Morgunblaðið - 04.11.2019, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
1. deild kvenna
ÍR – Tindastóll ...................................... 63:64
Hamar – Fjölnir ................................... 62:83
Grindavík b – Keflavík b ...................... 58:74
Staðan:
Tindastóll 6 5 1 420:390 10
Keflavík b 5 4 1 371:343 8
Njarðvík 5 3 2 303:290 6
ÍR 5 3 2 319:256 6
Fjölnir 5 2 3 384:347 4
Grindavík b 4 1 3 197:281 2
Hamar 6 0 6 318:405 0
Geysisbikar karla
Bikarkeppni KKÍ, 1. umferð:
Höttur – Njarðvík ................................ 66:81
Snæfell – Þór Ak................................... 70:92
Skallagrímur – Sindri .......................... 71:80
KR b – Álftanes .................................... 74:97
Reynir S. – ÍA ..................................... 121:82
Þýskaland
Alba Berlín – Ulm.............................. 109:89
Martin Hermannsson skoraði 22 stig,
tók 1 frákast og átti 4 stoðsendingar á 22
mínútum fyrir Alba Berlín.
Spánn
San Pablo – Zaragoza......................... 69:78
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 6 stig og
tók 5 fráköst á 15 mínútum fyrir Zaragoza.
B-deild:
Leyma Coruna – Oviedo ..................... 78:81
Gunnar Ólafsson skoraði 3 stig, tók 1 frá-
kast og átti 1 stoðsendingu fyrir Oviedo.
Rússland
Khimki Moskva – UNICS Kazan ..... 109:83
Haukur Helgi Pálsson skoraði 10 stig,
tók 1 frákast og gaf 2 stoðsendingar á 18
mínútum fyrir UNICS Kazan.
Danmörk
Bakken Bears – Horsens .................... 80:63
Finnur Freyr Stefánsson þjálfar Hor-
sens.
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Hleðsluhöllin: Selfoss – Stjarnan........ 19.30
Í KVÖLD!
Meistaradeild kvenna
Rostov-Don – Esbjerg ......................... 34:26
Rut Jónsdóttir var ekki á meðal marka-
skorara Esbjerg.
Noregur
Kolstad – Drammen ............................ 31:21
Óskar Ólafsson skoraði 1 mark fyrir
Drammen.
Oppsal – Tertnes ................................. 27:30
Thea Imani Sturludóttir skoraði 2 mörk
fyrir Oppsal.
Í MOSFELLSBÆ/
Í SAFAMÝRI/Í EYJUM
Ívar Benediktsson
Guðmundur Tómas Sigfússon
Grétar Ari Guðjónsson, markvörður
Hauka, var hetja liðsins þegar hann
tryggði liðinu bæði stigin gegn Aft-
ureldingu í uppgjöri efstu liða Olís-
deildar karla í handknattleik í Mos-
fellsbæ í gærkvöldi, 24:23. Hann
varði skot úr hægra horni frá Guð-
mundi Árna Ólafssyni þegar örfáar
sekúndur voru til leiksloka. Nokkr-
um andartökum áður hafði boltinn
verið dæmdur af Haukum í sókn
þegar liðið gat innsiglað sigurinn.
Þar með eru Haukar enn ósigraðir
á toppnum með 14 stig eftir átta um-
ferðir. Leikurinn á Varmá í gær-
kvöldi var hnífjafn og spennandi frá
upphafi til enda. Sjaldnast munaði
nema einu marki á liðunum á annan
hvorn veginn. Haukar voru marki yf-
ir í hálfleik, 14:13.
Leikurinn bar þess nokkur merki
að talsvert var undir í honum. Spenn-
an skein af leikmönnum liðanna sem
gerðu sig á tíðum seka um einföld
mistök. Þó tókst hvorugu liði að færa
sér þau í nýt. Engu var líkara en leik-
menn væru staðráðnir í að haldast
nánast í hendur leikinn út. Haukar
lentu til að mynda í erfiðleikum eftir
ríflega tíu mínútur í síðari hálfleik
þegar Adam Haukur Baumruk fékk
rautt spjald fyrir leikbrot. Skömmu
síðar fékk Ásgeir Örn Hallgrímsson
tvöfaldan brottrekstur. Afturelding-
arliðinu tókst ekki að færa sér liðs-
muninn í nýt. „Það var vendipunktur
fyrir okkur að lifa þennan kafla af.
Þegar þessi staða var uppi hefðum
við getað misst einbeitinguna og Aft-
ureldingarliðið fram úr okkur. En við
stóðumst álagið,“ sagði Gunnar
Magnússon, þjálfari Hauka, í samtali
við Morgunblaðið í leikslok.
Vopn slegin úr höndum Fram-
ara
KA-menn unnu verðskuldað tvö
stig úr heimsókn sinni til Framara í
Safamýrina á laugardaginn. Þeir
börðust frá upphafi til enda leiksins
af innlifun og fóru með tveggja
marka sigur af hólmi, 27:25, eftir að
hafa verið fjórum mörkum yfir í hálf-
leik, 14:10. Þar með var endi bundinn
á þriggja leikja sigurgöngu Framara
þess utan sem KA krækti í sjöunda
sæti deildarinnar af Safamýrarliðinu.
