Morgunblaðið - 23.11.2019, Síða 11

Morgunblaðið - 23.11.2019, Síða 11
Skipholti 29b • S. 551 4422 GÆÐAYFIRHAFNIR Einstök gæði og hönnun Fylgdu okkur á facebook FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019 20%afsláttur af öllum buxum í dag! Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Bolir kr. 4.900.- Str. 40/42-56/58 Fleiri munstur Opið 11-15 í dag Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Cuero Mariposa Hönnuðir: Bonet, Kurchan & Ferrari Hannaður 1938 Íslenskt lambaskinn Stóll verð 189.000,- Guðni Einarsson gudni@mbl.is Rjúpnaveiðar hafa gengið mjög mis- jafnlega það sem af er veiðitímanum, bæði eftir dögum og landsvæðum, að sögn Áka Ármanns Jónssonar, for- manns Skotveiðifélags Íslands (Skotv- ís). Leyft er að ganga til rjúpna í 22 daga í nóvember. Veiða má alla daga mánaðarins nema miðvikudaga og fimmtudaga. „Maður hefur heyrt mjög mis- jafnar sögur af veiðum,“ sagði Áki. Eftir því sem hann hafði heyrt höfðu sumir fengið ágæta veiði einn daginn og farið svo daginn eftir og ekki séð svo mikið sem fjöður. „Þetta sveiflast mikið eftir veðri og aðstæðum. Rjúpan er mikið á ferðinni eftir veðri. Hún getur legið í snjólínu einn daginn. Svo getur snjól- ínan verið horfin daginn eftir og þá er rjúpan dreifð út um allt.“ Áki sagði að veðursveiflur hefðu verið algengar víða í haust. Samkvæmt því sem Áki hafði heyrt hefur gengið einna best að veiða á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra. Mikill snjór hefur verið á Norðurlandi og rjúpan nokkuð dreifð og snjórinn gerir erfiðara að ganga til rjúpna. „Það er best að ganga að rjúpunni ef það er skýr snjól- ína í fjöllunum. Þá heldur hún sig gjarnan þar,“ sagði Áki. Af Austur- landi hafði hann heyrt „kroppsögur“, það er að menn hefðu gengið til rjúpna, séð lítið og veitt mjög hóflega. En hvernig er rjúpnaveiðin á Suður- landi? „Maður hefur eiginlega ekki heyrt neinar rjúpnaveiðisögur af Suðurlandi enda varð þar viðkomubrestur. Þar voru bara tveir ungar á hverja hænu í ár en 6-7 ungar víða annars staðar. Ungfuglinn er uppistaðan í veiðinni,“ sagði Áki. Áki sagði að fjölgun veiðidaga ylli því að veiðimenn væru slakari en þeg- ar veiðidagar voru færri. „Nú velja menn bara þá daga sem eru fallegir og þegar þá langar að fara á rjúpu,“ sagði Áki. „Í fyrra fórum við norður síðustu helgina. Annan daginn var þoka og slydda og varla hægt að vera á veiðum. Daginn eftir var 25 m/s vindur og 15°C hiti! Þetta voru eins glataðir rjúpna- veiðidagar og hægt var að hugsa sér. Samt sem áður var mjög gaman að ganga 40 kílómetra og fá eina rjúpu!“ Ráðleggur 72 þúsund fugla Náttúrufræðistofnun Íslands hefur metið veiðiþol rjúpnastofnsins og er ráðlögð rjúpnaveiði í haust 72.000 fugl- ar. Forsendur matsins byggja á þeirri stefnu stjórnvalda að rjúpnaveiðar skuli vera sjálfbærar. Misjafn gangur í rjúpnaveiðunum  Skásta veiðin fyrir vestan og norðan Áki Ármann Jónsson „Afi minn og amma bjuggu hér á Selfossi allan sinn búskap en þau urðu gömul og dóu í Hveragerði. Hér verður staður til þess að verða gamall á Selfossi,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Þau Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Árborg, tóku í gær fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili fyrir aldraða á Selfossi. Það verður reist nærri sjúkrahúsi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sem er austarlega í Selfossbæ. Bygging hjúkrunarheimilisins nýja hefur verið í bígerð frá 2015 og nokkuð er síðan teikningar lágu fyrir. Framkvæmd þessi er sam- starfsverkefni Sveitarfélagsins Ár- borgar og heilbrigðisráðuneytisins. Framkvæmdasýsla ríkisins hefur umsjón með verkefninu sem Hreinn Sigurðsson mun stýra. Hjúkrunarheimilið nýja verður hringlaga á tveimur hæðum með skjólgóðum garði í miðjunni. Hvert rými mun hafa einkasvalir eða skika sem liggja ýmist inn í garð- inn eða út á við. Á heimilinu er ætlunin að gera íbúum kleift að sinna sem flestum þáttum daglegs lífs, þrátt fyrir veikindi eða annað. Kostnaður 2,9 milljarðar kr. Kostnaður við byggingu hússins verður alls 2,9 milljarðar króna. Þar af kostar bygging hússins 2,2 milljarða króna. Eykt ehf. bauð best fimm fyrirtækja í útboði. Áætlað er að byggingarfram- kvæmdum ljúki í ágúst 2021. sbs@mbl.is Ljósmynd/Guðmundur Karl Samtaka Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Gísli Halldór Hall- dórsson bæjarstjóri tóku fyrstu skóflustunguna að hjúkrunarheimilinu. Heimili fyrir ömmur og afa Lögreglumanni um þrítugt, sem ákærður hefur verið fyrir líkams- árás og brot í opinberu starfi, hefur verið veitt lausn frá störfum um stundarsakir. Þetta staðfesti Gunn- ar Rúnar Sveinbjörnsson, upplýs- ingafulltrúi lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu, við mbl.is. Í ákærunni er maðurinn sakaður um að hafa farið offari og ekki gætt lögmætra aðferða þegar hann hand- tók karlmann á sjötugsaldri á Klapparstíg í mars. Segir þar að hann hafi slegið manninn í höfuðið við að setja hann inn í lögreglu- bifreið og slegið hann síðan tveimur höggum í andlit, þrýst hné sínu á háls og höfuð hans og þvingað mann- inn í sársaukastöðu þar sem hann var með handjárnaða handleggi fyr- ir aftan bak liggjandi á gólfi lög- reglubifreiðar. Hlaut maðurinn tognun og of- reynslu á hálshrygg vegna hand- tökunnar. Í einkaréttarkröfu fer maðurinn fram á 2,7 milljónir í skaða- og miskabætur. Gunnar Rúnar segir að lögreglan muni að öðru leyti ekki tjá sig um málið meðan það er til meðferðar hjá dómstólum. Frá störf- um vegna ákæru  Veitt lausn um stundarsakir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.