Morgunblaðið - 04.11.2019, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2019
Kólumbíska myndlistarkonan
Doris Salcedo hlaut fyrir helgi
Nomura-myndlistarverðlaunin,
en þeim fylgir ein milljón doll-
ara í verðlaunafé, jafnvirði um
126 milljóna króna. Er það
hæsta verðlaunaupphæð sem
veitt er fyrir myndlist í heim-
inum.
Í verkum sínum hefur Sal-
cedo fjallað um afleiðingar
átaka milli ríkisstjórnar og
uppreisnarmanna í heimalandi
sínu og er hún einn þekktasti
og virtasti listamaður Kólumb-
íu. Í verki sínu „Fragmentos“
tók hún þátt í afvopnunarferli
Farc-skæruliðasamtakanna í
Kólumbíu árið 2016 þegar
samið var um vopnahlé eftir
fimm áratuga langa borgara-
styrjöld. Vopnin sem skæru-
liðarnir afhentu lét Salcedo
bræða niður, bjó til flísar úr
þeim sem voru svo lagðar í
sýningarrými í borginni
Bogotá.
Salcedo hlaut Nomura-verðlaunin
AFP
Virt Doris Salcedo nýtur mikillar virð-
ingar innan myndlistarheimsins.
Bókaforlagið Sæmundur gefur út
talsvert af nýjum bókum fyrir jólin í
bland við endurútgefur og höfund-
arnir eru líka úr ýmsum áttum.
Meðal útgáfubókanna eru tvær
sem kalla mætti íslenska klassík.
Þar er annars vegar Ævisaga Sig-
urðar Ingjaldssonar frá Balaskarði
(1845-1933), vesturfara sem lýsir
ævintýralegu lífshlaupi sínu af
bernsku og lítillæti. Hin bókin er
Draumadagbók Sæmundar Hólm.
Már Jónsson prófessor ritstýrði
bókinni og ritar
um höfundinn,
sem var 18. aldar
prestur og
myndlistar-
maður. Aðfaraorð
eru eftir Sjón.
Magnús Þór
Jónsson, Megas,
leitar svo að
söguefni aftur í
aldir í bókinni
Björn og Sveinn,
sem gefin er út að nýju, en hún kom
út í takmörkuðu upplagi 1994.
Í Helga sögu rekur Auður Styrk-
ársdóttir ævi og ættarsögu bróður
síns sem frá unga aldri hefur liðið
fyrir geðræna erfiðleika.
Sólstafir í suðurhlíðum heitir
minningabók Sváfnis Sveinbjarn-
arsonar, bónda og prests á Breiða-
bólstað í Fljótshlíð. Í bókinni lýsir
Sváfnir lífi íslenskra sveitamanna á
20. öld.
Hvað er svona merkilegt við það
að vera biskupsfrú heitir bók sem
hefur að geyma samtöl Hildar Há-
konardóttur, rithöfundar og lista-
konu, við biskupsfrúvur Skálholts-
staðar allt frá siðbreytingu til loka
17. aldar.
Af nýjum íslenskum skáldverkum
má fyrst nefna sögulega skáldsögu
Skúla Thoroddsen sem hann nefnir
Ínu og snýst meðal annars um slysið
í Öskju sumarið 1907. Arngrímur
Vídalín sendir frá sér bókina Grá-
skinnu og Þórdís
Þúfa Björnsdóttir
bókina Sólmund-
ur. Veikinda-
dagar eftir Hlyn
Grímsson lækni
er tilvistarsaga
þar sem fléttað er
saman bundnu og
óbundnu máli.
Sakamálasagan
Þögla barnið eftir
Guðmund S.
Brynjólfsson djákna er nýkomin út
og skammt er einnig síðan skáldsag-
an Nikki kúr eftir Guðmund Óla
Sigurgeirsson kom út.
Undanfarin ár hefur Sæmundur
gefið út bækur Kims Leine og nú
kemur út skáldsagan Rauður mað-
ur, svartur maður þar sem sögusvið-
ið er Grænland á tímum norska
prestsins Hans Egede. Önnur þýdd
skáldsaga er Bjargfæri eftir argent-
ínska höfundinn Samönthy Schwe-
blin. Jón Hallur Stefánsson þýddi
báðar bækurnar.
