Morgunblaðið - 14.12.2019, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 14.12.2019, Qupperneq 47
DÆGRADVÖL 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019 því að gista í skálum, birtan, myrkr- ið, stjörnurnar og þögnin er engu líkt. Svo er ég Chelsea-maður og KR-ingur í boltanum.“ Fjölskylda Eiginkona Gunnars er Hrefna Lovísa Hrafnkelsdóttir, f. 6.10. 1964, vinnur við innri markaðs- og starfsmannamál hjá Icepharma. Þau eru búsett í Hafnarfirði. For- eldrar hennar voru hjónin Hrafn- kell Helgason, f. 28.3. 1928, d. 19.10. 2010, yfirlæknir á Vífilsstöðum, og Helga Lovísa Lúðvíksdóttir Kemp, f. 17.6. 1925, d. 8.3. 1990, húsmóðir. Börn Gunnars og Hrefnu eru 1) Katla Lovísa, f. 5.12. 1989, lögmað- ur hjá Logos. Eiginmaður hennar er Örn Erlendsson, f. 1989, verk- fræðingur hjá Lýsku. Þau eru bú- sett í Hafnarfirði. 2) Bogi Agnar, f. 13.3. 1993, lögfræðingur með meist- aragráðu í fjármálastjórnun. Kær- asta hans er Rósa Stefánsdóttir, f. 1993, ljósmyndari, þau eru búsett í Hafnarfirði. Systkini Gunnars eru Sigurður Bragi, f. 3.2. 1958, verkfræðingur og framkvæmdastjóri, býr í Garðabæ en starfar í Kína; Ásgeir Heimir, f. 24.7. 1962, viðskiptafræðingur og sviðsstjóri fjármálasviðs RSK, bú- settur í Reykjavík; Hanna Guðlaug, f. 28.8. 1969, listfræðingur, búsett í Garðabæ; og Bryndís, f. 30.7. 1972, viðskiptafræðingur hjá Vinnuvernd, búsett í Reykjavík. Foreldrar Gunnars: Hjónin Guð- mundur Ásgeirsson, f. 29.8. 1927, d. 16.11. 2006, bókari í Reykjavík og Neskaupstað, og Jóhanna Dahl- mann, f. 18.10.1933, húsfreyja og fyrrverandi bankastarfsmaður, bjó í Reykjavík og Neskaupstað en nú búsett í Reykjavík. Úr frændgarði Gunnars Karls Guðmundssonar Gunnar Karl Guðmundsson Bragi Ásgeirsson listmálari Fjölnir Bragason húðfl úrari og listamaður Jóhanna Þórdís Jónsdóttir húsfreyja á Tannstaðabakka í Hrútafi rði Jón Einarsson bóndi og söðlasmiður á Tannstaðabakka, afi Jóns var Jón Jónsson Búðaböðull, konunglegur böðull sem fékk millinafnið Flænger. Hann fl engdi meðal annarra landshornafl akkarann og listamanninn Sölva Helgason Guðlaug Jónsdóttir Dahlmann skrifstofumaður á Ísafi rði, síðar í Reykjavík Jóhanna Dahlmann húsfreyja og bankastarfsmaður á Ísafi rði, í Reykjavík og Neskaupstað Sigurður Dahlmann umdæmisstjóri Pósts og síma á Ísafi rði Ingibjörg Jónsdóttir Dahlmann húsfreyja í Reykjavík Jón Jónsson Dahlmann ljósmyndari í Reykjavík Guðrún Einarsdóttir húsfreyja á Svertingsstöðum í Miðfi rði Skúli Guðmundsson kaupfélagsstjóri, þingmaður og ráðherra Sigríður Rögnvaldsdóttir húsfreyja í Reykjavík Sveinn Ólafsson verkamaður í Reykjavík Karólína Sveinbjörg Sveinsdóttir húsfreyja í Reykjavík Sveinn Ásgeirsson hagfræðingur, stofnandi Neytendasamtakanna og útvarpsmaður Ásgeir Ásgeirsson skrifstofustjóri í Reykjavík Ólína Bergljót Guðmundsdóttir húsfreyja á Fróðá Ásgeir Jóhann Þórðarson óðalsbóndi á Fróðá í Fróðársveit, Snæf. Guðmundur Agnar Ásgeirsson bókari í Reykjavík og Neskaupstað „ÉG HEF ÞAÐ Á TILFINNINGUNNI AÐ ÞETTA EIGI EFTIR AÐ VERÐA LANGUR DAGUR.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að flytja honum góðu fréttirnar fyrst. VELKOMIN Í „hryllingsleikhús grettis” ÞESSI SÝNING VAR Í BOÐI „hryllings leikhúss grettis” SMÁKÖKURNAR ERU BÚNAR ÞJÓNNINN YKKAR KEMUR INNAN SKAMMS – HANN ER UPPTEKINN HJÁ AFAR RAUSNARLEGUM GESTI! HÆ! ÉG ELSKA ÞIG – MAMMA OG PABBI VILJA HITTA ÞIG! „NÚ LÍST MÉR Á. VENJULEGA ÞRÍFUR FÓLK EKKI UPP EFTIR SIG ÞEGAR ÞAÐ HEFUR MISST EITTHVAÐ ÚT ÚR SÉR.” Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Húsbóndanum trú og trygg. Talin seint mun kona dygg. Stundum er við stjórnmál kennd. Stundum milli bæja send. „Var að koma frá Danmörku og ekki laus við áhrifin, það sést á lausninni,“ segir Helgi R. Ein- arsson: Á meðan þú á fætur ferð og „frokostinum“ lýkur í Mogga þínum „måske“ sérð mismunandi tíkur. Guðrún Bjarnadóttir leysir gát- una þannig: Heima slefar tíkin trygg. Tík með dólgi stundum hrygg. Pólar oft í pólitík parkera bíltík í Vík. Sigmar Ingason á þessa lausn: Húsbóndanum trúföst víst og trygg er tíkin. Talin vart mun kona dygg ef kallast tíkin. Pen er ei á pöllum þingsins pólitíkin. Prúð í fasi sífellt skokkar senditíkin. Knútur H. Ólafsson svarar: Hundtíkin er húsbóndanum alltaf trygg, en hinsvegar er konutíkin varla dygg. Stundum eru stjórnmál kölluð pólitík, og stundum fór á milli bæja senditík. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Húsbóndanum tík er trú. Tík er laus á kostum sú. Pólitík hér iðkuð er. Af bæ senditíkin fer. Þá er limra: Háleggur halti á bíkini höktir af stað út með víkinni raulandi lag hvern laugardag í göngutúrinn með tíkinni. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Núna hrollur í mér er, oft er kalt í desember, þýðir lítt um það að fást, þá að fást við gátu er skást: Land, sem vatni liggur að. Lítt sá vinur kemst úr stað. Seggur kenndur sýslu við. Á sveitabæjum þekkt nafnið. Þessi limra flaut með lausn Helga R, Einarssonar, – „Gæði kaup- mennskunnar“: Nú boðskap út skal breiða, svo börn ei fyllist leiða: Aðventu á flest má fá og í febrúar það greiða! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Líka bítur sú tíkin sem undir liggur V E R T Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum. - því að sumt virkar betur saman Stundum þarf tvo til
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.