Fréttablaðið - 08.02.2020, Page 6
Orlofsnefnd húsmæðra
í Reykjavík
Fundur verður haldinn til að kynna ferðir
ársins 2020 á Gullhömrum (í Grafaholti), við
Vínlandsleið, Þjóðhildarstíg 2, 113 Reykjavík
Miðvikudaginn 12 . febr. 2020 kl. 19:30
Kaffiveitingar, verð kr. 3.200,-
Upplýsingar um ferðir ársins 2020 er hægt að finna á
http://orlofrvk.123.is. Hægt er að nálgast upplýsingar og bækling
á skrifstofunni að Hverfisgötu 69, á mánudögum, þriðjudögum og
miðvikudögum, milli klukkan 16:00 til 17:30, í mars og apríl 2020
og í síma 551-2617/864-2617 á sama tíma.
,,Sérhver kona, sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án
launagreiðslu fyrir það starf, á rétt á að sækja um orlof.“
Nefndin
11. febrúar - Fræðsluerindi
Skyndilegur barnsmissir
Hefst kl. 20:00
Sveinbjörn Bjarnason flytur erindi um skyndilegan
barnsmissi í Grafarvogskirkju.
Boðið verður upp á skráningu í stuðningshópa
eftir fyrirlesturinn.
Allir velkomnir.
Stjórn Birtu landssamtaka
netfang: birtalandssamtok@gmail.com
Sogavegi 3 • Höfðabakka 1 • Sími 555 2800
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these
carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok.
Approved and OK New proof please
DATE:
SIGNATURE:
/Ingenjörsgatan 7-9
Box 814, 251 08 Helsingborg
Tel. vx. 042-24 73 00
info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se
14
0
280
Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina
OPIÐLAUGARDAG
10-15
HUMARSÚPA
STÓR HUMAR
Útgjöld Akureyrarbæjar vegna öldrunarheimila hafa numið um 1,5 milljörðum undanfarin fimm ár.
AKUREYRI Rekstur A-hluta Akur-
eyrarbæjar hefur verið þungur
undanfarin ár. Árið 2017 var rekstr-
artapið um 504 milljónir króna en
árið 2018 var tapið 383 milljónir
króna. Tapreksturinn varð tilefni
til þess að eftirlitsnefnd um fjármál
sveitarfélaga sendi Akureyrarbæ
bréf í nóvemberlok í fyrra þar sem
óskað var eftir viðbrögðum bæjar-
ins vegna fjárhagsáætlunar og árs-
reikninga sveitarfélagsins.
Í lok janúar skrifaði Ásthildur
Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar-
bæjar, svarbréf til eftirlitsnefndar-
innar. Í svarinu kemur meðal ann-
ars fram að bærinn borgar árlega
hundruð milljóna króna með verk-
efnum sem það innir af hendi fyrir
ríkið. Mest munar um rekstur öldr-
unarheimila bæjarins en útgjöld
Akureyrarbæjar nema um 1,5 millj-
örðum króna undanfarin fimm ár. Í
bréfinu kemur fram að reksturinn
hafi verið tekinn út af óháðum aðil-
um og niðurstaðan hafi verið sú að
engu sé ofgert í rekstrinum.
Þá reynist f leiri verkefni bæjar-
félaginu dýr. Ljóst er að halli á
rekstri málefna fatlaðra árið 2019
verður um 100 milljónir króna en
málaf lokkurinn er afar umfangs-
mikill og kostnaðarsamur fyrir
bæjarfélagið, enda er mikill fjöldi
fatlaðra einstaklinga búsettur á
Akureyri.
Einnig hefur Akureyrarbær séð
um skilaskyldu fyrir Landsbóka-
safnið en sá kostnaður er 43 millj-
ónir króna árlega.
Ekki hafi fengist nema 12 millj-
óna króna framlag frá ríkinu og því
sé óljóst hvort bærinn sé tilbúinn að
halda áfram með verkefnið.