Til viðbótar við ofangreindar
endurútgáfur Sæmundar má nefna
að Maríumynd
Guðmundar
Steinssonar kem-
ur út, einnig Svo
skal dansa eftir
Bjarna Harðar-
son, Galdra-
Manga eftir Tap-
io Koivukari,
Konan í dalnum
og dæturnar sjö
eftir Guðmund G.
Hagalín og lestrarkennslubókin
Gagn og gaman II.
Dyr opnast heitir nýjasta bók
Hermanns Stefánssonar sem út
kom í sumar og hefur að geyma
smásögur og
prósa. Í nýrri bók
Þóru Jónsdóttur
skáldkonu sem
heitir Sólardans-
inn eru á ferðinni
60 örsögur. Þá
hafa örsögur
Guðjóns Ragnars
Jónassonar frá
2018 um líf sam-
kynhneigðra í
Reykjavík nú
verið endurútgefnar á ensku undir
heitinu Little Gay Reykjavík.
Sæmundur gefur að þessu sinni
út níu ljóðabækur og hafa þær aldr-
ei verið fleiri hjá útgáfunni á einu
útgáfuári. Danska verðlaunaskáld-
konan Pia Tafdrup birtist íslenskum
lesendum í bókinni Úrval ljóða 1982-
2012 sem Sigríður Helga Sverris-
dóttir þýðir. Sigurður Ingólfsson
ljóðskáld sendir frá sér sína níundu
bók, sem heitir Í orðamó. Ljóðabók-
in Edda eftir Hörpu Rún Kristjáns-
dóttur í Hólum á Rangárvöllum
fjallar um fortíð, framtíð og allt þar
á milli í lífferli manneskjunnar.
Fugl-blubl eftir Steinunni A.
Stefánsdóttur, ljóðskáld og selló-
leikara, er önnur bók höfundar. Það-
an er enginn er eftir Hrafn Andrés
Harðarson, bókavörð og ljóðskáld.
Tásurnar er
ljóðabók eftir
samnefndan
ljóðahóp en hann
skipa ljóðskáldin
Ágúst Ásgeirs-
son, Jóhann G.
Thorarensen og
Jóna Guðbjörg
Torfadóttir. Í
Enn af kerskni
og heimsósóma
eftir Helga Ing-
ólfsson rithöfund er skopast að dæg-
urmálum en alvarlegri tónn sleginn
inn á milli. Bók
Gunnars
Straumland
myndlistarmanns
Höfuðstaf prýða
myndlistarverk
höfundar, en
þetta er fyrsta
bók Gunnars.
Síðust í röð ljóða-
bóka Sæmunda
er svo Jósefínu-
bók eftir læðuna
Jósefínu Meulengracht Dietrich
sem býr á Akra-
nesi.
Sæmundur
gefur einnig út
barnabækur. Val-
ur eignast systk-
ini er bók um þær
spurningar sem
vakna hjá smá-
fólkinu þegar
barn með skarð í
vör fæðist. Höf-
undur er Helga Sigfúsdóttir en
myndir eru eftir Jóhönnu Þorleifs-
dóttur. Róta rótlausa er barnabók
fyrir yngstu kynslóðina um rótlausa
moldvörpu sem leitar að friði og
hamingju. Höfundur er Ólöf Vala
Ingvarsdóttir. Sólskin með van-
illubragði eftir Guðríði Baldvins-
dóttur bónda í Kelduhverfinu segir
svo frá ellefu ára stelpuskotti sem
býr hjá ömmu sinni í sveitinni.
Tvær bækur
fjalla um búfén-
að. Fyrir stuttu
kom út bókin
Kindasögur eftir
þá Guðjón Ragn-
ar Jónasson og
Aðalstein Ey-
þórsson og
væntanleg er
Auðhumla eftir
Þórð Tómasson í
Skógum, sem
hefur að geyma heildstæða sam-
antekt um siði og sögu naut-
griparæktar á Íslandi.
arnim@mbl.is
Fjölbreytt útgáfa Sæmundar
Fjörutíu og tvær bækur koma út á árinu sem er metútgáfa hjá forlaginu
Magnús Þór
Jónsson
Hrafn Andrés
Harðarson
Hermann
Stefánsson
Harpa Rún
Kristjánsdóttir
JósefínaM.
