Morgunblaðið - 04.11.2019, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri
Flugvallarþjónusta
BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda.
5-8 manneskjur
19.500 kr.
1-4 manneskjur
15.500 kr.
Verð aðra leið:
Böðvar Páll Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
Sturle Dagsland er tónlistardúó frá
Noregi sem samanstendur af bræðr-
unum Sturle og Sjur Dagsland. Dúóið
kemur fram á Iceland Airwaves hátíð-
inni í nóvember og spilar í Hressing-
arskálanum föstudaginn 8. nóvember
auk annarra viðburða.
„Við leikum á alls kyns ólík hljóð-
færi sem koma hvaðanæva úr heim-
inum. Við spilum á hörpu, mismun-
andi ásláttarhljóðfæri, flautur og
trompet og blöndum því saman við
raftónlist,“ segir Sturle Dagsland,
söngvari og titilmeðlimur dúósins.
„Ég nota margar ólíkar raddbeit-
ingar, barkasöng og joik, ásamt því að
nota popptónlist og rapp. Þetta er
mjög áhrifaríkur og kraftmikill hljóm-
ur.“
Líf Sturle hefur snúist um tónlist
síðan hann kláraði menntaskóla en
hann og bróðir hans hafa spilað sam-
an í um það bil átta ár.
Fengið hráka í andlitið
„Fjölskyldan mín er samísk og því
komin af frumbyggjum í Noregi. Joik
hefur því fylgt mér í langan tíma og
ég vildi nota þann hluta af mér,“ segir
Sturle, en joik kemur frá Sömum og
má líkja við söng frumbyggja í Am-
eríku. „Barkasöngurinn kom sem
náttúrulegt framhald af því og af því
að ég vil uppgötva alls kyns ólíkar teg-
undir af tónlist frumbyggja; reyna að
kanna alls kyns ólíkar leiðir til að tjá
mig í gegnum tónlist. Ég reyni alltaf
að finna nýjar leiðir til að nálgast tón-
list og þróa á nútímalegan hátt.“
Sturle segir aðra tónlistarmenn
nýta sér joik og barkasöng til að gera
popptónlist en enginn á sama hátt og
þeir bræður. „Tónlist okkar fer yfir
mjög breitt svið. Það er sjaldan eitt-
hvað eitt í gangi í hverju lagi heldur
flökkum við oft á milli ólíkra tilfinn-
inga í miðju lagi. Vel getur verið að við
förum úr gleði og svo skyndilega yfir í
villt öskur, barkasöng og dansa og svo
yfir í eitthvað annað. Svo þetta er
mjög framsækin leið til að nálgast
tónlist.“
Sturle segist tjá ýmsar tilfinningar
með tónlist sinni. „Það er mikilvægt
fyrir mér að tjá ekki aðeins eitt atriði
svo að þetta snýst ekki um einhver
ákveðin skilaboð því þetta er svo vítt
svið hljóða og hljóðheima. Fyrir mitt
leyti er undir hlustandanum komið að
túlka tónlistina,“ segir Sturle, en þeir
bræður fá alla flóru viðbragða frá
fólki á tónleikum þeirra.
„Fólk grætur, öskrar, brosir og
hlær. Það hefur meira að segja gerst
að fólk hrækir í andlitið á mér og kall-
ar mig „fagga“ því tónlistin reitir það
svo til reiði. Oftast er umhverfið þó
jákvætt en tónlistin okkar kallar
fram mjög sterkar tilfinningar hjá
fólki.“
Ísland eins og að vera heima
Þegar dúóið kemur fram fer eftir
aðstæðum hvort þeir bræður eru
tveir á sviði eða fleiri með þeim. „Á
Íslandi verðum við tveir og þannig
komum við vanalega fram. Ég ein-
beiti mér aðallega að söngnum en
spila einnig á fjölda hljóðfæra; hand-
trommur, flautur og þar fram eftir
götunum. Bróðir minn notar ýmis
rafhljóðfæri, ásláttarhljóðfæri og
trompet. Þetta er mjög villt og
skemmtileg blanda af mismunandi
hlutum,“ segir Sturle. „Við reynum
að nota það sem við getum borið og
komið í flugvélina á leiðinni til lands-
ins.“
Sturle og Sjur hafa komið hingað
til lands áður; þeir léku meðal annars
á Secret Solstice-tónlistarhátíðinni
árið 2015 og hafa komið fram á „off-
venue“ stöðum Iceland Airwaves en
þetta er í fyrsta sinn sem þeir spila á
formlegum hluta hátíðarinnar. „Ís-
land er frábær staður og í raun mjög
svipaður staðnum sem ég bý á, Stav-
anger í Noregi. Að ganga um í
Reykjavík er eins og að ganga um
heima hjá mér, eini munurinn er eld-
fjöllin,“ segir Sturle og hlær.
