Morgunblaðið - 04.11.2019, Page 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
INTERFLON
Matvælavottaðar efnavörur
Nýjar umbúðir,
sömu gæða efnin
England
Everton – Tottenham.............................. 1:1
Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á hjá
Everton á 84. mínútu.
Sheffield United – Burnley .................... 3:0
Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með
Burnley vegna meiðsla.
Bournemouth – Manchester United ...... 1:0
Arsenal – Wolves...................................... 1:1
Aston Villa – Liverpool ............................ 1:2
Brighton – Norwich ................................. 2:0
Manchester City – Southampton............ 2:1
West Ham – Newcastle ........................... 2:3
Watford – Chelsea.................................... 1:2
Crystal Palace – Leicester ...................... 0:2
Staðan:
Liverpool 11 10 1 0 25:9 31
Manch.City 11 8 1 2 34:10 25
Leicester 11 7 2 2 27:8 23
Chelsea 11 7 2 2 25:17 23
Arsenal 11 4 5 2 16:15 17
Sheffield Utd 11 4 4 3 12:8 16
Bournemouth 11 4 4 3 14:13 16
Brighton 11 4 3 4 14:14 15
Crystal Palace 11 4 3 4 10:14 15
Manch.Utd 11 3 4 4 13:11 13
Tottenham 11 3 4 4 17:16 13
Wolves 11 2 7 2 14:14 13
West Ham 11 3 4 4 14:17 13
Burnley 11 3 3 5 14:18 12
Newcastle 11 3 3 5 9:17 12
Aston Villa 11 3 2 6 16:18 11
Everton 11 3 2 6 11:17 11
Southampton 11 2 2 7 10:27 8
Norwich 11 2 1 8 11:26 7
Watford 11 0 5 6 6:23 5
B-deild:
Reading – Millwall................................... 2:1
Jón Daði Böðvarsson lék seinni hálfleik-
inn með Millwall og lagði upp mark.
Þýskaland
Augsburg – Schalke ................................ 2:3
Alfreð Finnbogason lék allan leikinn fyr-
ir Augsburg og skoraði mark úr víti.
Freiburg – Wolfsburg ............................. 0:8
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik-
inn fyrir Wolfsburg og skoraði mark.
Leverkusen – Jena .................................. 2:0
Sandra María Jessen lék allan leikinn
fyrir Leverkusen.
B-deild:
Greuter Fürth – Darmstadt ................... 3:1
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn fyrir Darmstadt og skoraði.
Rússland
Zenit Pétursborg – CSKA Moskva........ 1:1
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn fyrir CSKA en Arnór Sigurðsson
var á bekknum.
Krasnodar – Rostov................................. 2:2
Jón Guðni Fjóluson var á bekknum hjá
Krasnodar.
Ragnar Sigurðsson kom inn á hjá Rostov
á 86. mínútu en Björn Bergmann Sigurð-
arson var á bekknum allan leikinn.
Kasakstan
Tobol – Astana ......................................... 0:1
Rúnar Már Sigurjónsson var á vara-
mannabekk Astana eftir meiðsli.
KNATTSPYRNA
ENGLAND
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði á vara-
mannabekk Everton fjórða leikinn í
röð er liðið gerði 1:1-jafntefli við Tott-
enham í ensku úrvalsdeildinni í fót-
bolta í gær. Bjuggust margir við að
Gylfi yrði í byrjunarliðinu, þar sem
hann kom ekkert við sögu í deildabik-
arleik við Watford í síðustu viku, en
svo var ekki. Því miður spilaði fótbolt-
inn aukahlutverk, þrátt fyrir jöfn-
unarmark Everton í uppbótartíma.
Portúgalinn André Gomes fótbrotn-
aði afar illa skömmu fyrir leikslok.
Sem betur fer voru sjónvarpsmenn-
irnir á Englandi ekki á þeim bux-
unum að sýna atvikið oftar en einu
sinni, þar sem það var ekki fyrir við-
kvæma. Heung-Min Son, sem braut
slysalega á Gomes, fór grátandi af
velli þegar hann áttaði sig á meiðslum
andstæðingsins, svo illa leit atvikið
út.
Það gæti hins vegar opnað dyrnar í
byrjunarliðið fyrir Gylfa á nýjan leik.
Everton mætir Southampton á úti-
velli næstkomandi laugardag og er
mjög líklegt að Gylfi verði kominn
aftur á sinn stað í liðinu. Everton þarf
á göldrum hans að halda, þar sem lið-
ið er aðeins með þremur stigum
meira en Southampton, sem er í fall-
sæti. Tottenham er í ellefta sæti með
þrettán stig. Bæði hafa spilað langt
undir væntingum og eru sæti knatt-
spyrnustjóranna Mauricio Pochettino
og Marco Silva orðið ansi heit.
