Morgunblaðið - 14.12.2019, Blaðsíða 39
Póst- og fjarskiptastofnun óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings í netöryggissveit PFS.
Netöryggissveitin hefur það hlutverk að fyrirbyggja, draga úr og bregðast við hættu
vegna netárása eða hliðstæðra öryggisatvika í þeim tölvukerfum sem falla undir
starfssvið hennar. Sveitin leitast við að greina atvik af þessu tagi, takmarka útbreiðslu
þeirra og tjón af þeirra völdum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Meðhöndlun öryggisatvika og greining veikleika í tölvu- og netkerfum
• Upplýsingaskipti við þjónustuhóp og aðra ytri aðila
• Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi um öryggi Internetsins
• Ráðgjöf og upplýsingar varðandi öryggismál á netinu
• Aðstoð við uppbyggingu þekkingar í meðhöndlun öryggisatvika hjá innlendum
netöryggishópum
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða á öðrum sviðum ef viðkomandi hefur
haldgóða reynslu á sviði netöryggis
• Sérmenntun eða starfsreynsla á sviði hugbúnaðargerðar og/eða öryggisgreininga er æskileg
• Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa
yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi
• Gerð er krafa um mikla greiningarhæfni, öguð og skipulögð vinnubrögð
• Búa yfir skilningi á internettækni ásamt færni til að meta upplýsingar um áhættu og áhrif
• Geta til að miðla tæknilegum upplýsingum til annarra
• Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og rituð, er áskilin
• Umsækjendur þurfa að geta unnið undir álagi og hafa tamið sér skipulag í vinnubrögðum
PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni.
Umsóknarfrestur er til og með 16. desember nk. Umsjón með starfinu hefur Þorleifur Jónas-
son forstöðumaður tæknideildar. Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu PFS www.pfs.is eða á
Starfatorgi.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Krafist er saka-
vottorðs. Umsækjandi þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun
Ríkislögreglustjóra.
Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar,
nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti og póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði.
Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti og tengd mál. Hjá PFS starfa 27 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, viðskiptalegra
og lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar. Sjá nánari upplýsingar á www.pfs.is
Sérfræðingur í netöryggissveit PFS (CERT-ÍS)
Laus er til umsóknar staða umsjónarmanns fasteigna
við Menntaskólann í Reykjavík. Staðan er laus frá og
með 1. janúar 2020. Um er að ræða 100% starf.
Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf
auk meðmæla.
Hæfni- og menntunarkröfur:
• Lipurð, þjónustulund og stundvísi
• Að geta brugðist við og tekið að sér minniháttar viðhald
• Þekking á hússtjórnarkerfum/loftræstikerfum/tæknikerfum
• Þekking á öryggismálum og eldvörnum
• Að geta brugðist við og tekið að sér minniháttar viðhald
• Íslensku- og enskukunnátta
• Tölvukunnátta sem hæfir starfinu
• Iðnmenntun er æskileg
Menntaskólinn í Reykjavík er elsta menntastofnun landsins og hefur yfir
að ráða nokkrum byggingum og eru nokkrar þeirra undir Minjavernd.
Lóð skólans afmarkast af Lækjargötu, Amtmannsstíg, Þingholtsstræti og
Bókhlöðustíg.
Starfið er fjölbreytt og líflegt. Starfsmenn eru tæplega 80 og
nemendafjöldi er 700.
Launakjör eru samkvæmt stofnanasamningi skólans við SFR.
Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2019. Umsóknum skal
skilað inn á Starfatorg
(www.starfatorg.is). Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet
Siemsen rektor í síma 545 1900 eða í netfangið: rektor@mr.is og Einar
Hreinsson konrektor í síma 545 1900 eða í netfangið: einar@mr.is.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Athygli umsækjenda skal vakin á því að samkvæmt lögum um
framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa
sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII.kafla almennra hegningarlaga og
því er beðið um sakavottorð áður en af ráðningu getur orðið.
Umsjónarmaður fasteigna
Menntaskólans í Reykjavík
Hafnargæslumaður við Grundartangahöfn.
Faxaflóahafnir sf. óska eftir að ráða hafnargæslumann við Grundartangahöfn.
Starfið felst m.a. í aðgangsstjórnun og öryggisgæslu á afgirtu svæði Grundartanga og almennri
hafnargæslu þar.
Viðvera starfsmanns er í vakthúsi Grundartangahafnar og unnið er allan sólarhringinn samvæmt
fyrirliggjandi vaktakerfi.
• Meginverkefni eru aðgangsstjórnun, öryggisgæsla, eftirlit með farmverndarskjölum,
skráning á umferð og farmi og önnur tilfallandi störf tengd starfssviði viðkomandi starfs.
• Hæfniskröfur eru gott líkamlegt og andlegt ástand, góð íslensku-, ensku-, og almenn
tölvukunnátta. Starfsmaður skal sækja námskeið Samgöngustofu um hafnargæslu.
Þar sem í gildi eru ákvæði laga um hafnavernd þá er óskað eftir að umsækjandi leggi fram
hreint sakavottorð með umsókn sinni.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi
síðar en föstudaginn 20. desember n.k.
Nánari upplýsingar um starfið gefur
Bergsteinn Ísleifsson, öryggisfulltrúi, bergsteinn@faxafloahafnir.is
Faxaflóahafnir hafa staðist jafnlaunavottun og hlotið Jafnlaunamerki Velferðarráðuneytis.
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391
capacent.is
Ráðgjafar okkar búa