Hann segist vera með hugann við
tónleikana en ætlar sér að borða
ákveðna tegund súkkulaðis með
lakkrís þegar hann kemur til lands-
ins. Blaðamaður gat þó ómögulega
áttað sig á því hvaða tegund af súkk-
ulaði Sturle átti við þegar hann lýsti
henni fyrir honum.
Bannað að „crowd surfa“
Dúóið hefur spilað um allan heim
síðustu árin. Þeir fóru um Norður-
Ameríku árið 2015 en nú í haust fóru
þeir í tónleikaferðalag um Kína,
spiluðu meðal annars á stórri tón-
leikahátíð í Sjanghæ. „Við vorum í
Kína í tvær vikur, sem var í fyrsta
skiptið sem við förum þangað,“ segir
Sturle. „Það var mjög spennandi og
frábrugðið því sem við eigum að venj-
ast. Í Sjanghæ gengu tónleikarnir vel
en tónleikahaldararnir voru mjög
hræddir um að lögreglan myndi
koma og loka hátíðinni því áhorf-
endur voru með svo mikil læti.“
Sturle er vanur að henda sér út í
áhorfendaskarann þegar hann spilar
og láta áhorfendur bera sig um;
„crowd surfing“ kallast það upp á
enskuna. „Ég hafði gert það á tón-
leikum snemma á ferðalaginu um
Kína og myndband af því fór eins og
eldur um sinu um netheima. Svo var
umboðsmaðurinn okkar skyndilega
kominn með 10 ósvöruð símtöl frá
einum tónleikahaldaranum sem sagði
að ég ætti alls ekki að gera þetta,“
segir Sturle Dagsland og skellir upp
úr.
Óvenjulegur Sturle Dagsland fer ótroðnar slóðir i nálgun sinni á tónlistinni og fer yfir breitt svið.
Kalla fram sterkar tilfinningar
Dúóið Sturle Dagsland spilar á Iceland Airwaves í ár Blanda af barkasöng, joiki, raftónlist,
alls kyns hljóðfærum, poppi, rappi og jafnvel öskri Finna nýjar leiðir til að nálgast tónlist
Fæðing nútímaskúlptúrsins nefnist
umfangsmikil sýning sem opnuð hef-
ur verið í Gallerie d’Italie við Scala-
torg í Mílanó. Þar getur að líta
meira en 150 verk eftir tvo fremstu
höggmyndara Evrópu í byrjun 19.
aldar sem nefndir hafa verið feður
nútímaskúlptúrsins. Þetta eru ítalski
listamaðurinn Antonio Canova
(1757-1822) og íslensk-danski lista-
maðurinn Bertel Thorvaldsen (1770-
1844), sonur Gottskálks Þorvalds-
sonar myndskera úr Skagafirði og
Karenar Dagnes frá vesturströnd
Jótlands. Sýningin stendur til 15.
mars 2020, en á næsta ári verða liðin
250 ár frá fæðingu Thorvaldsen.
Samkvæmt upplýsingum frá Ólafi
Egilssyni, fyrrverandi sendiherra Ís-
lands í Danmörku, sem staddur var
við opnun sýningarinar, eru Thor-
valdsenssafnið í Kaupmannahöfn og
Hermitage-listasafnið í Skt. Péturs-
borg meðal þeirra sem lánað hafa
verk til sýningarinnar.
Samhliða sýningunni kom út um
400 blaðsíðna sýningarrit með ríku-
legu myndefni og greinum um lista-
mennina og verk þeirra. Ritstjórar
eru listfræðingarnir Stefano Grand-
esso og Fernando Mazzocca, sem
einnig sáu um uppsetningu
sýningarinnar. Í einum hliðarsala er
ferill listamannanna rakinn á vegg
og sýnd stutt kvikmynd um ólíkt
vinnulag þeirra. Kemur þar fram að
um 200 höggmyndanemar hafi á því
40 ára skeiði sem Thorvaldsen bjó í
Róm unnið og þroskast í listinni und-
ir handleiðslu hans.
Ljósmynd/Ólafur Egilsson
Gyðjur Gyðjurnar þrjár í útfærslu hvors listamanns um sig eru í miðjum
salnum, Canova til vinstri og Thorvaldsen til hægri. Lengst til vinstri sést
svo Dansmærin eftir Thorvaldsen. Meira en 150 verk eru á sýningunni.
Thorvaldsen í Mílanó