Morgunblaðið - 14.12.2019, Page 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þessi plata byrjaði að mótast um
svipað leyti og ég var að vinna að síð-
ustu plötu sem ég gaf út og nefnist
Margt býr í þokunni,“ segir Snorri
Helgason um barnaplötuna Bland í
poka sem komin er út. Platan inni-
heldur 11 frumsamin lög og er gefin
út ásamt myndskreyttum bæklingi
sem inniheldur alla söngtextana og
gítarhljóma, en myndirnar gerði
Elín Elísabet Einarsdóttir.
„Margt býr í þokunni byggðist á
íslensku þjóðsögunum og ég las mér
mikið til í rannsóknarvinnu fyrir þá
plötu. Þjóðsagnaheimurinn er mjög
myrkur og óhugnanlegur með öllum
sínum morðum, draugagangi, lim-
lestingum og viðbjóði,“ segir Snorri
og rifjar upp að hann hafi unnið þá
plötu mikið til í skorpum í Galtarvita
við Súgandafjörð. „Ég var mjög ein-
angraður í þessum vinnubúðum mín-
um þar. Til að viðhalda geðheilsunni
í því myrkri öllu fór ég að vinna lög
af allt öðrum togum. Þegar ég var
búinn að sökkva mér ofan í þjóðsög-
urnar í nokkra klukkutíma var gott
að henda því frá mér og snúa mér að
þessum lögum. Það má því segja að
barnaplatan hafi orðið til í hjáverk-
um við þjóðsagnaplötuna.“
Byrjaði með sænskugríni
En áhugavert að heyra. Fyrirfram
hefði auðveldlega mátt halda að
barnaplatan væri rökrétt framhald
af því að þú eignaðist barn fyrir tæp-
um tveimur árum. En það var greini-
lega ekki svo.
„Nei, þegar maður er nýbúinn að
eignast barn hefur maður engan
tíma til að semja einhver lög. Þetta
var næstum allt samið áður en Edda,
dóttir mín, fæddist, enda er ég bara
búinn að vera ógeðslega þreyttur
síðustu tvö árin og varla samið
neitt,“ segir Snorri.
Miðað við yrkisefni plötunnar
mætti auðveldlega draga þá ályktun
að þú þekktir raunir og áskoranir
foreldra af eigin raun. Ég nefni bara
lagið „Kringlubarnið“ sem dæmi þar
sem barn kvartar undan því að þurfa
að fara með mömmu sína í búðir.
„Þótt ég hafi ekki verið orðinn for-
eldri sjálfur á þeim tíma hef ég fylgst
með vinum mínum og ættingjum,
sem eiga ung börn, í alls konar að-
stæðum. Ég gat því auðveldlega sett
mig í þessi spor – alveg eins og ég
gat sett mig í spor þess að vera 18.
aldar þjóðsagnavera. Þetta snýst allt
um að setja sig í réttar stellingar.“
Það ríkir mikill húmor í lögunum
og textanum. Var það meðvituð
ákvörðun? Áttu þér mögulega ein-
hverjar fyrirmyndir í þeim efnum?
„Ég held að hugmyndin að Bland í
poka hafi kviknað þegar ég var mjög
mikið að hlusta á Hrekkjusvínin á
árunum 2012-2013. Af einhverjum
ástæðum heyrði ég þá plötu aldrei
sem barn,“ segir Snorri og tekur
fram að hann hafi alltaf verið mikill
Spilverksaðdáandi. „Það er svo gam-
an að heyra hversu mikill metnaður
er lagður í lagasmíðarnar á Hrekkju-
svínunum og augljóst hversu mikið
er búið að pæla í flóknum útfærslum
og hljóðheiminum. Textar Péturs
Gunnarssonar eru svo skemmtilegir.
Það var því meðvituð hugsun að
fanga þessa tegund tónlistar. Ég hef
alltaf verið hrifinn af því sem Bretar
nefna „camp music“ og þýða mætti
sem ýkta gleðitónlist,“ segir Snorri
og bendir á að ýmis lög Bítlanna,
Blur og Kinks falli þar undir. „Allt
hefur þetta veitt mér innblástur. Í
raun má segja að Bland í poka sé
miklu nær því sem ég var að gera
með Sprengjuhöllinni en það sem ég
hef verið að semja sem sóló-
listamaður. Ég hef svo gaman af því
að semja popplög.“
Þú ert með sannkallað stórskota-
lið í hópi flytjenda. Má í því sam-
hengi nefna Bubba, Sigríði Thorla-
cius, Teit Magnússon, Katrínu
Halldóru Sigurðardóttur, Valdimar
Guðmundsson og Halldóru Geir-
harðsdóttur. Hvernig valdir þú fólk
til samstarfs?
„Ég er svo heppin að þetta eru allt
góðir vinir mínir sem ég gat leitað
til,“ segir Sorri og nefnir í því sam-
hengi Guðmund Óskar Guðmunds-
son sem stjórnaði upptökunum.
„Halldóra Geirharðs er vinkona
Sögu, konunnar minnar. Ég var
ákveðinn í því að Saga ætti að syngja
rödd barnsins í „Kringlubarninu“ og
þá vantaði okkur mömmu. Í gegnum
tíðina hafa margir haldið að þær
væru mæðgur,“ segir Snorri og
bendir á að Steiney, dóttir Halldóru,
sé mjög góð vinkona Sögu. „Mér
fannst því skemmtilegt að fá Sögu og
Halldóru til að syngja mæðgurnar.“
Hvernig kom Hugleikur Dagsson
inn í hóp flytjenda?
„Hann, líkt og fleiri, heimsótti mig
út í Galtarvita. Við sátum þar við
varðeld seint um kvöld og ég var að
spila lagið á gítar þegar hann byrjaði
allt í einu að syngja þennan texta á
sænsku og þar með varð lagið til.
Hann bjó í Svíþjóð sem barn og við
erum oft með eitthvert sænskugrín,“
segir Snorri og tekur fram að „Lilla
gumman“ hafi verið fyrsta lagið á
plötunni sem varð til. „Það var út frá
þessu lagi sem ég fékk hugmyndina
að því að gera barnaplötu.“
Leikhúsvinnan skemmtileg
Hyggstu fylgja plötunni eftir með
tónleikum?
„Ég er búinn að halda eina tón-
leika í Iðnó undir lok nóvember. Þá
náði ég að koma saman öllu bandinu
og hóaði í þá söngvara sem komust.
Þetta var svo ógeðslega gaman að
við munum hiklaust endurtaka leik-
inn einhvern sunnudag í janúar og
jafnvel febrúar á nýju ári.“
Hvað er annars á döfinni hjá þér?
„Kristín Eysteinsdóttir borgar-
leikhússtjóri leitaði til mín og langar
að gerð verði barnasýning byggð á
lögum plötunnar á næsta leikári.
Saga og Dóri DNA munu semja
handritið og Pétur Ármannsson leik-
stýra,“ segir Snorri sem vann síðast
með Pétri í Club Romantica þar sem
Snorri samdi tónlistina og sá um tón-
listarflutninginn á sýningum. „Mér
fannst það mjög skemmtileg vinna,“
segir Snorri sem reiknar með að
koma að tónlistarflutningi nýju sýn-
ingarinnar.
„Annars er það að frétta að ég
stend vaktina á barnum Röntgen
sem ég opnaði á Hverfisgötu 12 fyrir
aðeins viku. Það er klassískt að allt
gerist á sama tíma. Útgáfan á plöt-
unni dróst sem og afhendingin á hús-
næðinu, þannig að skyndilega gerð-
ist allt á sömu tveimur vikunum.
Nóvember hvarf vegna anna bara í
móðu. Vegna þessa ætla ég að reyna
að taka hlutina eins rólega og ég get í
desember. Sem einyrki í tónlistar-
bransanum þarf ég ávallt að passa
upp á að halda mörgum boltum á
lofti í einu. Ég er alltaf með lager af
músík sem mig langar að taka upp,
en ætla aðeins að leyfa mér smá
hvíld áður en ég fer aftur af stað í
upptökur. Það er því nóg að gera.“
Morgunblaðið/Eggert
Nóg „Ég er alltaf með lager af músík sem mig langar að taka upp,“ segir tónlistarmaðurinn Snorri Helgason.
Leið til að viðhalda geðheilsunni
Snorri Helgason sendir frá sér plötuna Bland í poka sem verður að sviðsverki á næsta leikári
Jólatónleikar verða haldnir í
Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð
þriðjudaginn 17. desember kl. 20.
Á efnisskránni er falleg jóla- og
aðventutónlist eftir meðal annars
Sigvalda Kaldalóns og Adolphe
Adam, ásamt Vetrinum eftir Ant-
onio Vivaldi og þáttum úr Jólaóra-
tóríunni eftir Johann Sebastian
Bach.
Flytjendur á tónleikunum eru
Aðalheiður Margrét Gunnarsdóttir
sópran og Þórunn Elfa Stefáns-
dóttir mezzósópran, Rut Ingólfs-
dóttir fiðluleikari og Guðjón Hall-
dór Óskarsson orgelleikari.
Kirkjukórar Breiðabólstaðar-
prestakalls syngja og fá kirkju-
gestir að taka þátt í söngnum. Að-
gangur er ókeypis.
Fjöldasöngur Kirkjukórar Breiðabólstaðarprestakalls syngja.
Flytja fallega jóla-
og aðventutónlist
Jólatónleikar í Breiðabólstaðarkirkju
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Takið 1-2 töflur eftir þörfum
Frutin hentar einnig barnshafandi konum.
Leyfðu þér að njóta!
Frutin er náttúruleg
lausn við brjóstsviða