Morgunblaðið - 07.12.2019, Side 16

Morgunblaðið - 07.12.2019, Side 16
Skipulags- og samgönguráð Reykja- víkur hefur samþykkt að biðstöð strætisvagna verði framvegis við Hagatorg eins og var áður en gatan var þrengd í eina akrein. Fram kom í fréttum Morgun- blaðsins í síðasta mánuði að eftir þrenginguna myndu strætisvagnar teppa akstur um hringtorgið á með- an þeir næmu staðar við biðstöðina. Að stöðva ökutæki á hringtorgi er samkvæmt umferðarlögum ekki heimilt. Í framhaldinu var biðstöðin færð á Birkimel, a.m.k. tímabundið. Tillagan var samþykkt með fjór- um atkvæðum fulltrúa Pírata, full- trúa Viðreisnar og fulltrúa Samfylk- ingarinnar með fyrirvara um samþykki lögreglustjórans á höfuð- borgarsvæðinu. Fulltrúar Sjálfstæð- isflokksins sátu hjá. Í samþykktinni er vísað til a-liðar 2. mgr. 81. gr. umferðarlaga nr. 50/ 1987. Þar segir m.a. að lögreglu- stjóri geti, að fengnum tillögum sveitarstjórnar, sett varanleg sér- ákvæði um notkun vegar til umferð- ar, svo sem um stöðvun og lagningu ökutækja. Í bókun meirihluta- flokkanna kemur fram að tillagan sé unnin í samráði við lögregluna. Far- ið sé að lögum í málinu og biðstöðin merkt á viðeigandi hátt í samræmi við reglugerð. sisi@mbl.is Morgunblaðið/RAX Hagatorgið Akreinum um torgið var nýlega fækkað úr tveimur í eina. Strætóbiðstöðin verði áfram við Hagatorg 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2019 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt að aug- lýsa nýtt deiliskipulag fyrir Hlemm og nágrenni. Meðal nýmæla er að í framtíðinni verður ekki hæga að aka niður Laugaveg við Hlemm. Bílarnir víkja „til að auka rými og aðgengi fyrir virka ferðamáta (gangandi og hjólandi m.a.),“ eins og það er orðað í kynningu Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg efndi í lok árs 2017 til hugmyndaleitar Hlemm- svæðisins. Þremur arkitektastofum var boðið að taka þátt í verkefninu, sem fólst í því að ímynda sér Hlemm framtíðarinnar. Stofurnar skiluðu til- lögum sínum í apríl 2018. Athygli vakti að í öllum þremur tillögunum var ekki gert ráð fyrir akstri bíla nið- ur Laugaveg við Hlemm, eins og ver- ið hafði í áratugi. Reykjavíkurborg upplýsti á þessum tímapunkti að eng- in ákvörðun hafi verið tekin um það í borgarkerfinu að breyta samgöngu- skipulagi við Hlemm og nágrenni. Framtíðarskipulag umferðarmála yrði útfæst í vinnu við nýtt deiliskipu- lag. Tillögur arkitektastofanna Manda- works og DLD voru valdar til áfram- haldandi þróunarvinnu við Hlemm fyrir endurhönnun svæðisins og gerð nýs deiliskipulags. Nú liggur þessi ákvörðun fyrir og í kynningu á helstu breytingum fram- undan segir Reykjavíkurborg:  Nýtt Hlemmtorg verður endur- skapað sem almenningsrými fyrir alla aldurshópa með aðgengi fyrir alla.  Akandi umferð verður beint frá torgssvæðinu.  Nýr hjólastígur verður lagður meðfram svæðinu og tengir Hverf- isgötu og Laugaveg upp að Bríetar- túni.  Strætisvögnum og borgarlínu verður beint niður Hverfisgötu og Laugaveg í sérrými gegnum nýtt torgsvæðið, norðan Hlemms, sem verður mikilvæg miðstöð almenn- ingssamgangna.  Nýtt yfirborðsefni, setaðstaða, leik- og dvalarsvæði ásamt gróðri verða ríkjandi þættir á nýju Hlemm- torgi ásamt vistvænni nálgun á með- höndlun yfirborðsvatns.  Hágæða biðskýli verða byggð á nýju Hlemmtorgi.  Ný gatnamót verða byggð á mótum Snorrabrautar og Borgar- túns ásamt nýju torgi. „Hlemmur verður kjörstaður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og góður staður fyrir fólk og viðburði, eftirsóttur bíllaus staður, grænn og lifandi en einnig byrjunarreitur fyrir þau sem ætla í bæinn. Mathöllin á Hlemmi er sá segull sem þarf til að gera Hlemm að því sem vænst er,“ segir m.a. í kynningu borgarinnar. Við afgreiðslu tillögunnar í borgar- ráði í fyrradag bókuðu fulltrúar meirihlutans að nýja deiliskipulagið miðaði að því að auka aðdráttarafl Hlemms. „Þegar framkvæmdum lýk- ur mun hann laða til sín fólk og mannfögnuð og verður til mikillar prýði fyrir borgina. Þegar deiliskipu- lagið verður auglýst gefst íbúum kostur á því að koma með athuga- semdir.“ Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins, Baldur Borgþórsson, lagði til í bókun að breytingar á deiliskipulagi svæðis- ins yrðu endurskoðaðar í víðara sam- hengi. Mikil óánægja væri meðal íbúa borgarinnar sem og rekstraraðila vegna fyrirhugaðra lokana Lauga- vegar frá Hlemm að Lækjargötu. Ekki yrði við það unað að þær raddir væru virtar að vettugi. Fulltrúar meirihlutans gagnbókuðu að þeir deildu ekki þeim tilfinningum að allir nágrannar svæðisins vildu frekar hafa fullt af bílum í kringum Hlemm heldur en margt fólk. Kolbrún Baldursdóttir, áheyrn- arfulltrúi Flokks fólksins, bókaði að eina aðgengið fyrir bíla að Hlemm- torgi virtist verða í gegnum Rauð- arárstíginn, þrönga og erfiða götu. Hafði hún áhyggjur af aðgengi fyrir fatlaða. „Flokki fólksins finnst að borgarbúar eigi að koma meira að hönnun og skipulagi á fyrstu stigum verkefnis sem þessa.“ Bílarnir víkja af Hlemmtorgi fyrir „virkum ferðamáta“  Hlemmur endurskapaður sem almenningsrými  Borgarlínan fær sérrými Tölvumynd/Mandaworks og DLD Hlemmur framtíðar Þannig sjá arkitektarnir fyrir sér að Hlemmtorg muni líta út. Bílarnir munu víkja fyrir fólki. Atvinna á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.