Morgunblaðið - 23.11.2019, Side 56

Morgunblaðið - 23.11.2019, Side 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019 Fastus ehf | Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is EINNOTA HANSKAR Í ÖLLUM REGNBOGANS LITUM • Fjórir litir í einu boxi • Púðurslausir • Ofnæmisprófaðir • Gott grip og passa vel á hendi BLEIKIR | GULIR | GRÆNIR | APPELSÍNUGULIR Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Þetta kom þannig til að Kári Þor- mar kórstjóri Dómkórsins hafði samband við okkur Þorkel og pant- aði verk frá okkur. Við fengum alger- lega frjálsar hendur, sem var frá- bært. Ég fór mjög frjálst með þetta frelsi og ákvað að semja tónverk við særingartexta úr Snjáfjallavísum hinum síðari eftir Jón lærða Guð- mundsson, en hann orti það árið 1611 til að kveða niður draug á Snæ- fjallaströnd. Bróðir minn hafði ein- hvern tíma sýnt mér þennan magn- aða texta og sagt að þetta væri sannarlega texti sem gaman væri að semja tónverk við. Hugmyndin var því til og ég ákvað að láta hana verða að veruleika, enda einstakt tækifæri að láta Dómkórinn syngja særingar- kvæði í Hallgrímskirkju,“ segir Hjalti Nordal, tvítugur nemi í tón- smíðum við Listaháskóla Íslands, en hann og Þorkell Nordal frændi hans, sem einnig er ungur að árum, 27 ára, og starfar við tónsmíðar í Finnlandi, eru höfundar tveggja nýrra tónverka sem frumflutt verða á morgun, sunnudag, í Hallgrímskirkju. Þar flytur kórinn stærsta kórverk Jóns Nordal, Óttusöngva að vori, en Jón er afi þeirra Hjalta og Þorkels, svo flutt verða þrjú verk eftir jafn marga Nordala. Þeir Hjalti og Þorkell eru systkinasynir og verk Þorkels heitir Orðfæri, fyrir blandaðan kór og slag- verk en verk Hjalta heitir Umbót. Svolítið djöfulleg tónlist Hjalti segir að sér finnist gaman að vinna með hinar fornu Snjá- fjallavísur; að færa hið gamla yfir í nútímann. „Þar fyrir utan er þetta magnaður texti, eitt rammasta særingarkvæði sem til er á íslensku, maður finnur ekkert svona í nútímatextum. Þetta er fornt mál og hátíðlegt og þessi særingartexti er líka virkilega gróf- ur, kynngimagnaður og vekur sköp- unargáfuna. Textinn býður upp á ýmislegt í útfærslu í tónum; ég reyni að gera tónlistina svolítið djöfullega, reyni að búa til tengingu milli text- ans og tónlistarinnar. Mig langar að það skili sér í flutningnum að þetta sé særing í kirkju, af því það eru eng- ar nótur í þessu, aðallega hljóð og texti sem kórmeðlimir syngja, en það er frjálst hvaða nótur þau syngja. Það er ákveðinn taktur og ákveðin tónhæð, þó nokkur læti,“ segir Hjalti, sem fer ótroðnar slóðir, líka í sjálfum tónlistarflutningnum, m.a. mun píanóleikarinn, Tinna Þor- steinsdóttir, spila með klósettbursta á píanó. „Þetta þarf að vera gróteskt, í stíl við textann. Hún mun líka nota slegla og hárbursta til að spila á pí- anóið auk þess að hamra með fingr- unum.“ En hvernig brást hinn prúði Dómkór við því að þurfa að flytja djöfullegt verk drauganiðurkvaðn- ingar? „Þau voru mjög efins í fyrstu, af því nóturnar eru svo óhefðbundnar í ritun, þetta eru hreyfinótur sem birt- ast á myndbandi og þegar rauður þráður fer yfir nótu þá syngja þau hana, svolítið eins og karókí. Þau eru ekki vön þessu og voru svolítið lengi að komast í gang með þetta, en þetta er allt að koma til og nú þegar hljóð- færin eru komin inn vona ég að þau skilji þetta aðeins betur,“ segir Hjalti og bætir við að þeir frændur, hann og Þorkell, hafi ekki haft neitt samráð við samningu verka sinna, en þó hafi þeir skipst einu sinni í ferlinu á upplýsingum um það sem þeir voru að gera. „Ákveðnir hlutir í þessum verkum okkar eru sameiginlegir, svolítið lík- ir, en það var alveg óvart og kannski af því við vorum báðir að reyna að gera eitthvað nýtt með kór, gera loft- hljóð og sjá hvað er hægt að gera annað en syngja nótur og þá er ekki úr svo miklu að moða.“ Afi fremur en tónskáld Hjalti segir að það sé sannarlega heiður fyrir þá frændur að frumflutt verði verk eftir þá báða um leið og stórverk afa þeirra, Jóns Nordal, verður flutt. Þegar Hjalti er spurður hvort afi hafi verið fyrirmynd hans í því að hann lagði fyrir sig nám í tón- smíðum segist hann halda að svarið hjá bæði honum og Þorkeli sé það sama. „Afi er ekki meiri fyrirmynd fyrir okkur sem tónskáld en önnur tónskáld, af því hann er í huga okkar fyrst og fremst afi en ekki tónskáld. Ég tengi samt rosa mikið við tónlist- ina hans og tónmálið, og þótt ég hafi ekki verið að reyna það þá hef ég skrifað tónlist sem líkist hans lit í tónlist, enda tengi ég við hans anda. Afi ýtti engum út í tónsmíðar, hann reyndi frekar að draga úr okkur frændum,“ segir Hjalti og hlær en tónsmíðakrókurinn beygðist snemma hjá Hjalta. Hann hóf fiðlu- nám fjögurra ára og var aðeins sex ára þegar hann fór að semja og spila eigin lög. „Ég man hvað mér fannst gaman að spila mitt eigið lag í fyrsta sinn. Ég bætti seinna við mig píanónámi hjá Snorra Sigfúsi Birgissyni sem grunni eða undirbúningi fyrir tón- smíðar, en auk þess er gott fyrir hljóðfæraleikara að kunna á píanó,“ segir Hjalti sem færði sig fyrir fjór- um árum úr klassísku fiðlunámi yfir í djass í FÍH. „Þar fór ég í frjálsan spuna hjá Skúla Sverrissyni og þá áttaði ég mig á að ég vildi einbeita mér að tón- smíðum. Ég fór í einkatíma í Menntaskólanum í tónlist hjá Guð- mundi Hafsteinssyni og útskrifaðist með stúdentspróf í tónfræðum. Nú er ég á öðru ári í tónsmíðum í Listaháskóla Íslands og verkið mitt Umbót verður útskriftarverkefnið mitt næsta vor,“ segir Hjalti sem þrátt fyrir ungan aldur hefur þegar samið nokkur stór verk sem m.a. hafa verið flutt af félögum Berlínar- fílharmóníunnar, Duo Harpverk, Sinfóníuhljómsveit Menntaskólans í Tónlist og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð. Síðastliðið sumar var nýtt verk eftir Hjalta hljóðritað af Sinfóníuhljómsveit Íslands. „Sinfónían auglýsti eftir nýjum ís- lenskum hljómsveitarverkum sem ekki höfðu verið flutt áður til demó- hljóðritunar. Það er mjög gott fyrir mig sem nemanda að fá svona tæki- færi; að sinfóníuhljómsveit spili heilt verk eftir mig.“ Særingarkvæði í Hallgrímskirkju  Dómkórinn flytur þrjú verk eftir þrjá Nordala, Jón Nordal og barnabörn hans Hjalta og Þorkel  „Afi ýtti engum út í tónsmíðar, hann reyndi frekar að draga úr okkur frændum,“ segir Hjalti Frændur Þorkell t.v. og Hjalti t.h. kátir á æfingu á dögunum, klósettburstinn bíður notkunar fyrir framan Hjalta. Hjalti Nordal Þorkell Nordal Dómkórinn í Reykjavík býður til tónlistarveislu í Hallgrímskirkju á morgun, sunnudag 24. nóv., kl. 17. Þar flytur kórinn verk Jóns Nordal, Óttusöngva að vori, og frumflytur tvö sérpöntuð verk eftir barnabörn Jóns, þá Þorkel og Hjalta Nordal. Auk Dómkórsins taka þátt í flutn- ingnum einsöngvararnir Harpa Ósk Björnsdóttir sópran og Jón Svavar Jósefsson sem þreytir frum- raun sína sem kontratenór. Inga Rós Ingólfsdóttir leikur á selló, Frank Aarnink á slagverk, Hávarð- ur Tryggvason á kontrabassa, Tinna Þorsteinsdóttir á píanó og Björn Steinar Sólbergsson á orgel. Stjórnandi er Kári Þormar dóm- organisti. Verk Jóns Nordal, Óttu- söngvar að vori, er viðamesta kór- verk Jóns en það var samið að beiðni aðstandenda Sumartónleika í Skálholtskirkju árið 1993. Í verk- inu, sem er skrifað fyrir kór, sópr- an, kontratenór, selló, orgel og slagverk, fléttar Jón kaþólska messutexta saman við Sólhjartar- ljóð Matthíasar Johannessen. Ljósmyndari/Pétur Jóhannes Guðlaugsson Dómkórinn Myndin var tekin í Mozarteum í Salzburg í sumar. Kaþólskur messutexti við Sólhjartarljóð  Tónlistarveisla í Hallgrímskirkju

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.