Morgunblaðið - 07.12.2019, Síða 30
30 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2019
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Hamraborg 12
200 Kópavogur
416 0500
www.eignaborg.is
Falleg og smekklega endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð. Þrjú svefnherbergi,
eldhús og borðstofa í sameiginlegu rými með góða tengingu við stofu. Suðursvalir og snyrtileg
sameign. Stofan er rúmgóð, björt og er opið úr stofu inní borðstofu sem er í sama rými og
eldhúsið. Íbúðin er mikið endurnýjuð; vandað harðparket (hvíttuð eik), gluggar málaðir og nýtt
gler á suðurhlið, endurnýjað rafmagn og tafla uppi en gamalt rafmagn í sameign, nýir ofnar og
ofnakranar, stigahús nýmálað og teppalagt, svo og þvotthús og geymslugangur.
ÁRANGUR
Í SÖLU
FASTEIGNA
Öldugata 44, 220 Hafnarfjörður
Opið hús þriðjudaginn 10. des. kl. 17.00–17.30
Verð 42,5 m.
Stærð 88 m2
Upplýsingar gefur Óskar Bergsson, löggiltur fasteignasali
í síma 893 2499 og oskar@eignaborg.is
AKUREYRARKIRKJA | Aðventuhátíð
barnanna kl. 11. Yngri barnakór Akureyr-
arkirkju syngur. Strengjanemendur frá Tón-
listarskólanum á Akureyri spila undir stjórn
Eydísar Úlfarsdóttur. Umsjón sr. Hildur Eir
Bolladóttir, Sonja Kro og Sigrún Magna Þór-
steinsdóttir.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl.
14. Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Anna Sigríður, Ingunn djákni og
sr. Petrína Mjöll leiða. Birkir Bjarnason leikur
á flygilinn. Aðventuhátíð kl. 19.30. Hátíð-
arræðu kvöldsins flytur Gerður Kristný rithöf-
undur. Leikskólakór Heiðaborgar. Stjórnandi
er Ásrún Atladóttir. Barnakór Árbæjarkirkju.
Stjórnandi Kristín Jóhannesdóttir. Kór Árbæj-
arkirkju og sönghópurinn Dætur. Stjórnandi
Krisztina K. Szklenár. Gréta Salóme leikur á
fiðlu. Eftir á er heitt súkkulaði og smákökur í
safnaðarheimili kirkjunnar.
ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá
Jóhönnu Maríu Eyjólfsdóttur djáknak-
andidats og Ingu Steinunnar Henningsdóttur.
Aðventuhátíð Ássafnaðar kl. 14. Kór Áskirkju
syngur undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar.
Fermingarbörn flytja helgileik. Jóhanna María
Eyjólfsdóttir djáknakandidat velur og flytur
aðventu- og jólaljóð. Feðginin Haraldur Agnar
Bjarnason og Kolbrún Sara Haraldsdóttir
flytja samtalshugvekju. Heitt súkkulaði og
smákökur í Ási að samveru lokinni.
BAKKAGERÐISKIRKJA | Aðventukvöld
þriðjud. 10. desember kl. 20. Kirkjukórinn
Bakkasystur syngur aðventu- og jólalög,
stjórnandi og organisti er Jón Ólafur Sigurðs-
son. Elísabet D. Sveinsdóttir segir frá jóla-
haldi á fjarlægum slóðum. Sr. Þorgeir Arason
leiðir stundina og flytur aðventuhugvekju.
Meðhjálpari er Kristjana Björnsdóttir. Kaffi-
sopi í Heiðargerði eftir stundina í kirkjunni.
BESSASTAÐAKIRKJA | Jóla- og aðventuhá-
tíð barnanna. Helgileikur fluttur og jólalög
sungin. Börn úr Tónlistarskóla Garðabæjar
flytja tónlist. Fermingarbörn aðstoða, Læri-
sveinar hans leiða sönginn. Ástvaldur org-
anisti, Sigrún Ósk og sr. Hans Guðberg leiða
stundina.
BORGARNESKIRKJA | Aðventukvöld 8.
desember kl. 17. Guðný Bjarnadóttir djákni
flytur hugvekju. Barnakórinn og kirkjukórinn
syngja undir stjórn Steinunnar Árnadóttur.
Fermingarbörnin flytja okkur hugvekju um
ljósið.
Kaffi, mandarínur og smákökur í anddyri
kirkjunnar að stundinni lokinni.
BÚSTAÐAKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Athugið aðeins ein messa þennan
dag. Daníel Ágúst djákni, Sóley og Pálmi.
Jólasöngvar sem Jónas Þórir leiðir og spilar
undir. Hressing í safnaðarsal eftir messuna.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl.
10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö.
kl. 8, lau. kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa og sunnudagaskóli
kl. 11. Sr. Sveinn Valgeirsson, Dómkórinn og
Kári Þormar dómorganisti. Aðventukvöld kl.
20, Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþing-
is, er ræðumaður kvöldsins, Dómkórinn og
Kári Þormar dómorganisti flytja falleg tón-
verk, Dómkirkjuprestarnir halda svo utan um
þetta.
Að samkomunni lokinni verður boðið upp á
heitt súkkulaði og smákökur í Safnaðarheim-
ilinu.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskólinn
8. des. kl. 10.30. Síðasta samvera fyrir jól,
heitt súkkulaði og piparkökur eftir stundina.
Aðventuhátíð Egilsstaðakirkju kl. 18. Barna-
kórinn, kirkjukórinn og Liljurnar syngja.
Ræðumaður Björg Björnsdóttir. Ljósaþáttur
fermingarbarna. Sr. Þorgeir Arason.
FELLA- og Hólakirkja | Aðventustund
barnanna kl. 11. Barnakór Hólabrekkuskóla
syngur undir stjórn Diljár Sigursveinsdóttur.
Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir. Sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson þjónar ásamt Mörtu
og Ásgeiri. Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli
kl. 11. Aðventukvöldvaka kl. 20.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir
stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghóp-
urinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt
Gunnari Gunnarssyni organista.
Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött
til að mæta.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra
Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar.
Organisti er Hákon Leifsson og Kór Graf-
arvogskirkju leiðir söng. Sunnudagaskóli á
neðri hæð kirkjunnar kl. 11. Umsjón hafa
Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður
Frostadóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.
GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng |
Selmessa kl. 13. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir
prédikar og þjónar. Organisti er Hákon Leifs-
son og Vox Populi leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Kirkjukór
Grensáskirkju og Ásta Haraldsdóttir leiða
söng. Messuhópur þjónar ásamt ferming-
arfjölskyldum og einum presta Fossvogs-
prestakalls. Samskot til Hjálparstarfs kirkj-
unnar. Aðventuhátíð kl. 17. Ræðumaður er
Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi. Barnakórar
Fossvogsprestakalls og Kirkjukór Grens-
áskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Ástu
Haraldsdóttur og Þórdísar Sævarsdóttur. Eng-
latréð kynnt. Smákökur og mandarínur á eftir.
Jólastund fjölskyldunnar þriðjudaginn 10.12.
kl. 16-18.
GRINDAVÍKURKIRKJA | Aðventuhátíð kl.
18. Börn úr barna- og æskulýðsstarfi kirkj-
unnar flytja helgileik í tali og tónum. Guðjón
Þorsteinsson er sögumaður helgileiksins.
Emilía Ósk Jóhannesdóttir les jólasögu, Jón
Emil Karlsson syngur einsöng. Kór Grindavík-
urkirkju leiðir sönginn undir stjórn Erlu Rutar
Káradóttur organista. Sr. Elínborg Gísladóttir
leiðir stundina.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Prestar eru Karl V. Matt-
híasson og Pétur Ragnhildarson. Hrönn
Helgadóttir sér um að spila undir. Kirkjuvörð-
ur Lovísa Guðmundsdóttir. Aðventukvöld kl.
17. Prestar eru Karl V. Matthíasson og Leifur
Ragnar Jónsson. Ræðumaður kvöldsins er Óli
Björn Kárason alþingismaður. Kórar kirkj-
unnar syngja undir stjórn Hrannar Helgadóttur
organista, Svanfríðar Gunnarsdóttur og Sig-
ríðar Soffíu. Heitt súkkulaði í boði eftir stund-
ina.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Kveikt á aðventukert-
unum. Prestur er Jón Helgi Þórarinsson. Org-
anisti er Þorvaldur Örn Davíðsson. Þórunn
Vala Valdimarsdóttir syngur. Bylgja Dís, Sigríð-
ur og Jasper sjá um fjölbreytta dagskrá í
sunnudagaskólanum. Hressing á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar
og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða.
Karlakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Frið-
riks S. Kristinssonar. Organisti er Björn Stein-
ar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs Bogi
Benediktsson og Rósa Árnadóttir. Orgel Mat-
inée-hádegistónleikar laugard. kl. 13. Björn
Steinar Sólbergsson organisti leikur. Erla Rut
Káradóttir leikur á kórorgelið. Mótettukór
Hallgrímskirkju flytur Messías eftir Händel
laugard. kl. 18 og sunnud. kl. 16.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Service. Translation into Engl-
ish. Samkoma á spænsku kl. 13. Reuniónes
en español.
Samkoma á ensku kl. 14. English speaking
service. Samkoma Fíló+ kl. 20.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Kaupmannahöfn |
Aðventuhátíð sun. 8. des. kl. 14 í Skt. Pauls-
kirkju. Barnakórinn í Kaupmannahöfn og
Karlakórinn Hafnarbræður syngja undir stjórn
Sólveigar Önnu Aradóttur, sem einnig sér um
orgelleik. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir pró-
fastur kemur í heimsókn og flytur hugleiðingu
og prestur er Ágúst Einarsson. Heitt súkku-
laði í Húsi Jóns Sigurðssonar.
ORÐ DAGSINS: Teikn á
sólu og tungli.
(Lúk. 21)
Mannfélagið saman-
stendur af misjöfnu
fólki og einstaklingum.
Allir eiga það sameig-
inlegt að fæðast og
deyja. Hvaðan komum
við, hvert er hlutverk
okkar hér í heimi og
hvert förum við eru
spurningar sem seint
verður svarað, ef það
ræðst þá nokkurn tíma.
Ég hef oft virt fyrir
mér fólk sem er á ferðinni, einatt á
hraðferð á milli staða. Þetta er marg-
breytilegt fólk í útliti, misjafnt lát-
bragð, svipur; sumir klæddir í nýj-
ustu fötin, aðrir tötrum. Ólíkt fas og
viðmót en venjulega miðlað til náung-
ans eins og andinn blæs því í brjóst
hverju sinni.
En hver segir að hún sé eitthvað
merkilegri eða dýrmætari sálin á bak
við sparifötin en hin sem klædd er í
ódýru gömlu garmana?
Hver eru verðmæti lífs-
ins? Hvert er raunveru-
legt gildismat mannlífs-
ins? Hvar hin sönnu
auðæfi? Er þau kannski
að finna á stöðum sem
fólk síst ætlar þau að
finna? Ef það þá yfir-
höfuð leitar þeirra.
Flest fólk ætlar þau
greinilega fengin í há-
skólum heimsins, í
meistaragráðum nú-
tímasiðmenningar, sem
tekið er að hnigna. En
sönn viska er tímalaus og hefur lifað
af í hjörtum manna.
Eitt sinn var ég á göngu eftir litlum
og fáförnum malarvegi í fjarlægu
landi. Nokkrum klukkustundum áður
hafði ég verið á bæn til Guðs míns,
þar sem ég bað hann um svar við
nokkru sem ég þráði að fá að vita
svarið við. Á göngu minni kom ég að
gömlum flækingi sem sat á bekk við
veginn. Ég bauð honum góðan dag og
tókum við tal saman. Eftir skamma
stund sagði hann mér nokkuð sem
var nákvæmt svar við spurningu
minni til Guðs fyrr um morguninn.
Ég þurfti ekki að leita svarsins í há-
skólum heimsins, hefði reyndar ekki
fengið það þar á bæ. Það kom til mín
frá æðstu stöðum, barst til mín frá
hinum lægsta af lægstu undirmáls-
mönnum. Svo órannsakanlegir eru
vegir Guðs.
Manngildi og mannauð skyldi eng-
inn dæma af þjóðfélagsstöðu manna
né útliti, því ekki fer Guð í mann-
greinarálit. Gamalt spakmæli segir
að fegurstu blómin vaxi í forinni og
styrkur vaxi þar sem vindar blása.
Hjörtu hinna verst klæddu ætti fólk
ekki að vanvirða, því oft býr þar viska
og styrkur sem fengist hefur í gegn-
um erfiðleika á vegferð sálna í jarð-
vist sem mörgum hefur reynst ofviða.
Vegferð manna
Eftir Einar Ingva
Magnússon »Manngildi og mann-
auð skyldi enginn
dæma af þjóðfélags-
stöðu manna né útliti.
Einar Ingvi
Magnússon
Höfundur er áhugamaður
um samfélagsmál.
einar_ingvi@hotmail.com
Atvinna