Morgunblaðið - 07.12.2019, Page 56

Morgunblaðið - 07.12.2019, Page 56
Jólatónleikar Kammersveit- ar Reykjavíkur fara fram í Norðurljósum í Hörpu á morg- un, 8. desem- ber, kl. 16. Ítölsk barokk- tónlist verður leikin og perl- ur tónskálda á borð við Domenico Gallo, Antonio Vivaldi og Pergolesi. Einleikarar verða Steiney Sigurðardóttir, sem tekið hefur við stöðu uppfærslu- manns í sellódeild Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands, og Laufey Jensdótt- ir fiðluleikari, sem leikið hefur með sveitinni og Sinfóníuhljómsveit Ís- lands til margra ára. Kammersveit heldur jólatónleika í Hörpu LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 341. DAGUR ÁRSINS 2019 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.150 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Anton Sveinn McKee úr Sundfélagi Hafnarfjarðar hefur farið hamför- um á EM í 25 metra laug í Glasgow undanfarna daga. Hefur hann sex sinnum sett Íslandsmet í mótinu og hefur alls stungið sér sjö sinn- um í laugina. Ekki er allt búið enn því í kvöld keppir hann í úrslitum í 100 metra bringusundi. Rætt er við Anton í blaðinu í dag. »45 Anton keppir í úrslit- um á EM í Glasgow Hljómsveitin A Band on Stage fagnar 70 ára afmæli bandaríska söngvaskáldsins og leikarans Toms Waits á Hard Rock Café í kvöld kl. 21. Hljómsveitin mun leika og syngja nokkur af lögum þessa mikla meistara og fá til liðs við sig fleiri hljóðfæraleikara til að klæða tónlistina í búning sem sæmir til- efninu, eins og því er lýst í tilkynn- ingu. Hljómsveitin A Band on Stage var stofnuð árið 2007 af Söru Blandon söngkonu og Ármanni Guð- mundssyni gít- arleikara og fljótlega bættust fleiri við. Fagna sjötugum Waits á Hard Rock Café ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Gunnar Þórðarson tónskáld verður 75 ára í janúar og af því tilefni verður hann með afmælistónleika í Eldborg í Hörpu laugardaginn 7. mars. Sam- kvæmt opinberum tölum hefur hann samið 830 lög og eina óperu og geri aðrir betur. „Af nógu er að taka og ég er rétt að byrja að hugsa um hvaða lög verða fyrir valinu, en það verður væntanlega sitt lítið af hverju,“ segir laga- og textahöfund- urinn um dagskrána. Tónlistarsaga Gunnars er óvenju- glæsileg. Hann byrjaði í skóla- hljómsveit í Keflavík 1961 og eftir að félagarnir stofnuðu Hljóma 1963 varð ekki aftur snúið. Fyrsta smá- skífan með lögunum „Fyrsti koss- inn“ og „Bláu augun þín“ eftir Gunn- ar kveiktu síðan neista sem enn logar skært. „Þegar ég steig fyrst á svið langaði mig til þess að hafa tón- listina að atvinnu en vissi ekki hvort ég gæti það,“ rifjar hann upp. „Það var samt afskaplega spennandi til- hugsun að geta verið hljóðfæraleik- ari og ég sá karla eins og Elvis, Cliff, Jerry Lee Lewis og Little Richard í hillingum.“ Hillingarnar eru fyrir löngu orðn- ar að veruleika. Samning laga hefur aldrei vafist fyrir Gunnari en hann byrjaði ekki að skrifa nótur fyrr en eftir þrítugt. „Þegar ég samdi lög mundi ég þau en það hefur breyst,“ segir hann og hlær dátt. Leikur frekar en vinna Honum vefst tunga um tönn þegar hann er spurður hvaða lög hann sé ánægðastur með. „Mér þykir vænt um þau öll, en vænna um tíu lög en önnur.“ Hann bætir við að það hafi verið mikið mál fyrir 19 ára strák að fá útgefna plötu með frumsömdum lögum. „Það var skemmtilegt,“ segir hann um fyrrnefnda plötu. „Svavar Gests gaf hana út og síðan hef ég alltaf litið á hann sem guðföður Hljóma, því ef hann hefði ekki gefið plötuna út værum við óþekktir eins og svo margar aðrar hljómsveitir.“ Aldrei hefur farið mikið fyrir Gunnari á sviði og ef eitthvað er hef- ur hann haldið sig frekar til baka og látið aðra um að vera í sviðsljósinu. „Ég var mjög feiminn þegar ég byrj- aði í hljómsveit og reyndar hefur sviðsskrekkurinn aldrei farið,“ segir hann þó að samferðamenn hans á sviðinu hafi sagt að hann væri fastur fyrir og stæði á sínu. „Ég hef að sjálfsögðu lært ýmislegt á löngum tíma,“ segir hann ákveðinn. Gunnar spilar reglulega með hljómsveitum eins og Guitar Islancio og Gullkistunni og um þessar mund- ir leikur hann fyrir gesti Ólafs Lauf- dals á Hótel Grímsborgum föstu- dags- og laugardagskvöld. „Ég hef alltaf litið á spilamennsk- una sem leik fremur en atvinnu,“ segir hann. „Ég lifi í tónlistarheim- inum og lagahugmyndir, einhverjar melódíur, eru óstöðvandi í höfðinu. Þegar þær verða að lögum er skemmtilegt að sjá hvaða áhrif þau hafa og mikil ánægja er fólgin í því að sjá fólk gleyma álaginu þegar það nýtur tónlistarinnar. Lífið er ekki bara saltfiskur.“ Morgunblaðið/Eggert Merkilegt tónskáld Laga- og textahöfundurinn Gunnar Þórðarson hefur samið 830 lög og eina óperu. Lífið ekki bara saltfiskur  Gunnar Þórðarson með 75 ára afmælistónleika í Hörpu  Tónskáldinu þykir gaman að gleðja fólk með tónlistinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.