Þá hafi bærinn lengi fengið greitt
með rekstri Hlíðarskóla sem er
sérúrræði fyrir börn með hegðunar-
vanda, líkt og Klettaskóli í Reykja-
vík. Framlag ríkisins var um 12
milljónir króna fram til ársins 2016
en þá var skrúfað fyrir fjárstreymið.
Til samanburðar er árlegur rekstur
skólans um 120 milljónir króna.
„Þetta eru nokkur verkefni sem
við sjáum um fyrir ríkið gegn
greiðslum sem duga ekki fyrir
rekstrinum. Þar er rekstur öldr-
unarheimilanna langþyngsti bagg-
inn. Það er alveg ljóst af okkar hálfu
að svona getur þetta ekki gengið
áfram. Ef ríkið kemur ekki með
aukið fjármagn, þá þurfum við að
endurskoða rekstur ýmissa úrræða
sem við innum af hendi fyrir ríkið,“
segir Ásthildur.
Hún segir að fundað hafi verið
með Svandísi Svavarsdóttur heil-
brigðisráðherra á dögunum og
hafi ráðherrann sýnt sjónarmiðum
bæjarins skilning. Ásthildur kveðst
því bjartsýn á að viðunandi lausn á
málinu finnist.
bjornth@frettabladid.is
Rekstur fyrir ríkið að
sliga Akureyrarbæ
Undanfarin fimm ár hefur Akureyrarbær þurft að greiða um 1,5 milljarða
króna með rekstri öldrunarheimila bæjarins umfram framlög ríkisins. Bæjar-
stjórinn vill aukin ríkisframlög ella verði bærinn að segja sig frá verkefnum.
Það er alveg ljóst af
okkar hálfu að
svona getur þetta ekki
gengið áfram.
Ásthildur Sturlu-
dóttir, bæjarstjóri
Akureyrarbæjar
ÞORLÁKSHÖFN Bæjarráð Ölfuss vill
að fulltrúar hafnarinnar í Þorláks-
höfn og sveitarfélagsins fái sæti í
starfshópi á vegum Alþingis um
uppbyggingu í höfninni. Áhugi sé á
að sigla farþegaferju að utan til Þor-
lákshafnar.
Átta þingmenn úr Suðurlands-
kjördæmi standa að þingsálykt-
unartillögu um að fela samgöngu-
og sveitarstjórnarráðherra að skipa
starfshóp til að móta stefnu um
hvernig standa megi að innviða-
uppbyggingu hafnarinnar í Þor-
lákshöfn svo að höfnin geti vaxið
sem inn- og útflutningshöfn. Bæta á
öryggi og dýpi í og við innsiglingu í
höfnina og starfshópurinn á að gera
tillögur varðandi markaðssetningu
hennar innan lands og utan.
„Við vinnuna verði lögð áhersla
á staðsetningu hafnarinnar með
tilliti til styttri siglingatíma milli
Evrópu og Íslands fyrir farm- og
farþegaf lutninga og sem einstak-
lega áhugaverðan kost sem inn- og
útf lutningshöfn með nægt land-
rými í 40–60 mínútna aksturs-
fjarlægð frá stærstu mörkuðum
og þéttbýlustu svæðum landsins
og alþjóðaf lugvellinum í Kef la-
vík,“ segir í fundargerð bæjarráðs
Ölfuss um efni þingsályktunartil-
lögunnar.
„Bæjarráð minnir á að Sveitar-
félagið Ölfus hefur þegar látið vinna
forhönnun á breytingum sem gera
myndi höfninni mögulegt að taka
á móti skipum sem eru 180 metra
löng og 34 metra breið en vitað er
af áhuga á að sigla slíkum farþega-
ferjum reglulega milli Þorláks-
hafnar og hafna bæði í Bretlandi og
meginlandi Evrópu,“ segir í bókun
bæjarráðsins. – gar
Segja áhuga á farþegasiglingum milli
Þorlákshafnar og hafna í Evrópu
Talsverð uppbygging hefur verið í
Þorlákshöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð