Morgunblaðið - 07.12.2019, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 07.12.2019, Blaðsíða 43
DÆGRADVÖL 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2019 Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... þegar uppáhaldspítsan þín bíður þín að loknum vinnudegi. ÞETTA VAR „ÉG VEIT UM EINN SEM Á BRÁÐUM AFMÆLI” SVIPURINN HANS OG ÞETTA ER „JÁ,JÁ, EKKI MINNA MIG Á ÞAÐ ” SVIPURINN MINN DÓTTIR MÍN SEGIR AÐ ÞÚ SÉRT HIRÐFÍFL … KOMDU MÉR TIL AÐ HLÆJA! FYRST VIL ÉG SEGJA AÐ ÉG ÆTLA AÐ GIFTAST DÓTTUR ÞINNI! GÓÐUR! TILBOÐ KJÖTBÚÐ „FRÁBÆRT Á GRILLIÐ. ÞÚ ÞARFT BARA AÐ MARINERA ÞAÐ Í ELDTEFJANDI EFNI YFIR NÓTT.” „STENDUR NOKKUÐ Á ÞVÍ „STARFSMAÐUR ÓSKAST”?” NÝ- MÁLAÐ Fjölskylda Eiginkona Trausta er Kristín Bertha Harðardóttir, f. 4.5. 1947, fyrrverandi þingfreyja á Hótel Nat- ura. Þau gengu í hjónaband 8.10. 1966. Foreldrar Kristínar voru hjón- in Hörður Þórhallsson, f. 28.3. 1927, d. 22.9. 2000, yfirhafnsögumaður í Reykjavík, og Úlla Sigurðardóttir, f. 29.5. 1928, d. 26.1. 2006, húsfreyja. Börn Trausta eru: 1) Ragnheiður, f. 8.1. 1966, fornleifafræðingur, 2) Hörður, f. 2.2. 1967, veitingamaður, 3) Bertha, f. 23.4. 1970, flugfreyja. Barnabörn eru Jakob Sindri Þórs- son, f. 13.2. 1991, Víglundur Jarl Þórsson, f. 25.3. 1992, Kristín Ágústs- dóttir, f. 8.4. 1996, Trausti Lér Harð- arson, f. 22.12. 1997, Elísabet Ágústs- dóttir, f. 9.12. 1998, Freydís Jara Þórsdóttir, f. 8.4. 1999, Tryggvi Loki Harðarson, f. 16.6. 1999, Natalía Birna Harðardóttir, f. 22.9. 2015, Karmen Von Harðardóttir, f. 24.10. 2016 og Aría Björt Harðardóttir, f. 3.10. 2018. Barnabarnabörnin eru Marey Ösp, f. 18.2. 2016, og Hugrún Viðja, f. 13.2. 2018, Jakobsdætur. Systkini Trausta eru þau Guðrún Stefanía, f. 7.7. 1951, aðstoðarmaður á lögfræðisviði hjá Landsvirkjun , og Ásgeir Sævar, f. 3.9. 1962, búfræð- ingur og matatæknir. Foreldrar Trausta: Hjónin Víg- lundur Sigurjónsson, f. 23.12. 1920, d. 8.10. 2017, skrifstofumaður í Reykja- vík, og Ragnheiður Hildigerður Hannesdóttur, f. 29.2. 1924, hús- freyja í Reykjavík. Úr frændgarði Trausta Víglundssonar Trausti Víglundsson Kolþerna Halldórsdóttir húsfreyja á Stóra-Vatnshorni Ásgeir Árnasson bóndi á Stóra-Vatnshorni Jónína Kristín Ásgeirsdóttir húsfreyja í Kirkjuskógi Víglundur Sigurjónsson skrifstofumaður í Reykjavík Sigurjón Jónsson bóndi í Kirkjuskógi í Miðdölum Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Hamraendum Jón Stefánsson bóndi á Hamraendum í Miðdölum Stefanía Sigurjónsdóttir húsfreyja og klæðskeri í Rvík Guðni Jónsson framkvstj. hjá Pennanum og fv. tónlistarmaður í Tempó Ágúst Sigurjónsson bóndi í Kirkjuskógi Guðrún Ágústsdóttir bóndi á Stóra- Vatnshorni Jóhanna Sigrún Árnadóttir bóndi og kennari á Stóra-Vatnshorni Gunnlaugur Hannesson bóndi á Litla-Vatnshorni Halldór Jónas Gunnlaugsson bóndi á Hundastapa á Mýrum Ólafur Hannesson matsveinn Stefán Ólafsson prófessor í félagsfræði Styrkár Guðjónsson bóndi í Tungu í Hörðudal