Morgunblaðið - 04.11.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
HANDBOLTI
Olísdeild karla
Fram – KA ............................................ 25:27
Valur – ÍR.............................................. 23:20
FH – HK ............................................... 29:27
ÍBV – Fjölnir ........................................ 29:30
Afturelding – Haukar .......................... 23:24
Staðan:
Haukar 8 6 2 0 207:193 14
Afturelding 8 6 0 2 212:200 12
FH 8 5 1 2 221:212 11
ÍR 8 5 0 3 235:217 10
Selfoss 7 4 1 2 213:212 9
ÍBV 8 4 1 3 216:206 9
Valur 8 3 1 4 197:186 7
KA 8 3 1 4 225:224 7
Fram 8 3 0 5 197:197 6
Fjölnir 8 2 1 5 205:230 5
Stjarnan 7 1 2 4 170:188 4
HK 8 0 0 8 193:226 0
Olísdeild kvenna
Stjarnan – HK ...................................... 22:22
Fram – Haukar..................................... 29:15
ÍBV – Valur........................................... 14:33
Afturelding – KA/Þór .......................... 21:30
Staðan:
Valur 7 6 1 0 200:139 13
Fram 7 6 0 1 214:148 12
Stjarnan 7 4 2 1 174:152 10
KA/Þór 7 4 0 3 177:183 8
HK 7 2 2 3 178:194 6
Haukar 7 2 0 5 143:176 4
ÍBV 7 1 1 5 128:173 3
Afturelding 7 0 0 7 123:172 0
Meistaradeild karla
París SG – Aalborg.............................. 27:24
Guðjón Valur Sigurðsson var ekki á með-
al markaskorara PSG.
Janus Daði Smárason skoraði 4 mörk
fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon er
frá vegna meiðsla.
Pick Szeged – Celje Lasko ................. 31:24
Stefán Rafn Sigurmannsson var ekki í
leikmannahópi Pick Szeged.
Elverum – Zagreb ............................... 30:30
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 5
mörk fyrir Elverum.
Zaporozhye – Kiel ............................... 27:30
Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki á
meðal markaskorara Kiel.
Sävehof – Bidasoa ................................24:33
Ágúst Elí Björgvinsson varði 5 skot í
marki Sävehof.
Medvedi – Kristianstad....................... 37:26
Teitur Örn Einarsson skoraði 5 mörk
fyrir Kristianstad en Ólafur Andrés Guð-
mundsson ekkert.
Þýskaland
Füchse Berlín – RN Löwen ................ 23:22
Alexander Petersson skoraði 3 mörk fyr-
ir Löwen. Kristján Andrésson þjálfar liðið.
Göppingen – Lemgo............................ 34:27
Bjarki Már Elísson skoraði 7 mörk fyrir
Lemgo.
Minden – Balingen .............................. 30:30
Oddur Gretarsson skoraði 4 mörk fyrir
Balingen.
Leipzig – Magdeburg.......................... 25:26
Viggó Kristjánsson skoraði 1 mark fyrir
Leipzig.
voru markahæstar í Valsliðinu,
Sandra gerði átta mörk og Díana
fimm. Vigdís Birna Þorsteinsdóttir
skoraði einnig fimm mörk en hún
hefur komið skemmtilega inn í Vals-
liðið á þessari leiktíð eftir að hafa
lítið sem ekkert spilað í fyrra.
Lovísa Thompson lék einnig frá-
bærlega en hún fór einstaklega vel
með boltann, átti níu stoðsendingar
ofan á sín þrjú mörk og tapaði
knettinum einungis einu sinni.
Himinn og haf er á milli þessara
liða á öllum sviðum handboltans og
hefur Sigurður Bragason, þjálfari
ÍBV, miklar áhyggjur af því að tvö
lið séu sér á báti í öllum helstu
íþróttagreinum landsins kvenna-
megin. Þar nefndi hann baráttu
Vals við Blika í fótbolta, KR í körfu-
bolta og Fram í handbolta.
KA/Þór treysti stöðu sína í
fjórða sæti deildarinnar með örugg-
um sigri á nýliðum Aftureldingar,
30:21, á Varmá. Lið KA/Þórs hafði
yfirburði í leiknum frá upphafi til
enda og var með níu marka forskot í
hálfleik, 19:10. Afturelding er því
enn án stiga en KA/Þór með tveggja
stiga forskot á HK í 4. sæti.
Stjarnan missti af stigi í topp-
baráttunni með 22:22-jafntefli við
HK á heimavelli á laugardag. HK
var yfir nánast allan leikinn en þeg-
ar skammt var eftir komst Stjarnan
yfir, 20:19. HK tókst hins vegar að
jafna á ný og skiptu liðin stigunum
með sér. Eftir fjóra sigra í röð í
upphafi móts hefur Stjarnan leikið
þrjá án sigurs. Tveir þeirra voru
gegn Fram og Val, en jafnteflið
gegn HK svíður væntanlega.
Stjarnan er í þriðja sæti með 10 stig
og HK í fimmta sæti með sex stig.
Fram átti ekki í neinum vand-
ræðum með að leggja Hauka að
velli, 29:15. Fram var með tögl og
hagldir í leiknum frá upphafi til
enda og munaði sjö mörkum í hálf-
leik, 17:10. Ragnheiður Júlíusdóttir
skoraði níu mörk fyrir Fram og
Steinunn Björnsdóttir gerði fimm.
Berta Rut Harðardóttir skoraði
fjögur fyrir Hauka.
Eyjakonur frá-
bærar gegn ÍBV
Valur vann risasigur í Eyjum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Reyndar Kristín Guðmundsdóttir og Hanna G. Stefánsdóttir takast á.
