Morgunblaðið - 04.11.2019, Qupperneq 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
GLUGGA-
TJÖLD
alnabaer.is
Úrval af gluggatjaldaefnum, þykk, þunn,
blúndur, kappar og allt þar á milli.
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
Svíþjóð
AIK – Sundsvall ....................................... 2:1
Kolbeinn Sigþórsson var í liði AIK fram
á 82. mínútu og skoraði mark.
Örebro – Malmö....................................... 0:5
Arnór Ingvi Traustason var í liði Malmö
fram á 75. mínútu og skoraði mark.
Hammarby – Häcken .............................. 4:1
Aron Jóhannsson var á varamannabekk
Hammarby.
Norrköping – Djurgården...................... 2:2
Guðmundur Þórarinsson var í liði Norr-
köping en fékk rautt spjald á 73. mínútu.
Ísak Bergmann Jóhannesson var ekki með.
Helsingborg – Elfsborg .......................... 1:2
Daníel Hafsteinsson var á varamanna-
bekk Helsingborgar.
Lokastaða efstu liða: Djurgården 66,
Malmö 65, Hammarby 65, AIK 62.
Danmörk
FC Köbenhavn – SönderjyskE............... 3:0
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leik-
inn fyrir SönderjyskE en Ísak Óli Ólafsson
var á bekknum.
Nordsjælland – AGF ............................... 0:1
Jón Dagur Þorsteinsson var í liði AGF
fram á 78. mínútu.
AaB – Midtjylland.................................... 0:1
Mikael Anderson lék allan leikinn fyrir
Midtjylland.
Bröndby – BSF......................................... 7:2
Kristrún Rut Antonsdóttir lék allan leik-
inn fyrir BSF.
B-deild:
Vejle – Fremad Amager ......................... 4:0
Kjartan Henry Finnbogason lék allan
leikinn fyrir Vejle og skoraði mark.
Noregur
Bodö/Glimt – Haugesund....................... 2:2
Oliver Sigurjónsson var á varamanna-
bekk Bodö/Glimt.
Vålerenga – Brann.................................. 1:0
Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn
fyrir Vålerenga.
Viking – Lilleström ................................. 3:0
Samúel Kári Friðjónsson lék allan leik-
inn fyrir Viking. Axel ÓskarAndrésson er
frá keppni vegna meiðsla. Arnór Smára-
son lék seinni hálfleik fyrir Lilleström.
Grikkland
Larissa – OFI Krít ................................... 3:2
Ögmundur Kristinsson varði mark Lar-
issa.
PAOK – Panathinaikos........................... 2:2
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn í
vörn PAOK.
Belgía
St. Truiden – Oostende ........................... 1:0
Ari Freyr Skúlason lék fyrir Oostende.
Pólland
Jagiellonia – LKZ Lodz .......................... 2:0
Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn fyr-
ir Jagiellonia.
Portúgal
SL Benfica – Cadima............................. 10:0
Cloé Lacasse gerði þrennu fyrir Benfica.
KNATTSPYRNA
SVÍÞJÓÐ
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi
Traustason átti fínt tímabil með
sænska liðinu Malmö, sem var hárs-
breidd frá því að verða sænskur meist-
ari í fótbolta um helgina. Malmö þurfti
hins vegar að sætta sig við annað sæti
á eftir Djurgården eftir æsispennandi
lokaumferð á laugardag. Djurgården
varð meistari með 66 stig og Malmö
hafnaði í öðru sæti með 65 stig.
Fyrir lokaumferðina þurfti Malmö
að vinna Örebro og treysta á að Djur-
ården myndi tapa á útivelli fyrir Norr-
köping. Malmö gerði sitt og vann 5:0-
stórsigur, en Djurgården tókst að
knýja fram jafntefli, eftir að hafa lent
2:0 undir.
„Þetta var gríðarlega svekkjandi.
Við vorum staðráðnir í því að vinna
leikinn og setja nokkur mörk. Á vell-
inum var stigatafla og ef maður horfði
upp gat maður séð hvað var að gerast í
hinum leikjunum og svo heyrði maður
vel í stuðningsmönnunum. Það var
gríðarlega svekkjandi að vera með 4:0-
forystu og sjá svo að staðan í Norrköp-
ing var orðin 2:2 eftir að Norrköping
komst í 2:0,“ sagði Arnór í samtali við
Morgunblaðið. Guðmundur Þór-
arinsson leikur með Norrköping, en í
stað þess að skora og gera Arnóri og
félögum greiða fékk hann sitt annað
gula spjald og þar með rautt í seinni
hálfleik.
Bað Guðmund um greiða
„Ég talaði aðeins við hann fyrir leik-
inn og bað hann og liðið að gera allt
sem þeir gætu. Hann lofaði mér því,
en því miður gekk það ekki upp. Svona
er fótboltinn, hann getur verið svo
skemmtilegur en líka ótrúlega leið-
inlegur.“
Hjá Malmö sætta menn sig ekki við
annað sæti og leyndu vonbrigðin sér
ekki hjá Arnóri. „Við erum alls ekki
sáttir. Við vorum með fínt forskot í
sumar en svo gloprum við því aulalega
niður og endum á því að þurfa að elta,
sem er pirrandi. Hefðum við haldið
haus og fókus og unnið okkar leiki
hefði þetta farið öðruvísi. Við klúðr-
uðum sex vítaspyrnum í röð í deild-
inni, sem er glórulaust. Það gekk allt
á móti okkur á þessum kafla og menn
voru vel pirraðir. Við erum hins vegar
enn í Evrópu og við ætlum að gera vel
þar og komast upp úr þessum riðli,“
sagði Arnór, sem jafnaði sinn besta
árangur í markaskorun á einu tímabili
síðan hann varð atvinnumaður. Arnór
skoraði sjö mörk í deildinni, eins og
hann gerði árið 2015, en þá varð hann
einmitt sænskur meistari með Norr-
köping.
