Morgunblaðið - 23.11.2019, Qupperneq 31
31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019
Mættur á Lækjartorg Jólakötturinn er kominn í miðbæ borgarinnar, gríðarstór og til alls vís. Borgin hefur klæðst jólabúningi þar sem búið er að setja upp jólaskreytingar og tendra ljósin.
Kristinn
Þýskaland hefur verið mikið í
fréttum undanfarið og kemur þar
margt til. Óvissa hefur verið um
stjórnarsamstarf kristilegra og
sósíaldemókrata á kjörtímabili
sem nú er hálfnað. Tími Merkel
sem kanslara frá árinu 2005 er
senn að renna út og hún hefur
þegar stigið úr formannsstóli
CDU eftir 18 ára setu. Um ný-
kjörinn eftirmann hennar Anneg-
ret Kramp-Karrenbauer (AKK)
er deilt innan flokksins og óvissa ríkir um
framtíð hennar. Ekki er staðan betri hjá sósíal-
demókrötum sem innan skamms velja á milli
tveggja para til forystu og hefur hvorugt að því
er virðist mikla útgeislun. Báðir hafa flokk-
arnir tapað miklu fylgi undanfarið, CDU/CSU
mælist nú með 27% atkvæða, en SPD aðeins
14% í stað 20,7% í kosningunum 2017. Stóra
sveiflan undanfarið er sókn Græningja sem
mælast nú með 22% atkvæða, stórt stökk úr
8,9% þá síðast var kosið. Í þeim flokki ríkir ein-
ing um forystu eftir eindregið endurkjör Ro-
berts Habecks og Annalena Baerbocks til for-
mennsku um síðustu helgi. Vinstriflokkurinn
Die Linke mælist á svipuðum slóðum og fyrr,
nú með 10% en fékk 9,2% í þingkosningunum.
Í nýlegum fylkiskosningum í Thüringen vann
hins vegar frambjóðandi Die Linke og fyrrver-
andi fylkisstjóri stórsigur með 31% atkvæða.
Meiri tíðindum sætti þó 23,4% fylgi við hægri-
flokkinn AfD (Valkostur fyrir Þýskaland) sem
skákaði þannig kristilegum sem fengu aðeins
21,2%. Það er uppgangur AfD undanfarið,
einkum í austurfylkjum landsins, sem mestum
áhyggjum veldur meðal keppinauta og hjá ná-
grönnum Þjóðverja.
Þrjátíu ár frá falli Berlínarmúrsins
Þess hefur að vonum verið minnst síðustu
vikur að 9. nóvember sl. voru 30 ár liðin frá því
Berlínarmúrinn var úr sögunni sem hindrun í
ferðum almennings innan Berlínar og milli
Vestur- og Austur-Þýskalands. Þá hafði þessi
rammgerða girðing um borgina þvera og um-
hverfis Vestur-Berlín staðið í 28 ár. Fáir at-
burðir eftir lok síðari heimsstyrjaldar komu
mönnum jafn mikið á óvart, jafnt í austri og
vestri, en opnunin varð jafnframt forboði meiri
tíðinda með falli Sovétríkjanna
tveimur árum síðar. Bygging
múrsins 1961 var á sínum tíma
skelfilegt neyðarúrræði aust-
urþýskra stjórnvalda til að
stöðva sívaxandi blóðtöku vegna
fólksflótta, ekki síst mennta-
manna og faglærðra til Vestur-
Þýskalands.
Skipting Þýskalands í tvö ríki
1949 innsiglaði í reynd tilkomu
járntjaldsins um álfuna þvera, en
Berlín hafði áfram sérstöðu.
Rauði herinn hafði einn unnið
borgina og umhverfi hennar úr
höndum nasista vorið 1945 en með sam-
komulagi sem gert var milli sigurvegaranna
fengu vesturveldin hvert sitt hernámssvæði
innan borgarmarkanna. Á sama hátt var vest-
urhluta landsins skipt upp milli Breta, Frakka
og Bandaríkjanna. Sá hluti rann saman í eitt á
árunum 1947-1949 og varð að Vestur-
Þýskalandi, hálfu ári áður en Austur-
Þýskaland (DDR) var formlega stofnað sem
ríkisheild haustið 1949. Þegar árið 1948 og eft-
ir skiptingu Þýskalands í tvö ríki 1949 varð
sérstaða Berlínar viðvarandi ásteytingsefni.
Loks var gert samkomulag milli fjórveldanna
árið 1971 sem gilti að formi til allt til samein-
ingar þýsku ríkjanna 1990. Samkvæmt því var
Vestur-Berlín ekki lögmætur hluti Vestur-
Þýskalands, en Austur-Þýskaland taldi sig fá
viðurkenningu sem það ekki áður hafði og
Austur-Berlín sem höfuðborg þess í reynd.
Andóf austurþýsks
almennings bar ávöxt
Nýleg afmælishátíð vegna falls múrsins var
að vonum tilfinningarík og hverfðist að mestu
um Berlín með Brandenborgarhliðið í for-
grunni. Þess var minnst að þessi stórviðburður
einn og sér kostaði hvorki mannslíf né limlest-
ingar og mörg myndræn gleðitár féllu. Stór
hluti núlifandi man að vonum ekki atburðinn
sjálfan og þekkir hann aðeins af afspurn. Því
er mikilvægt að forsögunni sé haldið til haga.
