Morgunblaðið - 23.11.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.11.2019, Blaðsíða 23
ÚR BÆJARLÍFINU Albert Eymundsson Höfn Hitaveita fyrir Höfn og hluta bæja í Nesjum er nú í sjónmáli. Leit að heitu vatni við Hoffell í Nesjum hefur staðið lengi yfir með hléum eða frá árinu 1992. Árið 2002 kom RARIK að verkefninu og setti talsverða fjármuni í verk- efnið m.a. voru boraðar yfir 50 rannsóknarholur þar af fimm djúp- ar 1.100 m til 1.750 m djúpar, sem nýtast sem vinnsluholur og skila nægu vatni fyrir hitaveituna. Vegalengd stofnæðarinnar verður um 20 km. Það einfaldar málið að meiri hluti húsnæðis á svæðinu er tengt fjarvarmaveitu sem fyrir er. Það hefur vakið nokkra athygli að hér finnist virkjanlegt heitt vatn því alltaf hefur verið talað um að Hornafjörð sem kalt svæði.    Tónskóli Austur-Skaftafells- sýslu er 50 ára í ár. Skólinn hefur gegnum tíðina haft á að skipa öfl- ugu starfsfólki og árangur nem- enda eftirtektarverður. Skólastjór- ar þennan tíma hafa aðeins verið þrír, Sigjón Bjarnason, Egill Jóns- son og síðan Jóhann Morávek sl. 33 ár. Skólastjórnendur, starfsfólk og nemendur hafa gegnum tíðina verið tilbúnir og duglegir að koma fram við ýmis tækifæri þegar til þeirra hefur verið leitað. Í tilefni af þessum tímamótum verður skól- inn með tónleika í Sindrabæ 1. desember nk.    Fláajökull og Heinabergsjök- ull hafa verið mældir af nemendum Framhaldsskólans í Austur- Skaftafellssýslu allt frá árinu 1990. Á heimasíðu skólans fas.is segir að mælingaferðirnar séu hluti af vinnu í jarðfræðiáfanga annars vegar og inngangsáfanga að náttúruvís- indum hins vegar. Nemendur kynnast mismunandi vinnubrögð- um í vísindum auk þess sem tæki- færið er notað til að virða umhverf- ið fyrir sér og rifja upp sögu svæðisins. Mælingarnar staðfesta hversu ótrúlegar breytingar og hop hafa átt sér stað við jökulsporðana og á svæðinu.    Það er alltaf fagnaðarefni þegar von er á nýjum fiskiskipum til heimahafnar. Skinney-Þinganes er með tvö skip í smíðum hjá Vard í Noregi sem verið er að afhenda þessa daga. Skipin eru 28,95 m löng og 12 m br. Vinnsludekk eru unnin af Micro og Völku og verða sett í skipin í Hafnarfirði. Þessi skip eru hluti af 7 raðsmíðaskipum sem Vard smíðar fyrir Íslendinga og þau skip sem komin eru hafa reynst vel í alla staði.    Stórbrotin náttúra Suðausturlands hefur mikið að- dráttarafl fyrir kvikmynda- framleiðendur. Tvö stórverkefni hafa verið undanfarið, Good Morn- ing Midnight og The Tomorrow War. „Það hefur ekki farið framhjá fólki að frægir leikarar og Ósk- arsverðlaunahafar tengjast þessum verkefnum, m.a. George Clooney, Felicity Jones, Chris Pratt og J.K. Simmons. Íslenska framleiðslu- fyrirtækið True North kemur að báðum verkefnunum, sem eru mjög umfangsmikil. Um 200-250 manns koma að hvoru verkefni með bein- um hætti. Fjöldi fyrirtækja kemur að verkefnunum s.s. 15-21 breyttir jeppar, 10 vélsleðar, 2 snjóbílar og 2-3 þyrlur, gisting og uppihald fyrir fólkið, auk þess að sjá um öryggis- mál. Morgunblaðið/FAS Nemendur og starfsfólk á árlegum vísindadögum Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu sem haldnir voru í Skaftárhreppi að þessu sinni. Hitaveita fyrir Höfn í sjónmáli FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019 Tökum á móti gestum í glæsilegri sýningaríbúð Breiðakri 4 íbúð merkt 104 Guðbjörg Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali gudbjorg@manalind.is sími: 899 5533 Thelma Víglundsdóttir, löggiltur fasteignasali thelma@manalind.is sími: 860 4700 www.manalind.is Lágmúla 6 sími 511 1020 Opið hús Breiðakur 6-8 Garðabæ Nýtt átta íbúða fjölbýli með lyftu, á eftirsóttum stað. Þriggja og fjögurra herbergja íbúðir, 122-138 fm. Öllum íbúðum fylgja stæði í lokaðri bílageymslu. Laugardaginn 23. nóvember frá 14:00-15:00 Sunnudaginn 24. nóvember frá 14:00-15:00 Aðeins 3 íbúðir eftir. Tilbúnar til afhendingar, fullbúnar án gólfefna. Verð frá 63,9 millj.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.