„Ég jafnaði það. Ég skoraði sjö
með Norrköping 2015, en ég þarf að
fara að bæta aðeins í og skora meira,“
sagði Arnór sem er ánægður með sitt
tímabil í heild. „Ég byrjaði þetta
tímabil frekar vel og mér leið vel. Ég
var að gera nokkra punkta sjálfur, en
svo lenti ég í meiðslum sem ég þurfti
að vinna mig úr. Ég kom sterkur til
baka eftir þau og hélt því skriði sem
ég var á og átti heilt yfir frekar sterkt
tímabil.“
Eins og Arnór kom inn á er Malmö
enn í Evrópudeildinni. Þar er liðið í B-
riðli með fjögur stig eftir þrjá leiki,
einu stigi á eftir FC Kaupmannahöfn
og Dynamo Kíev. Lugano er í botn-
sætinu með eitt stig.
Möguleikarnir í Evrópu góðir
„Eftir að hafa mætt öllum þessum
liðum tel ég okkur eiga góða mögu-
leika. Við eigum Lugano á útivelli á
fimmtudaginn og ætlum okkur þrjú
stig þar. Við sýndum gríðarlega góð-
an fyrri hálfleik á heimavelli gegn
þeim en svo slökuðum við á og þá
sýndu þeir að þeir eru góðir í fótbolta
líka. Það væri virkilega sterkt fyrir
okkur að ná í þrjú stig á útivelli gegn
þeim fyrir leiki gegn Dynamo heima
og FC Kaupmannahöfn úti.“ Aðeins
eru 43 kílómetrar á milli Malmö og
Kaupmannahafnar og því mikill rígur
á milli Malmö og FCK. „Það er gríð-
arlega mikill rígur þarna og þau þola
ekki hvort annað. Það voru rosaleg
læti í fyrri leiknum á heimavelli og
skemmtilegt að upplifa þennan leik
þótt það hafi verið vonbrigði að fá
bara eitt stig í leik sem við áttum skil-
ið að vinna,“ sagði Arnór en niður-
staðan varð 1:1-jafntefli er liðin
mættust í Svíþjóð.
Arnór er á öðru tímabili sínu hjá
Malmö og á tvö ár eftir af samningi
sínum. Hann er opinn fyrir öðrum
tækifærum, en á sama tíma ánægður
hjá Malmö.
„Ég á tvö ár eftir hjá Malmö. Ég er
ekki að ýta á eftir því að líta í kring-
um mig. Ég leyfi þessu að koma til
mín. Ef eitthvað skemmtilegt kemur
upp mun ég skoða það, en mér og
minni fjölskyldu líður rosalega vel í
Malmö og mér líður virkilega vel hjá
félaginu. Þetta er flottur klúbbur og
ekkert að því fyrir mig að ég verði
áfram. Það hefur ekki komið neitt
ennþá, en ég mun heyra í umboðs-
manninum seinna meir.“
Kolbeinn Sigþórsson tók þátt í
toppbaráttunni í Svíþjóð með AIK og
mættust þeir Arnór og Kolbeinn í
mikilvægum leik í næstsíðustu um-
ferðinni. Þá vann Malmö 2:0 og gerði
út um titilvonir AIK. „Það er mjög
gaman að sjá Kolbein byrja að spila
aftur. Hann er mjög erfiður viður-
eignar. Við mættumst fyrir stuttu og
það er gaman að sjá hann spila fót-
bolta aftur og njóta þess og vera í því
formi sem hann er í,“ sagði Arnór
Ingvi um félaga sinn í landsliðinu.
Gríðarlega svekkjandi
Arnór Ingvi stigi frá sínum öðrum sænska meistaratitli Jafnaði eigið met
Ljósmynd/@malmoff
Hneiging Arnór
Ingvi Traustason
hneigir sig fyrir
framan stuðnings-
menn Malmö.
Skautafélag Akureyrar bar sigur
úr býtum gegn Reykjavík er liðin
mættust á Akureyri í Hertz-deild
kvenna í íshokkíi á laugardags-
kvöld, 9:4. Liðin eru þau einu í
deildinni í ár og hefur SA unnið
þrjár síðustu viðureignirnar eftir
sigur Reykjavíkur í vítakeppni í
fyrsta leik tímabilsins. Kolbrún
Garðarsdóttir skoraði þrjú fyrir SA
og Sarah Smiley tvö. SA er með 10
stig en Reykjavík tvö stig nú þegar
fjórum leikjum af tíu á milli liðanna
í deildarkeppninni er lokið.
Helgin var góð fyrir íshokkí á
Akureyri því SA jafnaði Fjölni að
stigum á toppi Hertz-deildar karla
með 6:3-sigri á heimavelli. Eftir
jafnan leik voru Akureyringar
sterkari undir lokin og tryggðu sér
3:1-sigur í þriðju og síðustu lotunni.
Jóhann Már Leifsson skoraði tvö
mörk fyrir SA, eins og Hafþór Sig-
rúnarson.
SA og Fjölnir eru jöfn á toppnum
með tólf stig en SR er stigalaust á
botni deildarinnar. SA og Fjölnir
hafa leikið fimm leiki og SR sex.
Þórir Tryggvason
Ís Teresa Snorradóttir úr SA og Sigrún Árnadóttir Reykjavík eigast við.
Akureyringar stjórn-
uðu ferðinni á ísnum