Morgunblaðið - 04.11.2019, Síða 32
Fimmti hádegisfyrirlestur Sagn-
fræðingafélags Íslands verður í
fundarsal Þjóðminjasafns Íslands á
morgun, þriðjudag, kl. 12.05. Þar
fjallar Þorsteinn Helgason, fyrrver-
andi dósent í sagnfræði og sögu-
kennslu við Menntavísindasvið Há-
skóla Íslands, um Tyrkjaránið 1627
og hvort það hafi verið trúarlegur
atburður. Aðgangur er ókeypis.
Var Tyrkjaránið 1627
trúarlegur atburður?
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 308. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Grétar Ari Guðjónsson sá til þess
að Haukar ynnu 24:23-sigur á
Aftureldingu í Mosfellsbæ í gær-
kvöld, í toppslag Olísdeildarinnar í
handbolta. Grétar varði skot Guð-
mundar Árna Ólafssonar í blálokin
og þar með eru Haukar komnir aft-
ur á topp deildarinnar, tveimur stig-
um á undan Aftureldingu og þrem-
ur á undan FH-ingum. »27
Haukar efstir eftir
dramatískan toppslag
ÍÞRÓTTIR MENNING
„Ég á tvö ár eftir hjá Malmö. Ég er
ekki að ýta á eftir því að líta í kring-
um mig. Ég leyfi þessu að koma til
mín. Ef eitthvað skemmtilegt kemur
upp mun ég skoða það, en mér og
minni fjölskyldu líður rosalega vel í
Malmö og mér líður virki-
lega vel hjá félaginu,“
segir Arnór Ingvi
Traustason, lands-
liðsmaður í fót-
bolta og leik-
maður Malmö í
Svíþjóð.
Malmö var
aðeins stigi frá
sænska meistara-
titlinum eftir drama-
tíska lokaumferð um
helgina. »24
Arnór stigi frá titlinum
og líður vel í Malmö
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bridgesamband Íslands (BSÍ) var
stofnað 1948 og Jafet Ólafsson er að
hefja tíunda starfsár sitt sem forseti
þess. „Starfsemin er í miklum
blóma, fólk á öllum aldri spilar brids
og undirbúningur er í fullum gangi
fyrir bridshátíðina „Reykjavík
Bridgefestival“, sem hefst í Hörpu í
lok janúar á næsta ári,“ segir hann.
Deildakeppnin í brids stendur nú
yfir og verður spilað til úrslita um
miðjan mánuðinn. Daglega er mikið
um að vera í húsnæði sambandsins í
Síðumúla. Eldri borgarar koma þar
saman og spila brids þrjá daga í
viku. „Þar ríkir mikil ánægja og yf-
irleitt mæta 80 til 90 manns hverju
sinni,“ segir Jafet. Klúbbfélagar
koma þar saman og spila, um 60 til
100 manns á hverju kvöldi, að sögn
forsetans. Bridgeskólinn stendur
fyrir kennslu með aðstoð BSÍ og
Guðmundur Páll Arnarson, heims-
meistari 1991, heldur þar reglulega
námskeið. Í fyrra voru yfir 400 nem-
endur á aldrinum 14 til 85 ára og nú
eru um 340 innritaðir, en BSÍ býður
öllum 25 ára og yngri á frítt átta
tíma bridsnámskeið.
Sambandið hefur gefið út bækl-
ing, sem hefur verið dreift í marga
skóla landsins, auk þess sem brids-
félög halda úti móta- og námskeiða-
haldi. „Uppselt er á byrjenda-
námskeiðin okkar og við kvörtum
ekki yfir áhuga á íþróttinni, en vissu-
lega vildum við fá fleiri í yngri ald-
ursflokkunum,“ segir Jafet.
Útlendingar ánægðir
Um árabil hefur sambandið sent
forgefin spil til klúbba hvar á landi
sem er og hefur það fyrirkomulag
mælst vel fyrir, að sögn Jafets.
Keypt hafa verið tölvuforrit erlendis
og í pakkanum eru gjafir, sem reynt
hefur á í keppni. Spilarar segja sínar
sagnir og í lokin er niðurstaðan borin
saman við fyrri niðurstöður og stig
gefin fyrir frammistöðuna með hlið-
sjón af fyrri árangri. „Við fáum síðan
kassana aftur og látum tölvuna út-
búa nýjar gjafir,“ segir hann.
Gert er ráð fyrir um 430 þátttak-
endum á bridshátíðina í Hörpu, þar
af um 150 erlendum bridsspilurum.
Mótið fer nú fram í 39. sinn. Lengst
af var það haldið á Hótel Loftleiðum,
nú Reykjavík Natura, en tvö undan-
farin ár í Hörpu.
„Við búum svo vel að erlendir
bridsspilarar sækjast eftir því að
koma til Íslands,“ segir Jafet og vís-
ar til eins reglulegs þátttakanda.
„Hann segist hvergi skemmta sér
betur en á Íslandi og hann hafi
hvergi fengið betri fisk en á veit-
ingastaðnum Þremur frökkum.“
Hjördís Eyþórsdóttir, fremsta
bridskona Íslands og heimsmeistari
með Bandaríkjunum, er fastagestur
á hátíðinni. Hún býr í Bandaríkj-
unum og spilar oft í sveit Bills Gates.
Jafet segir að honum og Warren
Buffett, einum ríkasta manni heims,
hafi nokkrum sinnum verið boðið á
hátíðina en þeir hafi ekki enn komið.
Í nýlegu svari frá Buffett hafi komið
fram að hann gæti ekki komið, þar
sem hann væri orðinn gamall og
ferðalögum hefði fækkað til muna.
Gates hafi ekki svarað en unnið sé að
því að hann komi 2021. „Við fáum
marga góða gesti, meðal annars er
nánast öruggt að Zia Mahmood verði
á meðal keppenda, en aðalatriðið er
að brids gerir lífið skemmtilegra.“
Norðurlandameistarar 2019 Frá vinstri: Aðalsteinn Jörgensen, Gunnlaugur Sævarsson, Bjarni Hólmar Einarsson,
Sigurbjörn Haraldsson, Jón Baldursson, Kristján Már Gunnarsson og Jafet S. Ólafsson fyrirliði.
Brids í miklum blóma
Gert ráð fyrir um 430 spilurum á árlega bridshátíð í
Hörpu Jafet Ólafsson að hefja tíunda árið sem forseti