Morgunblaðið - 23.11.2019, Síða 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Framleiðslufyrirtæki á matvælasviði. Fyrirtækið fullvinnur ákveðnar
fiskafurðir og selur innanlands sem og erlendis. Það er í leigu-
húsnæði og býr við góðan tækjakost. Velta 200-300 kr. og afkoma
með ágætum.
• Rótgróin heildsala með sérhæfðar vörur fyrir byggingariðnað.
Velta 140 mkr. Góður hagnaður.
• Öflug, rótgróin trésmiðja sem framleiðir glugga, hurðir og
innréttingar fyrir íslenskan markað. Mjög góður tækjakostur og góð
verkefnastaða.
• Heildverslun í miklum vexti sem flytur inn vörur fyrir verslanir,
veitingahús og matvælaiðnað.
• Heildverslun sem flytur inn ýmsan tæknibúnað til hitunar, kælingar og
loftræstingar. Velta yfir 200 mkr. og góð afkoma.
• Bílaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem sér um minni háttar
viðgerðir og viðhald. Velta 90 mkr. Góður hagnaður.
• Lítið ferðaþjónustufyrirtæki í góðum vexti sem býður fjölbreyttar ferðir
á Suðurlandi. Eigið húsnæði og góður búnaður. Velta 50mkr. Góður
vöxtur.
• Þjónustufyrirtæki á mjög sérhæfðu sviði sem hefur eftirlit með
hreinlæti á vinnustöðum, gerir tillögur að kerfum og sér um úttektir.
Velta 120 mkr. og góð afkoma.
• Ungur og hratt vaxandi veitingastaður þar sem áhersla er lögð á
hollan skyndibita í hádeginu og á kvöldin. Veltan í ár áætluð 280
mkr. og EBITDA 20 mkr. Miklir möguleikar á að fjölga stöðum undir
vörumerkinu sem hlotið hefur góðar viðtökur.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
» Í dagskrá í Hann-
esarholti á fimmtu-
dagskvöld var sjónum
beint að lögum og text-
um franska söngva-
skáldsins Georges
Moustakis (1934-2013).
Gérard Lemarquis
sagði frá listamanninum
og verkum hans og
hljómsveitin Les Métè-
ques flutti ýmis lög.
Kynntu Georges Moustaki í tali og tónum
Fróðlegt Gestir fylltu sal Hannesarholts og höfðu gaman af tali og tónum.
Hlustað Gestir nutu flutningsins.Innlifun Hljómsveitin Les Métèques á sviðinu og Gérard lengst til vinstri.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Hvað gerir þú þegar tjaldiðfellur? Leikurinn er búinn,a.m.k. eins og þú hefur spil-
að hann hingað til. Þú tókst ekki tillit
til þess sem þú raunverulega þarfn-
ast, þess sem þú vilt, þess sem þú
ert. Í þessu lenti Lára fyrir tveimur
árum er hún upp-
lifði kulnun í
starfi. Í kjölfarið
ákvað hún að end-
urhugsa líf sitt frá
grunni, einblína á
þá þætti sem gefa
lífinu gildi og
standa með sér. Um það fjallar þessi
plata sem ber nafn með rentu: Rótin.
„Altari“, annað lagið af þessari plötu
sem var kynnt til sögunnar núna
snemmvors, bar m.a. með sér þetta í
kynningartextanum: „Að lifa lífinu
með opið hjarta getur tekið á en það
Ekkert að fela
Æðruleysi Lára Rúnars mætir áskorunum lífsins með æðruleysi og rósemd að vopni.
færir manni fleiri liti, bros, tengingar
og samtöl, byggð á trausti og virð-
ingu.“ Þessa hluti vinnur Lára m.a.
með í gegnum súkkulaðisetrið Anda-
gift, hvar slagorðin eru sjálfsmildi og
sjálfsást. En auðvitað leita þessar
hugmyndir, þessi vinna, út í tónlist-
ina líka enda Lára slíkur listamaður.
Rótina vann hún með þeim Sól-
eyju Stefánsdóttur og Alberti Finn-
bogasyni en hljómsveit Láru, sem
lék m.a. á útgáfutónleikum hennar á
dögunum í Bæjarbíói, Hafnarfirði,
skipa ásamt Láru þau Sóley, Albert,
Arnar Gíslason, Birkir Rafn Gísla-
son, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir og
Unnur Jónsdóttir.
Lára hefur verið giska mikið
kamelljón á ferli sínum og reynt sig
við ýmis tilbrigði í gegnum plöturnar
sínar. Hún hefur verið söngvaskáld,
bjartur poppari, myrkur popprokk-
ari og dempt ljóðrænum, nánast
þjóðlagatónlistarlegum vísunum, á
list sína (síðasta plata, Þel). Hún hef-
ur verið missannfærandi í þessum
rullum öllum, og t.a.m. gat ég aldrei
keypt hörðu ísdrottninguna almenni-
lega, þá sem við hittum fyrir á Mo-
ment (2012). Lára, hún er hins vegar
sú sem við fyrirfinnum á þessari
plötu. Þetta er Lára. Fölskvalaus,
einlæg og heiðarleg. Sama Láran og
maður spjallar við úti á götuhorni
eða á Messenger. Björt, glöð, falleg
og opin. Og platan ber því eðlilega
merki þessa. Flæðið hér er látlaust,
þægilegt, umlykjandi. Textar eins og
opin dagbók, hreinskiptnir ástar-
textar til barna og eiginmanns.