Ekki afskrifa Liverpool
Stuðningsmenn Liverpool voru
sennilega farnir að óttast fyrsta tapið
á leiktíðinni er liðið var 0:1 undir
gegn Aston Villa skömmu fyrir leiks-
lok á laugardag. Á sama tíma var
Manchester City búið að snúa taflinu
við gegn Southampton, eftir að suð-
urstrandarliðið komst óvænt yfir í
Manchester. City var komið í 2:1 þeg-
ar Liverpool var enn undir. Það á
hins vegar ekki að afskrifa rauða liðið
í Bítlaborginni fyrr en síðasta nóta
feitu konunnar deyr út. Sadio Mané
byrjaði á því að leggja upp jöfn-
unarmark á Andy Robertson áður en
hann sá sjálfur um að skora sig-
urmarkið á fjórðu mínútu í uppbót-
artíma.
Liverpool tapaði síðast deildarleik
fyrir Manchester City 3. janúar og æ
fleiri stuðningsmenn liðsins þora að
láta sig dreyma eftir áratuga von-
brigði í leit að nítjánda Englands-
meistaratitlinum. Liverpool spilaði
ekki sérstaklega vel á móti Villa, en
vann samt. Þá hefur liðið lent undir í
síðustu þremur deildarleikjum en
alltaf finna skipstjórinn Jürgen Nor-
bert Klopp og lærisveinar hans leið,
þótt hún sé ekki alltaf greið.
Endurkoma Martial ekki nóg
„Ole er við stýrið,“ sungu áhyggju-
lausir stuðningsmenn Manchester
United þegar Ole Gunnar Solskjær
var ráðinn stjóri liðsins á síðasta ári.
Fýlupúkinn José Mourinho var horf-
inn á brott og framtíðin björt. United
vann hvern leikinn á eftir öðrum fyrst
um sinn undir stjórn Solskjær en svo
fór að halla undan fæti og kannski var
Solskjær lítið skárri en Mourinho.
Sólin var loksins farin að skína aftur á
Old Trafford er liðið vann þrjá leiki í
röð, áður en það mætti Bournemouth
á laugardag. Það þurfti bara Anthony
Martial. Frakkinn spilaði allan leik-
inn gegn Bournemouth, en allt kom
fyrir ekki á Vitality-vellinum sem tek-
ur örlítið fleiri áhorfendur en
Laugardalsvöllur. Josh King, sem
eitt sinn var í herbúðum Manchester
United, skoraði sigurmark Bourne-
mouth í fyrri hálfleik. Tímabil United
hefur verið afleitt til þessa en stuðn-
ingsmenn geta huggað sig við það að
vera þó í efri hlutanum, sem er annað
en t.d. Tottenham.
Opnar skelfilegt fótbrot
nýjar dyr fyrir Gylfa?
Liverpool neitar að tapa Þriggja leikja sigurganga Manchester United á enda
AFP
Fótbrotinn Son Heung-Min og Serge Aurier voru í áfalli eftir að André Gomes fótbrotnaði, líkt og fleiri.
Landsliðshornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson var
næstmarkahæstur hjá norska liðinu Elverum þegar það
fékk sitt fyrsta stig í Meistaradeild Evrópu í handbolta í
gærkvöld. Elverum gerði þá 30:30-jafntefli við Zagreb
frá Króatíu og skoraði Sigvaldi fimm mörk. Elverum og
Zagreb eru neðst í A-riðli en aðeins stigi á eftir Celje
Lasko sem er í 6. sæti nú þegar sex umferðum er lokið af
14. Liðin í 2.-6. sæti komast í 16-liða úrslit en toppliðið
fer beint í 8-liða úrslit.
PSG og Barcelona eru jöfn í efstu sætum riðilsins með
10 stig hvort, eftir að PSG vann Aalborg 27:24. PSG hef-
ur ekki tapað á heimavelli í 40 síðustu leikjum sínum í
Meistaradeildinni og fjögur mörk Janusar Daða Smárasonar breyttu engu
þar um. Guðjón Valur Sigurðsson var ekki á meðal markaskorara PSG.
Ómar Ingi Magnússon var ekki með Aalborg vegna höfuðmeiðsla.
Í B-riðli er Kiel efst með 11 stig eftir 30:27-sigur á Zaporozhye í Úkraínu
í gær. Gísli Þorgeir Kristjánsson var þó ekki á meðal markaskorara Kiel.
Sigvaldi stuðlaði að fyrsta stigi
Sigvaldi Björn
Guðjónsson
Rúnar Már Sigurjónsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, vann fyrsta
stóra titil sinn í gær þegar Astana
varð meistari í Kasakstan. Ein um-
ferð er eftir af deildinni en Astana
er með fjögurra stiga forskot eftir
1:0-útisigur á Tobol í gær. Liðið
hefur orðið meistari sex ár í röð.
Rúnar meiddist í landsleik gegn
Frökkum í síðasta mánuði en var á
varamannabekk Astana í gær.
Hann hefur skorað 2 mörk í 11
deildarleikjum eftir komuna frá
Grasshopper í Sviss í sumar.
Rúnar vann
meistaratitil
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðið Rúnar Már Sigurjónsson
virðist vera að ná sér af meiðslum.