Morgunblaðið - 14.12.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019
Runninn er út umsóknarfrestur um
tvö embætti sóknarpresta þjóðkirkj-
unnar, við Glerárprestakall á Akur-
eyri og Þorlákshafnarprestakall.
Um Glerárprestakall sóttu þrír:
Sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir, sr.
Sindri Geir Óskarsson og sr. Stef-
anía Guðlaug Steinsdóttir.
Í Glerárprestakalli er ein sókn,
Lögmannshlíðarsókn, með rúmlega
sjö þúsund íbúa og eina kirkju, Gler-
árkirkju.
Sex umsóknir bárust um Þorláks-
hafnarprestakall: Erna Kristín Stef-
ánsdóttir guðfræðingur, sr. Gunnar
Jóhannesson, sr. Haraldur Örn
Gunnarsson, sr. Jónína Ólafsdóttir,
sr. Sigríður Munda Jónsdóttir og
Ægir Örn Sveinsson guðfræðingur.
Í Þorlákshafnarprestakalli eru
tvær sóknir, Þorláks- og Hjallasókn
í Ölfusi og Strandarsókn, með tæp-
lega 1.800 íbúa og þrjár kirkjur.
Biskup Íslands mun veita emb-
ættin frá og með 1. febrúar 2020.
Þeir tveir prestar sem hafa gegnt
þessum embættum láta nú af störf-
um fyrir aldurs sakir, þeir Baldur
Kristjánsson í Þorlákshöfn og Gunn-
laugur Garðarsson á Akureyri.
sisi@mbl.is
Níu sækja
um prests-
embætti
Norsk stjórnvöld eru með til skoð-
unar að takmarka stærð skemmti-
ferðaskipa við Svalbarða og herða
reglur um notkun svartolíu eða
þungolíu þannig að þessi orkugjafi
yrði með öllu bannaður þar um
slóðir. Einnig er til skoðunar að
setja frekari skorður við landtöku
á viðkvæmum svæðum Svalbarða
og herða reglur til að koma í veg
fyrir að ísbirnir verði fyrir truflun
í sínu náttúrulega umhverfi.
Svalbarði hefur um árabil verið
vinsæll viðkomustaður skemmti-
ferðaskipa og hefur komum þeirra
fjölgað með hverju árinu. Á heima-
síðu norsku ríkisstjórnarinnar seg-
ir að til að hægt verði að varðveita
Svalbarða sem spennandi viðkomu-
stað í framtíðinni þurfi að koma
böndum á umferðina til að tryggja
varðveislu ósnortinna víðerna þar.
Þó svo að tækjabúnaður og
björgunarþjónusta hafi verið
styrkt verulega á Svalbarða á síð-
ustu árum séu því þó takmörk sett
hverju hægt sé að áorka.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
Fram kemur á síðunni að í ljósi
þróunarinnar hafi álagið verið
metið með tilliti til umhverfis, ör-
yggis og björgunarliðs. Bent er á
að um borð í stórum skemmti-
ferðaskipum geti verið nokkur
þúsund farþegar og með miklar
fjarlægðir í huga séu fyrirbyggj-
andi aðgerðir gegn sjóslysum ár-
angursríkastar.
Í því tilliti verði að líta á um-
hverfi og öryggi í samhengi, t.d. ef
olíuslys verði á þessum slóðum. Þá
sé umhverfið á Svalbarða sér-
staklega viðkvæmt vegna lofts-
lagsbreytinga. Reglur sem nú gildi
hafi verið settar þegar umferðin
var mun minni og loftslagsbreyt-
ingar séu nú komnar á annað stig.
aij@mbl.is
Wikipedia Commin/Benutzer:Hylger
Svalbarði Skemmtiferðaskip við
Longyearbyen fyrir nokkrum árum.
Vilja herða reglur á Svalbarða
Til skoðunar að
takmarka stærð skipa
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Jólanáttföt
Verð 13.980 kr
DRAUMAJÓLAGJÖF
VÖNDUÐ OG HLÝ DÚNÚLPA
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
Til leigu er lítil falleg
stangveiðiá
í skemmtilegu landslagi á Norðurlandi vestra
Til leigu er stangveiðiáin Hallá á Skagaströnd sem ca 18 km
fyrir utan Blönduós.
Árlegur veiðitími er á tímabilinu 20. júní-20. september ár
hvert. Leyfðar eru tvær stangir og veitt er á maðk og flugu
í ánni. Gamalt veiðihús er við ána.
Tilboð óskast í veiðirétt í ánni fyrir 31. desember 2019.
Heimilt er að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Upplýsingar gefur Magnús Guðmannsson Vindhæli,
sími 841 9091/ 452 2738, vindhaeli@simnet.is
Gallabuxna-
leggings
kr. 6.900.-
Str. S-XXL • 2 litir
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Skólavörðustíg 22, 101 Reykjavík | S: 834 1809 | www.boel.is
GLÆSILEGAR HANDTÖSKUR FRÁ
LEÐUR HLIÐARTASKA
stærð 15x21x6 sm
kr. 25.000
boel
boelisland
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarka
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp slands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll
Karlmaður hefur verið dæmdur til
30 daga skilorðsbundinnar fangels-
isvistar fyrir brot gegn almennum
hegningarlögum og barnalögum
með því að hafa veist að dreng í
íþróttahúsi og slegið hann í höfuðið
með flötum lófa með þeim afleið-
ingum að drengurinn hlaut vægan
roða og var aumur í hársverði.
Atvik voru með þeim hætti að
drengnum, sem var í íþróttaleik,
hafði lent saman við leikmann úr
öðru liði inni á vellinum meðan á
leik stóð. Maðurinn kom í kjölfarið
inn á völlinn og sló drenginn.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
segir að maðurinn hafi játað sök en
að hann teldi að eingöngu bæri að
heimfæra háttsemi hans undir
ákvæði barnaverndarlaga, en ekki
almennra hegningarlaga. Nánar
má lesa um dóminn á mbl.is.
Morgunblaðið/Þór
Héraðsdómur Maðurinn sló drenginn í
höfuðið og hlaut sá vægan roða eftir.
Dæmdur fyrir að slá
barn á íþróttaleik