Morgunblaðið - 07.12.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2019
Sigling fráMoskvu til
Pétursborgar
sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson
18. - 29. ágúst
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Allir velkomnir á kynningarfund
mánudaginn 9. desember kl. 18:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
Sigling fráMoskvu til
Astrakhan
Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson
24. september - 7. október
Allir velkomnir á kynningarfund
þriðjudaginn 10. desember kl. 18:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
Reykjavíkurborg lenti í þvíóhappi á dögunum að reikna
skakkt út matarkostnað á fundum
borgarstjórnar. Það er svo sem
ekkert til að gera athugasemdir við
og getur komið
fyrir á bestu bæj-
um. Í ljós kom að
matarkostnaður
á mann var ekki
10 eða 15 þúsund
krónur eins og
talið var í fyrstu,
heldur um 3.900
kr. „Meðalkostn-
aður við mat á borgarstjórn-
arfundum er því ekki 360.223 á
fund heldur er meðalkostnaður
208.000 á fund,“ segir í frétt á vef
borgarinnar.
Sé ekki skakkt reiknað, og Morg-unblaðinu getur vissulega orð-
ið hált á Excel-svellinu eins og
Reykjavíkurborg, þá eru um 53 á
hverjum fundi borgarstjórnar.
Borgarfulltrúar eru 23, þ.a. aðr-ir sem mæta á borgarstjórn-
arfundina eru 30, sem er vel af sér
vikið og til hreinnar fyrirmyndar.
Það má ekki minna vera.
Þetta er í góðu samræmi við ann-að hjá Reykjavíkurborg, hvar-
vetna er gætt fyllstu hagkvæmni og
hvergi bruðlað. Þannig kom fram á
dögunum að borgin hefði ákveðið,
þriðja árið í röð, að gefa út bækling
upp á tugi blaðsíðna til að segja frá
byggingum í borginni. Þetta var vel
til fundið, og ekki síður það að
greiða fyrir bæklinginn góða 9
milljónir króna.
Auðvitað var þetta enginn mont-bæklingur eins og sumir hafa
haldið fram, heldur aðeins hræ-
billegar lágmarksupplýsingar til
borgarbúa um glæsilega fram-
kvæmdagleði borgarstjórnar-
meirihlutans.
Risafundir og
glæsibæklingar
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Í aðdraganda aðventu flytja blóma-
verslanir inn aðskiljanlegt skraut og
glingur, meðal annars lífviðar-
greinar sem þykja ómissandi þegar
að því kemur að græja aðventu-
kransinn. Sumir eru heppnari en
aðrir og fá einitítu í kaupbæti með
lífviðargreinunum,“ skrifar Erling
Ólafsson skordýrafræðingur á face-
booksíðu sína, Heim smádýranna.
Hann segir að einitíta sé nokkuð
árviss slæðingur sem boði jól og
tengist aðventunni sterkum bönd-
um. Hann útskýrir heppnina með
því að einitíta sé almeinlaust og
„einkar fagurt smádýr til þess eins
að dást að og njóta“. Einitíta er
skortíta, jurtasuga sem nærist á safa
einiberja og skyldra tegunda sömu
ættar eins og lífviði. Á pödduvef
Náttúrufræðistofnunar segir að
einitíta sé fallegt skordýr, græn á lit
með ryðrauðar sveigðar rendur á
þykka hluta framvængjanna.
Einitíta lifir ekki hér á landi, en
fannst fyrst í Kópavogi 1976 og af og
til upp frá því eða þangað til mikillar
aukningar gætti á síðasta áratug.
Einitítur finnast gjarnan í blóma-
verslunum sem selja greinar til jóla-
skreytinga og á heimilum eftir að
skreyttum aðventukransi hefur ver-
ið komi fyrir í byrjun aðventu.
aij@mbl.is
Einitíta árviss slæðingur á aðventu
Berst með greinum til skreytinga
Sumir eru heppnari en aðrir
Ljósmynd/Erling Ólafsson
Jólin koma Einitíta sem barst með
skrauti inn á heimili nýlega.
Þórður Már Jóhannesson og Sólveig
Pétursdóttir voru í gær sýknuð af
kröfu Lyfjablóms ehf. sem krafðist
samtals 2,3 milljarða króna í skaða-
bætur vegna háttsemi stjórnenda
fjárfestingafélagsins Gnúps árið
2006.
Bótakröfurnar voru annars vegar
vegna millifærslna frá Gnúpi í
tengslum við þátttöku Þórðar í fé-
laginu árið 2006 og hins vegar vegna
skorts á upplýsingum í tengslum við
hlutafjáraukningu í Gnúpi í lok árs
2007. Þórður og Sólveig voru sýkn-
uð af fyrri kröfunni þar sem hún var
talin fyrnd. Þá voru þau sýknuð af
síðari kröfunni þar sem talið var að
Lyfjablóm hefði glatað fyrir tómlæti
sérhverjum rétti sem félagið gæti
hafa átt á hendur þeim.
Lyfjablóm var dæmt til að greiða
hvoru þeirra tvær milljónir króna í
málskostnað.
Dómurinn var kveðinn upp í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur en lögmaður
Lyfjablóms sagði að því loknu að of
snemmt væri að segja til um næstu
skref og hvort niðurstöðunni yrði
áfrýjað til Landsréttar.
Gnúpur var stofnaður árið 2006.
Magnús Kristinsson átti ásamt fjöl-
skyldu sinni 46,5% í félaginu. Þá
áttu félög í eigu Kristins Björns-
sonar og þriggja systra hans 46,4%
og Þórður Már Jóhannesson átti
7,1%.
Gnúpur átti um tíma stóran hlut í
Kaupþingi og FL Group og einnig í
Glitni og Bakkavör. Í lok árs 2006
námu eignir félagsins 57 milljörðum
króna en lækkun hlutabréfaverðs á
íslenska markaðinum og mikil
skuldsetning leiddi til þess að Gnúp-
ur komst í þrot í byrjun árs 2008.
Sýknuð af 2,3 millj-
arða bótakröfu
Kröfum hafnað
vegna fyrningar
og tómlætis
Miklar eignir Gnúpur átti um tíma
stóran hlut í íslenskum bönkum.
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson