Morgunblaðið - 14.12.2019, Qupperneq 48
48 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019
Þýskaland
Hoffenheim – Augsburg ......................... 2:4
Alfreð Finnbogason hjá Augsburg er frá
keppni vegna meiðsla.
Staðan:
Mönchengladb. 14 10 1 3 30:16 31
RB Leipzig 14 9 3 2 39:16 30
Dortmund 14 7 5 2 33:19 26
Schalke 14 7 4 3 25:18 25
Freiburg 14 7 4 3 24:17 25
Leverkusen 14 7 4 3 22:18 25
Bayern M. 14 7 3 4 35:20 24
Hoffenheim 15 6 3 6 21:27 21
Wolfsburg 14 5 5 4 15:14 20
Augsburg 15 5 5 5 24:28 20
Union Berlin 14 6 1 7 18:19 19
E.Frankfurt 14 5 3 6 24:22 18
Mainz 14 5 0 9 20:34 15
Werder Bremen 14 3 5 6 22:29 14
Hertha Berlín 14 3 3 8 20:29 12
Düsseldorf 14 3 3 8 16:29 12
Paderborn 14 2 2 10 17:32 8
Köln 14 2 2 10 12:30 8
Frakkland
Lille – Montpellier.................................... 2:1
B-deild:
Sochaux – Grenoble ................................ 1:1
Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í
leikmannahópi Grenoble.
Holland
B-deild:
Oss – Excelsior......................................... 0:2
Elías Már Ómarsson lék fyrstu 75 mín-
úturnar með Excelsior.
England
B-deild:
Charlton – Hull......................................... 2:2
Spánn
Alavés – Leganés...................................... 1:1
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Framhús: Fram – Afturelding .............. L16
Kórinn: HK – ÍR..................................... L16
Kaplakriki: FH – ÍBV............................. S16
TM-höllin: Stjarnan – Haukar............... S16
KA-heimilið: KA – Fjölnir...................... S17
Hleðsluhöllin: Selfoss – Valur........... S19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Sauðárkrókur: Tindastóll – ÍR.............. L16
Blue-höllin: Keflavík b – Grindavík b ... L16
Dalhús: Fjölnir – Hamar ....................... L16
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót kvenna, Hertz-deildin:
Akureyri: SA – Reykjavík................. L16.45
SKYLMINGAR
Íslandsmótið með höggsverði fyrir börn,
unglinga og fullorðna fer fram í Skylming-
armiðstöðinni í Laugardal í dag og á morg-
un. Nánar á www.skylmingar.is
Enski boltinn á Síminn Sport
Liverpool – Watford .......................... L12.30
Chelsea – Bournemouth ...........(mbl.is) L15
Southampton – West Ham ............... L17:30
Manchester United – Everton............... S14
Arsenal – Manchester City ............... S16.30
UM HELGINA!
HANDBOLTI
Danmörk
Aalborg – Aarhus ................................ 28:26
Janus Daði Smárason skoraði 2 mörk
fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon er
frá vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoð-
arþjálfari liðsins.
Bjerringbro/Silkeborg – Lemvig...... 31:30
Þráinn Orri Jónsson skoraði ekki fyrir
Bjerringbro/Silkeborg.
Kolding – SönderjyskE....................... 24:33
Ólafur Gústafsson og Árni Bragi Eyj-
ólfsson skoruðu ekki fyrir Kolding.
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 1
mark fyrir SönderjyskE en Sveinn Jó-
hannsson ekkert.
Frakkland
B-deild:
Sélestat – Cesson-Rennes................... 24:32
Geir Guðmundsson skoraði ekki fyrir
Cesson-Rennes.
Ungverjaland
Pick Szeged – Ferencváros................ 38:25
Stefán Rafn Sigurmannsson lék ekki
með Pick Szeged vegna meiðsla.
Austurríki
Aon Fivers – West Wien...................... 33:34
Guðmundur Hólmar lék ekki með West
Wien vegna meiðsla.
HM kvenna í Japan
Undanúrslit:
Rússland – Holland .............................. 32:33
Noregur – Spánn ................................. 22:28
Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg.
Leikur um 5. sætið:
Serbía – Svartfjallaland....................... 26:28
Leikur um 7. sætið:
Þýskaland – Svíþjóð ............................. 24:35
HM KVENNA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Flestir virtust reikna með því að
Noregur og Rússland myndu leika
til úrslita um heimsmeistaratitil
kvenna í Japan á morgun. Vissulega
varð niðurstaðan sú að Þórir Her-
geirsson og hans konur í norska lið-
inu mæta þeim rússnesku en þar
verða bronsverðlaunin í húfi en ekki
gullverðlaunin.
Spánverjar og Hollendingar komu
inn í undanúrslit sem „litlu liðin“ en
mætast nú í úrslitaleiknum sem
hefst klukkan 11.30 að íslenskum
tíma í Kumamoto á morgun.
Þar með er brotið blað í sögunni
því hvorug þjóðin hefur orðið heims-
meistari í kvennaflokki. Holland
fékk silfurverðlaunin árið 2015 eftir
tap gegn Noregi í úrslitaleik, 31:23,
og Spánn hefur aldrei áður leikið til
úrslita. Besti árangur Spánverja til
þessa er þriðja sætið á HM í Brasilíu
árið 2011 og fjórða sætið í næstu
keppni á undan, í Kína árið 2009.
Holland lagði Rússland að velli,
33:32, í mögnuðum spennutrylli þar
sem staðan var jöfn á flestum tölum
frá upphafi til enda. Leikstjórnand-
inn Estavana Polman var í aðal-
hlutverki hjá Hollendingum og skor-
aði níu mörk, Lois Abbingh gerði
átta, en það var Laura van der
Heijden sem skoraði sigurmarkið
nokkrum sekúndum fyrir leikslok.
Þórir átti engin svör
Spánverjar slógu norska liðið út af
laginu í seinni hálfleik í síðari undan-
úrslitaleiknum eftir að staðan hafði
verið 13:13 í hálfleik. Spánverjar
náðu sex marka forskoti um miðjan
síðari hálfleik og Þórir og hans lið
áttu engin svör við því. Lokatölur
urðu 28:22, afar sannfærandi
frammistaða hjá spænska liðinu sem
virtist ekki líklegt til stórræða eftir
tíu marka skell gegn Rússum í loka-
umferð milliriðilsins.
Svíar burstuðu Þjóðverja, 35:24, í
leik um sjöunda sætið sem réð jafn-
framt úrslitum í keppninni um sæti í
undankeppni Ólympíuleikanna. Sví-
ar fara þangað en Þýskaland, sem
virtist á tímabili á leið í undan-
úrslitin, situr eftir með sárt ennið og
á enga möguleika á að komast á Ól-
ympíuleikana í Tókýó.
Sögulegur úr-
slitaleikur í Japan
Þórir og Noregur leika um bronsið
AFP
Úrslitaleikur Spænsku landsliðskonurnar fagna glæsilegum sigri á Norð-
mönnum í Kumamoto og þær mæta Hollendingum á morgun.
Afturelding hefur ráðið Guðmund
Helga Pálsson sem þjálfara kvenna-
liðs félagsins í handbolta. Guð-
mundur tekur við af Haraldi Þor-
varðarsyni sem var sagt upp
störfum á dögunum. Guðmundur
var rekinn frá Fram, þar sem hann
þjálfaði karlaliðið frá 2016, í síðasta
mánuði. Afturelding kom upp úr 1.
deildinni á síðustu leiktíð og er liðið
án stiga eftir ellefu leiki, sjö stigum
á eftir ÍBV sem er þar fyrir ofan.
Fyrsti leikurinn undir stjórn
Guðmundar er á útivelli gegn HK
hinn 18. janúar næstkomandi.
Guðmundur í
Mosfellsbæinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Afturelding Guðmundur Helgi
Pálsson tekur við liði á botninum.
Góð frammistaða Elvars Más Frið-
rikssonar með sænska körfubolta-
liðinu Borås hélt áfram í gær-
kvöldi. Elvar skoraði 19 stig, gaf
11 stoðsendingar og tók eitt frá-
kast er liðið vann Luleå í toppslag,
98:88. Bæði lið eru með 24 stig í
tveimur efstu sætunum en Elvar
og félagar hafa leikið einum leik
minna.
Elvar hefur skilað tvennu í fjór-
um af síðustu sjö leikjum. Hann
hefur skorað 17 stig, tekið 3 frá-
köst og gefið 8 stoðsendingar að
meðaltali á leiktíðinni.
Með fjórar tvenn-
ur í sjö leikjum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tvenna Elvar Már Friðriksson er að
spila afar vel með Borås í Svíþjóð.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Arnór Ingvi Traustason, landsliðs-
maður í knattspyrnu, er annað árið
í röð kominn í 32 liða úrslit Evr-
ópudeildarinnar með Malmö frá
Svíþjóð eins og fjallað var um í
blaðinu í gær. Hann er nú kominn í
hóp leikjahæstu íslensku knatt-
spyrnumannanna í Evrópudeild-
inni.
Frá því núverandi keppnisfyr-
irkomulag var tekið upp árið 2004
hafa 32 íslenskir knattspyrnumenn
spilað í Evrópudeildinni, þ.e. í riðla-
keppninni og útsláttarkeppninni
sem síðan tekur við. Arnór Ingvi er
kominn í 4.-5. sætið yfir þá leikja-
hæstu.
Jóhann Berg Guðmundsson
hefur spilað flesta leiki en hann lék
26 leiki í Evrópudeildinni með AZ
Alkmaar á árunum 2010 til 2014 og
komst tvisvar með liðinu í 8-liða úr-
slit. Hann er líka markahæsti Ís-
lendingurinn í keppninni með 4
mörk.
Ragnar Sigurðsson lék 23 leiki
með FC Köbenhavn og Krasnodar á
árunum 2011 til 2016 og skorað eitt
mark.
Gylfi Þór Sigurðsson lék 21
leik með Tottenham og Everton á
árunum 2012-2018 og skorað 3
mörk. Hann komst í 8-liða úrslit
með Tottenham árið 2013 og skor-
aði þá í bæði 16-liða og 8-liða úrslit-
unum.
Rúrik Gíslason lék 18 leiki með
OB og FC Köbenhavn á árunum
2010 til 2015 og skorað eitt mark.
Arnór Ingvi Traustason er
kominn með 18 leiki fyrir Rapid
Vín og Malmö frá 2016 og bíður eft-
ir fyrsta markinu. Malmö leikur tvo
leiki i 32ja liða úrslitunum í febrúar
og hann getur þá orðið sá fjórði til
að spila 20 leiki.
Grétar Rafn Steinsson er næst-
ur með 17 leiki og eitt mark fyrir
AZ Alkmaar á árunum 2005 til 2008
en hann er sá eini af þeim leikja-
hæstu sem er hættur. Grétar lagði
skóna á hilluna árið 2013.
Dregið á mánudaginn
Dregið verður til 32ja liða úr-
slitanna í Evrópudeildinni á mánu-
daginn. Þar sem Malmö vann sinn
riðil fer liðið í sterkari styrk-
leikaflokkinn og getur því ekki
mætt Ajax, Salzburg, Inter Mílanó,
Benfica, Arsenal, Manchester Unit-
ed, Celtic, Espanyol, Porto, Ist-
anbul Basaksehir, Gent, LASK
Linz, Basel, Braga og Sevilla, ásamt
því að geta ekki dregist aftur gegn
FC Köbenhavn.
Mögulegir mótherjar Arnórs og
félagar eru APOEL Nikósía, Ge-
tafe, Sporting Lissabon, CFR Cluj,
Eintracht Frankfurt, Rangers, Lu-
dogorets, Wolfsburg, Roma, Wolv-
es, AZ Alkmaar, Leverkusen, Shak-
htar Donetsk, Olympiacos og Club
Brugge.
Malmö mætir til leiks með nýj-
an þjálfara eftir áramót því Uwe
Rösler sagði starfi sínu lausu í gær-
morgun.
Arnór Ingvi orðinn einn fimm
leikjahæstu Íslendinganna
AFP
Evrópudeild Arnór Ingvi Trausta-
son er kominn í 32ja liða úrslit.
Enska knattspyrnufélagið Liverpool
tilkynnti í gærmorgun að Jürgen
Klopp knattspyrnustjóri hefði skrif-
að undir nýjan samning við félagið
sem gildir til ársins 2024, eða í hálft
fimmta ár. Klopp, sem er 52 ára
gamall Þjóðverji, hefur verið við
stjórnvölinn hjá Liverpool síðan í
október 2015 en hann stýrði áður
þýsku liðunum Dortmund og Mainz,
hvoru um sig í sjö ár. Liðið hefur
verið á mikilli siglingu frá vorinu
2018 en það hefur frá þeim tíma að-
eins tapað einu sinni í 55 leikjum í
úrvalsdeildinni, er nú með átta stiga
forskot í deildinni, og varð Evrópu-
meistari vorið 2019.
Klopp í Liver-
pool næstu ár
AFP
Liverpool Jürgen Klopp er með lið-
ið í góðri stöðu heima og erlendis.