Morgunblaðið - 14.12.2019, Side 64
Sviðslistahópurinn Flækja sýnir
jólaleikrit fyrir börn á Borgar-
bókasafninu í Sólheimum í dag,
laugardag, kl. 13. „Það og Hvað eru
komin í sérlegt jólaskap, en skilja
þó ekki út á hvað jólin ganga. Þau
eru því sérstaklega forvitin að hitta
hressa krakka og finna kannski
þennan jólaanda sem allir eru að
tala um. Persónurnar spjalla við
áhorfendur, lenda í alls kyns rugl-
ingi varðandi þessi jól, syngja lög
og dansa,“ segir í tilkynningu.
Það og Hvað í jólaskapi
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 348. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Flestir virtust reikna með því að
Noregur og Rússland myndu leika
til úrslita um heimsmeistaratitil
kvenna í Japan á morgun. Spán-
verjar og Hollendingar komu inn í
undanúrslit sem „litlu liðin“ en
mætast nú í úrslitaleiknum sem
hefst klukkan 11.30 í Kumamoto á
morgun. Noregur og Rússland leika
um bronsið. »48
Litlu liðin mætast í
úrslitaleiknum á HM
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Færeyingurinn Ásvald Simonsen er
mikill Íslandsvinur og hefur selt
gervigras á marga fótboltavelli á Ís-
landi undanfarin 30 ár. Hann á marga
vini og kunningja hérlendis, er meðal
annars félagi í Skötuklúbbi Emils eða
Íslenska skötuklúbbnum, öðru nafni
The Icelandic Skate Club, sem Emil
Guðmundsson og Sigurður Magnús-
son stofnuðu 1971, og verður sem fyrr
í skötuveislu félagsins, sem að þessu
sinni verður á Akranesi í dag.
Ásvald kom fyrst til Íslands sem
varaformaður Handknattleiks-
sambands Færeyja 1978. Hann hefur
verið tíður gestur vegna verkefna í
sambandi við gervigrasvelli undan-
farin 30 ár og forystumenn í knatt-
spyrnuhreyfingunni hafa því gjarnan
kallað hann gervigrasmanninn. Hann
kom til landsins í fyrradag, hefur hitt
viðskiptavini og fær sér skötu í dag.
„Skagamenn buðu mér í Skötuklúbb-
inn á sínum tíma og síðan hef ég aldr-
ei misst af skötuveislunni. Mér finnst
vel kæst skata mjög góð, eins sterk
og mögulegt er, og félagsskapurinn
er ekki af verri endanum.“
Hjónin Ásvald og Marianne Laid-
erz reka eigið fyrirtæki í Kaup-
mannahöfn og selja gervigras á velli,
einkum á Norðurlöndum, en einnig í
Þýskalandi og Suður-Ameríku. „Ég
hef selt gervigras á nokkur þúsund
velli, þar af á alla sparkvelli KSÍ víða
um land, um 130 samtals, og um 30
velli í fullri stærð á Íslandi,“ segir
hann.
Öflugur í gervigrasinu
Ásvald er mikill félagsmaður og vel
kynntur. Um 250 manns mættu í 60
ára afmælisveislu Ásvalds fyrir
skömmu og þar af um 60 utan Fær-
eyja, meðal annars frá Íslandi. Kvöld-
ið eftir hélt hann árlega „heldri
manna“ jólaveislu og var því tveggja
daga veisla hjá mörgum. „Hópur við-
skiptamanna í Færeyjum og víðar
hefur hist árlega síðan 2004, oftast í
Færeyjum en þrisvar í Reykjavík og
einu sinni í Bergen,“ segir Ásvald.
„Mennirnir vilja helst hittast í Fær-
eyjum og þá er þetta sambland af
skemmtun og fræðslu. Ég fer með þá
í fyrirtæki og sveitarfélög og svo ger-
um við okkur glaðan dag.“
Fyrsti gervigrasvöllurinn á Íslandi,
í Laugardalnum þar sem Þróttur
leikur heimaleiki sína, var tekinn í
notkun í janúar 1985, eða fyrir tæp-
lega 35 árum. Ári seinna byrjaði Ás-
vald að selja gervigras á fótboltavelli
fyrir þýska fyrirtækið Balsam, fyrst á
völlinn í Þórshöfn í Færeyjum sama
ár. 1989 tók Ásvald við rekstri banda-
rísks fyrirtækis og eitt fyrsta verk-
efnið var að selja gervigras á Kópa-
vogsvöll. Balsham keypti fyrirtækið
1991 og þá færði Ásvald sig um set.
Hann vann fyrir þýska fyrirtækið Po-
lytan sem svæðisstjóri fyrir Dan-
mörku, Færeyjar, Noreg, Ísland og
Grænland 1995-2015, en hefur síðan
rekið eigið fyrirtæki, Laiderz Sport,
ásamt eiginkonu sinni. Sjö manns eru
í fullu starfi hjá fyrirtækinu í Kaup-
mannahöfn og Noregi en allt að 24 á
sumrin. „Áður sá ég aðeins um að
selja gervigrasið en nú sjáum við um
að leggja það líka,“ segir Ásvald.
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Með Skagamönnum í skötuveislu Frá vinstri: Ásgeir Ásgeirsson, Leó Ragnarsson, Þorgeir Jósefsson, Færeying-
urinn Ásvald Simonsen, Gísli Gíslason, formaður Íslenska skötuklúbbsins, og Gylfi Þórðarson.
Sleppir ekki skötunni
Færeyingurinn Ásvald Simonsen hefur verið í Íslenska
skötuklúbbnum í áratug Gervigras er hans ær og kýr
Aðrir tónleikar tónleikaraðarinnar
Verpa eggjum verða haldnir í Mengi
í kvöld. Þar koma fram Ásta Fanney
Sigurðardóttir, Einar Torfi Einars-
son, Hafdís Bjarnadóttir, Kristín
Ómarsdóttir og Berglind María
Tómasdóttir, sem er listrænn
stjórnandi raðarinnar. Bjóða þau
upp á tónlist, hljóð og orð á tónleik-
unum sem verða með jólalegu ívafi.
Tónleikaröðin Verpa eggjum, sem
stofnuð var haustið 2018, býður
upp á tónlist sem dansar á mörkum
listgreina. Húsið opnað
kl. 20.30.
Verpa eggjum með
jólarokk í Mengi í kvöld
FLOTTAR
UMGJARÐIR
KOMNAR Í HÚS
VELKOMIN Í
SJÓNMÆLINGU
Hamraborg 10, Kópavogi | Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9:30–18