðr-
ar þjóðir heimsins:
Lapinn dauði lítt úr skel,
lifa gömlu kvæðin.
Sámsklónunin sannar vel,
séríslensku gæðin.
Hafsteinn Reykjalin Jóhannesson
yrkir um „Norðurljós“
Nú um miðjan nóvember,
nýt ég stjörnugeimsins,
er norðurljósin leika sér
með litagleði heimsins.
Útlendingar ætíð hér
undur þessi mynda.
Allt sem fyrir augu ber,
undir brosið kynda.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Klónun og norðurljós