Eftir jafnar upphafsmínútur tóku
KA-menn frumkvæðið og ekki að sjá
að þeir söknuðu stórskyttunnar Tar-
iks Kasumovic sem látinn var taka
pokann sinn fyrir helgina í sparnað-
arskyni. Aðal KA-liðsins í leiknum
fyrir utan baráttugleðina var fram-
úrskarandi varnarleikur. Framliggj-
andi 3/2/1-vörn liðsins sló flest vopn
úr höndum Framara. Þegar tíu mín-
útur voru til leiksloka var munurinn
fimm mörk, 21:16. Framarar léku
með sjö manna sóknarlið á lokakafl-
anum og síðan maður á mann síðustu
mínútuna til þess að freista þess að
krækja í a.m.k. annað stigið. Allt
kom fyrir ekki.
Þorgrímur Smári Ólafsson skoraði
flest mörk fyrir Fram, sjö. Áki Eg-
ilsnes var markahæstur í KA-liðinu.
Hann skoraði einnig sjö sinnum. Jov-
an Kukobat varði 13 skot að baki
KA-vörninni, þar af mörg mikilvæg
úr opnum færum á lokakafla leiksins.
Magnaður sigur Fjölnis í Eyjum
Fjölnismenn sóttu tvö stig til Vest-
mannaeyja með frábærum 30:29-
sigri. Fjölnir leiddi lengi vel áður en
Eyjamenn tóku forystuna þegar lítið
var eftir, en gestirnir úr Grafarvogi
áttu frábæran kafla undir lokin þar
sem liðið skoraði fimm mörk á móti
einungis einu marki gestanna. Það
lagði grunninn að sigrinum en tæp-
ara mátti það þó ekki standa þar sem
Gabríel Martinez skaut í stöngina á
lokasekúndu leiksins.
Fjölnir vann sér sæti í Olís-
deildinni á síðustu leiktíð á mettíma
en liðið rúllaði algjörlega yfir Grill
66-deildina. Ákveðið var að fara með
sama leikmannahóp inn í Olís-
deildina en einn besti leikmaður liðs-
ins meiddist og hefur lítið leikið á
tímabilinu, Hafsteinn Óli Berg Ram-
os Rocha. Sigurinn er stór fyrir
Fjölni en Eyjamenn hafa verið eitt
sterkasta lið landsins undanfarin sex
ár eða allt frá því að liðið vann sér
sæti í efstu deild 2013.
Margir skemmtilegir leikmenn
eru í Fjölnisliðinu en Breki Dagsson
hefur oftast stolið fyrirsögnunum,
ásamt Bergi Elí Rúnarssyni, en þeir
áttu báðir góðan leik gegn ÍBV.
Brynjar Óli Kristjánsson átti virki-
lega góðan leik en vel gekk að búa til
stöðuna einn á móti einum fyrir
Brynjar og hann fór oft illa með
varnarmenn ÍBV. Hann var einnig
mjög góður að finna réttu send-
inguna, skapaði níu færi fyrir félaga
sína og leysti stöðuna fyrir utan
hægra megin vel.
Eyjamenn þurfa að líta aðeins í
eigin barm og skoða hvernig þeir
mættu í leikinn. Fannar Frið-
geirsson hafði orð á því í viðtali eftir
leik að það væri lélegt af hálfu liðsins
hvernig þeir mættu til leiks. Liðið
hefur nú tapað þremur heimaleikjum
í röð í deildinni eftir að hafa ekki tap-
að í 11 mánuði í deildinni, heima, þar
á undan.
Valur vann annan sigur sinn í
röð þegar liðið lagði ÍR að velli,
23:20, og FH hélt sér við toppinn
með 29:27-sigri á HK.
Grétar Ari kom Haukum á
toppinn á elleftu stundu
Vart mátti á milli sjá í Mosfellsbæ Ævintýri hjá Fjölni Mikilvægur sigur KA
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fyrirliðinn Tjörvi Þorgeirsson lyftir sér upp og undirbýr skot í sigrinum gegn Aftureldingu í gærkvöldi.
Varmá, Olísdeild karla í handknatt-
leik, sunnudaginn 3. nóvember 2019.
Gangur leiksins: 3:1, 5:4, 7:7, 8:10,
11:11, 13:14, 15:15, 17:16, 19:18,
20:20, 22:21, 23:24.
Mörk Aftureldingar: Guðmundur
Árni Ólafsson 7/3, Þorsteinn Gauti
Hjálmarsson 4, Júlíus Þórir Stef-
ánsson 3, Birkir Benediktsson 3,
Karolis Stropus 2, Sveinn José Ri-
vera 2, Gunnar Kristinn Þórsson 1,
Tumi Steinn Rúnarsson 1.
Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson
8.
AFTURELDING – HAUKAR 23:24
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Hauka: Atli Már Báruson 7,
Adam Haukur Baumruk 4, Vignir
Svavarsson 3, Tjörvi Þorgeirsson 2,
Ólafur Ægir Ólafsson 2/1, Halldór
Ingi Jónasson 2, Heimir Óli Heimis-
son 2, Einar Pétur Pétursson 2.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson
13/1, Andri Sigmarsson Scheving
2/1.
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Bjarki Bóasson og Gunnar
Óli Gústafsson.
Áhorfendur: 580.