Hjálmar Styrkársson fv. framkvstj. Magnea Þórey Hjálmarsdóttir framkvstj. Icelandair Hótela Guðjón Jónsson bóndi á Galtárhöfða í Norðurárdal Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja á Galtárhöfða Guðrún Stefanía Guðjónsdóttir bústýra á Litla-Vatnshorni Hannes Gunnlaugsson bóndi á Litla-Vatnshorni í Haukadal Anna Hannesdóttir húsfreyja á Litla-Vatnshorni Gunnlaugur Magnússon bóndi á Litla-Vatnshorni Ragnheiður Hildigerður Hannesdóttir húsfreyja í Reykjavík Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Sjórinn þaðan sóttur var. Sjá má egg í hreiðrum þar. Máske hérna maður er. Marinn svali leynist hér. Guðrún Bjarnadóttir svarar: Úr veri sjórinn sóttur. Svansegg í veri brotna. Ver merkir mann. En þóftur markalt í veri rotna. Eysteinn Pétursson segir að þessi lausn hljóti að falla í kramið!: Báti hrint úr veri var. Í veri syngja álftirnar. Halldór, virtur ver, sást þar. Ver á sjó er heiti, og mar. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una svona: Vermenn fyrrum sóttu sjá. Sjá í veri eggin má. Mann við nefna megum ver. Marinn ver oft nefndur er. Þá er limra: Vermundur sjóinn fast sótti, þó síst hann plagaði ótti í þrælfínu standi á þurru landi, hann sérlega sjóhræddur þótti. Hér kemur ný gáta eftir Guð- mund: Gátu hef ég saman sett, sem er venju fremur létt, vonast til að verði nú vel þegin af mörgum sú: Húsbóndanum trú og trygg. Talin seint mun kona dygg. Stundum er við stjórnmál kennd. Stundum milli bæja send. Kristján Karlsson orti: Ef eyra þitt er þér byrði slít það af og fleyg vestur á firði. Þar eð mannseyrum fækkar jafnt og músík vor hækkar þá mundi það úrelt ef kyrrði. Síra Jón Oddsson Hjaltalín kvað um sjálfan sig: Ekkill hjarir heilsurýr, hálfníræðan gleðin flýr. Blysið lífsins blaktir á bláskarinu karli hjá. Jónatan Benediktsson yrkir og kallar „Viðvörun“: Höldar sínum heiðri glata er hugsa sér til þingfarar, ef þeir herma eftir Snata allar hundakúnstirnar. Gamalt stef að lokum: Að stöðva lax í strangri á og stikla á hörðu grjóti, eins er að binda ást við þá sem enga kunna á móti. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Allir eru ógiftir í verinu kassagerd.is kassagerd@kassagerd.is Klettháls 1, 110 Reykjavík +354 545 2800 Vandaðar vörur þurfa hágæða umbúðir til að komast ferskar í hendur kröfuharðra kaupenda. Hver sem varan þín er þá höfum við umbúðirnar sem henta henni. Áralöng reynsla og sérþekking okkar tryggir að við finnum bestu lausnina sem hentar fyrir þinn rekstur, hratt og örugglega. Við bjóðum breitt úrval umbúða frá traustum og öflugum samstarfsaðilum. Þannig getum við tryggt þér lausnir sem auka árangur þinn í rekstri, í sátt við umhverfi og náttúru. Ef þú hefur spurningar varðandi umbúðir þá höfum við svörin. Hafðu samband eða kíktu í kaffi og leyfðu okkur að hjálpa þér að finna lausnirnar sem henta þínum þörfum. Spjöllum um umbúðir. UmBúÐiR eRu oKkAr fAg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.