Naktir og beinskeyttir, og fara beint
í kjarnann eða ætti ég að segja
rótina? Lára sagði frá því í viðtali að
hún hefði litlu breytt í textum, leyft
þeim að koma eins og þeir væru og
leyfa þeim að standa þannig. Líkt
hefði verið með lögin, þeim hefði ver-
ið leyft að koma á eigin tíma, aldrei
var sest niður með það að markmiði
að semja.
Ég nefni nokkur laganna sem
dæmi. Titillagið er með miklum
ágætum. Róleg, dramatísk stemma
sem nær manni með fyrsta píanó-
slaginu. Já og hér, og í fleiri lögum,
má t.d. skynja hug og hendur Sól-
eyjar. Næm smíð. „Allt“ er stutt lag,
það næstsíðasta, og inniheldur flott-
an, víraðan gítarleik sem gefur því
sérstæðan blæ. „Dansi Dansi“ er þá
prýðilegt dæmi um þann hljóðláta en
þó áhrifaríka andblæ sem er yfir öllu
hér. Fer rólega í gang og umbreytist
svo í barna/vögguvísuna „Dansi
Dansi dúkkan mín“. Vel útfært og
glúrið. „Heimar“ er sömuleiðis vel
heppnað, dulrænt og seiðandi.
Rótin hljómar ólíkt öllu því sem
Lára hefur gert áður, vegna þess
sem á undan hefur verið rakið. Mað-
ur heyrir m.ö.o. allar þessar ný-
uppgötvuðu forsendur í sjálfum lög-
unum. Hvort framhald verði á svona
verklagi verður að koma í ljós. En við
þetta verk getur Lára staðið keik.
Hér er ekkert falið.
» Lára hefur veriðgiska mikið kam-
elljón á ferli sínum og
reynt sig við ýmis til-
brigði í gegnum plöt-
urnar sínar.
Lára Rúnars gaf á dög-
unum út nýja plötu sem
kallast Rótin. Á þessari
sjöttu plötu sinni setur
hún allt upp á borð, en
einlægari hefur hún
aldrei verið í textum og
tónsmíðum.
Hin árlega og vinsæla Bókamessa
Félags íslenskra bókaútgefenda og
Reykjavíkur Bókmenntaborgar
UNESCO verður í Hörpu nú um
helgina 23.-24. nóvember. Messan
er opin báða daga frá kl. 11-17 og
ókeypis inn á alla dagskrárliði.
Í tilkynningu segir að nóg verði
um að vera fyrir bókelskt fólk á öll-
um aldri. Þá sé „einstakt tækifæri
til að hitta uppáhalds íslenska rit-
höfundinn og næla sér í áritun á
bók eða ræða við útgefendur um
bókaútgáfu. Sögustundir fyrir
stóra og smáa, spjall við rithöfunda,
upplestur úr nýjum ljóðabókum og
allar jólabækurnar á einum stað.“
Sagt er að hvergi gefist betra
tækifæri til að kynnast bókaútgáfu
ársins á einum stað „og tryggja sér
jólabækurnar á einstöku messu-
verði“.
Meðal dagskrárliða í dag, laugar-
dag, má nefna að Maríanna Clara
Lúthersdóttir fær til sín höfundana
Bergþóru Snæbjörnsdóttur, (Svíns-
höfuð), Braga Ólafsson (Staða
pundsins), Kristínu Ómarsdóttur
(Svanafólkið) og Sjón (Korngult
hár, grá augu) og ræðir við þau um
nýjar bækur þeirra. Þá ræðir Björn
Halldórsson við höfundana Auði
Jónsdóttur (Tilfinningabyltingin),
Björgu Guðrúnu Gísladóttur
(Skuggasól) og Pétur Gunnarsson
(HKL – ástarsaga) um lífssögur og
skáldsögur.
Í dag má enn fremur heyra spjall
Magnúsar Guðmundssonar og Hall-
dórs Einarssonar – Henson um bók-
ina Stöngin út sem segir frá ævin-
týralegu lífi Halldórs, og þá segja
sagnaþulirnir Einar Kárason og
Friðrik Þór Friðriksson frá nýrri
bók um lífsferil Friðriks Þórs sem
nefnist Með sigg á sálinni. Jórunn
Sigurðardóttir útvarpskona ræðir
líka seinnipartinn við fjölmarga
höfunda nýrra bóka. Fjölbreytileg
dagskráin heldur áfram á morgun,
sunnudag.
Fjölbreytileg dagskrá um nýjar bækur
á Bókamessu í Hörpu alla helgina
Morgunblaðið/Eggert
Vinsæl Frá Bókamessunni í Hörpu í fyrra.