Bakgrunnur friðsamlegrar opnunar landa-
mæranna í Berlín var hetjulegt og kröftugt
andóf fjölda Austur-Þjóðverja í borgum og
bæjum mánuðina á undan gegn þrúgandi
stefnu stjórnvalda, þar á meðal kröfur um
frjálsar kosningar og ferðafrelsi. Starfsemi
kirkjunnar var leyfð af stjórnvöldum eystra og
því leituðu andófsmenn, karlar og konur,
skjóls við kirkjur og í nágrenni þeirra til sam-
stillingar á kröfum sínum. Nikulásarkirkjan í
miðri Leipzig-borg varð slíkur staður og þaðan
hófst fyrsta fréttnæma kröfugangan mánudag-
inn 4. sept. 1989. það sama gerðist í fleiri borg-
um eins og Magdeburg, Dresden, Halle og
Plauen. Á þjóðhátíðardegi þarlendis 9. október
1989 komu um 70 þúsund manns saman í
kröfugöngu í Leipzig, yfir 100 þúsund 16. okt.,
um 300 þúsund viku síðar og loks allt að 500
þúsund á Alexanderplatz í Berlín 4. nóv. 1989.
Það var þetta sem hreyfði við austurþýskum
stjórnvöldum sem lögðu ekki út í að beita lög-
reglu gegn friðsömum kröfugöngum. Hinn 8.
nóvember kom miðstjórn valdaflokksins SED
saman og þar sagði flokksstjórnin öll af sér.
Ný forysta setti saman tilkynningu um frjáls-
legar ferðaheimildir, sem talsmaður stjórn-
arinnar Günther Schabowski kynnti í útvarpi
og sjónvarpi daginn eftir. Spurður hvenær,
kom afdrifaríkt svar hans: „Sofort – unverzüg-
lich“ – nú þegar!
Ójöfnuðurinn milli austurs og vesturs
Sameining þýsku ríkjanna árið 1990 var ekki
ferskur gjörningur í þeim skilningi að byggt
væri frá grunni á nýjum undirstöðum, heldur
fólst í henni yfirtaka vesturhlutans á austur-
hlutanum innan óbreyttra landamæra og með
Berlín sem nýjan höfuðstað. Þannig hélt Vest-
ur-Þýskaland stöðu sinni í öllum alþjóðastofn-
unum, jafnt Evrópubandalaginu, í NATO og
hjá Sameinuðu þjóðunum. (Wikipedia. German
reunification) Vesturþýska markið tók yfir
sem gjaldmiðill og sú ríkisstjórn hélst óbreytt
sem fyrir var í Bonn. Aðdragandinn frá falli
múrsins var innan við ár og allt gekk þetta yfir
sem óvænt holskefla, ekki síst gagnvart al-
menningi í austurhlutanum sem stóð frammi
fyrir gjörbreyttum aðstæðum. Yfirráð í at-
vinnulífi færðust í hendur fjarlægra eigenda og
skipt var út í opinberum stöðum, m.a. í skólum,
þar sem aðfluttir tóku við sem stjórnendur.
Af þessum sökum verður ólík stjórn-
málaþróun og viðhorf almennings í vestur- og
austurhluta Þýskalands, sem mikið er nú rætt
um, ekki skýrð nema höfð séu í huga vonbrigði
fjölmargra í austurhluta landsins með ferli síð-
ustu áratuga og þá ójöfnu stöðu sem enn blasir
við. Um þetta segir Heribert Prantl, fyrrver-
andi ritstjóri og nú dálkahöfundur í Süd-
deutsche Zeitung, 2. nóvember sl.:
„Efnahagur DDR var lagður í rúst og af-
hausaður af Treuhand [einkavæðing-
arstofnun]. Leiðandi aðilar í landinu voru nið-
urlægðir. Það tók ekki aðeins til DDR-liða,
heldur til forystu í viðskiptalífi og menningu.
Hvergi var lengur greint rétt frá röngu. Nýju
austurfylkin voru lögð undir útvalda vestan að.
Eins og sagnfræðingurinn Peter Bender skrif-
aði, „var lítið vit í því hvernig að þýsku samein-
ingunni var staðið“. Afiðnvæðing og einkavæð-
ing leiddu af sér mikið atvinnuleysi. Þannig
breyttist nánast allt hjá Austur-Þjóðverjum,
hjá Vestur-Þjóðverjumi nánast ekkert.“
Mikið fylgi við hægriflokkinn AfD, einkum
meðal ungra kjósenda í austurhéruðum Þýska-
lands, er nú af mörgum skýrt sem afleiðing
svikinna loforða allt frá tímum Helmuts Kohls
í kjölfar sameiningarinnar fyrir þremur ára-
tugum.
Nýjar áskoranir fyrir Þýskaland
Eins og víða blása nú sviptivindar um
Þýskaland, jafnt stjórnmál og efnahagslíf.
Vegna miðlægrar stöðu landsins í álfunni og
innan Evrópusambandsins skiptir miklu
hvernig til tekst um lausnir og framtíðarþróun.
Sá fortíðarvandi sem hér hefur verið vikið að
með misvægi innanlands leggst nú saman við
gífurlegar áskoranir í atvinnulífi vegna lofts-
lagsbreytinga. Þýski bílaiðnaðurinn stendur
frammi fyrir kröfum um nýsköpun og umbylt-
ingu og í landbúnaði og skógum landsins
hrannast upp vandamál tengd mengun og
ósjálfbærum búskap um langa hríð. Hagþróun
á hefðbundinn mælikvarða hefur talist jákvæð
síðasta áratug, en einnig á því sviði eru blikur á
lofti. – Tengsl Íslands og Þýskalands standa á
gömlum grunni, jafnt um menningu og við-
skipti. Því hljótum við að vona að þessum vold-
uga granna takist að leysa úr fortíðarvanda
sínum sem og nýjum áskorunum.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Tengsl Íslands og Þýska-
lands standa á gömlum
grunni. Við hljótum að vona að
þessum volduga granna takist
að leysa úr fortíðarvanda og
nýjum áskorunum.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Þýskaland – enn ekki gróið
um heilt eftir múr og sameiningu