Morgunblaðið - 14.12.2019, Blaðsíða 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Fyrir fjórum árum var Guðmundur
Pétursson beðinn að koma fram á
tónleikum með sinfóníuhljómsveit
og flytja þar tvo konserta, annan
fyrir klassískan gítar og hinn fyrir
rafmagnsgítar. Það vafðist ekki fyr-
ir honum að velja konsert fyrir
klassískan gítar, en rafmagnsgítar-
konsertinn stóð í honum, enda
fannst honum þeir flestir frekar
þunnur þrettándi. Á endanum
leysti hann málið með því að skrifa
eigin konsert, ákvað að laga hljóm-
sveitina frekar að sínum eigin stíl.
„Þetta er annað af tvennu; ann-
aðhvort er þetta einhver gítarhetja
sem búið er að setja fiðlur í kring-
um, og verður hálfhlægilegt, eða þá
að það mætir einhver maður með
eitthvert sánd sem passar misvel
inn í hljóðheiminn og spilar eitt-
hvað sem er skrifað og hefur enga
sérstaka persónulega tengingu við
það.
Ég hugsaði því með mér: ég held
bara áfram að gera það sem ég er
vanur að gera, ég geri bara mína
músík en nota sinfóníuna eins og
band. Þetta er ekki konsert í gala-
skilningnum, einleikarasýning,
þetta er meira bræðingur af gít-
arnum sem er í forgrunni og svo
hljómsveitinni.“
– Það er oft erfitt að láta raf-
magnsgítar hljóma vel með strengj-
um.
„Það getur verið það en raf-
magnsgítarinn hefur svo marga
möguleika, ef maður hugsar verkið
sem liti sem eiga að flútta saman í
staðinn fyrir nótnaval.
Víst var þetta erfitt en það var
gaman að gera þetta. Af því þetta
var spilað tvisvar, frumflutt í Hofi
og spilað aftur í Norðurlandahúsinu
í Færeyjum, fékk ég tíma til að
endurskoða verkið. Þegar menn
eru nýbúnir að semja lag í rokkinu
og spila það fyrst opinberlega þá
eru menn rétt að byrja að sjá
möguleikana, en í klassíkinni er það
lokapunkturinn þegar maður heyrir
það loksins allt í gegn.
Svo er yfirleitt takmarkaður æf-
ingatími og þá fer allur tíminn í að
æfa erfiðu staðina en einföldu stað-
irnir eru lítið æfðir en svo eru þeir
kannski megnið af verkinu og mús-
íklega mest djúsí.“
– Verkið er flutt tvisvar og svo
gefur þú það út.
„Eftir þessa tvo flutninga ákvað
ég að ég þyrfti að koma þessu út.
Ég kem úr þannig heimi að maður
endar með því að gera plötu eða
festa niður í staðinn fyrir að þetta
liggi bara á nótum á einhverju
safni. Ég fattaði það líka að ef verk-
ið ætti að hljóma eins og ég vildi
þyrfti svo mikinn æfingatíma og
bestu spilarana og ég myndi aldrei
koma því saman. Ég ákvað því að
fara í stúdíó og gefa mér tíma til að
taka konsertinn upp í bútum.“
– Breyttist konsertinn mikið við
þá vinnu?
„Ég myndi ekki segja að ég hafi
breytt miklu en það eru alltaf ein-
hverjar breytingar því þá fær mað-
ur smásjána á allt. Í upptöku er
hægt að breyta alls konar hlutum,
finna rétta tempóið og réttu tempó-
breytingarnar og svo framvegis.
Svo fær maður líka nánd við hvern
hljóðfærahóp og miklu meiri upp-
lýsingar frá hljóðfæraleikurunum
sjálfum um hvað hefði mátt gera
betur fyrir þá og þá er hægt að
breyta því sem er kannski ekki
mikið til umræðu á sinfóníu-
æfingum.“
– Þú gefur plötuna út á ýmsu
formi.
„Platan er til á Spotify en það eru
margir sem byrja ekki að hlusta
fyrr en þeir fá vínilinn í hendurnar.
Það verður að vera eitthvert pró-
dúkt og hvort sem margir nota það
eða ekki þá er einhver yfirlýsing í
plötunni sem er ekki til staðar ann-
ars.“
Rafmagnaður
gítarbræðingur
Guðmundur Pétursson gefur
út á plötu konsert sinn fyrir raf-
magnsgítar og sinfóníuhljómsveit
Morgunblaðið/Eggert
Litir Guðmundur Péturs-
son samdi rafgítarkonsert
og gefur hann út.
RAYMOND WEIL söluaðilar:
Reykjavík: GÞ - skartgripir & úr, Bankastræti 12, s: 551-4007
Meba, Kringlunni, s: 553-1199 Meba, Smáralind, s: 555-7711
Kópavogur: Klukkan, Hamraborg 10, s: 554 4320
Hafnarfjörður: Úr & Gull, Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar, s: 565-4666
Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður, Hafnargötu 49, s: 421-5757
Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður, Glerártorgi, s: 462-2509
Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður, Austurvegi 11, s: 482-1433