Í EYJUM
Guðmundur T. Sigfússon
sport@mbl.is
Valskonur sóttu tvö stig til Vest-
mannaeyja á nokkuð auðveldan hátt
þegar liðið kafsigldi Eyjakonur,
með þrjár slíkar innan sinna raða.
Leiknum lauk með 19 marka sigri
Vals, 33:14, og voru tvær uppaldar
úr Eyjum markahæstar í Valsliðinu
auk þess sem sú þriðja úr Eyjum
varði virkilega vel í markinu undir
lokin.
Það var kunnuglegt stef í Valslið-
inu þegar Íris Björk Símonardóttir
varði flest sem á markið kom og
hirti upp leifarnar eftir stórgóðan
varnarleik Valskvenna. Íris varði
tólf skot og var þ.a.l. með rúmlega
50% markvörslu en Andrea Gunn-
laugsdóttir fékk langþráðan séns í
Valsliðinu undir lokin. Henni tókst
að verja sex skot af þeim níu sem
hún fékk á sig og tvöfaldaði því
vörslufjölda sinn úr fyrstu sex leikj-
unum.
Eyjakonurnar Díana Dögg Magn-
úsdóttir og Sandra Erlingsdóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðs-
fyrirliði í fótbolta, hefur byrjað leik-
tíðina afar vel með Wolfsburg í
Þýskalandi. Sara skoraði fimmta
mark sitt í áttunda deildarleiknum í
gær, þegar Wolfsburg vann 8:0-
risasigur gegn Freiburg. Hún hafði
áður mest skorað 4 mörk á heilu
tímabili í Þýskalandi.
Sara er þriðja markahæst í liði
Wolfsburg en hin danska Pernille
Harder er markahæst í deildinni með
12 mörk eftir þrennu í gær. Wolfs-
burg hefur unnið alla níu leiki sína
og er 3 stigum á undan Hoffenheim.
Sara komin með
fimm mörk
Ljósmynd/@vfl.wolfsburg.frauen
Öflug Sara Björk Gunnarsdóttir
hefur fagnað mörkum í vetur.
Alfreð Finnbogason skoraði sitt
annað mark á tímabilinu fyrir
Augsburg í þýsku 1. deildinni í fót-
bolta í gær. Alfreð fiskaði víti þeg-
ar spyrna hans fór í hönd leik-
manns Schalke, og úr spyrnunni
kom hann liði sínu í 2:1. Schalke
vann hins vegar 3:2 og er Augsburg
á fallsvæðinu með aðeins sjö stig
eftir 10 leiki.
Þýsku meistararnir í Bayern
München leita nú að nýjum þjálfara
eftir að Niko Kovac var rekinn í
kjölfar 5:1-taps gegn Frankfurt –
stærsta taps Bayern í tíu ár.
Alfreð skoraði en
Kovac rekinn
Ljósmynd/@FCA_World
Skoraði Mark Alfreðs Finn-
bogasonar dugði ekki til.
Sandefjord, lið Viðars Ara Jónssonar og Emils Páls-
sonar, vann sér um helgina sæti í norsku úrvalsdeildinni
í fótbolta. Viðar og Emil voru báðir í liðinu þegar það
vann Jerv 1:0 í næstsíðustu umferð og tryggði sér um
leið 2. sæti 1. deildar. Start, lið Arons Sigurðarsonar og
þjálfarans Jóhannesar Harðarsonar, þarf hins vegar að
fara í umspil um að komast upp úr 1. deildinni.
Viðar hefur átt fast sæti í liði Sandefjord á leiktíðinni
og Emil spilað sex leiki eftir að hann jafnaði sig af há-
sinarslitum sem kölluðu á níu mánaða endurhæfingu.
Samningur Viðars við félagið er til 2021, en hann kom til
þess í byrjun árs frá Brann. Núgildandi samningur Em-
ils rennur út um áramót, en hann kom frá FH fyrir tveimur árum.
Íslendingaliðið Aalesund hefur tryggt sér sigur í norsku 1. deildinni og
sett nýtt stigamet.
Í næstefstu deild Svíþjóðar náðu Bjarni Mark Antonsson og félagar í
Brage með dramatískum hætti 3. sæti, og fara þeir því í umspil við Kalmar,
þriðja neðsta lið úrvalsdeildar, um sæti í úrvalsdeild á næstu leiktíð.
Viðar og Emil í efstu deild
Viðar Ari
Jónsson
Lewis Hamilton hjá Mercedes vann í gær heimsmeist-
aratitil ökumanna í Formúlu 1 með því að koma í öðru
sæti í mark í bandaríska kappakstrinum í Austin í Texas.
Er þetta sjötti titill Hamiltons og hefur aðeins Michael
Schumacher unnið fleiri, eða níu.
Liðsfélagi Hamiltons, Valtteri Bottas, vann
kappaksturinn eftir mikla stöðubaráttu þeirra tveggja
síðustu 10-15 hringina. Þriðji varð svo Max Verstappen á
Red Bull og dró hann á Hamilton undir lokin en gul
flögg björguðu heimsmeistaranum.
Enn eru þrír kappakstrar eftir á keppnistímabilinu en
Hamilton er þegar kominn með 381 stig og er 67 stigum
á undan Bottas, sem var fyrir keppni helgarinnar sá eini sem enn gat
fræðilega séð náð titlinum af Hamilton.
Hamilton hefur nú orðið heimsmeistari þrjú ár í röð og fimm sinnum á
síðustu sex árum, en fyrsta titilinn vann hann árið 2008.
Heimsmeistari í sjötta sinn
Lewis
Hamilton