Morgunblaðið - 23.11.2019, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Mosfellsbær
Einungis lögaðilum er heimilt að sækja um
lóðirnar og skulu umsækjendur uppfylla
þau skilyrði sem tilgreind eru í 3. gr. í
úthlutunarreglum Mosfellsbæjar.
Tilboðin í lóðirnar þrjár skulu berast
Mosfellsbæ eigi síðar en
20. desember 2019 og
verða móttekin með
rafrænum hætti.
ÚTHLUTUN LÓÐA Í DESJAMÝRI
Um er að ræða lóðir númer 11, 12 og 13
og eru helstu stærðir í meðfylgjandi töflu:
Til úthlutunar eru þrjár atvinnu-
húsalóðir við Desjamýri í Mos-
fellsbæ og fer úthlutun þeirra
fram samkvæmt úthlutunar-
skilmálum á grundvelli hæsta
tilboðs í hverja lóð fyrir sig.
Allar nánari upplýsingar um úthlutun lóða í Desjamýri er að
finna á slóðinni www.mos.is/atvinnulodir og hjá Heiðari Erni
Stefánssyni, lögmanni Mosfellsbæjar í síma 525 6700.
Nýtingar Leyfilegt
Lóð nr. Stærð lóðar Stærð bygg.reits Gerð hlutfall byggingarmagn
12 4.705,50 20x65=1.300 A 0,5 m2 2.352,75 m2
11 7.054,60 25x72=1.800 C 0,4 m2 2.821,84 m2
13 7.055,50 25x72=1.800 C 0,4 m2 2.822,2 m2
Lágmarksverð jafngildir gatnagerðar-
gjöldum af leyfilegu byggingarmagni
samkvæmt gjaldskrá Mosfellsbæjar.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Magni, hinn nýi og öflugi dráttar-
bátur Faxaflóahafna, hefur verið á
heimsiglingu frá því í síðasta mán-
uði. Báturinn var smíðaður í Víet-
nam og er sigl-
ingin til Íslands
rúmar 10.000 sjó-
mílur.
Magni lagði af
stað til Íslands
19. október.
Hann var í gær
staddur á miðju
Rauðahafi og
áætlar að ná að
Suez-skipaskurð-
inum þriðjudag-
inn 26. nóvember.
Þá er áætlað að báturinn komi til
Rotterdam í Hollandi um miðjan
desember. Heimsiglingin hefur
gengið að óskum til þessa, sam-
kvæmt upplýsingum Gísla Jóhanns
Hallssonar, yfirhafnsögumanns
Faxaflóahafna. Áhöfn á vegum
skipasmíðastöðvarinnar siglir
bátnum.
Að sögn Gísla hefur verið ákveðið
að Magni verði í Rotterdam fram yf-
ir áramót. Ekki var talið heppilegt
að báturinn væri að koma til Reykja-
víkur um jólaleytið. Magni mun svo
leggja í hann til Íslands strax eftir
áramótin og yrði þá í Reykjavík fyrir
miðjan janúar.
Gísli Jóhann og fimm aðrir skip-
stjórar Faxaflóahafna hafa verið í
tveggja vikna þjálfun í skipahermi í
Hollandi. Þeir munu svo fá þjálfun á
bátinn sjálfan þegar hann kemur til
landsins í janúar. Hinn nýi dráttar-
bátur er mjög fullkominn og margt
fyrir skipstjórana að læra.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um er hinn nýi Magni smíðaður í Hi
Phong í Víetnam. Skipasmíðastöðin
Damen Shipyards í Hollandi smíðar
bátinn, en hún rekur skipasmíðastöð
í Víetnam. Smíði bátsins var boðin út
í fyrra og voru tilboð opnuð í nóvem-
ber í fyrra. Alls bárust 15 tilboð frá
átta skipasmíðastöðvum og var til-
boði Damen Shipyards að upphæð
jafnvirði 1.040 milljóna tekið.
Hinn nýi dráttarbátur er 32 metra
langur og 12 metra breiður. Hann er
með tvær 2.025 kW aðalvélar
(samanlagt 6.772 hestöfl). Tog-
kraftur er sagður verða 85 tonn fram
og 80 aftur. Er það helmingi meiri
togkraftur en núverandi Magni hef-
ur og sá sami og samanlagður kraft-
ur allra fjögurra núverandi báta
Faxaflóahafna. Ákveðið hefur verið
að núverandi Magni fái nafnið Haki.
Heimsigling Magna gengur að óskum
Væntanlegur til Rotterdam um miðjan desember Leggur af stað til Reykjavíkur eftir áramótin
Ljósmynd/Damen Shipyards
Nýr Magni Hér má sjá bátinn í reynslusiglingu í Víetnam. Hann hefur tvöfalda dráttargetu á við núverandi Magna.
Um borð Nýr Magni er búinn öllum
nýjasta búnaði á dekki sem völ er á.
Gísli Jóhann
Hallsson