Dietrich
Steinunn A.
Stefánsdóttir
Þórður
Tómasson
Hildur
Hákonardóttir
Guðrún Eva hefur í gegnumtíðina hlotið mikið lof bæðisem skáldsagna- og smá-sagnahöfundur, en í nýj-
asta verki sínu, Aðferðum til að lifa
af, blandar hún saman smá- og
skáldsagnastíl með góðum árangri.
Í skáldsögunni segir af fjórum
manneskjum sem eiga það eitt
sameiginlegt að lífið hefur leitt þær
á Laugarvatn. Þar kynnist lesandinn
fyrst hinni sextán ára gömlu Hönnu,
sem nauðug viljug býr í sumarbú-
stað vinafólks móður sinnar skammt
frá Laugarvatni, að því er virðist
vegna enn eins misheppnaðs ást-
arsambands móðurinnar. Hanna
glímir við átröskun ofan á hefðbund-
in unglingavandamál en reynir að
gera gott úr þessum vonandi tíma-
bundnu aðstæðum sínum. Á göngu
um sumarbústaðahverfið eitt kvöld-
ið rekst hún á þrekvaxinn mann með
hund. Í næsta kafla komast lesendur
að því að þarna er um að ræða Árna,
ungan mann sem ákvað að drýgja
örorkulífeyrinn með því að flytja frá
höfuðborginni og kaupa sér hús á
Laugarvatni, já og hund til þess að
draga hann út að ganga og teygja
þannig vonandi á lífi hans, sem er
ógnað af lífsstílssjúkdómi. Árni fær
gefins hjól frá nærgöngulum ná-
granna og þegar hann er að huga að
því úti á stétt kemur forvitinn ellefu
ára drengur, sem Árni sér strax að á
bágt og býður þúsundkall fyrir að
pumpa lofti í dekkin. Þegar kemur í
ljós að drengurinn kann ekki að
hjóla einsetur
Árni sér að kenna
honum það og
gefur honum loks
hjólið, þótt það sé
aðeins of stórt.
Aron er himin-
lifandi yfir nýja
hjólinu og nýjum
hæfileika sínum
og steingleymir
sér á fljúgandi
ferð í grenjandi rigningu allt þar til
hann flýgur á hausinn ofan í skurð.
Þar kemur húsfreyja á bóndabæ til
aðstoðar, en hún baðar Aron og gef-
ur honum hrein föt áður en hún
keyrir hann heim til móður hans,
sem á í fullu fangi með að hugsa um
sjálfa sig. Ekkjunni Borghildi, sem
rekur gistiheimili á bóndabænum
sínum utan við Laugarvatn, verður
þannig strax umhugað um velferð
Arons og á raunar eftir að spila mun
stærra hlutverk í lífi hans en hún
gerir sér grein fyrir á þessari
stundu.
Guðrún Eva hefur góða innsýn í
mannlegt eðli og mannleg samskipti
og hversu margslungin þau geta
verið og kemur því fagmannlega frá
sér á prenti. Eftir nokkurra ára hlé
gaf hún út smásagnasafnið Ástin,
Texas á síðasta ári og hlaut mikið lof
fyrir og er ekki ólíklegt að Aðferðir
til að lifa af muni njóta svipaðra vin-
sælda. Í Aðferðum til að lifa af fá les-
endur innsýn í margslungið líf
manneskjanna, sem hver og ein hef-
ur tileinkað sér sína aðferð til að lifa
af, en hikar ekki við að rétta öðrum
hjálparhönd, þó þær eigi fullt í fangi
í sínum eigin innri baráttum. En
þannig eru þær fyrir suma, aðferð-
irnar til að lifa af: að hjálpa öðrum til
þess að hjálpa sér sjálfum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Innsýn Guðrún Eva hefur góða innsýn í mannlegt eðli, að mati rýnis.
Að hjálpa öðrum til að
hjálpa sér sjálfum
Skáldsaga
Aðferðir til að lifa af bbbbn
Eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur.
Bjartur, 2019. 166 bls. Innbundin.
ÞORGERÐUR ANNA
GUNNARSDÓTTIR
BÆKUR
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is