Morgunblaðið - 07.12.2019, Page 14

Morgunblaðið - 07.12.2019, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2019 Kvenfélag Garðabæjar hefur ekki setið auðum höndum á aðventunni, frekar en aðra daga og viðburði árs- ins í félagsstarfinu. Fyrsta sunnudag í aðventu tóku þær þátt í dagskrá dagsins í Vída- línskirkju, ásamt séra Jónu Hrönn Bolladóttur. Jólafundurinn var síðan haldinn 3. desember sl. á Garðaholti. Þar fjöl- menntu konur á fundinn og nutu samveru við kvöldverð og fjöl- breytta dagskrá. Þar fóru einnig fram styrkveitingar félagsins fyrir árið 2019; til Minningar- og styrkt- arsjóðs Arnarins, Styrktarsjóðs Garðasóknar og MS félags Íslands. Fleira skemmtilegt var gert, Helga Björk Jónsdóttir djákni flutti jólahugvekju um jólavenjur, Mos- fellskórinn söng jólalög og kona kvöldsins var valin. Garðabær Helena Jónasdóttir, lengst til vinstri, flutti ávarp við styrkveit- ingu á jólafundinum, fyrir hönd kvenfélagskvenna í Garðabæ. Kvenfélagskonur í Garðabæ í önnum  Styrkveitingar á jólafundi félagsins Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Samkomulag hefur tekist um að byggja útsýnispall við Sólheimajökul og endurgera göngustíginn sem ligg- ur þangað frá bílastæðunum. Land- eigendur og ríkið standa saman að framkvæmdinni. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, kynnti í ríkis- stjórninni í gærmorgun tilrauna- verkefni til að bæta aðgengi og auka öryggi á ferðamannastöðum. Fyrir valinu varð útsýnispallur og göngu- stígur við Sólheimajökul. Ríkið leggur til 12 milljónir Samkvæmt upplýsingum frá at- vinnuvegaráðuneytinu er málið unn- ið í samvinnu við landeigendur og hagaðila á svæðinu. Göngustígurinn er á landi í einkaeigu en útsýnispall- urinn á þjóðlendu. Samkvæmt upplýsingum ráðu- neytisins leggur ríkið allt að 12 millj- ónum í verkefnið sem mun vera um 70% af kostnaði við tilgreint verk- efni. Benedikt Bragason, á Ytri-Sól- heimum sem er einn landeigenda, segir að þeir muni leggja í meiri kostnað og reiknar með að sá kostn- aður verði jafn mikill og ríkið leggur til. Hann reiknar með að hafist verði handa þegar sól fer að hækka á lofti. Sólheimajökull er vinsæll við- komustaður ferðafólks. Telur Bene- dikt að góð aðstaða á pallinum muni draga fólk að honum og draga þar með úr slysahættu. Ríkið byggir útsýnis- pall við Sólheimajökul  Tilgangurinn er að bæta aðgengi og auka öryggi ferðafólks Morgunblaðið/Eggert Sólheimajökull Göngustígurinn frá bílastæðum að útsýnisstað við jökulinn þarfnast lagfæringar. Fólki verður beint að nýjum útsýnispalli. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það var aldrei stefnan að þessi bjór yrði svona sterkur en svona gerist þegar við gerum tilraunir. Það hitt- ist líka þannig á að hann er vel drekkanlegur þrátt fyrir prósent- una,“ segir Árni Theodór Long, bruggmeistari hjá Borg brugghúsi. Á dögunum kom á markað sterk- asti bjór Íslandssögunnar, Garún Garún, sem er 23% alkóhól að rúm- máli. Til samanburðar má geta þess að hefðbundinn lagerbjór er gjarnan um 5% og bragðmiklir handverks- bjórar fara sjaldnast mikið yfir 10%. Garún Garún kom upphaflega á markað árið 2017 og var þá 21% að styrkleika. Notuðust við frosteimun „Eins og prósentan gefur til kynna er allt magnað upp í þessum bjór, það er tvöfalt meira af öllu. Þetta er enda bjór sem maður drekkur mjög hægt og deilir helst flösku með nokkrum,“ segir Árni. Garún Garún er af Imperial Sto- ut-gerð og látinn liggja á bourbon- tunnum í átján mánuði eftir að hafa verið frosteimaður til að ná fyrr- greindri áfengisprósentu. Byrjað var að brugga hefðbundna Garúnu sem er hálfdrættingur í áfengis- prósentu á við Garúnu Garúnu. Tankur með Garúnu var settur í frysti og þegar innihaldið fór að frjósa var hellt undan tankinum og eftir stóð ísklumpur. Svo var vatn skorið frá en eftir stóð vökvi sem var þéttari, með hærri styrkleika og bragðmeiri en áður. Þetta var endurtekið nokkrum sinnum þar til áfengisprósentan var komin í 23%. Að því búnu var Garún Garún sett á tunnur þar sem bragðið varð smám saman mýkra. Lægri álagning í ÁTVR Til gamans má geta þess að þessi háa áfengisprósenta fleytti Garúnu Garúnu upp í nýjan flokk hjá ÁTVR. Álagning ÁTVR á áfengi er í tveim- ur þrepum, 18% á vörum upp í 21% alkóhól af rúmmáli en 12% á vörur sem eru meira er 23% alkóhól af rúmmáli. Þetta mun því vera í fyrsta skipti í sögunni sem íslenskur bjór tekur einungis 12% álag í Vínbúðum. Ljósmynd/Hari Sterkastur Árni Long skenkir sér Garúnu Garúnu á tunnulager Borgar. Slógu eigið met í áfengisprósentu Landsréttur hefur mildað dóm yfir Jóhannesi Baldurssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra markaðsvið- skipta Glitnis, og sýknað Pétur Jón- asson, fyrrverandi starfsmann eigin viðskipta bankans, í markaðsmis- notkunarmáli Glitnis. Hafði Jóhann- es áður fengið 12 mánaða dóm ofan á 5 ár sem hann hafði áður hlotið, en Landsréttur taldi rétt að skilorðs- binda dóminn í ljósi þess að málið hefði „dregist úr hömlu.“ Pétur hafði fengið sex mánaða dóm, en var sýkn- aður í Landsrétti. Í málinu voru þeir Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri, Jóhannes og Pétur, auk tveggja annarra starfsmanna eigin viðskipta, ákærðir fyrir markaðsmisnotkun og Lárus einnig fyrir umboðssvik. Voru allir fimm dæmdir sekir í héraði. Landsréttur tekur undir með hér- aðsdómi um að markaðsmisnotkun hafi átt sér stað, en telur hins vegar að ákæruvaldinu hafi ekki tekist að sýna fram á að háttsemi Péturs hafi verið þess eðlis að hún varðaði refs- ingu. Dómurinn telur að þegar litið sé til stöðu Jóhannesar innan bank- ans hafi hann átt að vita, eða hlotið að vita, af hinum umfangsmiklu kaupum deildar eigin viðskipta á hlutabréfum í bankanum og jafn- framt að honum hefði ekki getað dul- ist að þau gátu ekki byggst á við- skiptalegum sjónarmiðum. Er hann því sakfelldur. Í ljósi langs mála- reksturs og óútskýrðra tafa telur dómurinn að ekki sé hægt annað en að skilorðsbinda refsingu hans. Sýknaður í Glitnismáli  Dómur yfirmanns mildaður í markaðsmisnotkunarmáli Morgunblaðið/Árni Sæberg Glitnir Landsréttur sýknaði Pétur í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.